Dagur - 04.09.1990, Síða 13
Þriðjudagur 4. september 1990 - DAGUR - 13
Fædd 24. september 1938 - Dáin 12. ágúst 1990
„Nei ert það þú! Komdu blessuð
og fáðu þér sæti. Þér liggur ekk-
ert á.“ Petta voru oft fyrstu orðin
sem hún Gugga sagði við mig
þegar ég kom í búðina hennar er
hún nefndi Normu, svo rétti hún
mér poka: „Fáðu þér mola, þetta
er gott fyrir hálsinn." Þá greip
hún kannski hendinni fyrir
brjóstið og andaði djúpt.
Þegar mér barst sú fregn síðla
sunnudagsins 12. ágúst að hún
Gugga væri dáin stamaði ég bara:
„Hva, Gugga, Gugga Bensa; svo
ótrúlegt fannst mér þetta og ég
spurði hvað hefði komið fyrir.
Gugga mín, þetta var þér líkt.
Að fara bara svona snögglega. Þú
varst alltaf svo rösk. Pó veit ég að
þú hefðir viljað bíða lengur eftir
þessu kalli. Þú varst búin að segja
mér að núna, laugardaginn 18.
ágúst, ætlaðir þú að gifta burt
yngstu dóttur þína. Ef ég þekki
þig rétt hefurðu verið farin að
viða að þér veisluföngum.
Þetta fór þó á annan veg. Þann
dag varst þú hins vegar kvödd af
stórum hluta Ólafsfirðinga auk
annarra vina þinna víðsvegar að.
Hvernig bregst maður við þeg-
ar hátt er reitt til höggs? Flestir
kikna, a.m.k. í fyrstu. Ég veit að
fjölskylda þín á bágt núna. Hún
missti mikið. Þú varst umhyggju-
söm dóttir, systir, eiginkona,
móðir og amma. En ekki bara
það. Þú lést þér einnig annt um
marga aðra. Þú varst sannur vin-
ur vina þinna. Þær voru heldur
ekki fáar flíkurnar sem þú bættir
í pakkann þegar maður keypti
eitthvað hjá þér. Ef keypt var á
barn sagðirðu stundum: Ég ætla
að senda litlu elskunni þetta,“ og
„þetta“ var aldrei skorið við
nögl.
Gugga, þú varst skapmikil,
sagðir skoðanir þínar hiklaust en
þú varst einnig viðkvæm og sátt-
fús og lést ekki sólina setjast yfir
reiði þína. Maður vissi ætíð livar
maður hafði þig. Núna, eftir
brottför þína er bærinn okkar
fátækari.
Gugga mín, þú hefur nú verið
neydd til að loka búðinni þinni
um stund en þegar tímavörðurinn
stoppar skeiðklukkuna mína
opnarðu aftur fyrir mig og viltu
þá eiga fullan bolsíupoka undir
borðinu því þá liggur okkur
áreiðanlega ekkert á. Hafðu svo
kæra þökk fyrir öll okkar kynni.
Við ykkur börnin hennar vil ég
segja þetta. Hún mamma ykkar
var hreykin af ykkur. Minnist
þess og verið sterk í sorginni. Þótt'
annað veifið dragi fyrir sólina er
hún samt á sínum stað og skín
aftur á ykkur.
Elsku Stína, Andrés, Gylfi og
börnin, öll við söknum, flest með
votar brár.
Megi Guð er gaf þá sem er
farin, græða sárin, þerra hvert
eitt tár.
Hulda Kristjánsdóttir.
Minning:
ÝSoffia Sigtryggsdóttir
Fædd
Okkur langar til að minnast'
hennar ömmu, sem varð bráð-
kvödd að heimili sínu 28. ágúst
sl. og kom það öllum á óvart, því
að hún var svo frísk og hafði
aldrei á sjúkrahúsi legið.
Amma var fædd að Hólkoti í
Hörgárdal, dóttir hjónanna
Guðrúnar Emilíu Jónsdóttur,
ljósmóður og Sigtryggs Sigurðs-
sonar, bónda. Hún átti tvo eldri
bræður, Brynjólf, bónda og
kennara að Krossanesi og
Guðmund, sem var smiður í
Reykjavík. Þeir eru báðir látnir.
Arið 1926 giftist hún afa okkar
Steinbergi Jónssyni, vélstjóra og
síðar sölumanni frá Dalvík og
eignuðust þau 3 syni: Ragnar,
hæstaréttarlögmann á Akureyri,
kvæntan Sigurlaugu Ingólfsdótt-
ur, Hörð, verslunarmann á
Akureyri, kvæntan Sigrúnu
Birnu Hálldórsdóttur, og Jón
Kristin, skipasmíða- og húsa-
meistara á Akureyri, kvæntan
Sigurlaugu Geirsdóttur, Jón lést
langt um aldur fram 1984.
Amma og afi slitu samvistum
og þá kom sér vel, að amma hafði
ung að árum fullmenntað sig í
klæðskeraiðn, þegar hún stóð
uppi með 3 unga drengi á tímum,
þegar engir styrkir eða hjálp var
. júlí 1903 - Dáin 28. ágú
til einstæðra mæðra. Við vitum,
að þetta voru oft erfiðir tímar
fyrir hana og drengina, en hún
var harðdugleg, glaðlynd og
jákvæð og vildi standa á eigin fót-
um og kom sínum drengjum upp
með vinnu.
Hún var mjög félagslynd og
var í Slysavarnafélaginu og kór
þess. Hún hafði unun af að ferð-
ast og fór margar ferðir með for-
eldrum okkar um landið. Einnig
fór hún nokkrar utanlandsferðir
og alltaf fannst henni jafn gaman.
1990
Síðustu æviárin dvaldi hún í
íbúð að Dvalarheimilinu Hlíð og
hafði mjög gaman að fá til sín
gesti, stóra sem smáa. Allur
aðbúnaður og starfsfólk fannst
henni til fyrirmyndar og viljum
við koma á framfæri þakklæti til
starfsfólksins á Dvalarheimilinu
Hlíð.
Elsku pabbi, Hörður og ná-
komnir ættingjar. Innilegar
samúðarkveðjur.
Ingibjörg, Guðbjörg, Ragna
og Soffía Ragnarsdætur.
Kveðja frá langömmustrákum
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði.
Friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Sb. 1886- V. Briem.
Bragi Rúnar og
Ingólfur Ragnar Axelssynir.
Merkjasöludagar
Hjáipræðishersins
Hinir árlegu merkjasöludagar
Hjálpræðishersins á íslandi eru
frá miðvikudegi til föstudags, 5,-
7. september.
Merkjasala Hjálpræðishersins
í byrjun september á sér langa
sögu og hefur verið þýðingarmik-
il fjáröflunarleið í starfi hans.
Hjálpræðisherinn er með fé-
lagsstarf fyrir alla aldurshópa.
Tekjum af merkjasölunni er eink-
um varið til að fjármagna barna-
og unglingastarfið sem er að
hefjast aftur nú að afloknu
sumarfríi.
Merkið, sem er blóm prentað á
límmiða, kostar eins og í fyrra
kr. 100,-
Merkið verður selt á götum
Reykjavíkur, Akureyrar og ísa-
fjarðar, og einnig verður víða selt
í húsum.
Vonast er til að sölufólki verði
vel tekið og að margir kaupi
merki til styrktar starfi Hjálp-
ræðishersins.
Fram nú
allir í röð ..
Hjólum
aldrei
samsíða
á vegum
||UjgERÐAR
Lausar kennarastöður
við grunnskólann í Hrísey.
Upplýsingar veittar í síma 61772, 61737, 61709 og
á skrifstofu fræöslustjóra Noröurlandsumdæmis
eystra.
Launafólk
Eyjafirði!
Sími Neytendafélagsins
22506
er okkar verðgæslusími.
Verkalýðsfélögin Eyjafirði
Umsóknir um framlög
úr framkvæmdasjóði
aldraðra 1991
Sjóösstjórn Framkvæmdasjóös aldraöra auglýsir
eftir umsóknum um framlög úr sjóönum 1991.
Eldri umsóknir koma aðeins til greina séu þær
endurnýjaðar. Sérstök umsóknareyöublöö liggja
frammi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
sem fylla skal samviskusamlega út. Einnig er ætlast
til aö umsækjendur lýsi bréflega húsnæöi, fjölda vist-
rýma, sameiginlegu rými, byggingakostnaöi, fjár-
mögnun, verkstööu og þeim þjónustuþáttum, sem
ætlunin er aö efia. Þá skal sýnt fram á þörfina fyrir
þær framkvæmdir, sem um ræðir, og hvernig rekstur
verði fjármagnaöur.
Umsóknir skulu hafa borist sjóösstjórninni fyrir 1.
október 1990, Laugavegi 116, 105 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Námskeið hefjast 17. sept.
Magi, rass og læri. Framhaldstími í leikfimi og
megrun.
NÝTT! Átak í megrun
Þrekhringur, róleg leikfimi.
NÝTT! TRÖPPUÞREK,
erobikk
Innritun er hafin í síma 24979 frá kl. 15-20.
Nánar auglýst síÖar.
Tryggvabraut 22
Akureyri Sími 24979.