Dagur - 13.07.1990, Síða 7

Dagur - 13.07.1990, Síða 7
Föstudagur 13. júlí 1990 - DAGUR - 7 / Veitmgaskálim "Brú-. ,AÐS0KNIN HEFUR ADKIST MEÐ BETRI VEGUM m VESTFJARÐA“ - segvi fcainkvæmdastpmm. I botni Hrútafjarðar stendur Veitingaskálinn Brú þar sem vegurinn út á Strandir og Vest- firði tengist Norðurlandsvegi rétt eftir að komið er niður af Holtavörðuheiðinni. Dagur hitti þar að máli framkvæmda- stjórann sem reyndist vera nýútskrifuð Samvinnuskóla- mær, Brynja Georgsdóttir að nafni. „Hér er opið fimm mánuði á ári, opnað í maí og lokað í sept- ember. í ár opnuðum við þann 16. maí. Aðalumferðin hefst seinni partinn í júní og júlímán- uðurinn er stærstur. Við erum með opið frá 8.00 til 23.30 og hér vinna 18 manns á vöktum,“ segir Brynja. Brúarskáli hefur verið til stað- ar síðan 1954, en var þá aðeins lítill skúr með olíusölu og ein- hverju sælgæti. Að sögn Brynju var síðan farið að stækka upp úr 1970 og síðustu stórnýbyggingar gerðar ’85 og ’86. 1987 var svo garðskáli byggður við og skálinn kominn í núverandi mynd. Kaup- félag Hrútfirðinga er rekstrar- aðili skálans og Olíufélagið hf. ESSO rekur þar olíuverslun. „Hér bjóðum við upp á allar þessarar venjulegu veitingar og vörur sem eru í svona skálum. Fólk virðist kunna að notfæra sér þetta og aðsóknin er mikil bæði af þeim sem eru að fara út á Vest- firði og þeim sem eru á norður eða suðurleið. Maður hefur tekið eftir því að vestfjarðaumferðin hér í gegn hefur aukist mikið með tilkomu betri vega og sér- staklega eftir að gerðar voru svona miklar umbætur á veginunr yfir Steingrímsfjarðarheiði. Það hefur einu sinni verið reynt að hafa opið að vetrarlagi, þcgar verið var að byggja við vet- urinn ’85-’86. Aðsóknin var bara ekki það mikil að það hefur ekki verið reynt aftur. Ef aftur verður farið út í það, þá verður trúlega byggt gistirými við skálann. Það er eiginlega nauðsynlegt þar sem skálinn er hérna rétt hjá Holta- vörðuheiðinni.” Brynja hefur verið að snúast í rekstrinum síðustu fjögur árin, en þetta er það fyrsta sem hún er ein með hann. Hún er fædd og uppalin í Hrútafirðinum svo segja má að hún sé á heimavelli. Þeir sem vinna við skálann eru líka aðallega heimamenn og margar húsfreyjurnar standa þar veitingavaktina dag og dag ntilli þess sem unnið er í búskapnum í brakandi þurrki á sólríkum Hrút- firskum degi. SBG Dr. Hannes Jónsson. IV hluti Framtíðarsýn: ísland í EES Af fyrirliggjandi upplýsingum um hugmyndir EB og EFTA um grundvallarreglur Evrópska Efnahagssvæðisins má færa líkur að því, hvað biði okkar smáa ríkis og fámennu þjóðar, ef við gerðumst aðilar að EES sam- kvæmt fyrirliggjandi hugmynd- um. Hefur Steingrímur Gunnars- son reyndar stillt upp þremur hugsanlegum afleiðingum vegna mismunandi ráðstafana okkar tengdum Evrópuþróuninni í mjög athyglisverðri magistersrit- gerð, sem hann varði við Salford- háskóla í London í janúar 1990. Skal ég ekki fara út í jafn listlegar útfærslur á afleiðingum mismun- andi aðgerða okkar og hann gerir heldur aðeins bregða upp grófum útlínum um það island, sem gæti skapast eftir nokkurra ára veru okkar í EES: Eftir sem áður væri ísland fámennt smáríki, sem byggði útflutningstekjur sínar fyrst og fremst á lítt unnnum hráefnaút- flutningi sjávarafla. Raforku- framleiðsla til stóriðju í eigu útlendinga og jafnvel sölu um kapla á sjávarbotni til Bretlands væri vaxandi. Vegna frjálsra fjármunaflutninga fjárfestu stór- fyrirtæki í Evrópu í íslenskum sjávarútvegi og fiskirækt með því að kaupa smátt og smátt meiri- hluta í illa stöddum íslenskum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækj- um. Loks réðu þau þeim að fullu. Þannig kæmust þau inn í íslenska fiskveiðilögsögu og nýttu hana í þágu fiskmarkaðanna í Grimsby/ Hull í Bretlandi og Bremer- haven/Cuxhaven í Þýskalandi. Frystingin leggðist að mestu af, enda arðbærara að senda fiskinn ferskan á ís beint á markað þar sem þannig fæst hærra verð fyrir hann. Vegna frelsis í þjónustu- viðskiptum rækju erlendu firmun eigin vöruflutningaflota, sem væri í stöðugum flutningum með afurðirnar á milli íslands og erlenda markaðarins. Frekari virkjanir, stóriðju- uppbygging og verktakastarfsemi yrði fljótlega að mestu í höndum stórfyrirtækja Evrópusvæðisins. Vegna atvinnu- og búsetufrelsis sameiginlega vinnumarkaðarins flyttu erlendu firmun inn starfs- fólk frá láglaunasvæðum Evrópu, t.d. Portúgal og Grikkland og víðar að. Hagkvæmnisrök leiddu til vaxandi verkaskiptingar og einhæfni atvinnulífsins, þar sem hlutverk íslands yrði fyrst og fremst hráefnaframleiðsla - sjá- varafurðir og raforka - í fram- leiðslusérgreiningu Evrópumar- kaðarins. Mörg íslensku firmu yrðu gjaldþrota í samkeppninni við fjölþjóðafirmu EES. Nokkur stærri íslensk firmu gætu staðist samkeppnina með hagræðingu og samkeppnishæfni, einkum í sam- starfi við erlend firmu, sem smátt og smátt gætu náð eignarhaldi á þeim. Atvinnuleysi færi vaxandi vegna samkeppni frá ódýru erlendu vinnuafli og gjaldþroti margra íslenksra firma. Vegna frelsis í rekstri þjónustugreina létu erlend firmu æ meira til sín taka á sviði bank- astarfsemi, trygginga, samgangna og ferðaþjónustu. Gróin íslensk firmu í þessum greinum lentu í erfiðleikum og sum þeirra keypt upp af erlendum samkeppnisaðil- um. Vegna hinnar miklu framleiðslusérgreiningar og auk- innar einhæfni atvinnulífsins gerði atgerfisflótti úr landi vart við sig, því sérmenntaðir menn fengju betur launuð störf við hæfi erlendis en hér á landi. Hlutfalls- leg fjölgun yrði í láglaunastétt daglaunamanna, sem keppti um atvinnu í eigin landi við innflutt verkafólk frá láglaunasvæðum Evrópu. Dreifbýlið ætti í vök að verjast vegna fjársveltis og þess, að atvinnustarfsemin þjappaðist af hagkvæmnisástæðum í þéttbýl- iskjarna landsins. Sveitirnar yrðu ekki svipur hjá sjón. Smábýlin og miðlungs stóru býlin hyrfu, en stórbýli með eignarhlutdeild erlendra aðila sæju um landbún- aðarframleiðsluna, hinn sjálf- stæði sjálfseignarbóndi tilheyrði fortíðinni en iandbúnaðarverka- menn störfuðu á stórbýlunum. Minni peningar verða til að fram- kvæma byggðastefnu og styðja sjálfseignarbúskap, sem verður að laga sig æ meir að samkeppnisstöðlum EES og GATT. Full fríverslun og toll- frelsi með fisk fæst ekki nema á móti komi fiskveiðiréttindi eða afnám hafta og tolla af innflutt- um landbúnaðarvörum. Aðaltungumál í samskiptum stjórnenda hinna erlendu stórfyr- irtækja yrði enska. íslenskan ætti í vök að verjast m.a. vegna hins innflutta erlenda vinnuafls. Allt hefur þetta neikvæð áhrif á íslenskt menningarlíf. Lífskjör almennings lækka, atvinnuleysi vex, hagkvæmni í rekstri og ábati erlendu stórfyrirtækjanna ráða þróun mála. ísland verður útkjálki Evrópusvæðisins. Þjóðin blandast æ meir innflytjendunum frá láglaunasvæðum Evrópu. Viðskiptin við Bandaríkin, Japan, Sovétríkin og önnur ríki dragast saman vegna sameigin- lega Evróputollmúrsins, sem við verðum múraðir inn í. Veruleg hætta verður á því, að þjóðin glati smátt og smátt einkennum sínum, menningarerfð, efnahags- legu sjálfstæði og fullveldi. Er þetta sú framtíð, sem við viljum skapa íslandi? Ég segi nei takk. Þá er hinn valkosturinn betri, sem Jacques Delors bauð jafn- framt upp á í janúar 1989, þ.e. óbreytt samskiptaástand EB og EFTA-ríkjanna á grundvelli gild- andi fríverslunarsamninga. Jafn- framt mætti kanna ntöguleika á fríverslunarsamningum við Bandaríkin, Japan og S-Ameríku ríkin, eflingu GATT og uppbygg- ingu víðtækari fríverslunar í heiminum en felst í haftakerfi EB, með því að fara að vinna aft- ur að hugmyndinni um Alþjóð- legu viðskiptastofnun S.Þ. frá 1947. Lokaorð Gleymum því ekki, að það voru ógætileg milliríkjasamskipti höfðingja Sturlungaaldar, eink- um við Noregskonung og kaþól- sku kirkjuna, sem leiddu til 7 alda erlendrar yfirdrottnunar á íslandi. Ógætilegir milliríkja- samningar um Evrópska Efna- hagssvæðið gætu nú sett bæði okkar efnahagslega og stjórnfars- lega sjálfstæði í hættu. Skynsamir menn í milliríkja- samningum gefa ekki meira en sem svarar þeim ábata, er þeir gætu höndlað. Eðlilegt er að þeir keppi að því að ábatinn verði meira virði en það, sem látið verður af hendi, bæði í peningum og öðrum verðmætum og gildum. Mér virðist að mikið sé í húfi, að íslendingum takist að taka fram fyrir hendurnar á þeim mönnum, sem fram að þessu hafa farið með mál okkar í Evrópuviðræðunum og beini þeim frá aðild okkar í ES og að raunverulegri fríverslun í víðari samhengi. (Höfundur var um 35 ára skeið emb- ættismaður utanríkisþjónustunnar, þar af 15 ár sendiherra fslands vfða um heim. Hann var fastafulltrúi íslands hjá alþjóðastofnunum í Genf 1980-1983, forntaður í fastaráði EFTA 1982 og fór með forsvar Islands hjá Gatt 1980-1983.)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.