Dagur - 13.07.1990, Síða 5
Föstudagur 13. júlí 1990 - DAGUR - 5
lesendahornið
Megn óánægja með ferð Sæfara til Grímseyjar:
nema von að sjóði á fólki?“
„Er
María Snorradóttir hringdi.
„Þannig er mál með vexti að um
síðustu helgi var haldið ættarmót
í Grímsey og fórum við fram í ey
frá Dalvík í áætlunarferð með
Sæfara, nýju Hríseyjar- og
Grímseyjarferjunni. Búið var að
panta pláss fyrir 110 farþega og
söluaðili ferjunnar á Akureyri,
Ferðaskrifstofan Nonni, gaf upp
að verð á miða væri 3000 krónur
fyrir fullorðna, hálft fargjald fyrir
börn að tólf ára aldri og ókeypis
fyrir börn yngri en fjögurra ára.
Þegar síðan var haldið af stað frá
Dalvík mættu ekki nema um 70
manns af þessu fólki, en við feng-
um þá að vita að um 30 útlend-
ingar hefðu beðið um pláss í ferj-
unni en orðið frá að víkja vegna
þess að ferjan væri fullbókuð.
Þegar til Grímseyjar kom var
rukkað fyrir miðana og þá kom í
ljós að bætt hafði verið við 200
krónum á hvern miða fyrir full-
orðna og miðinn því á 3200
krónur. Ekki nóg með það, held-
ur var fólki gert að greiða fullt
gjald, 3200 krónur fyrir krakk-
ana. Þannig hafði verið bætt 1700
krónum á hvert barn og 200
krónum á hvern fullorðinn, frá
því sem áður hafði verið gefið
upp. Þess skal getið að þeir sem
áður höfðu keypt miðann á skrif-
stofu Ferðaskrifstofunnar Nonna
á Akureyri höfðu fengið miðann
á 3000 krónur.
Við þessa skyndilegu hækkun á
miðanum varð auðvitað allt vit-
laust um borð í Sæfara. Starfs-
maður Nonna stundi því þá upp
að ekki væri annað hægt en að
hækka niiðaverðið vegna þess að
annars væri bullandi tap á ferð-
inni. Ég og fleiri föllumst ekki á
þá röksemd og vísum henni til
föðurhúsanna vegna þess að hér
var í fyrsta lagi um að ræða áætl-
unarferð og í öðru lagi fluttu þeir
vörur og höfðu þannig upp í
kostnað. Þó svo að hafi vantaö
um 30 rnanns frá því sem upphaí-
lega hafði verið áætlað finnst mér
það út í hött að láta fólkið borga
þetta miklu meira fyrir túrinn, en
gert hafði verið ráð fyrir.
Skömmu fyrir kvöldvöku sem
við héldum út í Grímsey á föstu-
dagskvöld hringdi Helena Dejak,
framkvæmdastjóri Ferðaskrif-
stofunnar Nonna, út í ey og tjáði
okkur að ferjan myndi koma
fram og sækja fólkið aftur kl. 10
að morgni sunnudags. Áður
hafði hún boðið Grímseyingum
upp á að þeir mættu ráða því hve-
nær á sunnudeginum ferjan kæmi
fram. Þrátt fyrir margítrekaðar
tilraunir tókst ekki að hnika þess-
um tfma til. Fólk mátti því gjöra
svo vel að taka upp tjöld sín eld-
snemma á sunnudagsmorgun til
þess að vera komið niður á
bryggju kl. hálf tíu.
Eg veit til þess að fleiri en ég úr
þessum hópi hafa lýst megnri
óánægju með hvernig að rnálum
var þarna staðið og hafa sem
dæmi haft samband við sam-
gönguráðuneytið og Neytenda-
samtökin. Þá hefur fólk fengið
upplýsingar um það að ferð aðra
leiðina með Herjólfi kostar 1150
krónur, eða 2300 krónur fyrir
fullorðna. Fyrir börnin kostar
1400 krónur með Herjólfi fram
og til baka milli Vestmannaeyja
og lands, sem er álíka leið og frá
Dalvík út í Grímsey, en Ferða-
skrifstofan Nonni lætur börnin
borga 3200 krónur.
Er nema von að sjóði á fólki út
af þessu?“
Vegna lesendabréfs í Degi um Grímsejjarferð með Sæfara
„Ég vil byrja á því að taka
fram að ég ber mikla virðingu
fyrir þeim sem taka að sér að
standa upp fyrir heilan hóp
eins og hér er gert. Það er allt-
af nauðsynlegt að fá gagnrýni
því án hennar getum við ekki
bætt þjónustuna.
En það eru alltaf tvær hliðar á
öllum málum og við leyfum okk-
ur hér að koma með okkar hlið á
þessu máli.
Upphaf þessa máls var að
Grímseyjarferjan var pöntuð fyr-
ir 90 manna hóp sem var á leið til
Grímseyjar. Það leið að brottför
og loks fékkst svo farþegalisti frá
forsvarsmönnum hópsins föstu-
daginn 29. júní. Viku fyrir brott-
för var fjöldi farþega kominn upp
í 122. Til þess að hægt væri að
veita þessum hóp alla þá þjón-
ustu sem hægt er að veita var
áætlað að senda ferjuna tvær
ferðir fyrir sama verð og upphaf-
lega var rætt um, þar sem ferjan
má aðeins taka 90 manns í hverri
ferð. Einnig var tekin sú ákvörð-
un að hætta við fyrirhugaða
sunnudagssiglingu sem er á okkar
áætlun á sunnudögum kl. 14.00 og
einnig á dagskrá fjölda Svisslend-
inga sem hér dveljast í sumar.
Þegar höfðu 20 útlendingar bókað
sig í þessa ferð á sunnudaginn.
Forsvarsmanni hópsins fannst ekki
þörf á að senda ferjuna tvær ferð-
ir þar sem hann taldi að 115
manns myndu mæta og af þeim
15 börn undir 4 ára aldri. Það var
liins vegar óskáð eftir að ferjan
tæki hópinn í Grímsey á sunnu-
dags eftirmiðdegi. Auk þessara
breytinga á áætlun ferjunnar
þurfti að vísa frá fleiri en 30
manns vegna þess að hópurinn
hafði bókað upp ferjuna. Þegar
hér var komið sögu átti því að
sigla átta ferðir með hópinn, fjór-
ar á föstudag og fjórar á sunnu-
dag. Ferðaskrifstofunni Nonna
fannst réttlætanlegt að hafa
þennan háttinn á vegna þess að
við vildum gera allt sem í okkar
valdi stæði til þess að hópurinn
væri ánægður með þjónustu
okkar.
Óskað var eftir við forsvars-
mann hópsins að hann greiddi
fargjaldið fyrir allan hópinn áður
en lagt væri af stað, en afleitlega
var tekið í þá málaleitan. Var því
sú ákvörðun tekin að starfsmaður
Nonna myndi taka á móti hópn-
um og innheimta fargjaldið. Þeg-
ar haft var samband við þennan
starfsmann á bátnum kom í ljós
að hópnum hafði aðeins verið
seldir 60 miðar og af þeim voru
15 börn, auk þess voru seldir
fjórir miðar til annarra. Þá var sú
ákvörðun tekin að breyta brott-
farartíma frá Grímsey og fara í
Þetta Ijósrit af farþcgalista sýnir að
122 höfðu bókað far í umrædda ferð
Sæfara.
áður fyrirhugaða sunnudagssigl-
ingu og fór ferjan kl. 10 f.h. á
sunnudag. Hópnum var tilkynnt
þessi ákvörðun um borð í ferj-
unni á leið til Grímseyjar.
í ferðina vantaði því 50
farþega sem ekki tilkynntu forföll
eða létu vita af ferðum sínum
hvorki til Nonna eða forsvars-
manna hópsins, en það má geta
þess að þeir höfðu miðað undir-
búning við 140 manns.
Allir hópar sem ferðast með
Græn slýtjöm
við Drottn-
ingar braut
Jóhanna hringdi:
Við sjónum vegfarenda sem
um Drottningarbraut aka hefur
innri tjörnin verið að taka á sig
nýja mynd, þ.e. mikið af slýi hef-
ur myndast í henni og hugsanlega
hefur annar ófögnuður fest þar
rætur. Eru fyrirhugaðar einhverj-
ar úrbætur þarna af hálfu bæjar-
yfirvalda?
Guðmundur Gunnlaugsson
yfírverkfræðingur svarar:
Það hefur ekki verið rætt um
neinar framkvæmdir þarna, en í
vor var frárennslið hreinsað sem
tengir tjarnirnar og það talið
duga til að fá hreyfingu á vatnið.
Hvort þarna er um mengun að
ræða skal ósagt látið. GG
ferjunni fá afslátt sem í þessu til-
felli var kr. 650 á mann. Venju-
legt fargjald með ferjunni er kr.
3.650, báðar leiðir, eða 1.575
krónur aðra leiðina samdægurs.
Þrjátíu prósent afsláttur er fyrir
börn og aldraða.
Hvað höfum við lært af þessu?
Hér skiluðu sér ekki nema rúm
50% af þeim sem upphaflega
höfðu bókað sig í ferðina og eru
það því fyrst og fremst þeir sem
skiluðu sér ekki sem eiga hér sök
að máli auk forsvarsmanna
hópsins. Hér eftir verður því
alltaf tekið staðfestingargjald hjá
öllum hópum sem ferðast með
ferjunni og ferðir þarf að greiða
að fullu fyrir brottför. Það er að
sjálfsögðu slæmt fyrir fyrirtækið
að tapa þessu fé, en hitt er þó
verra að hið góða nafn Ferða-
skrifstofunnar Nonna hf. sé bendl-
að við svona leiðinlegt mál.“
F.h. Ferðaskrifstofunnar
Nonna hf.
Helena Dejak.
_______LAUNAGREIÐENDUR__
EINDAGI
STAÐGREIÐSLUFJÁR
ER 15. HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og
reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt
að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum.
Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar.
Munið að gera skil tfmanlega!
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI