Dagur - 13.07.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 13.07.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 13. júlí 1990 Minning: cj}3 Sigurður Eiríksson Sandhaugum í dag er gerð útför Sigurðar Ei- ríkssonar á Sandhaugum við sóknarkirkju hans að Lundar- brekku í Bárðardal. Hann var fæddur á Sandhaug- um 10. desember 1915. Foreldrar hans vour búandi hjón þar, Ei- ríkur Sigurðsson og Guðrún Jónsdóttir. Pau áttu 5 dætur fyrir þegar Sigurður fæddist. Eiríkur á Sandhaugum var sonur Sigurðar Eiríkssonar bónda á Ingjaldsstöðum og Guðrúnar Erlendsdóttur konu hans. Sigurður var ekki af þing- eyskum ættum þar sem Eiríkur faðir hans var sunnlenskur en Guðný móðir hans var úr Borg- arfjarðarhéraði. Guðrún kona hans var hins vegar dóttir Erlends Sturlusonar á Rauðá og foreldrar hennar og frændlið allt suðurþingeyskt. Sigurður á Ingjalsstöðum lést 17. febrúar 1872, átti ekert sam- kvæmt skiptabók sýslunnar, þau hjón höfðu eignast 12 börn. Ei- ríkur var þeirra yngstur, fæddur 10. september 1871. Eldri syst- kinin tóku að sér að ala önn fyrir þeim yngri svo að ekki þurfti afskipti sveitarsjóðs. Elsta barn Sigurðar var Kristín, ljósmóðir, sem lært hafði fræði sín í Kaup- mannahöfn og giftist Jóhannesi bónda Jónssyni á Sandhaugum. | Þangað fór Guðrún Erlendsdóttir og þar ólust upp tveir yngstu syn- ir hennar. Eiríkur ólst þannig upp á búi systur sinnar og mágs og eftir andlát Jóhannesar 1906 varð hann fyrirvinna heimilisins, en tók við jörð og búi í eigin nafni 1911. Hann giftist 1903 Guðrúnu dóttur Jóns Þorkelssonar í Víði- keri og Jóhönnu Sigursturludótt- ur Erlendssonar á Rauðá svo Er- lendur var bæði langafi og langa- langafi barna þeirra. Jón Þorkels- son var að öðrum þræði af þing- eysku fólki þar sem móðir hans var Hólmfríður Hallgrímsdóttir frá Ási í Kelduhverfi en Þorkell faðir hans var dóttursonur Einars Sveinbjörnssonar í Svefneyjum og sonarsonur séra Þorkels Guðnasonar á Stað í Hrútafirði og var því föðurætt Jóns Þorkels- sonar frændmörg um Breiðafjörð og Vestfirði. Börn Eiríks og Guðrúnar á Sandhaugum ólust upp í föður- húsum og dæturnar fluttu að heiman til verkefna annarsstaðar eins og gengur. Þegar Eirík þraut heilsu kom það í hlut Sigurðar að bera heimilið uppi en formlega tók hann við búinu 1940. Hann giftist 1943 Steinunni Kjartans- dóttur frá Miðhvammi í Aðal- dal. Þau eiga þrjú börn: Erlend jarðýtustjóra, Áshildi hús- freyju í Neskaupstað og Eirík bónda á Sandhaugum. Sandhaugar þóttu ekki mikil jörð, engjalítil og túnið ekki stórt. Frá túni niður að Skjálf- andafljóti voru lyngmóar stór- þýfðir og hrjóstrugir. Hlíðin fyrir ofan var skógi vaxin og mun það hafa verið talinn höfuðkostur býlisins. Geitur og sauðir gátu lengi bjargast þar þó að sú beit segði eftir. Sigurði var annt um skóginn og því gáfu þau hjónin Skógrækt ríkisins hlíðina fyrir utan bæinn en seinna keypti svo skógræktin það sem eftir var af skóginum. Lyngmóarnir gömlu meðfram fljótinu eru nú orðnir að renni- sléttu túni og Sandhaugar þar með komnir í fremstu röð góð- býla í Bárðardal. Þau Sigurður og Steinunn voru samhent hjón og farsæl. Heilsa Sigurðar var þó engan veginn svo góð sem átt hefði að vera. Um þrítugt fékk hann slæma brjóst- himnubólgu og mun aldrei hafa orðið samur maður eftir það. Seinna bilaðist hann í fótum en þá voru synirnir vaxnir. Hér verða ekki raktar fram- kvæmdir sem varða búskapinn á Sandhaugum. Eiríkur tók við búi, giftist Kristbjörgu Marinós- dóttur og byggði sér bæ. Eldri hjónin voru áfram í bænum sem þau byggðu sér ung og áttu þar góða elli. Þau glöddust yfir öllu sem vel gekk og sáu nýjan Sigurð Eiríksson vaxa úr grasi. Þau nutu þess að taka á móti frændum og vinum sem komu í heimsókn. Þegar leið á síðasta vetur tók Sigurð að þverra máttur í vinstri hlið og ágerðist það svo að það varð lömun. Hann var þá fluttur til Reykjavíkur í leit að læknis- hjálp. Varð sú niðurstaða að reyna skyldi skurðaðgerð á höfði. Hann var hress og léttur í máli þegar frændur og vinir komu til hans að sjúkrabeðinu og naut þess að sjá þá. Fyrir sjálfs síns hönd kvaðst hann engar áhyggjur hafa. Hann ætti ekkert ógert. Væri búinn að því sem hann hefði ætlað sér. Þó að enginn hlutur sé eðlilegri en sá að gamalt fólk hverfi verður löngum skarð fyrir skildi. Mörg- um var Ijóst hin síðari ár að Sigurður á Sandhaugum vissi flestum meira um Bárðardal og mannlíf hans síðustu 200 ár. Það vissu menn líka að hann kunni vel frá að segja Þó hafði hann ekki verið í skóla eftir fermingu nema einn vetrartíma á Laugar- vatni. En hann vissi um hvað hann var að tala. Hann þekkti og skildi sveitunga sína. Skilji ég þau orð hans rétt að hann væri búinn að því sem hann ætlaði sér mættu þau lúta að því að hann hafi skilað föðurleifð sinni til næstu kynslóðar. Þá má orðið föðurleifð hafa merkingu í rýmra lagi. Þar undir heyrir þá auk landsins sjálfs lífsstefna og lífsskilningur, sú skoðun og þær tilfinningar sem tengja manninn umhverfi sínu og eru grundvöllur þess sem við köllum menningu. Þar hefur Sigurður á Sand- haugum skilað sínu ætlunarverki. H. Kr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.