Dagur - 31.07.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 31.07.1990, Blaðsíða 10
 2. deild: Tindastóll jafnaði í lokin - Sverrir Sverrisson skoraði af öryggi úr vítaspyrnu Björn Björnsson einbeittur á svip í leiknum gegn Grindavík. Mynd: SBG 3. deild: Reynir missti dampinn - og tapaði 2:3 fyrir ÍK Tindastóll tók á móti Grind- víkingum sl. föstudag og end- aði leikurinn með 1:1 jafntefli. Grindvíkingar urðu fyrri til að skora í seinni hálfleik, en Sverrir Sverrisson jafnaði úr vítaspyrnu á síðustu mínútum leiksins. Tindastóll hóf leikinn af tölu- verðum þrótti, á 8. mínútu mun- aði litlu að Sverrir Sverrisson kæmist í gegn og Ólafur Adolfs- son átti góðan skalla skömmu síðar. Fyrri hálfleikurinn var samt í heild slakur hjá báðum lið- um og lítið um sóknir sem gáfu góð færi. Á 30. mínútu áttu þó Grindvíkingar þunga sókn eftir slæman kafla hjá Stólunum, en ekkert kom markið. Seinni hálfleikurinn byrjaði betur fyrir Grindvíkinga og strax á 47. mínútu skoraði Aðalsteinn Ingólfsson með þrumuskoti eftir að hafa tekið knöttinn niður eftir lélega hreinsun hjá vörn Tinda- stóls. Stólarnir sóttu nú heldur í sig veðrið og á 57. mínútu komst Guðbrandur Guðbrandsson einn inn fyrir vörn Grindavíkur, en skaut hátt yfir. Á 73. mínútu var mikill darraðardans við mark Grindvíkinga og ótrúlegt að bolt- KS sigraði ÍBK 2:0 á Siglufirði á föstudagskvöldið. Sigur heimamanna var sanngjarn og staða þeirra er nú vænlegri en hún hefur áður verið í sumar, liðið er um miðja deild með 13 stig og falldraugurinn þægilega langt undan þrátt fyrir að enn geti allt gerst. Leikurinn fór fram á malarvell- inum þar sem grasvöllurinn þótti of blautur. Knattspyrnuáhuga- menn á Siglufirði voru ekki sáttir við þá ákvörðun og söfnuðu undirskriftum þar sem farið var fram á að leikurinn yrði á grasi en allt kom fyrir ekki. Fyrri hálfleikur var rólegur og bæði lið þreifuðu fyrir sér. KS- ingar voru öllu hættulegri en staðan var þó enn 0:0 þegar fyrri hálfleik lauk. Seinni hálfleikur var líflegri og strax á 47. mínútu braust Hafþór Kolbeinsson upp völlinn og skor- aði laglegt mark. Aðeins fjórum mínútum síðar bætti Óli Agnars- son, sem þá var rétt kominn inná, öðru marki við fyrir KS eftir fyrirgjöf frá Hafþóri. Eftir mörkin hresstust Keflvík- ingarnir og sóttu meira um tíma en gekk erfiðlega að skapa sér Frestanir vegna aftnælisins Fresta þurfti tveimur leikjum í 4. deildinni vegna afmælishá- tíðarinnar á Hólmavík um helg- ina. Geislinn frá Hólmavík og Kormákur áttu að leika í D-riðl- inum á laugardaginn en ekkert varð af því. Pá áttu Austri frá Raufarhöfn og Narfi að leika á sama tíma í E-riðlinum en þeim leik var einnig frestað þar sem stór hluti Raufarhafnarbúa var á Hólmavík í tilefni hátíðarhald- anna. inn skyldi ekki enda í netinu, svo fór þó ekki og skömmu síðar áttu gestirnir góðar sóknir. Síðustu tíu mínútur leiksins reyndu Stól- arnir allt hvað af tók að jafna, en það var ekki fyrr en um tvær mínútur voru til leiksloka sem einn Grindvíkingurinn handlék knöttinn í eigin teig og Sverrir ,skoraði af öryggi úr vítaspyrn- Leiftursmenn sitja nú einir í neðsta sæti 2. deildar eftir 2:3 ósigur á Selfossi á föstudags- kvöldið. Ólánið eltir Ólafsfirð- ingana um þessar mundir og leikurinn á Selfossi var þar engin undantekning. Ef eitt- hvað var voru Leiftursmenn sterkari aðilinn í leiknum en biðu þrátt fyrir það ósigur og er staða þeirra í deildinni nú orðin mjög alvarleg. Leiftursmenn fengu óskabyrj- færi. Leikurinn jafnaðist svo aft- ur í lokin án þess þó að mörkin yrðu fleiri. Sigur KS var tvímælalaust sanngjarn. Mark Duffield lék að venju vel í vörninni og Hafþór var frískur í seinni hálfleiknum. Hjá Keflavík var Óli Þór Magnússon, sem leikur nú sem aftasti maður, langbestur. Frekar dapur dómari var Óli Ólsen og sýndi hann þeim Haf- þóri Kolbeinssyni, KS, og Árna Vilhjálmssyni, ÍBK, gula spjaldið. ÁS/JHB Þróttur frá Reykjavík hélt áfram sigurgöngu sinni á laug- ardaginn er liðið mætti Ein- herja í 3. deildinni á Vopna- firði. Þróttarar sigruðu með fjórum mörkum gegn einu og var sá sigur sanngjarn en held- ur stór miðað við gang leiksins. Þróttarar léku undan nokkrum vindi í fyrri hálfleik en þrátt fyrir það náðu heimamenn forystunni með marki Helga Þórðarsonar. Einherjamenn skoruðu einnig næsta mark en svo óheppilega vildi til að það var á röngum vall- arhelmingi og staðan í hléi var 1:1. Þrótarar sóttu öllu meira í fyrri hálfleiknum en náðu ekki að bæta við mörkum. í seinni hálfleiknum náðu Ein- herjamenn ekki að nýta sér vind- inn nægilega vel og skoruðu ekki fleiri mörk þrátt fyrir eitt dauða- færi sem Helgi fékk. Þróttarar bættu hins vegar þremur við og þau skoruðu Stefán Steinsen, unni. Hvort lið hlaut því eitt stig út úr þófkenndum leik. Dómari leiksins var Guðmund- ur Sigurðsson og hefði hann get- að staðið sig betur. Álit leik- manna var ekki mikið á dóm- gæslu hans og það lét Páll Björnsson, Grindvíkingur, hann heyra eftir leikinn en fékk í stað- inn að sjá rauða spjaldið. SBG un þegar Þorlákur Árnason komst í gegnum vörn Selfoss og skoraði strax á 5. mínútu. Þor- lákur komst aftur einn í gegn nokkrum mínútum síðar en markvörðurinn klippti hann þá niður við teiginn og hlaut aðeins gult spjald að launum. Leiftursmenn voru mjög sprækir framanaf en heimamenn komu síðan inn í leikinn og á 22. mínútu jafnaði Júgóslavinn Porca af stuttu færi eftir langt innkast. Hann var svo aftur á ferðinni á 40. mínútu þegar hann komst einn innfyrir og kom Sel- fyssingum í 2:1 fyrir hlé. Leiftursmenn byrjuðu með lát- um í seinni hálfleik og Jón S. Helgason jafnaði með skalla á 53. mínútu. Leiftursmenn voru síðan mun sterkari og fengu ágæt færi og voru klaufar að komast ekki yfir. Um miðjan síðari hálfleik varð vendipunktur í leiknum þegar Ómar Torfason, þjálfari og leikmaður Leifturs, var rekinn af leikvelli. Var sá dómur út í hött og í framhaldinu náði Porca að skora þriðja markið og tryggja heimamönnum sigur. Leiftursmenn léku vel en voru óheppnir. Staða þeirra er slæm, þeir eru neðstir í deildinni með aðeins 7 stig, og verða að byrja að hala inn stig ef þeir ætla ekki niður. Baldur Baldursson og Sigfús Kárason. Völsungur vann stórsigur á TBA á Akureyrarvelli á laug- ardag. Lokatölurnar urðu 8:2 en staðan í leikhléi var 2:1 fyrir TBA! Völsungar náðu strax undir- tökunum og voru heldur meira með boltann í fyrri hálfleik. Þeir skoruðu fyrsta mark leiksins en í kjölfarið fylgdu tvö mörk TBA sem voru bæði mjög glæsileg. Fyrra markið skoraði Helgi Ind- riðason með skalla eftir auka- spyrnu frá miðjum vellinum. Halldór Jóhannsson skoraði það seinna þegar hann kastaði sér fram og skallaði í netið eftir fyrir- gjöf- ÍK sigraði Reyni 3:2 í undar- legum leik á laugardaginn. Reynismenn komust í 2:0 en þá misstu ÍK-ingar mann útaf og það virtist ráða úrslitum! IK réði lögum og lofum eftir það og tryggði sér sigurinn með þremur mörkum. Reynismenn byrjuðu af mikl- um krafti. Þeir sóttu stíft í upp- hafinu og náðu þá forystunni með mörkum Friðriks Magnús- sonar og Júlíusar Guðmundsson- ar. Þá var ÍK-ingnum Helga Kol- Magni vann öruggan sigur á SM þegar liðin mættust í E- riðli 4. deildar á Grenivík á föstudagskvöldið. Lokatölurn- ar urðu 3:0 en Magnamenn sóttu nær látlaust allan leikinn og hefði sigur þeirra getað orð- ið mun stærri. Magnamenn hófu strax þunga sókn og náðu forystunni þegar þjálfari þeirra, Kristján Krist- jánsson, braust í gegnum vörn SM og skoraði. Mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik þrátt fyrir mörg góð færi við SM-markið. Annað mark Magna skoraði Stefán Gunnarsson og var það sérlega glæsilegt. Hann fékk í upphafi seinni hálfleiks fengu Völsungar vafasama vítaspyrnu sem Jóhann R. Pálsson skoraði úr. TBA-menn hófu leikinn á miðjunni, Völsungar hirtu strax af þeim boltann og skoruðu ann- að mark og þá hrundi leikur TBA-liðsins. Völsungar sóttu nær látlaust það sem eftir var, skoruðu fimm mörk og tryggðu sér stórsigur. Ásmundur Arnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Völsung, Erling Aðalsteinsson tvö og Helgi Helgason og Björn Olgeirsson eitt hvor. Þá skoraði Jóhann úr vítinu eins og fyrr segir. vinssyni vísað af leikvelli og við það breyttist gangur leiksins. Reynismenn virtust halda að ieiknum væri lokið og ÍK náði yfirhöndinni og jafnaði fyrir hlé. í seinni hálfleik var ÍK-liðið mun sterkara og tryggði sér sigur- inn með marki þegar um 20 mín- útur voru til leiksloka. Júlíus Þorfinnson skoraði tvö mörk fyr- ir ÍK og Hörður Magnússon eitt. í lokin fékk svo annar ÍK- ingur, Lúðvík Bergvinsson, að sjá rauða spjaldið. sendingu frá vinstri kanti og þrumaði viðstöðulaust frá víta- punkti í þverslána og inn. Síðasta markið kom svo eftir að Kristján var felldur í vítateignum og víta- spyrna var dæmd. Jón Ingólfsson tók spyrnuna en markvörður SM varði. Hann hélt þó ekki boltan- um sem barst út í teiginn og Jón skoraði í annarri tilraun. Kristján var aftur á ferðinni í lokin og skoraði en markið var dæmt af. Voru Magnamenn afar ósáttir við þann dóm. Þess má geta að enginn dómari var til staðar þegar leikurinn átti að hefjast. Þurfti að kalla til mann og hófst leikurinn því ekki fyrr en kl. 21.15 og lauk kl. 22.45. Stefán Gunnarsson skoraði mjög fallegt mark gegn SM. 2. deild: KS lagði ÍBK á malarvellinum 2. deild: Óheppnin eltir Leiftur - sem tapaði 2:3 á Selfossi 3. deild: Einherji náði ekki að stöðva Þróttara 3. deild: Markaregn á Akurevri 4. deild E: Einstefiia hjá Magna

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.