Dagur - 14.07.1990, Page 15
Laugardagur 14. júlí 1990 - DAGUR - 15
vinstri: Guðmundur Jónsson, forseti Hæstaréttar, frú Dóra Nordal, Jón Sig-
urðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands, Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjunar, frú Laufey
Þorbjarnardóttir og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra.
Lífið er blanda
- ávarp Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra í 25. ára afmælisveislu
Landsvirkjunar á Húnavöllum 1. júli sl.
Forseti íslands, ágætu veislugestir.
Lífið er blanda - blanda
draums og veruleika. Þegar
draumar rætast - verða að veru-
leika - þá er líka gaman að lifa. í
morgun þegar hornsteinn var
lagður í stöðvarhúsvegginn við
Blönduvirkjun rættist brot úr
stórum draumi - drauminum um
að beisla orku íslenskra fall-
vatna.
Virkjunin hefur verið lengi í
smíðum. Því hefur fyrst og
fremst valdið að áætlanir og spár
um markað fyrir raforku frá
henni hafa ekki gengið eftir. Nú
virðist hins vegar sem betur fer í
sjónmáli markaður fyrir orku frá
virkjuninni og þar með fjárhags-
grundvöllur fyrir hana. Horn-
steinninn er því kærkomin
afmælisgjöf til Landsvirkjunar á
aldarfjórðungs afmælinu.
Með stofnun Landsvirkjunar
fyrir tuttugu og fimm árum hófst
nýr kapítuli í sögu íslenskra
orkumála. Fram að þeim tíma
hafði megináherslan verið lögð á
að rafvæða landið, en með stofn-
un Landsvirkjunar var áformað
að hefja stórfellda nýtingu vatns-
orku til stóriðju.
Eðlilegt væri að líta yfir farinn
veg og meta þroska afmælis-
barnsins á slíkum tímamótum, en
það verður að bíða betri tíma.
Um leið og ég óska afmælisbarn-
inu til hamingju vil ég þakka
starfsliði og stjórn Landsvirkjun-
ar vel unnin störf og öllum þeim
sem unnið hafa að framkvæmd-
um við Blönduvirkjun.
Nýting orkulindanna til efling-
ar atvinnu er eitt af mikilvægustu
verkefnum í okkar þjóðmálum.
En það er ekki nóg að ræða á
hátíðarstundum - eins og þessari
- um það að nýta orkuauðinn.
Við þurfum að kunna og þora að
grípa þau tækifæri sem gefast til
þess.
Einmitt nú kann slíkt tækifæri
að gefast. í liðinni viku náðist
góður áfangi í Atlantsálsamning-
unum. Áfangi sem gefur vonir
um að samningar náist í haust um
nýtt álver.
Ég vonast til að Atlantsál verði
farið að nýta orku - meðal annars
héðan frá Blönduvirkjun - í nýju
álveri árið 1994. Þannig verður
íslensk orka flutt yfir Atlantsála
til að afla þjóðinni tekna.
Framkvæmdirnar við Blöndu
hafa meðal annars markað spor á
sviði jarðgangagerðar - og stuðl-
að þannig að tækniframförum í
landinu. Við Blöndu var rofið
langt hlé í gerð jarðganga hér á
landi.
Reynslan sem þar fékkst og
síðan í Ólafsfjarðarmúla hefur
sýnt að óttinn við jarðgangagerð
hér á landi sem ríkti á seinni
hluta áttunda áratugarins og í
byrjun þess níunda var ástæðu-
laus.
Gerð jarðganga við Blöndu
varð einnig hvati til breytinga á
áætlun um Fljótsdalsvirkjun. Ný
áætlun gerir ráð fyrir að boruð
verði göng til að flytja vatn til
virkjunarinnar, í stað þess að
grafa skurði. Með því móti vinnst
þrennt, framkvæmdatíminn stytt-
ist, arðsemi virkjunarinnar eykst
og síðast en ekki síst verður
minni röskun á umhverfi, því
minna land fer undir vatn, dýralíf
raskast síður og minna ber á
mannvirkjunum.
En við rannsóknir og allan
undirbúning Blönduvirkjunar var
einmitt tekið skipulega á öllum
þáttum umhverfismála og hefur
því fordæmi verið fylgt við virkj-
anaundirbúning síðan. Það er
forsenda Blönduvirkjunar að þar
eru góðar aðstæður til að safna
vatni en ekki háir fossar eins og
leikmenn telja gjarnan megin
forsendu vatnsaflsvirkjunar.
Það er vissulega talsvert gróið
land sem fer undir þetta vatna-
safn. Okkur er öllum í fersku
minni þær miklu umræður sem
urðu um virkjunina fyrir nokkr-
um árum. Það er skiljanlegt að
bændur sjái eftir heiðalöndunum
sem hafa verið grundvöllur
búskapar í Blöndudal um aldir.
Landsvirkjun mun bæta landa-
missinn með umfangsmikilli upp-
græðslu á Auðkúluheiði og
Eyvindarstaðaheiði. Og nú hafa
náðst um þetta mál góðar sættir
og friður í héraðinu. Þar hefur
líka hjálpað að breytingar á
búháttum í landinu draga úr beit.
Þannig hafa bæst við landkosti
Húnavatnssýslna hin mikla orku-
hlaða Blönduvirkjunar og upp-
græðsla lands. Og óravíddir grös-
ugra heiða verða áfram aðal-
merki héraðsins. Og Blanda mun
streyma áfram en með bjartari
svip en fyrr.
Mér finnst við hæfi að rifja hér
upp erindi úr löngu ljóði um
Blöndu sem mun ort á Höllustöð-
um á fyrri hluta aldarinnar:
„Aflþrungin áfram streymir
elfan um gljúfradal
frá Ijósum jökullindum
lengst fram í bjargasal. “
Það er frumskylda okkar að
gæta náttúru landsins og allar
virkjanir verða að taka mið af
því. Við Blöndu hefur verið stað-
ið vel að verki í þessum efnum og
reynslan héðan hefur fætt af sér
nýjar virkjanalausnir - lausnir
sem í senn eru hagkvæmar og
umhverfinu vinsamlegar.
Þannig bætir hvert velheppnað
verk við verkkunnáttuna. Ég
vona að Blönduvirkjun verði
þessu héraði og landinu öllu til
blessunar og bið ykkur að lyfta
með mér glösum í heillaskál fyrir
Landsvirkjun á 25 ára afmælinu,
fyrir Blönduvirkjun og framtíð
íslenskra fallvatna.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið sýnir kl. 21.55 á sunnudagskvöld finnsku myndina Hryðjuverkamennirnir, sem byggð er á leikritinu
Hinir róttlátu eftir Albert Camus.
Sjónvarpið
Laugardagur 14. júlí
14.00 Landsmót UMFÍ.
Bein útsending frá 20. landsmóti UMFÍ í
Mosfellsbæ, þar sem 3000 keppendur frá
29 héraðssamböndum og ungmennafé-
lögum keppa í um 100 íþróttagreinum.
18.00 Skytturnar þrjár (13).
18.25 Framandi grannar.
Bandarísk teiknimynd um gesti utan úr
geimnum.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Steinaldarmennirnir.
19.30 Hringsjá.
20.10 Fólkið i landinu.
Oddviti, kennari, meðhjálpari og móðir.
Sigrún Valbergsdóttir ræðir við Kristínu
Thorlacius prestsfrú á Staðastað.
20.30 Lottó.
20.35 Hjónalíf (8).
(A Fine Romance.)
21.05 Pompeius litli.
(Peter and Pompey).
Áströlsk bíómynd frá árinu 1986.
Tvö áströlsk ungmenni kynnast með
undursamlegum hætti lífi Pompeiusar,
sem uppi var á tímum Nerós keisara.
22.40 Válynd veður.
(The Mean Season.)
Bandarísk bíómynd frá árinu 1985.
Rannsóknarblaðamaður vinnur að frétta-
öflun vegna morðmáls en atvikin haga
því þannig að hann verður tengiliður
morðingjans við umheiminn.
Aðalhlutverk: Kurt Russell, Mariell Hem-
ingway, Richard Jordan og Richard
Masur.
00.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 15. júlí
14.00 Landsmót UMFÍ.
Bein útsending frá Mosfellsbæ.
17.40 Sunnudagshugvekja.
Flytjandi ei Jón Oddgeir Guðmundsson.
17.50 Pókó (2).
(Poco).
Danskir bamaþættir.
18.05 Feðginin.
(En god historie for de smá: Pappan och
flickan.)
Þessi mynd er liður í norrænu samstarfs-
verkefni og er byggð á ævintýrinu um
Öskubusku.
18.25 Ungmennafélagið (12).
Silungur ætur.
Umsjón Valgeir Guðjónsson.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Vistaskipti.
19.30 Kastljós.
20.30 Jónsmessunótt í Barkárdal.
Sjónvarpsmenn slógust í för með þrjú
hundruð manna hópi sem skemmti sér
við hrútadrátt, fangbrögð og fleira við
Baugasel í Barkárdal á Tröilaskaga
nýliðna Jónsmessunótt.
Umsjón: Öm Ingi.
21.10 Á fertugsaldri (5).
21.55 Hryðjuverkamennirnir.
(Terroristema)
Sjónvarpsmynd eftir Veli-Matti Saikkon-
en, byggð á leikritinu Hinir réttlátu eftir
Albert Camus. Hópur hryðjuverkamanna
er að undirbúa tilræði en spurningar um
réttlæti og ofbeldi leita á hugi þeirra.
Aðalhlutverk: Marcus Groth, Turo Pajala
og Ville Sandquist.
23.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 16. júlí
17.50 Tumi.
(Dommel).
18.20 Litlu prúðuleikararnir.
(Muppet Babies.)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismær (124).
19.25 Leðurblökuma^urínn.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Ljóðið mitt (7).
Að þessu sinni velur sér ljóð Indriði G.
Þorsteinsson rithöfundur.
20.405 Ofurskyn (1).
(Supersense).
Fyrsti þáttur: Sjötta skilningarvitið.
Einstaklega vel gerður breskur fræðslu-
myndaflokkur í sjö þáttum þar sem fýlgst
er með þvi hvernig dýrin skynja veröldina
í kringum sig. Viðfangsefni fyrsta þáttar
eru þau skilningarvit sem dýrin búa yfir
en mannfólkið ekki.
21.10 Gárur.
(Making Waves).
Bresk stuttmynd frá árinu 1988.
Hópur roskinna kvenna er að fara i ferða-
lag en þeim til mikillar furðu kemur ein
þeirra með karlmann sem hún segir vera
son sinn. Ein kvennanna reynir að kynn-
ast honum betur og þá tekur sagan
óvænta stefnu.
Aðalhlutverk: Sheila Hancock og Kenn-
eth Cranham.
21.25 Skildingar af himnum.
(Pennies from Heaven).
Þriðji þáttur.
Breskur myndaflokkur í sex þáttum.
Aðalhlutverk: Bob Hoskins.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 14. júlí
09.00 Morgunstund.
10.30 Júlli og töfraljósið.
10.40 Perla.
11.05 Stjörnusveitin.
11.30 Tinna.
12.00 Smithsonian.
(Smithsonian World.)
12.50 Heil og sæl.
Allt sama tóbakið.
13.30 Brotthvarf úr Eden.
(Eden’s Lost)
Annar hluti af þremur.
14.15 Veröld - Sagan í sjónvarpi.
(The World - A Television History.)
15.00 Framadraumar.
(I Ought To Be In Pictures.)
Ung stúlka ferðast yfir endilöng Banda-
ríkin til þess að hafa upp á föður sínum
sem hún hefur ekki séð lengi.
Aðalhlutverk: Walter Matthau og Ann-
Margaret.
17.00 Glys.
(Gloss.)
18.00 Popp og kók.
18.30 Bílaíþróttir.
19.19 19.19.
20.00 Séra Dowling.
(Father Dowling.)
20.50 Til bjargar börnum.#
(In Defense of Kids.)
Kvenlögfræðingur nokkur fleygir frá sér
starfi og starfsframa til að aðstoða böm
sem hafa komist í kast við lögin.
22.25 Tópas.#
(Topaz)
Alþjóðlegt leynimakk er viðfangsefni
þessarar Hitchcock myndar, sem byggð
er á sannsögulegum atburðum, sem
skóku vestræna stjórnmálamenn á sínum
tíma.
Aðalhlutverk: John Forsythe.
Bönnud börnum.
00.25 Undirheimar Miami.
(Miami Vice.)
01.10 Vopnasmygl.
(Lone Wolf McQuade.)
Þetta er spennandi hasarmynd sem segir
frá landamæraverði i Texas sem er harður
í horn að taka ef á þarf að halda.
Aðalhlutverk: Chuck Norris, David Carr-
adine og Barbara Carrera.
Bönnud börnum.
02.55 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 15. júli
09.00 í bangsalandi.
09.20 Popparnir.
09.30 Tao Tao.
09.55 Vélmennin.
10.05 Krakkasport.
10.20 Þrumukettirnir.
10.45 Töfraferðin.
11.10 Draugabanar.
11.35 Lassý.
12.00 Popp og kók.
12.30 Vidskipti i Evrópu.
13.00 Jesse.
Sönn saga af hjúkmnarkonu nokkurri
sem leggur sig alla fram við starf sitt.
Aðalhlutverk: Lee Remick, Scott Wilson
og Richard Marcus.
15.00 Listamannaskálinn.
(The Southbank Show.)
16.00 íþróttir.
19.19 19.19.
20.00 í fréttum er þetta helst.
(Capital News.)
20.50 Björtu hlidarnar.
21.20 Hneykslismál.
(Scandal)
22.40 Alfred Hitchcock.
23.05 Boston-mordinginn.
(The Boston Strangler.)
Sannsöguleg mynd um dagfarsprúðan
pipulagningamann sem er geðkolfi.
Hanns nánustu grunar ekki neitt fyrr en
hann er talinn vera valdur að dauða tólf
kvenna sem allar vom myrtar á hryllileg-
an hátt.
Aðalhlutverk: Tony Curtis, Henry Fonda,
George Kennedy.
Stranglega bönnuð börnum.
01.00 Dagskrárlok.
Stöð 2
Mánudagur 16. júlt
16.45 Nágrannar.
(Neighhours.)
17.30 Kátur og hjólakrílin.
17.40 Hetjur himingeimsins.
18.05 Steini og OUi.
18.30 Kjallarinn.
19.19 19.19.
20.30 Dallas.
21.20 Opni glugginn.
21.35 Svona er ástin.
(That's Love.)
Lokaþáttur.
22.00 Pat Metheny.
Þáttur tekinn upp á jasshátíð i Montreal
sumarið 1988.
22.55 Fjalakötturinn.
Þrír gamlir giftingamiðlar.#
(Akibiyori.)
Vönduð, japönsk mynd sem lýsir ein-
stöku sambandi milh mæðgna, sem báðar
eru forkunnarfagrar.
00.50 Dagskrálok.