Dagur - 15.06.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 15.06.1990, Blaðsíða 9
Til sölu trilla 2,2 tonn að stærð. Báturinn er úr tré. Uppl. í síma 96-61765. Flugfiskur til sölu. 18 feta flugfiskur til sölu. Uppl. i síma 96-22765. Veiðivörur - Veiðivörur! Höfum tekið fram veiðivörurnar! Eigum takmarkað magn af veiðivör- um á verði frá 1989. Verið velkomin. Raftækni, Brekkugötu 7, sími 26383. Garðúðun! Tek að mér úðun gegn maðki og lús. Fagvinna. Uppl. í síma 21765 eða 26719 eftir kl. 18.00. Baldur Gunnlaugsson. Ég er 13 ára og langar til að passa barn 1/2 daginn. Ég er í síma 22813, Magnea. Ég er stelpa á 15. ári og bráð- vantar vinnu í sumar. Allt kemur til greina (er vön börnum). Uppl. í síma 24764 eftir kl. 19.00. Stjörnukort, persónulýsing, fram- tíðarkort, samskiptakort, slökunar- tónlist og úrval heilsubóka. Sendum í póstkröfu samdægurs. Stjörnuspekistöðin, Gunnlaugur Guðmundsson, Aðalstræti 9, 101 Reykjavík, simi 91-10377. Til sölu 13 hesta hús ásamt hlöðu. Uppl. í síma 23756 milli kl. 22.00 og 23.00 Til sölu er hesthús í Breiðholti. Til sölu er hesthús með 8-10 básum ásamt hlöðu. Uppl. gefur Sveinn Magnússon í síma 22450 milli kl. 17.00 og 20.00. Til sölu Honda MT árg. ’82. Vel með farinn og lítur vel út. Einnig til sölu BBC master compact tölva og fjöldi forrita fylgir. Uppl. í síma 96-61778. Til sölu: Timburbjálkar 40 stk. 4“x4“x3.30m, verð 30.000,- Stelpnareiðhjól 3ja ára í lamasessi verð 1500.- Hálft barnagolfsett verð 8.000.- Onkyo hljómtækjaskápur verð 2.000.- Uppl. í síma 23525 eftir kl. 17.00. Til sölu lokuð ferðakerra, öll teppalögð að innan. Uppl. í síma 96-25687. Til sölu Black og Decker raf- magnssláttuvél og orf. Einnig Winther kvenreiðhjól (sem nýtt). Uppl. í síma 27369. EUMENIA þvottavélar! Litlar vélar, stórar vélar með eða án þurrkara, þó allar nettar og létt- byggðar. Komið og skoðið þessar frábæru þvottavélar, eða hringiö og fáið upp- lýsingar. Raftækni, Brekkugötu 7, simi 26383. Akureyrarprestakall. Lesniessa verður í Akureyrarkirkju Þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 11 f.h. Þ.H. Helgistund verður á íþróttavellinum kl. 2 e.h. séra Þórhallur Höskulds- son flytur hugvekju kór Akureyrar- kirkju syngur. Stjórnandi Björn Steinar Sólbergsson. Möðruvallaprestakall: Þjóðhátíðardaginn 17. júní verður sameiginleg guðsþjónusta fyrir allt prestakallið í Möðruvallakirkju og hefst hún kl. 11.00. Ath. breyttan messutíma. Organisti verður Birgir Helgason og kórar allra kirknanna í prestakallinu koma saman og syngja við guðs- þjónustuna. Sóknarprestur. Nonnahús er opið daglega frá kl. 13.00 til 17.00 frá 4. júní til 1. september. Athugið Minningarspjöld Sambands íslenskra kristniboðsfélaga last hjá: Pedromyndum Hafnarstræti 98. .Sig- t íöi Freystcinsdóttur Þingvallastræti 2<S. Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi 24 og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð 17. Munið niinningarspjöld Kvenl'élags- ins „Framtíðin1-. Spjöldin fást á Dvalarheimilunum Hlíð og Skjaldarvík, hjá Margréti Kröýcr Helgamagrastræti 9. Blónta- búðinni Akri Kaupangi og Bókabúð Jónasar. Athúgið Minningarspjöld Styrktarsjóðs Kristnesspítala fást í Bókvali og á skrifstofu Kristnesspítala. Minningarkort Akureyrarkirkju fást í Bókvali og Blóntabúðinni Akri í Kaupangi. Minningakort Hjarta- og æða- vcrndarfélags Akureyrar og ná- grennis, fást í Bókabúð Jónasar, Bókvali og Möppudýrinu Sunnuhlíð. Minningarspjöld Minningarsjóðs Kvenfélagsins Hlífar fást í Bókabúð Jónasar. Möppudýrinu Sunnuhlíð. Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu F.S.A. Minningarkort Sjálfsbjargar Akur- eyri fást hjá eftirtöldum aðilum: Bókabúð Jónasar, Bókval, Akri Kaupangi, Blómahúsinu Glerárgötu 28 og Sjálfsbjörgu Bugðusíðu 1. Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól- borgar, selur minningarspjöld til stuðnings málefna þroskaheftra. Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð og Blómahúsinu við Glerárgötu. Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöidum stöðuin: Hjá Ásrúnu Pálsdóttur Skaröshlíð 16 a, Guðrúnu Sigurðardóttur Langholti 13 (Rammagerðinni), Judith Sveinsdóttur Langholti 14, í Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlíð, versluninni Bókval, í Glerárkirkju hjá húsverði, Blómahúsinu Glerár- götu, Bókabúð Jónasar og Blóma- búöinni Akri Kaupangi. Minningarkort Landssamtaka hjartasjúklinga fást i öllum böka- búðum á Akureyri. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA A NORÐURLANDI EYSTRA Bílstjóri óskast til sumarafleysinga Svæöisstjórn málefna fatlaöra Noröurlandi eystra óskar eftir aö ráöa bílstjóra til sumarafleysinga. Ráöningartími 6-7 vikur. Umsækjendur þurfa aö hafa rútupróf. Upplýsingar eru veittar í síma 26960 kl. 10.00- 15.00. Matráðskona óskast til starfa sem fyrst í verslunarhúsi félagsins, Hafnarstræti 91. Upplýsingar gefur Árni Magnússon, fulltrúi, aöal- skrifstofu KEA. Kaupfélag Eyfirðinga Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Álftagerði, Skagafirði, verður jarðsungin trá Víðimýrarkirkju laugardaginn 16. júní kl. 14.00. Ólafur Pétursson, Regína Jóhannesdóttir, Sigfús Pétursson, Pétur Pétursson, Elísabet Ögmundsdóttir, Herdís Pétursdóttir, Páll Leósson, Gísli Pétursson, Ingibjörg Sigfúsdóttir, Óskar Pétursson, Jónína Sveinbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ,-vociv :as- o Föstudagur 15. júní 1990 - DAGUR - 9 Tilkynning til launa- skattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiöenda skal vakin á því aö eindagi launaskatts fyrir maímánuð er 15. júní n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttar- vexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber að geiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Fteykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskatts- skýrslu í þríriti. Fjármálaráöuneytið. Auglýsing frá sjávarútvegsráðuneytinu Útgerðarmenn og eigendur smábáta minni en 10 brl. Athugið! í samræmi við nýsett lög nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, er koma til framkvæmda um næstu áramót, vinnur sjávarútvegsráðuneytið nú að undirbúningi að út- hlutun veiðiheimilda til báta minni en 10 brl. í því sambandi vill ráðuneytið vekja athygli á eftirfarandi. 1. Skráning báta. Samkvæmt nýju lögunum þurfa nú eigendur allra báta, 10 brl. og minni, sem sækja um leyfi til veiða í atvinnu- skyni, að vera skráðir á skipaskrá eða sérstaka skrá Siglingamálastofnunar ríkisins fyrir báta styttri en 6 m. Þá þurfa eigendur þeirra báta sem ekki hafa veiðileyfi frá ráðuneytinu samkvæmt núgildandi lögum um stjórn fiskveiða (nr. 3 1988) eða eru ekki á skrá Siglingamála- stofnunar að óska eftir skráningu báta sinna hjá Sigl- ingamálastofnun fyrir 18. júní 1990. Beiðni um skrán- ingu þarf að fylgja eignarheimild, smíðalýsing og teikn- ingar af viðkomandi bát. 2. Nýir bátar í smíðum. Eigendur ófullgerðra báta sem smíði hefur verið hafin á (skipsbolur upp byggður) fyrir gildistöku laganna 18. maí 1990 þurfa að óska eftir skráningu þeirra hjá Sigl- ingamálastofnun fyrir 18. júní 1990. Þessir bátar þurfa að vera fullbúnir og cðlast fullgitt haffærisskírteini fyrir 18. ágúst 1990 til að koma til greina við úthlutun veiði- heimilda. Eigendur báta sem eru í smíðum erlendis þurfa að framvísa vottorði frá þar til bærum yfirvöldum um að smíði báta þeirra hafi verið hafin (skipsbolur upp byggður) fyrir 18. maí 1990. 3. Upplýsingar og forsaga báta. Eigendur og útgerðarmenn þeirra báta sem ekki hafa fengið sérstakt eyðublað sjávarútvegsráðuneytisins til útfyllingar um forsögu báta sinna þurfa að verða sér úti um slík eyðublöð hjá ráðuneytinu eða Landssambandi smábátaeigenda, fylla þau út og senda sjávarútvegs- ráðuneytinu, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, við fyrsta tækifæri. Nánari upplýsingar um ofansagt fást hjá sjávarútvegs- ráðuneytinu og veiðieftirlitsmönnum þess. Sjávarútvegsráðuneytið 14. júní 1990. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum, á neðangreindum tíma: Hólabraut 15, 2. hæð, Akureyri, þingl. eigandi Lífeyrissjóðurinn Sameining, miðvikud. 20. júní '90, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., innheimtumað- ur ríkissjóðs, Veðdeild Landsbanka íslands, Bæjarsjóður Akureyrar og Tryggingastofnun ríkisins. Lækjargata 3, Akureyri, talinn eig- andi Sigurður Steingrímsson, mið- vikud. 20. júní ‘90, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Tryggingastofnun ríkisins og Bæjar- sjóður Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn i Eyjafjarðarsýslu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.