Dagur - 14.07.1990, Side 3

Dagur - 14.07.1990, Side 3
Laugardagur 14. júlí 1990 - DAGUR - 3 fréffir Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Á fundi félagsmálaráðs nývcrið var rætt um framtíð dagvistarinnar Iðavalla. Fram kom hugmynd um að lóðin austan Iðavalla verði könnuð með tiiliti til byggingar þar eða færa starfsemi Iðavalla í nýju dagvistina í Þverholti. Félags- málaráð samþykkti að starf- semi Iðavalla flytjist í Þverholt í haust, en reiknað er með að dagvistin verði tilbúin 15. ágúst. í bókun félagsmálaráðs segir að ákvörðun um framtíð Iðavalla verði tekin eftir nán- ari athuganir á grunni gamla hússins. Bæjarráð leggur áherslu á að ákvörðun um framtíð Iðavalla verði hraðað og að ekki verði hafinn rekstur nýrrar dagvistar í Þverholti fyrr cn sú ákvörðun liggi fyrir. ■ íþróttaráð samþykkir að leiga vegna knattspyrnuleikja í þriðju deild í ár verði krónur 20 þúsund fyrir hvern leik. ■ Svanhildur Daníelsdóttir hel'ur sagt laúsu kennarastarfi sínu við Barnaskóla Akureyr- ar. ■ Skólanefnd hefur sam- þykkt að veita Jóni Eyfjörð Friðrikssyni og Huldu Árna- dóttur, kennurum í Glerár- skóla, launalaust leyfi næsta skólaár. ■ Skótanefnd hefur sam- þykkt að ráða Birgi Jónasson, Hrafnagilsskóla, og Jón Stefán Baldursson, Stjórutjarnar- skóla, í Vi stöðu hvor við Gagnfræðaskóla Akureyrar. ■ Fram kemur í bókun skóla- nefndar frá 3. júlí sl. að hún leggi áherslu á að framkvæmd- um við suðurhluta lóðar Gler- árskóla veröi lokið fyrir upp- haf skóla í haust. ■ Þröstur Ásmundsson, Jón Már Héðinsson og Úlllúldur Rögnvaldsdóttir hafa verið til- nefnd í stjórn Minjasafnsins á Akureyri, Jón Arnþórsson í leikhúsráð og Rut Hansen í stjórn Kammerhljómsveitar Akureyrar. ■ Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt erindi Haraid- ar Árnasonar, f.h. S.S. Byggis hf., um að hefja byggingu fjöl- býlishúss á lóðinni nr. 14 við Tröllagil samkvæmt teikning- um eftir Harald Árnason í maí 1990. Bygginganefnd hefur samþykkt byggingaleyfi og frávik frá íbúðafjölda en tekur ekki afstöðu til skipulags á raöhúsasvæði. ■ Slökkviliðsstjóri hafði ósk- að eftir því að bókað yröi að hann teldi óráölegt að byggð verði háhýsi í bænum á meðan Slökkvilið Akureyrar hafi ekki yfir áö ráða tækjabúnaði til björgunar og slökkvistarfa í háhýsum. Ólafsfirðingar aðilar að Héraðsnefnd Eyjaijarðar: Vilja endurskoðun á Fjórðungs- sambandi Norðlendinga Bæjarstjórn Ólafsfjarðar hefur samþykkt að gerast aðili að Héraðsnefnd Eyjafjarðar, en jafnframt óskar hún eftir endurskoðun á stefnu og starf- semi Fjórðungssambands Norðlendinga, en það hafa Bæjarstjórnir Akureyrar og Dalvíkur þegar gert. Uppi eru ákveðnar hugmyndir um breytingar á starfsemi Fjórð- ungssambands Norðlendinga, en reiknað er með að ákvarðanir um þær breytingar verði teknar inn- an Héraðsnefndarinnar. Að ein- hverju leyti mun Héraðsnefndin koma í stað Fjórðungssambands- ins, þ.e. á Eyjafjarðarsvæðinu, en aðildarsveitarfélög Fjórðungs- sambandsins eru úr báðum Norðurlandskjördæmunum, en ein af breytingartillögunum mun einmitt vera minnkun eða skipt- ing starfssvæðis Fjórðungssam- bandsins. Bjarni Kr. Grímsson bæjar- stjóri í Ólafsfirði segir að sveitar- félögin hér á svæðinu geti ekki endalaust bundist samtökum um samstarf eða sameiginleg verk- efni, og þegar nýr vettvangur skapast eins og innan Héraðs- nefndar Eyjafjarðar, þá er sjálf- sagt og eðlilegt að endurskoða þann vettvang sem fyrir er. Sem dæmi um samstarf eða sameiginleg verkefni innan Hér- aðsnefndar Eyjafjarðar hafa helst verið í umræðunni sorpeyð- ing, tónlistaskólar, dvalarheimili aldraðra, eldvarnir og almanna- varnir. GG Sjónvarpið á sunnudagskvöld: Fylgst með Jónsmessugleði að Baugaseli í Barkárdal Jónsmessunóttin er í þjóð- trúnni sveipuð töfraljóma enda eru þá álfar og huldufólk á ferli og vænlegt dauðlegum mönn- um að baða sig í dögginni. Á dagskrá Sjónvarpsins nk. sunnudagskvöld er þáttur sem Örn Ingi og Samversmenn gerðu með góðu fólki við dans og lífleg læti við Baugasel í Barkárdal. Ekki eru þeir margir sem líta upp frá erli hversdagsins til að njóta Jónsmessutöfranna en þó eru þeir nokkrir og má minnast á 300 manna hóp á vegum ferðafé- lagsins Hörgs, sem er félagsskap- ur Hörgdæla og Oxndæla. Hörgs- menn komu saman á Jónsmess- unni að Baugaseli, eyðibýli í Barkárdal er félagið hefur endur- byggt glæsilega og gert að útverði sínum þar í dalnum. Barkárdalur er ekki oft á vör- um þjóðarinnar. Landfræðiglöggir menn munu þó minnast þess að dalurinn gengur vestur úr Hörg- árdal inn í Tröllaskaga. Þar um lá fyrrum þjóðleið austan að til biskupssetursins Hóla og stóðu þrjú býli þar í dalnum er best lét. Síðast fór Baugasel í eyði fyrir 25 árum. „Sjálfrennandi gleði fólks,“ segir Örn Ingi um þáttinn er hann vann sem gestur Hörgsmanna a nýliðinni hátíð þeirra. Hér var margt um að vera í sumarnótt- inni; leikir, sögur, íslensk glíma og hrútadráttur kvenna. Örn náði þarna tali af forvígismönn- um Hörgs, sem og af bræðrum þeim er síðastir voru ábúenda í dalnum. Sannkölluð mannstífla skapaðist þarna í þröngum dalnum, sem er svo mittismjór að snjóflóð hafa fallið úr hlíðinni öðrum megin og upp í hlíðina hinurn megin. I Barkárdalnum eru fífilbrekkur, grónar grundir og náttúrufegurð mikil. Jarðvcg- ur er þvt kjörinn fyrir teiti og gleðskap eins og Órn Ingi og Samversmenn urðu vitni að. SS Gagnfræðaskólinn í Ólafsfirði. Mynd: kl Ólafsijörður: Tuttugu ár hafa ekki dugað tU að ljúka bygg- mgaframkvæmdum við Gagnfræðaskólann í vor var lagt nýtt tjörubrennt þakpappalag á þak Gagn- fræðaskóla Ólafsfjarðar, en til stóð að framkvæma þetta í fyrra en þá fengust engir fag- menn til verksins. Tuttugu ár eru liöin síðan skól- inn var tekinn í notkun, og má segja að þakið hafi lekið öll þessi 20 ár, öllum til ama og leiðinda. Reyndar er byggingu skólans ekki lokið, en anddyri skólans er miðað við það að við skólann verði byggð ein álma. Engar áætlanir eru nú uppi um framhald byggingarframkvæmda við Gagnfræðaskólann. GG Vinnuvika launamanna: Verkamenn með tæplega 50 stunda vinnuviku I athugun Kjararannsóknar- nefndar hjá nokkrum hópum innan ASI kom í Ijós að karlar í verkamannavinnu vinna að meðaltali flestar stundir á viku. Gerður var samanbuður á meðalfjölda vinnustunda á viku á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og síðasta árs sem leiddi í Ijós að þegar á heildina er litið hefur ekki orðið breyting þó einstakir hópar hafí aukið vinnuna en aðrir dregið úr. Sem áður segir var vinnuvika verkakarla lengst nú, sem og í fyrra. í ár reyndist hún 49,9 stundir að meðaltali en næst í röðinni komu karlar í afgreiðslu- störfum sem unnu að meðaltali 48 tíma vinnuviku. Vinnuvika iðnaðarmanna mæl- ist að meðaltali 47,8 stundir, 47,7 stundir hjá konum í afgreiðslu- störfum, 44,5 stundir hjá verka- konum, 42,1 stundir hjá körlum í skrifstofustörfum og styst er vinnuvika kvenna í skrifstofu- störfum eða 39,5 stundir á viku | að meðaltali. JÓH Sauðárkrókur: Bæjarmála- punktar ■ íþróttaráð hefur samþykkt að fela bæjarstjóra og félags- málastjóra, í samráði við for- stöðumann sundlaugarinnar, að kanna möguleika á leng- ingu opnunartíma sundlaugar- innar í sumar. ■ Bygginganefnd hefur sam- þykkt eftirfarandi breytingar á byggingaskilmálum fyrir lóðir vestan götu við Hólatún, Fellstún, Daltún og Ártún.: 1. Gangstéttar utan lóöar- marka: - skulu vera hellulagðar - Hæðarmun milli stéttar og jarðvegs viö stétt skal vinna upp mcö steyptum sökkli eða steinhleðslu. Ekki grasfláa. Heimilt er að leggja snjó- bræðslukerfi undir stéttar. - Lagning og viðhald stétta er á kostnað og ábyrgð húseig- enda. 2. Innkeyrslur: - Verði niest 5 metrar nema þar sem bílastæði leyfa ekki fulla breidd. - Lagning þeirra og viðhald verður á kostnað og ábyrgð Sauðárkróksbæjar. - Heimilt er að leggja snjó- bræðslukerfi undir innkeyrsl- ur. 3. Giröingar: - Veröi úr steinsteypu. - Heimilt er að hafa þær úr timbri ef hús er úr timbri. Staf- ir (pílárar, borö) verði lóðrétt- ar og bil milli stafa ekki mcira en Vs af breidd stafs. - Hæð girðingarinnar við húsvcgg veröi ekki lægri en 1 meter yfir gólfhæð húss. - Heimilt cr að reisa giröingar á lóðamörkum milli húsa og frá lóðamörkum við götu að bílagcymslu. - Girðingar, smíöi og viðhald er á kostnað og ábyrgð húseig- enda. - Sauðárkróksbær áskilur sér rétt til að reisa girðingar í sam- ræmi viö byggingarskilmála á kostnað húseigcnda. hafi hús- eigandi ekki girt sjálfur innan þriggja ára frá lokaúttekt húss. ■ Trésmiðjan Borg hf. hefur skilaö til bygginganefndar lóð- unum nr. 17-25 við Grenihlíð, ■ Linda Björnsdóttir, fóstra á Furukoti, hefur sagt upp starfi sínu. Hún mun hætta störfum um miðjan septeni- ber. ■ Veitnstjórn hefur sam- þykkt að verða viö beiðni Steingríms Þormóðssonar hdl. varðandi nauðasamninga Mel- rakka hf., að því er varðar skuldir Melrakka við Rafveitu Sauðárkróks, að upphæð kr. 767.261 og Hitaveitu Sauðár- króks að upphæð kr. 151.924. ■ Á l'undi bæjarráðs 29. júní sl. var lagt fram erindi Baldurs Heiðdal, Einars Péturssonar, Jóns Jakobssonar og Birgis Hreinssonar varðandi leigu- bílaakstur á Sauðárkróki. Samþykkt var að 'óska eftir viðræðum við forsvarsmenn Fólksbílastöðvar Sauöárkróks um þetta mál.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.