Dagur - 14.07.1990, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 14. júlí 1990
frétfir
Nýting veiðivatna:
Útflutningur á vatnableikju til Svíþjóðar
í sumar fyiir 20 niilljónir króna
Frá því í janúarmánuði á þessu
ári hefur verið í gangi áætlun
hjá Veiðimálastofnun um nýt-
ingu á silungsveiðivötnum á
skipulagðan hátt og útflutn-
ing á bleikju sem víðast um
landið.
Nýlega var haldinn fundur að
Víðigerði í Húnavatnsssýslu þar
sem kannaður var áhugi heima-
manna til þessa máls í tengslum
við sérstakt átaksverkefni í nýt-
ingu á veiðivötnum. í dag verða
fulltrúar Veiðimálastofnunar í
Húnavatnssýslu til leiðbeiningar
um veiðar og verða þar aftur
væntanlega í ágústmánuði sömu
erindagerðar. I upphafi verður
það fyrst og fremst Vesturhóps-
vatnið og hluti vatnanna á Arnar-
vatnsheiði sem könnuð verða.
Komið hefur verið á fót mót-
tökum á Raufarhöfn, Þórshöfn,
Hofsósi, Blönduósi, Borgarnesi
og Selfossi fyrir pökkun og fryst-
ingu á bleikjunni til útflutnings,
og móttaka verður tilbúin á
Húsavík og Hvammstanga innan
skamms. Það eru frystihúsin á
viðkomandi stöðum sem annast
móttökuna, en umbúðum og
pökkunarvélum hefur verið kom-
ið til þeirra.
Búið er að flytja út fyrstu pruf-
urnar, en samningur hefur verið
gerður um útflutning á 20 tonn-
um á þessu ári til Svíþjóðar. Það
er sameiginlegt markmið sænska
innflytjandans og Vatnafangs,
sem er félag veiðibænda, að þessi
útflutningur geti orðið um 150
tonn á ári, og er áætlaður aðlög-
unartími að því markmiði 3 ár.
Bleikjan er flutt út ýmist heilfros-
in eða í flökum og er þar um að
ræða mjög smáan fisk í mörgum
tilfellum, en flökin geta verið af
100 gramma fiski í það minnsta,
en heill fiskur, slægður, verður
að ná 140 gramma stærð.
Aðaláherslan hér á Norður-
landi hefur verið lögð á Mel-
rakkasléttu, en þar fór fram
könnun á vötnunum, og í fram-
haldi af því komið á veiðum. Þær
framkvæmdir stóðu í 20 daga.
í dag hafa a.m.k. 7 aðilar hafið
Veiðar á því svæði og eru taldir
miklir möguleikar á góðri
afkomu, en fiskurinn sem þegar
hefur veiðst þar er mjög góður.
Þessar veiðar hafa tvíþættan
tilgang, þær bæta fiskinn í vatn-
inu og gera það eftirsóknarverð-
ara sem stangveiðivatn. Þannig
gæti þessi nýting á vötnunum
orðið undanfari þess að vötnin
verði í auknum mæli nýtt til sport-
veiði. Þessi veiði mun með réttri
meðferð viðhalda góðri stang-
veiði í vötnunum, cn ekki keppa
við stangirnar um veiðina.
Allir veiðibændur geta gerst
aðilar að Vatnafangi, en til þess
verða þeir að gerast hluthafar, en
lágmarkshlutur kostar fimm þús-
und krónur. Framleiðnisjóður
lánaði félaginu 1,5 milljónir
króna, og mun gefa það eftir sem
styrk í hlutfallinu 1:1 miðað við
innkomið hlutafé, en einnig mun
Framleiðnisjóður styrkja alla
leiðbeiningastarfsemi Veiðimála-
stofnunar, en hlutverk stofnunar-
innar er að koma veiðunum á og
kenna meðferð á veiðum og hefja
rekstur móttöku á bleikjunni.
Allir þeir sem áhuga hafa á því
að veiða, og taka þátt í þessu,
geta vænst aðstoðar Veiðimála-
stofnunar til'áð; hefjá vejyarrthr.
Fyrst mun skoðáð.'hvað '£r í vátn-
inu, síðan verða útvéguð net og
kennd meðferð á fiskinurrj '
Formaður Vatnafangs er
Bjarni Egilsson, Hvalnesi. GG
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
í HELLUDEILD
AFGREIÐSLA OKKAR ER OPIN
ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 8.00-17.00
OG NÚ EINNIG Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 8.00-16.00.
ALLAR GERÐIR AF HELLUM OG STEINUM
TIL Á LAGER.
SÖGUM ALLAR GERÐIR AF HELLUM.
MÖL & SANDUR HF
V/Súluveg • Pósthólf 618 ■ 602 Akureyri ■ Sími 96-21255 “
Bréfdúfa villtist af leið:
Ætlaði tíl Hafnarfjaröar
en lentí útí í Drangey
„Strákar, ég sá bláan fugl áðan,“
heyrðist sagt úti í Drangey á
Skagafirði sl. mánudag, en þar
úti eru nú staddir þeir Sigurður
Ólason, Þórður Helgason og
Rúnar Björnsson við fuglatekju.
Trúleg voru þessi orð því ekki,
en sönn engu að síður. Reyndist
blái fuglinn atarna vera bréfdúfa
sem lagt hafði upp frá Gríms-
stöðum á Fjöllum og átt að fljúga
til Hafnarfjarðar. Virtist hún
heldur betur hafa villst af leið, en
hvort það var viljandi eður ei
verður hér látið kyrrt liggja.
Strax var haft samband við eig-
anda dúfunnar sem reyndist búa
á Álftanesinu og hann sagði þeim
að fara með hana í land og sleppa
henni þar. Var dúfan nú send í
land með næstu ferð og sleppt, en
viti menn, hvert haldið þið að
hún hafi flogið? Rétt, beint til
veiðimannanna í Drangey og
unir sér þar hið besta upp á
mæni Drangeyjarskálans og þyk-
ir þeim „eyjarskeggjum" það lýsa
góðum smekk hennar í staðar- og
vinavali. SBG
Sauðárkrókur:
Félagslegum Mðiim fjölgar
Miklar byggingaframkvæmdir
eru nú á Sauðárkróki. Verið er
að byggja um 24 íbúðir og
reiknað er með að byrja á sex
til viðbótar í haust eða næsta
vor. Allt eru þetta félagslegar
íbúðir, en bygging einbýlishúsa
er í biðstöðu sökum skorts á
lóðum.
í Freyjugötu og Skógargötu er
verið að byggja sex kaupleigu-
íbúðir og á þeim að vera lokið 1.
desember. Síðan er verið að
byggja sex verkamannabústaði í
Kvistahlíð sem á að skila um ára-
mót. Einnig er hafin bygging tólf
kaupleiguíbúða í Jöklatúni í rað-
húsum, en þeim á ekki að vera
lokið fyrr en 1. ágúst á næsta ári.
Að sögn Guðmundar Ragnars-
sonar, byggingafulltrúa, er búið
að fá vilyrði í verkamannabú-
staðakerfinu fyrir sex íbúðum til
viðbótar í Jöklatúninu og vonast
til að hægt verði að byrja á þeim
á þessu ári eða næsta vor.
Ekkert hefur verið um bygg-
ingu nýrra einbýlishúsa, en tölu-
vert er um það að verið sé að
vinna í húsum sem byrjað var á
síðasta haust. Búið er að skipu-
leggja nýtt hverfi fyrir sunnan
núverandi Túnahverfi og er það
kallað Túnahverfi suðurhluti. í
júnf var deiliskipulagið að því
samþykkt og reiknað er með því
að byrjað verði á einni götu í því
hverfi í sumar. Trúlega verða þvf
auglýstar lausar lóðir í því á næst-
unni.
Guðmundur sagði að eitthvað
hefði verið um fyrirspurnir um
lóðir, en ekki verið mikill ákafi
ennþá og kæmi það sennilega til
út af öllum þessum félagslegu
íbúðum sem koma til með að
dekka húsnæðisleysið á Sauðár-
króki að einhverju leyti. SBG