Dagur - 13.07.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 13.07.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 13. júlí 1990 - DAGUR - 3 fréttir Ólafsfirðingar eru óþreyjufullir að koniast á nýja grasvöllinn. Hér gefur hins vegar að líta malarvöll þeirra austan Gagnfræðaskólans. Fyrir enda hans, lengst til vinstri á myndinni, sést í nýja grasvöllinn. Mvnd: kl Nýr grasvöllur í Ólafsfirði vígður um miðjan ágústmánuð - óvissa ríkir um áframhald byggingarframkvæmda við íþróttahús Fyrirhugað er að vígja nýjan knattspyrnugrasvöll Olafsfirð- inga um miðjan ágústmánuð, og eru taldar líkur á að vígslu- leikurinn verði gegn íslands- meisturum K.A. í fyrra voru lagðar þökur á stærstan hluta vallarins, sem er rúmlega lögleg vallarstærð, en eftir er ófrágengið svæði og frá- gangur kringum svæðið auk þess að girða það. í sumar hefur svæð- ið verið slegið og hirt og lögð áhersla á að koma grasinu til. Á þessu áfi eru á fjárhagsáætl- un tæpar 2 milljónir króna sem ætlaðar eru vegna frágangs á grasvellinum, en ljóst er að heild- arfrágangur á íþróttasvæðinu er verkefni nokkurra næstu ára. í fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar- bæjar var gert ráð fyrir 12 milljóna króna framlagi til byggingar nýs íþróttahúss, en fyrsta skóflu- stunga að því var tekin í fyrra- sumar. Gert var ráð fyrir 4 millj- óna króna mótframlagi úr Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga, en það gekk ekki eftir, og verður fram- lag Jöfnunarsjóðs einungis 1,2 milljónir króna. í ljósi þeirrar niðurstöðu hafa bæjaryfirvöld ekki tekið ákvörðun um það hvort hlutfallslegur niðurskurður verði á framlagi bæjarins til þess- arar byggingarframkvæmdar. Bjarni Grímsson bæjarstjóri segir að meta þurfi hvað svo stórt verkefni hefur á bæjarfélagið í heild sinni, en þó nokkur þensla er í atvinnulífinu, fyrst og fremst vegna þess að verið er að ganga frá göngunum gegnunt Olafs- fjarðarmúla. Stefnt er þó að því að bjóða út fyrsta áfanga íþróttahússins sem eru sökklar og plata, en það hef- ur einnig dregist vegna breyttra forsendna. GG Sjallinn hefur veriö á sölu- skrá um nokkurn tíma, en að sögn Péturs Jósefssonar sölu- stjóra hjá Fasteigna og skipa- sölu Norðurlands hafa engin formleg kauptilboð borist. Nokkrar fyrirspurnir hafa borist bæði frá Akureyri og aö sunnan en cngin tilboð hafa borist eða samningaviðræður hafist. Góð aðsókn hefur verið að Sjallanum undanfarin laugar- dagskvöld, en lakari á föstu- dagskvöldum, og virðist sem aðsóknarmynstrið sé að breyt- ast. t>að færist í aukana aö fólk sitji heima eða fari aðeins á matsölustaö, og sleppi því að fá sér snúning. GG Mat Kjararannsóknarnefndar á launum og launahækkunum hópa í ASÍ: Kaupmáttur mmnkaði um 10% á einu ári - konur í skrifstofustörfum verða fyrir mestri kaupmáttar- skerðingu frá 1989 til 1990 Kjararannsóknarnefnd birti í gær mat á launum og launa- hækkunum á 1. ársfjórðungi 1990. Helstu niðurstöður þessa mats eru þær að greitt tíma- kaup landverkafólks í Alþýðu- sambandinu hefur hækkað að meðaltali um tæp 10% frá sama ársfjórðungi í fyrra og miðað við hækkun framfærslu- vísitölu á sama tímabili um 22% minnkaði kaupmáttur því um 10%. Kjararannsóknarnefnd vekur þó athygli á því í niðurstöðum sínum að rnikil hækkun á tíma- kaupi afgreiðslukarla er til komin vegna þess hversu lágt kaup þeirra mældist á fyrsta ársfjórð- ungi 1989, samanborið við árs- fjórðungana á undan og á eftir. Sé litið á hækkun mánaðar- tekna, þ.e. hækkun heildarlauna með yfirvinnu, á sama tímabili er kaupmáttarminnkunin meiri, eða 13%. Meðalfjöldi vinnustunda fólks í fullu starfi er óbreyttur frá sama ársfjórðungi síðasta árs. Greitt tímakaup hefur lækkað um 2,2% og meðaltímakaup um 3% milli fjórða ársfjörðungs 1989 og fyrsta ársfjórðungs 1990. Ástæða þessarar lækkunar er að á fjórða ársfjórðungi síðasta árs olli desemberuppbót hækkun en þegar hennar nýtur ekki við veld- ur það lækkun á meðaltímalaun- um. Samanburður á mánaðartekj- um nokkurra starfshópa á fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi árs og síðasta árs sýnir að karlar við afgreiðslustörf hækkuðu mest í launum að meðaltali, eða um 13%. Næst kornu konur við afgreiðslustörf en meðalmánað- arlaun þeirra hækkuðu úr 69,976 kr. í 78,309 kr. eða um 11,9%. Hækkun hjá iðnaðarmönnum og körlum í skrifstofustörfum var rösk 10% og þá komu verkakon- ur og verkakarlar. Áberandi minnsta hækkun mánaðartekna var hins vegar hjá konum í skrit'- stofustörfum eða 0,7% og er kaupmáttarskerðing þessa hóps tæp 18% á þessu 12 mánaða tímabili. JÓH Sigluflörður: Hótel Höfii tekið í gegn Gagngerar endurbætur standa nú yfír á Hótel Höfn á Siglu- firði, en þær hófust um síðustu áramót. Skipt var um teppi á öllum göngum hótelsins, setu- stofan lagfærð og búið að taka tvö herbergi í gegn af tjórtán. Einnig hefur baðið verið end- urnýjað. Eftir er að endurnýja 12 her- bergi á Hótel Höfn og að sögn Sveinbjörns Ottesen, aðstoðar- hótelstjóra, verður farið í það eftir því sem fjármagn leyfir, en endurbæturnar á hótelinu eru all kostnaðarsamar. Sveinbjörn sagði að tími hafi verið kominn á það að taka hótelið í gegn, sér- staklega gistiaðstöðuna. A Hótel Höfn starfa 10 manns í sumar. Ferðamannastraumur til Siglu- fjarðar er að aukast þessa dagana en Sveinbjörn sagði að hingað til hafi verið frekar lítið að gera á hótelinu. „Þetta er allt að glæðast núna og rnikið um pantanir. Við fáum bæði innlenda ferðamenn og erlenda hópa á vegum ferða- skrifstofa," sagði Sveinbjörn. Hótel Höfn býður einnig upp á svefnpokapláss á Hótel Hvann- eyri og sagði Sveinbjörn að erlendir ferðamenn hafi nýtt þá aðstöðu mjög mikið. Meðal þess sem heillar ferða- menn á Siglufirði er Hvanneyrar- skálin, en nýlega voru staddir á Hótel Höfn 20 enskir áhuga- ljósmyndarar '.§em heilluðust mjög af staðnu.'á. -bjb LETTIR b Hestamannafélagið Léttir Æskulýðsmót Fyrirhugað er að halda Æskulýðsmót í hesta- íþróttum með þátttöku krakka/unglinga á Norðurlandi eystra á Melgerðismelum 20.-22. júlí n.k. Þau sem vilja taka þátt í mótinu skrái sig hjá Guðrúnu í síma 23862 í síðasta lagi á sunnudag 15/7. Hún veit- ir einnig nánari upplýsingar. Unglingaráð Léttis. 'a| ||J! i ^ mwff..... HÓTEL KEA Jasstríó Ingimars Eydal leikur fyrir matargesti föstudags- og laugardagskvöld ★ HLJÓMSVEITIN GAUTAR FRÁ SIGLUFIRÐI leikur fyrir dansi laugardagskvöld ★ Nýr glæsilegur sérréttaseðill. ★ Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200. It Hótel KEA fyrir vel heppnaða veislu J

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.