Dagur - 15.06.1990, Side 11

Dagur - 15.06.1990, Side 11
 Föstudagur 15. júní 1990 - DAGUR - 11 2. flokkur: KA vann Víking 1:0 KA sigraði Víking 1:0 í íslandsmóti 2. flokks á KA- vellinum sl. mánudag. Það var Tómas Hermannsson sem skoraði mark KA eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik. Víkingar voru meira með boltann í leiknum en sköpuðu sér lítið af færum. KA-menn fengu Hins vegar töluvert af færum sem ekki tókst að nýta. Jafntefli og tap hjá Völsungum Lið Völsunga í 2. fl. karla í knattspyrnu lék tvo leiki um sl. helgi í íslandsmótinu. Fyrri leikurinn var í Borgar- nesi þar sem heimamenn í Skallagrím höfðu betur 2:1 með mörkum Birgis Guð- björnssonar en mark Völs- unga gerði f>ór Stefánsson. Seinni leikurinn var gegn F.H. í Hafnarfirði, þar varð jafn- tefli 1:1 eftir hörkuleik. Mark F.H. gerði Magnús Sigmunds- son en Þór Stefánsson skoraði aftur fyrir Völsunga. óhú Stórsigur ÍBVá Húsavík Lcikið var í 2. flokki karla á Jslandsmótinu í knattspyrnu á Húsavík á miðvikudag í sl. viku. Völsungar fcngu Vcstmann- eyinga í heimsókn og er óhætt að fullyrða að ekki hafa gest- irnir þurft að kvarta yfir gest- risni hcimamanna. Í.B.V hafði algjöra yfirburði í leikn- urn og sýndi oft á tíðum góða knattspyrnu en heimamönn- um líkaði greinilega mótlætið illa og náðu sér aldrei verulega á strik. Þegar að yfir lauk höfðu Eyjamenn gert níu mörk, en heimamenn ekkert. Mörk Í.B.V gerðu: Martin Eyjólfsson fjögur, Haraldur Bergvinsson þrjú og þeir Sigurður Ingason og Stein- grímur Jóhannesson eitt hvor. óhú 2. flokkur kvenna: Öruggur sigurKA áÞór KA sigraði Þór 5:2 í 2. flokki kvenna í fyrrakvöld. Leikurinn fór fram á Þórs- vellinum. KA-stúlkur voru tvímæla- laust sterkari aðilinn í leiknum en þrátt fyrir það voru Þórsar- ar fyrri til að skora. KA skor- aði stðan fjögur mörk fyrir hlé og liðin bættu hvort sínu markinu við í seinni hálfleik. Ingibjörg Harpa Ólafsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir KA og Hildur Símonardóttir og Sig- rún Kristjánsdóttir eitt hvor. Brynhildur Smáradóttir og Harpa Frímannsdóttir skor- uðu mörk Þórs. UMSE: 100 þátttakendur í Bændadagshlaupi Bændadagshlaup UMSE fór fram að Melum í Hörgárdal 7. júní sl. Tæplega 100 manns tóku þátt í hlaupinu og kepptu í 5 aldursflokkum karla og kvenna. 7 félög sendu kepp- endur í hlaupið og í stiga- keppni milli þeirra sigraði Ungmennafélag Svarfdæla á Dalvík með 65 stig. 10 ára og yngri og 11-12 ára hlupu rúman 1 km í hlaupinu, 13- 14 ára og 15-16 ára stúlkur hlupu rúma 2 km, 15-16 ára sveinar og konur 17 ára og eldri hlupu rúma 3 km og karlar eldri en 16 ára hlupu 6 km. Helstu úrslit urðu þessi: Hnokkar 10 ára og yngri 1. Sveinn B. Sveinsson, R. 4:22 2. Sigurður Ó. Konráðsson, R. . 4:25 3. Atli V. Björnsson, Sv. 4:35 Tátur 10 ára og yngri 1. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, SM 4:37 2. Ágústa Magnúsdóttir, Sv. 4:42 3. Ingibjörg Ragnarsdóttir, R. 4:47 Strákar 11-12 ára 1. Örlygur Helgason, Á. 8:43 2. Karl Ó. Leifsson, Á. 8:59 3. Daníel Jóhannsson, P.Sv. 9:01 Stelpur 11-12 ára 1. Berglind Gunnarsdóttir, Sv. 9:05 2. Gunnur Ýr Stefánsdóttir, Á. 9:14 3. Sigurlaug Níelsdóttir, F. 9:15 Piltar 13-14 ára 1. Sigurður B. Sigurðsson, Þ.Sv. 10:13 2. Anton Ingvason, Sv. 13:49 3. Gunnlaugur Sævarsson, R. 13:49 Telpur 13-14 ára 1. Hafdís Heiðarsdóttir, Sv. 9:12 2. Ingibjörg Ö. Stefánsdóttir, Á. 9:15 3. Svanhildur Arnardóttir, Á. 9:42 Sveinar 15-16 ára 1. Brynjar M. Ottósson, Sv. 14:31 2. Sveinn Brynjólfsson, Sv. 14:32 Meyjar 15-16 ára 1. Maríanna Hansen, Æ. 16:55 2. Heiðrún Jóhannsdóttir, Þ.Sv. 17:07 Karlar 1. Sigurgeir Svavarsson, Sv. 23:50 2. Eggert Ólafsson, Æ. 25:40 3. Daníel Fortes, Sv. 26:50 Konur 1. Sigríður Gunnarsdóttir, Á. 15:32 Heildarstig 1. Umf. Svarfdæla 65 stig 2. Árroðinn 37 stig 3. Þorsteinn Svörfuður 19 stig Mikið um að vera á Jaðarsvelli: Stigamót, Lacoste og Gullsmiðabikar Mikið verður um að vera á golfvellinum að Jaðri á Akur- eyri um helgina. Á laugardag og sunnudag fer fram stigamót unglinga 18 ára og yngri og verða flestir bestu kylfíngar landsins i þeim aldursflokki meðal keppenda. Á laugardag fer Lacoste-mótið fram og á Bikarkeppni kvenna: KSgaf gegn KA Ekkert verður af leik KA og KS í 1. umferð Bikarkeppni kvenna sem fram átti að fara á KA-velli í kvöld. KS-stúlkur sáu sér af ein- hverjum ástæðum ekki fært að mæta og hafa gefið leikinn og KA dæmist því sigur. sunnudag verður leikið um Gullsmiðabikarinn. Stigamót unglinga hefst á laug- ardagsmorguninn og þátttökurétt hafa kylfingar sem eru 18 ára eða yngri og hafa 10 eða minna í forgjöf. Leiknar verða 36 holur með og án forgjafar. Flestir, ef ekki allir, bestu kylfingar lands- ins mæta til leiks og er búist við um 30 kylfingum til Akureyrar í tengslum við mótið. Styrktaraðili þess er Lacoste á íslandi. Lacoste kemur reyndar meira við sögu því á laugardeginum fer hið árlega Lacoste-mót fram. Fyrirtækið gefur öll aukaverð- laun í það mót. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Á sunnudeginum verður svo barist um Gullsmiðabikarinn. Það er Gullsmíðastofa Sigtryggs og Péturs sem styrkir mótið og gefur öll verðlaun í það. Leiknar verða 18 holur með og án forgjaf- ar. ^ 2. flokkur: Ágæt byrjun Þórsara 2. flokkur Þórs lék tvo fyrstu leiki sína í íslandsmótinu í knattspyrnu um síðustu helgi. Á laugardag mætti liðið Val og lauk þeim leik með 1:1 jafn- tefli og daginn eftir sigruðu Þórsarar Stjörnuna 2:1. Báðir leikirnir fóru fram syðra. Leikurinn gegn Val var mikill baráttuleikur en þó ágætlega leikinn. Valur náði forystunni en Guðmundur Benediktsson jafn- aði í síðari hálfleik. Þórsarar pressuðu mikið þá og áttu nokk- ur færi sem fóru í súginn. Jafn- teflið var nokkuð sanngjarnt en Þórsarar hefðu þó átt að geta unnið. Þórsarar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum gegn Stjörn- unni og náðu forystunni með marki Ingólfs Guðmundssonar. Stjörnumenn jöfnuðu en Axel Vatnsdal skoraði sigurmark Þórs þegar 3 mínútur voru til leiks- loka. Sigurjón Magnússon, þjálfari og leikmaður S\l, lék vel gegn Magna en það dugði ekki til. 4. deild: Magni hafði betur í mikhim „rokleik“ - sigraði SM 3:1 í Hörgárdal Magni sigraði SM 3:1 þegar liðin mættust í E-riðli 4. deild- ar íslandsmótsins í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Leikurinn fór fram á heimavelli SM að Melum í Hörgárdal við heldur slæmar aðstæður, á vondum velli og í hífandi roki, og bar leikurinn merki þess. Magnamenn léku á undan rok- inu í fyrri hálfleik og voru sterk- ari aðilinn. Þeir náðu góðri for- ystu með mörkum Reiniars Helgasonar, Kristjáns Kristjáns- sonar og Jóns Illugasonar en Heimir Finnsson minnkaði mun- inn fyrir SM. í síðari hálfleik var komið að SM-mönnum að leika undan rok- Bikarkeppni, 2. flokkur: KA vann ÍBK í sögu- legum leik KA sigraði ÍBK 9:8 í söguleik- um leik í Bikarkeppni 2. flokks um síðustu helgi. Staðan var 5:5 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því þurfti vítakeppni til að knýja fram úrslit. KA-menn komust í 4:2 en Keflvíkingar jöfnuðu og komust yfir áður en KA-menn jöfnuðu úr vítaspyrnu. Þórði Guðjónssyni var vikið af leikvelli þegar 15 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma þannig að KA-menn voru einum færri það sem eftir var. í vítakeppninni brenndu Kefl- víkingar tvívegis af þannig að KA-menn höfðu tryggt sér sigur- inn áður en þeir höfðu tekið fimm spyrnur. Þórður Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir KA og Skapti Ingimarsson og Halldór Kristins- son eitt hvor. í vítakeppninni skoruðu Skapti, Birgir Friðriks- son, Arnar Arngrímsson og Höskuldur Þórhallsson. inu en þeim tókst ekki að skapa sér færi þrátt fyrir að þeir ættu nokkur skot að marki Magna og fleiri uröu mörkin ekki. Hjá Magna léku Þorsteinn Friðriksson og Reimar Helgason vel en Sigurjón Magnússon, þjálfari SM, var bestur heima- manna. íþróttir Knattspyrna Föstudagur Bikarkeppni kvenna: Þór - Þróttur N. kl. 20 2. deild: UBK - Leiítur kl. 20 Tindastóll - ÍR kl. 20 Fylkir - KS kl. 20 i. dcild: Þróttur R. - Völsungur kl. 20 Þróttur N. - Datvík kl. 20 BÍ - TBA kl. 20 Reynir - Einherji kl. 20 4. deild E: SM - Magni kl. 20 Laugardagur 4. deild D: Þrymur - Hvöt kl. 14 Neisti - Geislinn kl. 14 4. deild E: HSÞ-b - UMSE-b kl. 14 Narft - Austri kl. 14 Golf Föstudagur Húsavík: Kynningarmót - Reyndur/órcyndur. Mývatnssveit: Kísiliójumót. Laugardagur Mývalnssveit: Kístliöjumót (frh.). Akureyri: Stigamót unglinga. Lacostc. Blunduós: Paramót. Skagaströnd: Firmamót Sunnudagur Akureyri: Stigamót unglinga (frh.). Gullsmiðabikarinn. Sauöarkrókur: Firmamót. Frjálsar íþróttir: Mcistaramót íslands - aðalhluti. Laug- ardag, sunnudag og mánudag i Mos- fcllsbs.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.