Dagur - 14.07.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 14. júlí 1990
sumarvinna
Æskudraumurinn var að
fá að keyra Babú,
og hann rættist!
Segja má að íslenska skóla- I ur flykkist almennt út á vinnu- gengur auðvitað misjafnlega,
kerfíð krefjist þess að nemend- | markaðinn á sumrin. Það atvinnuástand er æði oft þann-
ig að ekki er um auðugan garð
að gresja, og því verður að
taka því sem að höndum ber.
Aðrir eru lánsamari, hreppa
jafnvel óskastarfið sem sumar-
vinnu.
það, aðallega unglingavinfiu,“
sagði Jóhanna Dögg, og greini-
legt var á svipnum að það var
hreint engin óska sumarvinna.
Hvaða strákur hefur ekki bor-
ið þá ósk í brjósti, leynt eða ljóst,
að í framtíðinni sæti hann í
slökkvibíl og geystist um götur
bæjarins. Einn þeirra sem bar
slíkar vonir í brjósti og sá þær
rætast er Sigurður Sigurðsson,
sem sl. þrjú sumur hefur fengið
sumarafleysingastarf hjá Slökkvi-
stöðinni á Akureyri. Sigurður
stundar nám við Verkmennta-
skólann á Akureyri, grunndeild
rafiðnaðar, og sagðist aðspurður
vonandi verða rafvirki í nánustu
framtíð ef hann héldi námi áfram
en það væri ansi dýrt að vera í
skóla.
- Af hverju vinnurðu hjá
Slökkviliðinu, eru það launin?
„Nei, það eru ekki launin,
þetta er búið að vera mitt áhuga-
mál síðan ég var smá gutti, en ég
bjó hérna í næsta húsi við
Slökkvistöðina og fylgdist mikið
með því sem fram fór hér og
kynntist vel öllum körlunum sem
hér unnu.“
- Heldurðu að þú leggir þetta
kannski fyrir þig í framtíðinni?
„Mér líkar þetta mjög vel, og
svo getur rafvirkjamenntun nýst
manni ágætlega t.d. þegar taka
þarf af rafmagn vegna eldsvoða.
Það var verið að gera samþykkt
fyrir Slökkviliðið í Reykjavík að
umsækjendur hefðu lágmarks-
menntun, helst iðnmenntun, en
aðallega er þetta gert til þess að
ná upp laununum því annars vær-
um við á algjörum lágmarkslaun-
um.“
- Hvað eru margir á vaktinni?
„Það eru 3, en við stærri útköll
eru þeir fyrst kallaðir út sem eru
á frívakt, síðan er hér varalið.
Það er engin kvöð á frívaktinni
að vera í bænum.“
- Hvernig var fyrsti vinnudag-
urinn fyrir þremur árum síðan?
„Hann var mjög stressandi,
fyrsta útkallið var upp á Sjúkra-
hús en þar fór brunakerfið í gang
vegna þess að verið var að baða
sjúklinga og gufan fór í skynjara
og tilkynnti eldboð niður á stöð.
Það fóru þrír á tveimur bílum, og
síðan voru kallaðir út fastráðnu
mennirnir.“
- Hvenær komstu á vakt í
Jóhanna Dögg Stefánsdóttir.
„Ég ætla að fá eina samloku
með hangikjöti, eina kók, tvö
hraun og bland í poka fyrir þrjá-
tíu, nei annars hafðu það fimm-
tíu krónur."
Þannig óskir og stundum miklu
lengri listi og flóknari berst eyr-
um þeirra sem afgreiða í sjopp-
unum sem eru víðs vegar hér sem
og annars staðar um landið.
Jóhanna Dögg Stefánsdóttir
frá Svalbarðsströnd var svo lán-
söm að fá vinnu við afgreiðslu á
SHELL-nestinu við Hörgárbraut
í sumar, en í vetur stundaði hún
nám við Verkmenntaskólann á
Akureyri, og var á fyrsta ári á
uppeldisbraut. Hún var við
afgreiðslu í góða veðrinu sl. mið-
vikudag er blm. Dags bar þar að
garði.
Ljósmyndasamkeppni
[ tilefni af 25 ára afmæli Pedromynda á Akureyri efnir fyrirtækiö til
Ijósmyndasamkeppni í samvinnu við Dagblaðiö Dag.
Takið þátt í Ijósmyndasamkeppninni!
eru einfaldar:
3:f^r Öllum er heimil þátttaka.
=s^ Myndefni er þátttakendum í sjálfsvald sett.
Æskileg stærö mynda er 10x15 cm.
Keppnin stendur yfir til 15. september nk.
' Tekið er á móti myndum í verslunum Pedromynda
í Hafnarstræti 98 og Hofsbót 4 á Akureyri.
Veitt verða tvenn verðlaun: Annars vegar fyrir „lifandi
myndefni" (menn og dýr) og hins vegar fyrir landslag eða form.
Dagur áskilur sér rétt til að birta þær myndir
sem til álita koma, sér að kostnaðarlausu.
Úrslit verða tilkynnt um miðjan október.
- Er ekki leiðinlegt að vinna
innandyra þegar veður er svona
gott?
„Nei, nei, það er ekki um ann-
að að velja þegar maður er í
svona vinnu, en stundum er nú
reyndar frí og þá gæti verið gott
veður. Ég hef ekki unnið hér
áður, en líkar þetta ágætlega.“
- Var ekki um neina vinnu að
ræða á Svalbarðseyri?
„Nei, það er ekki hægt að segja
Verðlaunin fyrir bestu mynd í hvorum flokki er myndavél af gerðinni
CHINON GENESIS, með aukahlutum, að verðmæti 30 þúsund krónur.
GPeáí6tnyndir'
Hafnarstræti 98, sími 23520 ■ Hofsbót 4, sími 23324 Strandgötu 31, sími 24222
dag?
„Ég kom klukkan átta i
morgun, og búið er að fara í tvo
sjúkraflutninga og hlaða einhver
slökkvitæki. Við förum einnig oft
inn á flugvöll til að ná í sjúklinga
sem koma víðs vegar að af Norð-
austurlandi á leið á Sjúkrahúsið.
Það eru enn eftir þrír tímar af
vaktinni svo maður veit aldrei
hvort útköllin verða fleiri.“ GG