Dagur - 14.07.1990, Side 17

Dagur - 14.07.1990, Side 17
efst í huga Rödd almennings spyr Þaö er ekki svo bölvað aö búa á Akur- eyri, jafnvel þótt viö fáum ekki álver. Sem gamalgróinn Akureyringur hef ég orðið vitni aö blómlegu mannlífi, fallegu umhverfi, þokkalegu veöurfari og fögrum loforðum bæjarstjórnarmanna sem fjúka inn á hálendi meö hafgolunni. Ég geri mér grein fyrir því aö þaö er auðvelt aö leggja fram verkefnalista en erfiðara aö fylgja honum eftir, bæði vegna peninga- leysis og ekki síður vegna vilja- og getu- leysis. Akvarðanir sem eru teknar í hálf- kæringi og ekki fylgt eftir eru dálítið ein- kennandi fyrir höfuöstaö Norðurlands. Viö getum rætt um íþróttamál í þessu sambandi og byrjað á hollri hreyfingu í sundlaugum. Sundlaug Akureyrar stenst ekki nú- tímakröfur. Þar er ekki hægt aö synda sér til heilsubótar á góðviðrisdögum þegar laugin er fleytifull af buslandi krökkum meö upþblásna bolta. Auk þess er hún ekki nógu stór. Mér finnst nauðsynlegt aö koma upp sérstakri barnalaug og sundlaugarsvæðið býður upp á sannkallaða vatnaparadís eins og Halldór Jóhannsson hefur reyndar sann- að með tillögum sínum. Ég spyr: Verður ráðist í framkvæmdir á sundlaugar- svæðinu? Bæjarfulltrúar uppgötvuðu einn dag- inn að Glerárhverfi er hluti af Akureyri og ákváðu að setja þar sundlaug. Þá rauna- sögu ætla ég ekki að rekja en lauginni var hent í almenning ófullgerðri og síðan sneru menn sér að öðru. Við núverandi aðstæður er brunnur þessi hlálegur, hann svarar á engan hátt kröfum sem gera verður til almenningssundlauga. Sem kennslulaug er Glerársundlaug hins vegar góð, en ég spyr: Verður umhverfi laugarinnar lagað að kröfum almennings? Stolt okkar er íþróttahöllin, enn eitt dæmið um mannvirki sem hlaupist er frá hálfkláruðu. Maður gengur inn í fokhelt anddyrið og telur víst að húsið sé nýbyggt og hafi ekki verið tekið í notkun enn. Verður íþróttahöllin kláruð? Og hvað með Skemmuna, verður hún tekin undir áhaldahús? Akureyrarvöllur iðjagrænn og fagur, ósnertanleg gróðurvin í hjarta bæjarins. Þessi ágæti völlur er nú einhvers staðar í kerfinu, að mér skilst, og þá spyr ég: Á að leggja Akureyrarvöll niður samkvæmt skipulaginu? Eða á að færa hann til eins og einhvern tíma var sagt? Á þá að bæta aðstöðu áhorfenda og aðstöðu frjálsíþróttafólks? Eða á hreinlega að gera nýjan völl á svæðinu skammt frá Sólborg? Golfleikarar búa við góða aðstööu, Skautafélagið er að byggja upp sitt svæði og skíðasvæðið í Hlíðarfjalli stendur fyrir sínu en húsið sjálft, Skíða- staðir, er úr sér gengið. Enn spyr ég: Ætla menn að byggja nýjan skíðaskála? Svona er hægt að halda áfram, bara í íþróttamálum. Ætla menn t.d. að nýta Kjarnalund sem aðstöðu fyrir trimmara f Kjarna? Hvers eiga hjólreiðamenn á Akureyri að gjalda? Gangstéttir, sem þeir verða að notast við vegna tillitsleys- is ökumanna, koma seint og illa. Hér gefst ekki rými fyrir frekari bollalengingar en gaman væri ef einhver framámaður gæti látið Ijós sitt skína í þessum málum. Stefán Sæmundsson vísnaþálfur Hér koma heimagerðar vísur sem nefnast „Palladómar“. Öll er flokkun illa þokkuð utan glettni spaugaranna. Prjár ég sýslur þekki nokkuð, þar er alítaf gott til manna. Ég hef verið að því spurður, eins og væri rætt um þjóðir hverjar væru viðmótsfurður vina minna þar um slóðir. Aðeins til að láta Ijúka leiðri orðamærð að sinni lýsingarnar læt ég fjúka, létti ögn á forvitninni. Aldrei þagna Pingeyingar. Peysa Skagfirðingar teitir. Eyfirðinga eitthvað þvingar. Ekki veit ég hvað það heitir. Þorbjörn Kristinsson kvaddi góðan bekk í Kennaraskólan- um með vísu: Hérna allt með góðu gekk, gott að kenna og læra. Pví að lokum þessum bekk þakkir vil ég færa. Þessa hringhendu mun Þor- björn hafa kveðið til ungrar konu: Pú vilt fara, því er verr, þig með varúð hylli. Manstu hvar við undum, er ekkert bar á milli. Næstu vísur eru eftir Karl Friðriksson brúasmið. Margur snýr til Lofnarlands lífs þá stýrir sjáinn, ef að býr í eðli hans ævintýraþráin. Samleið endar, einn ég græt ástablendið sprundið. Guðs í hendi lán mitt læt lífs til enda bundið. ==f-------------------------- Oftar en menn hyggja, þrá menn og dýr sveitina sína, eftir að í kaupstað er flutt. Ólína Jónsdóttir hefur þetta að segja: Blómum dauðum gaf ei grið grundir auðar standa. Fölnað hauður á vela á við vonarsnauðan anda. Kveðið við hest: Heim í æsku hlýjan stað hugann aftur langar. Veslings Jarpur, veistu að við erum bæði fangar. „Rellan“ nefnist næsta vísan, eftir Stefán Stefánsson, í Móskógum. Blíðuatlot þrái ég þín, þau eru lífsins yndi. Um þig snýst ég, elskan mín eins og rella í vindi. Classen kaupmaður á Sauð- árkróki skvetti sápuvatni yfir Baldvin skálda, en hann reiddist og kvað: Skyldi ei fölna fánýtt skrúð og forsmán efnasnauðum ef að þessi bjánansbúð brynni í eldi rauðum. Kaupmannsfrúin kom að og bað um bragarbót, í angist sinni: Classens lof ei linna skal, lán hans aldrei sjatni, fyrst hann skírði hruman hal úr heitu sápuvatni. Næstu vísur eru eftir okkar kæra K. N. Um ritstjóra: Illa stilltur unglingur oft fer villt með penna, hann er spilltur spjátrungur, sparipiltur kvenna. Umsjón: Jón Bjarnason frá Garðsvík Heimsókn: Pað kom til hans gömul kella sem kölluð er Mrs. Della. Pað varð til þess hann fór að vella vitleysu meiri en ella. Heimagerð vísa: Ýmsir þykjast þekkja mig, það ég stundum heyri. en að þekkja sjálfan sig sýnist vandinn meiri. Næstu vísu orti Grímur Sig- urðsson frá Jökulsá: Oft er fyrir illt að sjá og eftirþankar bitrir. Bótin sú að eftir á eru flestir vitrir. Jóhannes frá Engimýri var tekinn upp í bíl af göngu. Þá kvað hann: Preyttir fætur förlast mér fást ei bætur lengur. Fyrir sætið þakka ég þér, þú ert mætur drengur. Maður stríddi Jóhannesi á því að hann væri orðinn grá- hærður og svaraði karl að bragði: Peir sem eiga börn og bú bognir af þreytu standa. Ég er að verða, eins og þú ýmugrár á vanga. Laugardagur 14. júlí 1990 - DAGUR - 17 É| Sumarhappdrætti I Sjálfsbjargar 1990 Dregið hefur verið í sumarhappdrætti Sjálfsbjargar 1990. Útdráttur fór fram 10. júlí 1990. Vinningar og útdregin númer eru sem hér segir: 1. vinningur. Bifreið: Jeep Cherokee Limited frá Jöfri að verðmæti 3.054.000 kr. Vinningsnúmer: 72260. 2. vinningur. Bifreið: Subaru Legacy Sedan frá Ingvari Helgasyni hf. að verðmæti 1.353.000 kr. Vinningsnúmer: 93971. 3.-7. vinningur. 5 bifreiðar: Subaru Justy frá Ingvari Helga- syni hf. hver að verðmæti 772.000 kr. Vinningsnúmer: 4528, 20490, 88423, 91311, 99986. 8.-41. vinningur. 34 ferðavinningar að eigin vali með Sögu/ Útsýn hver að verðmæti 100.000 kr. Vinningsnúmer: 4201,6472, 6865, 7672, 10590, 17248, 23413, 27507, 29861, 34532, 47786, 61321, 62720, 68734, 69693, 70371, 73252, 76277, 79537, 84030, 84488, 91926, 92446, 95505, 101122, 103616, 104779, 104958, 112707, 115141, 118058, 124828, 130118, 134270. Vinningar eru skattfrjálsir. Vinninga ber að vitja á skrifstofu Sjálfsbjargar að Hátúni 12, 105 Reykjavík, sími 29133. Sjálfsbjörg þakkar landsmönnum stuðning nú sem fyrr. KOMUM HEIL HEIM Fjölskyldan á ferðalagi, búið er að tjalda á falleguni árbakka. Strákurinn er að leika sér með bolta og missir hann út í ána. Hvað er til ráða? Strákurinn gleymir sér og fer á el'tir boltanum. Hann virðist ekki vita hvaða hætta fylgir því að vera við ár og vötn. Pabbi stekkur á eftir stráknum. Góðu heilli hefur pabbi náð stráknum á land. Mamma þurrkar honum og pabbi stendur hjá rennblautur. Þetta liefði geta farið verr. Sýuum því varúð við ár og vötu. Örlítil gætni getur skipt sköpuin og skilið á milli lífs og d'.iuða.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.