Dagur - 13.07.1990, Qupperneq 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 13. júlí 1990
132. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Hitaveita Ólafsijarðar:
Orkustofiiun rannsakar
Minnka varð þrýsting á heita
vatninu hjá Olafsfirðingum í
gær og fyrradag vegna þess að
starfsmaður frá Orkustofnun
var að mæla á Laugarengis-
svæðinu, hitaveitusvæði þeirra
Ólafsfírðinga. Ein hola er í
Laugarengi og verið að kanna
hvað miklu er hægt að dæla úr
henni án þess að gera nýja
holu.
Olgeir Gottliebsson, hitaveitu-
stjóri, sagði í samtali við Dag að
ekki væri langt þangað til að bora
þyrfti nýjar holur fyrir hitaveit-
una. Olgeir sagði það sína skoð-
un að þörf væri komin fyrir nýtt
sölufyrirkomulag hjá Hitaveitu
Ólafsfjarðar, úr hemlakerfinu
yfir í rennslismæla.
„Með þessum rannsóknum
Orkustofnunar erum við að sjá
hvað hægt er að gera í framtíð-
inni,“ sagði Olgeir. Á meðan hol-
an í Laugarengi var rannsökuð
notuðust Ólafsfirðingar við 57
gráðu heitt sjálfrennandi vatn úr
varaholu í Skeggjabrekkudal
með 23 sekúndulítra rennsli.
Þegar haft var samband við Ol-
geir seinni partinn í gær var
óákveðið hvenær hægt var að
opna fyrir holuna í Laugarengi
aftur. -bjb
Kókstríðið á Siglufirði:
Auglýst eftir umboðsaðila?
„Nei, það stendur ekki til í
sjálfu sér að gera það, en það
kemur til greina að hugsa
þann mögulcika að auglýsa
eftir umboðsaðila á Siglufírði
sem mundi taka vörur til
Siglufjarðar og afgreiða þær
þaöan,“ sagði Bæring Ólafs-
son, sölustjóri Vífilfells, er
Dagur innti hann eftir því
hvort verksmiðjan myndi
bakka nteð þá ákvörðun sína
að leggja niður umboð Vífil-
fells á Siglufírði.
Eins og kontið hcfur fram í
fjölmiðlum, neita siglfirskir
kaupmenn að skipta við Vífil-
fell hf. vegna þessarar ákvörð-
unar og á sáttafundi sem Bæring
hélt með kaupmönnum í fyrra-
dag, þokaðist ekkert í sam-
komulagsátt.
„í þessu tilfelli er verið að
reyna að gæta hagræðingar í
rekstri hjá Vífilfclli. Það er ver-
ið að reyna að fá lækkun á flutn-
ingsgjöldum til þess að geta
boðið lægra vöruverð til neyt-
enda og skýtur það ansi skökku
við að okkar mati, að kaup-
menn skuli standa á móti því að
Siglfirðingar eigi kost á því að
láta þann sparnað, sem myndast
vcgna lægri flutningsgjalda,
renna til neytenda. Heldur vilja
þcir halda óbreyttu ástandi
og varna þannig neytendum
aðgangs að ódýrri vöru,“ sagði
Bæring Ólafsson. -vs
Með þessu handsali skipti jörðin Ytra-Krossanes um eigendur. Steingrímur J. Sigfússon afhenti jörðina fyrir hönd
ríkisins og Sigríður Stefánsdóttir tók við henni fyrir hönd Akureryarbæjar. Mynd: kl
Framtíð Krossaness ræðst í dag
í gær var hluthafafundi í
Krossanesi hf. frestað. Stjórn
Sfldarverksmiðja ríkisins fund-
ar í dag, og verður þar fjallað
um að kaupa tæki Krossanes-
verksmiðjunnar. Þar verður
tekin endanleg afstaða til þess
hvort af kaupunum verður.
Eftir að þeim fundi lýkur verð-
ur boðaður nýr hluthafafundur
í Krossanesi.
Samkvæmt upplýsingum Dags
er næsta öruggt að Krossanes-
verksmiðjan verður lögð niður. í
forsendunum fyrir rekstri verk-
smiðjunnar á næstu vertíð var
gert ráð fyrir 60 þúsund tonna
aflamagni.
Ef næsta loðnvertíð verður
með svipuð móti og var á síðustu
vertíð gæti aukakostnaður við að
flytja loðnu norður fyrir Langa-
nes auðveldlega numið tugum
milljóna króna, ef flytja þyrfti
mikið af loðnu af fjarlægari
miðum. Bátarnir taka að lág-
marki eitt þúsund krónur fyrir að
flytja hvert tonn svo langa leið af
miðum fyrir sunnan land.
Það sem veldur mönnum þó
mestum áhyggjum er að þrátt fyr-
ir að tækist að afla verksmiðjunni
60 þúsund tonna af loðnu, myndi
hún örugglega verða rekin með
50 til 60 milljóna króna halla á
næstu vertíð. Skuldsetning verk-
smiðjunnar myndi þá nema
nálægt einum milljarði króna,
samkvæmt heimildum Dags.
EHB
K. Jónsson & Co.:
Skólafólk heldur
uppi vinnslumii
Ekki bara venjulegir ferðamenn:
Gengu í hjónahand á Akureyri
Það þykir nú ekki alltaf frétt-
næmt þegar fólk gengur í
hjónaband en þó verður það
að teljast til tíðinda þegar ungt
par frá Hamborg í Þýskalandi
leggur leið sína til íslands og
lætur pússa sig saman þar. Þau
Stefan Fasthoff, 27 ára, og
Silke Steinwald, 25 ára, sem
nú heitir Silke Fasthoff, voru
gefín saman við látlausa athöfn
hjá embætti bæjarfógetans á
Akureyri í gærmorgun. En af
hverju að gifta sig á íslandi?
„Við höfðum heyrt mikið um
ísland og erum hrifin af þessu
friðsæla landi. Við vildum ekkert
tilstand í kringum brúðkaupið
heldur hafa það út af fyrir okkur.
Auðvitað höldum við einhverja
veislu fyrir ættingja og vini þegar
við komum heim en brúðkaupið
sjálft vildum við hafa rólegt,“
sögðu þau er blm. Dags spjallaði
við þau að athöfninni lokinni.
Aðspurð sögðu þau að fjölskyld-
ur þeirra hefðu ékki vitað að
þetta stæði til en þó haft grun um
að þetta gæti verið á döfinni, þar
sem þau væru búin að búa sainan
í fimm ár.
Þau Stefan og Silke komu til
landsins sl. sunnudag og ætla að
dvelja á landinu í þrjár vikur.
Stefan er að læra og vinna við
jarðeðlisfræði en Silke starfar að
markaðsmálum í bjórverk-
smiðju. Næsti áfangastaður
þeirra hér á landi er Mývatnssveit
og þar ætti Stefan að geta skoðað
ýmislegt athyglivert í sambandi
við sína fræðigrein.
Við óskum hinum ungu hjón-
um hjartanlega til hamingju og
vonum að þau komi til með að
eiga góðar minningar frá landinu
sem þau létu gifta sig í. -vs
Byggmganefnd Akureyrar hef-
ur samþykkt erindi frá Niður-
suðuverksmiðju K. Jónssonar
& Co. hf. þar sem sótt er um
leyfi til að byggja við hús nr. 2,
lagerhús á lóð verksmiðjunnar
við Silfurtanga. Brunatækni-
legri hönnun á húsum 1 og 2 á
að vera lokið fyrir 1. október.
Kristján Jónsson, verksmiðju-
stjóri, sagði í samtali við Dag að
væntanleg viðbygging á verk-
smiðjulóðinni væri kæligeymsla,
alls um 250 fermetrar, þannig að
hér væru ekki neinar stórfram-
Bæjarsjóður Akureyrar og
IOGT hafa gert saming um
afnot af Hólabraut 11 til 1. júní
1991 og samkvæmt samningn-
um er niðurrifi hússins frestað
til þess tíma. Áður hafði
tæknideild bæjarins verið falið
að sjá um niðurrif hússins.
Bæjarráð samþykkti þennan
samning og fól bæjarverkfræð-
ingi, Stefáni Stefánssyni, að
undirrita hann. í samningnum
felst að Akureyrarbær leigir
IOGT umrætt hús að Hólabraut
kvæmdir á ferðinni.
Nú standa yfir sumarleyfi hjá
verksmiðjunni en Kristján sagði
þó að haldið væri uppi vinnslu að
hluta með fulltingi skólafólks, en
sá háttur hefur verið hafður á hjá
K. Jónssyni yfir sumarið. Nú eru
um 40 unglingar starfandi í verk-
smiðjunni.
Eins og við höfum greint frá
sótti fyrirtækið um einfalda
bæjarábyrgð á 100 milljóna
króna láni vegna áforma um að
koma á fót nýrri framleiðslulínu
en Kristján sagði að þau mál
væru enn á könnunarstigi. SS
11 í eitt ár til viðbótar.
„Bærinn keypt lóðir lOGT
austan og vestan við Hólabraut-
ina í vetur og húsið fylgdi með í
kaupunum. IOGT er með húsið á
leigu og verður það til næsta vors
því niðurrifi hefur verið frestað
með þessum samningi," sagði
Stefán.
Kaup Akureyrarbæjar á lóðum
við Hólabraut tengjast skipulagi
Miðbæjarins. Gert er ráð fyrir að
þetta svæði verði gert að bíla-
stæðum og að Hólabrautin leggist
af sem umferðargata. SS
Að sjálfsögðu staðfestu |>au Stefan og Silke Fasthoff hjónabandið með dug-
legum kossi. Mynd: KL
Hólabraut 11:
Niðurrifi frestað