Dagur - 14.07.1990, Page 7

Dagur - 14.07.1990, Page 7
Laugardagur 14. júlí 1990 - DAGUR - 7 sakamálasaga Leitin að beinum Pekingmannsins Nærri Peking í Kína voru, rétt upp úr 1920, grafin upp bein, nærri 500.000 ára gömul. Ákafir vísindamenn neru sér um handarbökin og töldu beinin sýna mikilvægan hlekk í þróun mánnsins. „Pekingmaðurinn“ varð hugtak innan mann- iíi'j’ fræðinnar. Þegar Japanir nálguðust Peking íírið 1941, var ákveðið að beinin (skyidu flutt til Ameríku, en þau náðu aldrei áfangastað. Frá þeinr tíma hefur dr. Harry L. Shapiro, fyrrum prófessor í nrannfræði við Colombiaháskóla leitað þeirra. Hann telur að sjó- liðsforingi nokkur hafi rænt þeim og smyglað til Ameríku. Tilgátan fékk byr undir báða vængi, þegar kaupmaður nokkur í Chicago tilkynnti, að hann væri reiðubúinn að greiða 5.000 doll- ara fyrir nánari upplýsingar um Pekingmanninn. Hann átti í framhaldi af því fund með óþekktri konu á 102. hæð Empire State byggingarinnar í New York. Konan fullyrti að maður hennar hefði komlð með stein- gerð bein af fortíðarmanni heim frá Kína. Hún sýndi honum Ijós- mynd af beinunum en áður en samningar tókust hvarf hún sporlaust. FBI hefur leitað uppi og yfirheyrt fjölda ameríkanskra hermanna, sern kornu heim frá Asíu með furðulegar hauskúpur í farangri sínum, en án árangurs. Kaupmaður einn í Sydney í Ástralíu hélt því fram, að hann hefði fundið beinin og grafið þau í jörðu í skógum Tasmaníu. Hann var tilbúinn til að sýna hvar þau væru, gegn góðri greiðslu. Hugsanlegt er að bein Peking- mannsins séu víða, í Ameríku. Ástralíu og jafnvel á Englandi. En dularhjúpur ránsins á þeim er órofinn. Sneri hann aftur? Nels Stenstrom og kona hans Anna áttu litla verslun í kola- námabænum Mcvay í Washing- tonfylki í Bandaríkjum Norður- Ameríku. Þau voru iðin og ósérhlífin og unnu flestum stund- um í verslun sinni, sem hét ein- faldlega Mcvay-búðin. Kjörorð þeirra var: „Við höfum allt, sem þú þarfnast." I Árið 1905 dró upp dökk ský. Þann 5. júní hvarf Nels Sten- strom og fannst hvorki af honum tangur né tetur. lllgjarnar tungur pískruðú um, að þessi hávaxni, myndarlegi maður væri haldinn flökkueðli og hefði einfaldlega stungið af með annarri. En eng- inn leyfði sér að nefna slíkt í ná- vist Önnu, sem hafði dáð og dýrkað mann sinn. Vildi fá kistu, leiði og jarðarför Anna hélt áfram rekstri verslun- arinnar eins og ekkert hefði í skorist. Reksturinn gekk vel, umsetningin jókst og verslunin stækkaði. Sumarið' 1912 var Nels Stenstrom opinberlega lýstur látinn. Daginn, sem það gerðist, lét Anna hafa eftir sér ummæli, sem blöð víða unt landið hentu á lofti. „Þótt aðeins sé um að ræða opin- bera yfirlýsingu um að hann sé látinn, þá fer ég þess á leit, að hann fái almcnnilega greftrun." Þótt ekkert lík væri fyrir hendi, vildi hún fá kistu, leiði og jarðar- för viö hæfi fyrir mann sinn. Þetta var svo óvenjuleg ósk, að fjöldi fréttamanna og annarra forvitinna streymdi til þorpsins. Þegar athöfnin hófst í sóknar- kirkjunni klukkan 14:30 þann 1. júlí árið 1912 var hún troðfull. Nels var uppgjafahermaður og í heiðursskyni var kistan sveipuö bandaríska fánanum. Fyrst mælti presturinn nokkur huggunarorð, einn af gömlunt vinum hins látna hélt yfir honum lofræðu og Anna sté í pontu. „Það er Nels“ En tæpast hafði hún tekið til máls er ókyrrð braust út meðal áhorf- endanna. Gráhærður hjálpar- vana vesalingur, tötrum klæddur, reikaði kjökrandi inn eftir kirkj- unni og bar sig illa. Nærstaddir kváðu hann hafa starað bænar- augum á Önnu áður en hann féll í ómegin. Anna varð fyrst til og þreifaði eftirpúlsi mannsins. Tárin runnu niður kinnar hennar, er hún leit upp aftur. Allt sem henni tókst að segja var: „Það er Nels." Læknir bæjarins gaf út dánarvott- orð þótt hann furðaði sig á því, að illa á sig komnar líkamsleifar þessa drykkjusjúklings gætu ver- ið af Nels Stcnstrom. Mörg hundruð ntanns voru viðstödd, þegar lík flakkarans var borið til grafar Stenstroms. Sagan fékk furðulegan eftirmála. Nágrannabæirnir Roslyn og Cle Elum blómstruðu, en kolanám- urnar í Mcvay tæmdust. Bænum hrakaði. Anna lést og var graíin við hlið manns síns. Byggingar- meistari nokkur keypti verslunar- húsið fyrst og fremst til niðurrifs vegna þess hversu vel þaö var byggt og úr góðunt viði. Hann lét rífa húsið og þá fannst gröf undir gólfborðunum. í henni voru tvær beinagrindur klofnar í herðar niöur og milli þeirra öxi. Önnur beinagrindin var af konu. Hver hún var var jafn ómögulegt aö segja til um og liver flækingur- inn var í gröfinni við hliðina á Önnu. Og líkama mannsins var einnig útilokað að þekkja. Var þar ef til vill um að ræða líkið af Nels Stcnstrom? Vöruskiptin við útlönd í janúar-maí 1990: Hagstæð um 0,7 milljarða króna í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir röska 9,5 milljarða króna og inn fyrir nær 11,8 milljarða króna fob. Vöruskiptajöfnuðurinn í maí var því óhagstæður um röska 2,2 milljarða króna og reiknað á föstu gengi er það svipað og í sama mánuði í fyrra. Af innflutn- ingnum í maí stafa nær 4,3 millj- arðar af þotukaupum Flugleiða hf. en þau námu 3,3 milljörðum í maí í fyrra. Að flugvélakaupun- um frátöldum hefur vöruskipta- jöfnuðurinn verið hagstæður um 2 milljarða króna í maí á þessu ári en var hagstæður unt 1,1 millj- arð í maí í fyrra. Fyrstu fimm mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 37,4 milljarða króna en inn fyrir 36,7 milljaðra króna fob. Vöruskipta- jöfnuðurinn á þessum tíma var því hagstæður um röska 0,7 millj- arða króna en á sama tíma í fyrra var hann hagstæður um 2,8 millj- arða króna á sama gengi. Fyrstu fimm mánuði þessa árs var verðmæti vöruútflutnings 4% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru um 80% alls útflutningsins og voru um 15% meiri en á sama tíma í fyrra. Útflutningur á áli var 35% minni og útflutningur kísiljárns var 37% minni en á sama tíma á síðastliðnu ári. Útflutningsverðmæti annarrar vöru (að frátöldum skipum og flugvélum) var 9% meira í janúar- maí en á sama tíma f fyrra, reikn- að á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutningsins fob. fyrstu firnm rnánuði ársins var 10% meira en á sama tíma í fyrra. Flugvélakaup vega mun þyngra í innflutningnum það sem af er á árinu en á sama tíma í fyrra en skipakaup hafa dregist saman. Verðmæti innflutnings til stóriðju var hálfu meira en í fyrra, en verðmæti olíuinnflutn- ings fyrstu fimm mánuði ársins var 6% minna en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þess- ir innflutningsliðir ásamt inn- flutningi skipa og flugvéla eru jafnan breytilegir frá einu tíma- bili til annars, en séu þeir frátald- ir reynist annar innflutningur (67% af heildinni) hafa orðið urn 1,5% meiri en í fyrra, reiknað á föstu gengi. Átthagamót Arnarneshrepps verður haldið laugardaginn 21. júlí og hefst að Freyjulundi kl. 15.00. Um kvöldið verður dansleikur í Hlíðarbæ. Allir búsettir og brottfluttir sveitungar velkomnir. Nefndin. AKUREYRARB/ÍR Hundar í óskilum Tveir hundar eru í óskilum hjá meindýraeyði. Ung og svört tík af Labradorkyni og kynblending- ur, loðinn, meðalstór hundur, óreglulegur að lit. Upplýsingar í símum 25602 og 22777. Dýraeftirlit Akureyrarbæjar. Löggildingarstofan: IQjOiJ Löggilding vigtarmanna Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldið á Sauðárkróki 23. og 24. júlí og á Akur- eyri 25. og 26. júlí ef næg þátttaka fæst. Þátttaka tilkynnist Löggildingarstofunni Síðu- múla 13 fyrir fimmtudag 19. júlí næstkomandi í síma 91 -681122 en þar fást jafnframt allar nán- ari upplýsingar. Löggildingarstofan. TIL SÖLU Til sölu er fyrirtæki í rafverktaka- starfsemi í fullum rekstri staðsett á Eyjafjarðarsvæðinu. Upplýsingar aöeins veittar á skrifstofunni. Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600 Frá menntamálaráðuneytinu Starfsmenntunarstyrkir tii náms í Noregi og Svíþjóð Lausir eru til umsóknar fáeinir styrkir sem norsk og sænsk stjórnvöld veita á námsárinu 1990-91 handa íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhalds- náms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á fslandi. Fjárhæð styrks í Noregi er 21.200 n.kr. og í Svíþjóð 10.000 s.kr. miðað við styrk til heils árs. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 25. júlí n.k. og fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt meðmælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 21. júní 1990.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.