Dagur - 21.09.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 21. september 1990 - DAGUR - 5
ÖD framþróun er fyrst og fremst komin undir
dugnaði og frumkvæði heimamanna sjálfra
Að undanförnu hafa verið í gangi
umræður um hugsanlegt álver í
Eyjafirði og margir mætir menn
hafa geyst fram á ritvöllinn bæði
með og á móti málefninu.
Það hefur farið fyrir brjóstið á
mér hve umræðan hefur verið
bundin við þetta einstaka
málefni, þótt ég hafi ekkert á
móti álveri sem slíku, heldur liitt
að ég les úr skrifum manna upp-
gjafartón ef við fáum ekki þetta
álver, sem kannski aldrei stóð til
að við fengjum.
Þrátt fyrir það er ég þeirrar
skoðunar að ef virkilega er mein-
ingin að setja niður annað álver í
Reykjaneskjördæmi, þar sem
ótæmandi möguleikar eru íyrir
hendi á margskonar starfsemi
sem tengist fríiðnaðarsvæði
vegna legu þess hvað varðar
flugsamgöngur frá Keflavík og
útflutningshöfn í Straumsvík, þá
værum við betur sett án álvers ef
það kemur ekki út á land þar sem
atvinnulífið stendur völtum fót-
um og einhæfnin er mikil er ein-
faldlega eðlilegt vegna þess
hversu dýrt hvert starf þar er
miðað við þá hagnaðarvon sem
fyrir hendi er og hve seint fjár-
festingarnar skila sér.
Dýrasti kosturinn valinn
Pað er því sárt til þess að vita. í
Ijósi þess hversu seint fjárfesting-
in skilar sér, að dýrasti kosturinn
skuli vera valinn því þótt eitthvað
sér dýrara að byggja álver við
Dysnes heldur en á Keilisnesi þá
skulu menn ekki gleyma því að á
móti koma stórfelldar fram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu í
íbúðabyggingum, vegagerð,
skólum, dagheimilum og svona
mætti lengi telja vegna aukins
flutnings landsbyggðarinnar,
meira en allar hefðbundnar spár
gera ráð fyrir sem byggja á þróun
undanfarinna áratuga, að við-
bættum öllum þeim milljörðum
sem ríkissjóður má út með til að
viðhalda byggð á ýmsum við-
kvæmum atvinnusvæðum á
landsbyggðinni eins og gert hefur
verið undanfarin misseri í gegn-
um Atvinnutryggingasjóð og
Hlutafjársjóð. Eflaust þurfa þær
aðgerðir að koma til hvort sem
álver kemur eður ei en staðsetn-
ing þess skiptir máli hvað varðar
umfang aðgerðanna.
Landsbyggðin getur ekki
treyst stjórnvöldum
í málinu
Veik var staða landsbyggðarinn-
ar fyrir en nú stefnir í vandræða-
ástand ef ekki kemur til frum-
kvæði heimamanna sjálfra þar
sem forræði embættismanna og
nokkurra þingmanna sem aldrei
hafa lesið starfslýsingu sína, sem
í fáum orðum sagt segir að
aiþingismcnn eigi að setja lög í
landinu og framkvæmdavaldið á
að framfylgja þeim, stefna Ijóst
og leynt að því að þétta byggðina
enn frekar á suðvesturhorni
landsins.
Pað er því Ijóst að landsbyggð-
in getur ekki treyst stjórnvöldum
í þessu máli, einfaldlega vegna
þess að stjórnvöld hafa aldrei
mótað neina stefnu í byggðamál-
um og treysta sér varla til þess
vegna þess að málið er auðvitað
viðkvæmt og ekki auðvelt að taka
ákvörðun um hvar eigi að við-
halda byggð og hvar ekki. Að
skipta landsvæðum upp í ákveðin
atvinnusvæði eins og reyndar
byrjað er að gera með stofnun
héraðsnefnda og iðnþróunarfé-
laga, t.d. hér á Eyjafjarðarsvæð-
inu, er stefna í áttina að kjarna-
myndun og sameiginlegs vinnu-
svæðis. aukna samvinnu sveitar-
félaganna til sameiginlegra verk-
efna sem öll sveitarfélögin munu
njóta góðs af og styrkir byggðina
út á við.
Skattgreiðslur álfyrirtækja
renni til byggðamála
Það þarf samt meira að koma til
og þá sérstaklega ef álver verður
byggt á Keilisnesi.
Auka sjálfsforræði sveitarfé-
laga sem hefðu síðan það mark-
mið aö stækka atvinnusvæði inn-
an ákveðins kjarna sem menn
kæmu sér saman um að væri
heppilegur fyrir sameiginlega
hagsmuni viðkomandi hreppa og
sveitarfélaga.
Skattgreiðslur álfyrirtækja
ættu að renna meira og ininna til
byggðamála sem að hluta til yrði
varið til áhættuverkefna og styrk-
veitinga vegna ýmiss konar verk-
efna á landsbyggðinni.
Ríkisstofnanir verði
fluttar út á land
Draga þarf úr opinberum fram-
kvæmdum á höfuðborgarsvæðinu
og efla samgöngur innan héraða
á landsbyggðinni, auka veiði-
heimildir á þeim svæðum sem vit-
að er að þoli aukna ásókn til
handa nánustu byggð, stórauka
framlag til rannsókna, veiða og
vinnslu vannýtra sjávartegunda
sem eru utan kvóta og síðast en
ekki síst að hefjast handa um
ráunverulegan flutning ríkis-
stofnana út á land eftir því sem
hæfir á hverjum stað. Nefni ég
sem dæmi Hafrannsóknastofnun
til ísafjarðar, Skógrækt ríkisins,
sem þegar er flutt til Egilsstaöa,
Rannsóknastofu landbúnaðarins
til Akureyrar og svona væri hægt
lengi að telja upp ýmsar stofnanir
lesendahornið
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
íslensku liöunum mismunað
Þórsari hafði samband við Dag
og vildi kvarta yfir útvarpsstöðv-
unum Rás 2 og Bylgjunni, vegna
þess hversu þær mismunuðu lið-
um Fram og KA eftir leiki þeirra
í Evrópukeppninni í fyrrakvöld.
„Strax að leik KA og CSKA
var lokið hér á Akureyri í fyrra-
kvöld, kvaddi Arnar Björnsson
hlustendur en í Reykjavík þar
sem þeir Jón Óskar Sólnes og
Samúel Örn Erlingsson voru,
(það þurfti náttúrlega að hafa
tvo þar en bara einn á Akureyri)
tóku þeir að yfirheyra hvern
Framarann af fætur öðrum og
ræða við þá um sigurinn og leik-
inn í heild sinni. Þessu var svipað
háttað á Bylgjunni.
Víst var sigur Fram sætur en
sigur KA-manna var engu minni
og af hverju var ekki hægt að
gera meira úr sigri þeirra
norðanmanna? Mér er spurn. Þó
svo að ég sé Þórsari, þá blöskraði
mér hversu misjafnlega var tekið
á þessum málum strax að leikjun-
um loknum.
Skyldu verða sendir menn frá
útvarpinu með Fram og KA í
seinni leikina, eða kannski bara
með Fram? Það verður fróðlegt
að sjá.“
Benedikt Guðmundsson.
sem þjóna tilgangi sínum miklu
betur á viðkomandi stöðum.
Lífeyrissjóðir á
landsbyggðinni taki
höndum saman
Þess að auki ætti að stefna aö því
að byggja útflutningshöfn á Aust-
fjörðum og tengja Austurland og
Norðurland samgöngulega sam-
an með átaki í vegagerð meðfram
strandlengjunni eða yfir Möðru-
dalsöræfin.
Þá ættu lífeyrissjóðirnir á
landsbyggðinni að taka höndum
saman um það að gera þá kröfu
að það fjármagn sem þeir leggja
fram í formi kaupa á ríkis-
skuldabréfum o.s.frv. farj ekki úr
héraöi heldur geymist hjá banka-
stofnunum og sjóðurn á viðkom-
andi stöðum til eflingar atvinnu-
lífi á svæðinu eða að þeir samein-
ist um stofnun fjárfestingasjóða á
landsbyggðinni í samvinnu við
banka, félagasamtök og atvinnu-
rekendur sem gegna því hlut-
verki að efla og auka fjölbreytni
atvinnulífsins á viðkomandi
svæðum.
Stjórnmálamenn standi
við yfirlýsingar sínar
Margt af því sem hægt er að gera
snýst eingöngu um pólitískan
vilja, frasi sem fyrir mér er alveg
merkingarlaus í Ijósi atburða
undanfarinna vikna. Það er því
heppilegast fyrir landsbyggöar-
fólk að standa saman og vinna að
þeim málum sem það getur haft
áhrif á sjálft og þurfa ekki að
treysta á loforð misviturra
embættis- og þingmanna sem
hingaö til hafa sýnt að oftar en
ekki takmarkast víðsýni þeirra
við Esjuna og fjöllin þar í kring.
Öll framþróun er fyrst og
fremst komin undir dugnaði og
frumkvæöi heimamanna sjálfra
sem alltaf á fjögurra ára fresti
geta skipt út fulltrúum sínum á
Alþingi þegar þeir standa ekki
við sínar fyrri pólitísku yfirlýsing-
ar. Stjórnmálamenn sem vilja
halda atvinnu sinni ættu því að
fara að standa viö yfirlýsingar
sínar, sem aldrei skortir frá
þeirra hendi á tyllidögum og síð-
ustu vikurnar fyrir kosningar, því
annars mun atvinnuveitandi
þeirra, sem er almenningur, ein-
faldlega reka þá viö næsta tæki-
færi. Benedikt Guðmundsson.
LEGO - PLAYMO - FISHER PRICE - BAMBOLA - BARBIE - SINDY
Super Golf
Tölvuspilið
Leikfangamarkaóurinn
Nintendo og
Grandstand tölvuspil.
20 tegundir.
Verð frá 1.540,00.
PflRIS
Hafnarstræti 96 • Sími 27744
BILABRAUTIR - FJARSTÝRÐIR BÍLAR - MODEL - RAMBO
I
í
Nýtt á söluskrá
Til sölu húsnæði í miðbænum, upplagt til margs-
konar nota, svo sem verslunar, iðnaðar, eða íbúðar-
húsnæði. Steinhús á tveimur hæðum auk bíla-
geymslu. Neðri hæðin er 137 fm en efri hæðin er 93
fm. Teikningar fylgja þar sem gert er ráð fyrir þeim
möguleika að breyta húsnæðinu í þrjár íbúðir, tvær
íbúðir á neðri hæð og ein á efri hæð, allar með sér
inngangi.
Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á þriðju hæð, ástand
mjög gott, laus strax.
Hjallalundur: 2ja herb. íbúð á þriðju hæð, íbúð í
mjög góðu ástandi.
Skarðshlíð: 4ra herb. íbúð á annarri hæð, laus
strax.
Holtagata: 5 herb. íbúð í parhúsi, ásamt bílskúr,
laus strax.
Fasteignasalan hf.
Gránufélagsgötu 4,
efri hæö, sími 21878.
Opiðfrákl. 10-12 og 13-19
Sölumaður:
Hermann R. Jónsson
Kvöld og helgarsími 25025
Lögfræðingur:
Hreinn Pálsson
Sími21878
Viðskiptafræðingur:
Guðmundur Jóhannsson
0 _
Nýtt á
íslandi
úrvals
matvörur
Hrísalundi
Sunnuhlíð