Dagur - 21.06.1990, Page 1

Dagur - 21.06.1990, Page 1
73. árgangur________ Akureyri, fímmtudagur 21. júní 1990 116. tölublað það hressir halíið W Vegagerð ríkisins: Samið við Jarð- verk um Öxnadal Vegagerð ríkisins á Akureyri hefur gert samning við Jarð- verk sf. um vegaframkvæmdir í Öxnadal. Einnig hefur verið gerður samningur við Stefán Þengilsson um Svalbarðseyrar- veg* I Öxnadal er um að ræða fyll- ingu og burðarlag á 8,8 kílómetra vegarkafla Norðurlandsvegar, frá Bægisá að Þverá í Öxnadal. Til- boð í verkið voru opnuð mánu- daginn 21. maí, og þá kom í ljós að Jarðverk sf. var lægst með kr. 44.435.300, en það eru 70% af kostnaðaráætlun. Kostnaðaráætl- un verkkaupa var 63,6 milljónir. Samningsupphæðin vegna framkvæmdanna á Svalbarðseyr- arvergi nemur kr. 8,185.800., en Stefán Þengilsson mun byggja upp veginn niður á eyrina án þess að bundið slitlag verði lagt á veginn. EHB > ^ * -* ,í ' * , f* * f • f, Þessar dugmiklu stúlkur eru í Vinnuskólanum á Sauðárkróki og voru að sinna sínu starfi í sólskininu einn skagfirsk- an sumardag þegar Dagur átti leið hjá og festi þær á filmu. Mynd: sbg 55 Blikur á lofti í byggingariðnaði: mjög svartsýnn í dag - segir Sigurður Jónsson hjá Meistarafélagi byggingamanna á Akureyri Ég er 44 Byggingaverktakar geta ekki hafíö framkvæmdir af krafti fyrr en í haust og múrarar eru bundnir viö innivinnu í sumar. Undirverktakar sjá fram á verkefnaskort með haustinu. Sigurður Jónsson, fram- kvæmdastjóri Meistarafélags byggingamanna á Akureyri, dregur upp dökka mynd af stöðu byggingariðnaðar á Akureyri í dag og hann er óánægður með að bæjaryfir- völd skuli ekki sýna nein viðbrögð. „Við skrifuðum bæjarstjórn bréf á síðasta ári þar sem við bentum á þessi mál en við höfum engin svör fengið. Þar vorum við m.a. að hvetja bæjaryfirvöld til að fara af stað með þjónustu- kjarna við hús aldraðra þannig að verkið yrði boðið út á eðlilegum tíma og verklegar framkvæmdir gætu hafist í maí,“ sagði Sigurð- ur. Hann sagði að ekkert hefði gerst í þessu máli og framkvæmd- ir gætu því ekki hafist fyrr en í haust, ef af þeim verður í ár. Hann sagði jafnframt að það væri slæmt að Akureyrarbær skyldi ekki hafa farið af stað með fram- kvæmdir í krafti lánsfjármagns til að bæta verkefnastöðu verktaka. Stærstu verkefni verktaka munu klárast síðsumars, segir Sigurður, og verða múrarar t.d. bundnir við innivinnu yfir venju- legan háannatíma útivinnunnar í allt að 60 fbúðum. Hann kvaðst mjög óhress með það hvernig hringur byggingaframkvæmda hefði snúist við, innivinna vetrar- ins er komin yfir á sumartímann. Aðalverktakar hefjast handa við byggingu 40 íbúða í félagslega kerfinu í sumar en í framhaldi af því bjóst Sigurður við slæmri stöðu hjá undirverktökum í haust. í Giljahverfi eru verktakar að byrja að grafa fyrir nýjum húsum og við Vestursíðu er einnig verið að vinna í grunni fjölbýlishúss. Þar eru tilbúnar lóðir en bygg- ingaverktakar hafa ekki bolmagn til að fara af stað nema eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði aukist. Af öðrum framkvæmdum má nefna húsnæði Bifreiðaskoðunar ís- lands og viðbyggingu við Hag- kaup. „Við höfðum spáð því að það yrði erfitt fyrir skólafólk að fá ísland einkennist af mörgum mörkuðum: Vegalengd frá Reykjavík skýrir ekki mishátt verðlag í gær var haldinn blaðamanna- fundur í húsnæði Háskólans á Akureyri þar seni Ivar Jónsson hjá Félags- og hagvísindastofn- un íslands kynnti skýrsluna Svæðisbundnir markaðir á Is- landi. ívar átti frumkvæði að því í tengslum við doktorsrit- gerð sem hann vinnur að, að svæðisbundnir markaðir á Is- landi yrðu rannsakaðir en sam- bærileg rannsókn hefur ekki áður verið gerð hérlendis. ívar lýsti helstu niðurstöðum rannsóknarinnar og fram kom að ísland einkennist af mörgum afar einangruðum mörkuðum fremur en að vera einn markaður. Heim- ili á landsbyggðinni versla lítið í Reykjavík. Innkaup á fatnaði og skófatnaði eru hlutfallslega mun minni innan sveitarfélags í samanburði við aðra flokka vöru og þjónustu. Þá bendir athugun til þess að fákeppni og einokun sé mjög algeng í sveitarfélögum. Athug- un á tölfræðilegu sambandi sam- keppnisstigs og verðlags í sveitar- félögum bendir til þess að aukin fákeppni skýri aðeins að Iitlu leyti hækkandi verðlag. Vega- lengd frá Reykjavík skýrir einnig aðeins að óverulegu leyti mishátt verðlag. ívar sagði að þennan þátt yrði að rannsaka nánar en hann varpaði fram tilgátum: „Annars vegar gæti skýringin falist í því að fákcppni sé svo almenn að ekki gæti munar þegar skýra á verðmyndun. Hins vegar gæti skýringin verið sú að heild- salar þrýsta á um svipað verð yfir landið á vörum sínum, enda er slíkt talið hafa aukist á síðustu árum,“ sagði ívar. Skýrslan er mjög viðamikil og skiptist í fjóra meginhluta. Við höfum áður greint stuttlega frá verslun innan og utan sveitarfé- laga á Norðurlandi en í blaðinu í dag má finna allrækilega úttekt á því hvaða vörur íbúar á Norður- landi kaupa helst utan sveitarfé- lagsins og þá í hvaða sveitarfé- lagi. Öðrum niðurstöðum verður nánar lýst síðar. SS vinnu og það hefur sannast að verktakar geta ekki tekið við skólafólki vegna slæmrar verk- efnastöðu. Ég er mjög svartsýnn í dag,“ sagði Sigurður að lokum. SS Protabú Vinkils: Skiptamál í frysti vegna áfrýjunar til Hæstaréttar Skiptafundur var í gær haldinn í þrotabúi Vinkils á Akureyri en skiptum í búinu var frestað um óákveðinn tíma þar sem gjaldþrotaúrskurði Vinkils hefur verið áfrýjað til Hæsta- réttar. Segja má að á meöan það mál er fyrir Hæstarétti séu skipti í þrotabúinu, t.d. sala eigna, fryst. Arnar Sigfússon, hjá embætti skiptaráðanda á Ákureyri, sagði í samtali við blaðið eftir skipta- fundinn í gær að áfrýjunarmálið fyrir Hæstarétti þurfi að bíða fram á haust og á meðan ekki sé komin niðurstaða í því máli gerist í raun ekkert í skiptamálinu. Gjald- þrotaúrskurðinum var vísað til Hæstaréttar af Árna Þorsteins- syni. Arnar segir að nokkrar um- dcildar kröfur í búið hafi verið afgreiddar en málinu að öðru leyti frestað. Þó var síðdegis í gær haldið uppboð á lausafjár- niunilm þrotabúsins þar sem veð- hafar í þeim eignum geta krafist þeirrar sölu og knúið hana fram þó að gjaldþrotamálið sé fyrir Hæstarétti. Uppboðið fór því fram og voru þar m.a. boðnar upp trésmíðavélar. JÓH Kjaradeila sjómanna og viðsemjenda: Samningamálin í salt fram á haust „Nei, það gerðist ekkert á þessum fundi og því var samn- ingaviðræðum frestað. A þess- ari stundu bendir margt til þess að samningar frcstist fram til hausts en málið er hjá sátta- semjara,“ sagði Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands íslands um samningaviðræður sjó- manna og útgerðarmanna en samninganefndir aðila voru boðaðar á fund hjá sáttasemj- ara í fyrradag. Hólmgeir segir að á fundinum hafi ekkert nýtt komið fram. Útgerðarmenn hafi ekki breytt sinni afstöðu og sjómenn hafi því ekki séð ástæðu til annars en frcsta viðræðum. „Hnífurinn stendur því enn í kunni. Okkar aðalmál er kostn- aðarhlutdeildin svokallaða þar sem við höfðum óskað eftir ákveðnum leiðréttingum sem við tel um réttmætar. Útgerðarmenn eru hins vegar ekki tilbúnir til að hreyfa sig nægjanlega þar til að við getum sætt okkur við það,“ segir Hólmgeir. Margt bendir til þess að þetta mál verði lagt í salt að sinni. Hólmgeir segir að eins og staðan sé nú hafi engan tilgang að boða til sáttafunda. Ekki sé um neitt að tala. JÓH Svalbarðsstrandarhreppur: Margir \ilja í sveitarstjórann Hrafn Jónasson, Meðalheimi, var kjörinn oddviti Svalbarðs- strandarhrepps á fyrsta fundi nýrrar hreppsnefndar nýverið. Á þessum fundi var einnig kos- ið í nefndir á vegum hreppsins, og ákveðið var að fela Bjarna Hólmgrímssyni fráfarandi oddvita að gegna störfum sveitar- stjóra þar til gengið verður frá ráðningu nýs sveitarstjóra. Umsóknarfrestur um starf sveitarstjóra Svalb’arðsstrandar- hrepps rann út 20. júní sl., og þá höfðu borist 12 umsóknir, en búist var við að jafnvel væru fleiri á leiðinni í pósti. Sveitarstjórnin mun væntan- lega ganga frá ráðningunni fljót- lega. GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.