Dagur - 15.06.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 15. júní 1990 - DAGUR - 7
„Spennandi að sjá drauminn verða að veruleika"
- segir Jón Hlöðver Áskelsson
„Yíst er spennandi að
sjá þennan draum verða
að veruleika. Miðað við
tíma og aðstæður hefur
þessi undirbúningur
gengið vonum framar
en það er líka rétt að
fram komi að margir
hafa lagt hönd á
plóginn. í gegnum
undirbúninginn hefur
berlega komið í ljós að
á þessu er lifandi áhugi
og hvar sem við höfum
þurft að leita hefur
mætt okkur sérstakur
velvilji,“ segir Jón
Hlöðver Áskelsson sem
annað kvöld fagnar 25
ára stúdentsafmæli sínu
í góðra vina hópi í
íþróttahöllinni á Akur-
eyri. Hugmyndin að
þessari 700 manna mat-
arveislu kviknaði í hópi
25 ára stúdenta og segja
má að Jón Hlöðver sé
sá maður sem hvað
mest hefur unnið að
undirbúningnum.
Samkvæmt síðustu tölum um
skráningu verða unt 700 manns í
mat eða umtalsvert fleiri en gert
var ráð fyrir þegar undirbúningur
hátíðarinnar hófst. Áhugi á há-
tíðinni hefur náð langt út fyrir
raðir hinna hefðbundnu afmælis-
árganga og segir Jón að gera
megi ráð fyrir að til bæjarins
komi fólk í hundraðatali um
helgina gagngert til að fara á
þessa hátíð.
„Ég met stöðuna þannig að hér
sé á ferðinni þarft framtak.
Greinilega hefur verið þörft fyrir
hátíð af þessu tagi fyrir útskrif-
aða stúdenta frá skóíanum. J>að
er líka fullkominn skilningur
allra sem hlut eiga að máli að
þessi hátíð sé hluti af þeim hátíð-
arbrag sem er á bænum í kringum
17. júní. Og það er ekki lítið
atriði fyrir Akureyringa að kom-
ið sé upp hátíð í bænum sem
dregur að hundruð manns. Gildi
þess fyrir bæjarlífið er rnikið, það
getur hver heilvita maður séð.“
Sé vikið að dagskránni annað
kvöld þá er hún fyrir nokkru orð-
in fullmótuð. Ætlunin er að opna
húsið fyrir gesti kl. 18 og þá verð-
ur boðið upp á fordrykk. Borð-
hald verður um kl. 19.30 en á
undan því tekur veislustjórinn
Hermann Arason við stjórninni,
Jóhann Sigurjónsson, '• skóla-
meistari, flytur ávarp og lesin
verður kveðja frá Tryggva Gísla-
syni, sem nú er að ljúka starfs-
leyfi sem skólameistari MA.
Tónlistin skipar veglegan sess
þegar á líður hátíðina. Jóhannes
Vigfússon og kona hans Barbara
Vigfússon flytja lög eftir Gerswin
en Jóhannes er einmitt einn 25
Framkvæmdanefndin úr hópi 25 ára stúdentanna samankomin með fána með merki hátíðarinnar. Frá vinstri: Birgir
Karlsson, Eiríkur Jónsson, Jón Hlöðver Áskelsson, Ólafur H. Oddsson og Snorri Pétursson. Mynd: ehb
Veislumatur MA-hátíðarinnar
eldaður í tveimur eldhúsum í bænum:
Grísalundir, sjávarréttir og
triffle á matseðli kvöldsins
„Jú, það er rétt að ekki hefur
verið haidin jafn stór matar-
veisla þar sem boðið er upp á
heitan mat. Við verðum með
stóra hitaofna í Höllinni en
maturinn verður eldaður í
tveimur eldhúsum úti í bæ,“
segir Stefán Gunnlaugsson hjá
Bautanum á Akureyri um und-
irbúning MA-hátíðarinnar
annað kvöld.
Stefán segir að um 12 manns
verði við matreiðslu fyrir þessa
veislu en f húsinu sjái um 30
manna lið um framreiðsluna.
Fleiri starfsmenn verða á vegum
Bautans í húsinu og segir Stefán
að í heild telji starfsliðið við há-
tíðina um 55-60 manns.
Á matseðli kvöldsins er heitur
aðalréttur og tveir kaldir réttir.
Matargestum verður boðið upp á
kaldan sjávarréttadisk sem á
verður rækjukæfa, gratíneruð
lúða og tveir laxaréttir. í aðalrétt
verður boðið upp á innbakaðar
grísalundir með koníakssósu og í
eftirrétt verður triffle.
„Undirbúningur í húsinu er
kominn í fullan gang og verður
unnið í húsinu fram að hátíðinni.
í húsinu er auðvitað fæst af því
sem nota þarf við hátíðina og því
þarf að fá ýmislegt lánað og
kaupa annað. Auðvitað eru ann-
markar á því að koma upp svona
veislu í íþróttahúsi en það hefur
líka þá kosti að þrengslunum er
ekki fyrir að fara. Við getum ekki
eldað á staðnum og verðum því
að flytja matinn að en með góðri
skipulagningu þá er þetta vel
framkvæmanlegt," segir Stefán.
Stórar matarveislur hafa verið
haldnar í þessu húsi á síðustu
árum en veislan annað kvöld er
að því leyti sérstök að boðið
verður upp á heitan aðalrétt.
Stefán segir að menn njóti góðs
af reynslunni af þessum veislum
við undirbúning MA-hátíðarinnar
„Það er viss spenningur í kring-
um þetta. Veislan er orðin
nokkru stærri en áætlað var í
upphafi en við trúum ekki öðru
en þetta gangi allt vel upp,“ sagði
Stefán. JOH
Skógræktarfélag Eyfirðinga ★ Gróðrarstöðin í Kjama
Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10-17.
/ r„__________________. Jtíftb Lcitið upplýsinga
i simum
24047 og 24599.
★ Póstsendum
um allt land.
Kvartett MA-inga fyrir 25 árum. Þessir heiðursmenn ætla að blása rykinu af
samstarfinu annað kvöld og taka lagið á MA-hátíðinni. Sem fyrr leikur Ingi-
mar Eydal undir. Aftari röð frá vinstri: Haukur Heiðar Ingólfsson, Jón
Hlöðver Áskelsson, Jóhannes Vigússon, og Valtýr Sigurðsson. Sitjandi eru
Ingimar Eydal og Friðgerður Samúelsdóttir.
ára stúdenta. Síðar um kvöldið
tekur hann þátt í öðru skemmti-
atriði þegar fram kemur kvartett
úr hópi 25 ára stúdenta sem
endurvakinn er frá menntaskóla-
árunum. Auk hans skipa kvart-
ettinn þeir Jón Hlöðver Áskels-
son, Haukur Heiðar Ingólfsson
og Valtýr Sigurðsson. í framhald-
inu ætla þeir Haukur Heiðar og
Birgir Karlsson að endurvekja
gamla stemmningu frá Hótel
KEA og að þeirra spili loknu
taka við fulltrúar eins árs stúd-
enta og 50 ára stúdenta með gam-
anmál. Segja má að þegar líður
að miðnætti færist dansfiðringur í
salinn þar sem leikur 20 manna
strengja- og blásarasveit en eftir
leik hennar tekur við hljómsveit
Atla Örvarssonar og leikur til
miðnættis. Finnur Eydal og
hljómsveit hans taka síðan við
stjórninni og sjá um dansstjórn-
ina fram til kl. 02 þegar dans-
leiknum lýkur. Dagskráin er því
viðamikil.
Jón Hlöðver segist ekki líta
þessa hátíð þeim augum að ætl-
unin sé að sökkva sér ofan í for-
tíðina. „Nei, við erum að
skemmta okkur í nútímanum.
Þarna verða jafnt ungir sem
gamlir að skemmta sér saman og
það eitt út af fyrir sig er mikil
reynsla fyrir fólk að uppgötva
hve við erum öll tengd þrátt fyrir
aldursmuninn. Ég held að okkur
reynist ekki vandamál að ná upp
góðri stemmningu í þessum
breiða hópi,“ sagði Jón Hlöðver.
JÓH
íií
m
iliIISf
*i{
HOTEL KEA
Miðaldamenn
ásamt Hermanni Jónssyni
harmonikuleikara í rífandi stuði
laugardagskvöldið 16. júní.
Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200
SULNABERG
sumar er opið frá kl. 08.00 til kl. 22.00.
★
HÖFÐABERG
veitingasalur II. hæð.
NÝ SÉRRÉTTASEÐILL
IL
Hótel KEA
fyrir vel heppnaða veislu
f