Dagur - 11.10.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 11.10.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 11. október 1990 Ráðstefna um byggðamál í Borgarnesi: Lykfll að blómlegri byggð er að verkeftii færist heim í héruðin Byggðanefndin var skipuð í janúar síðastliðnum til að gera tillögur um nýjar áherslur og langtímastefnu í byggðamálum. Áður en nefndin var skipuð hafði Árni Benediktsson, formaður Vinnumálasambands samvinnu- félaga, ræddi nokkuð um nauð- syn byggðakjarna. Hann sagði meðal annars að mörgu fólki þætti eftirsóknarvert að búa við landrými. En það vilji einnig eiga greiðan aðgang að þjónustu og setji ekki klukkustundar ferð fyr- ir sig í því efni. Þetta megi glögg- lega sjá erlendis og nefndi hann Bandaríkin sérstaklega í því sambandi. Hann sagði að þetta gæti bent til þess að ásættanlegt væri að þéttbýliskjarni á Vest- fjörðum, sem tengdur væri sam- an með góðum vegum og jarð- göngum, gæti náð frá Þingeyri allt til Bolungarvíkur. Á slíku svæði gæti verið fjölbreytt at- vinnulíf þótt takmarkað úrval væri í hverju kauptúni. Á svæð- inu yrði miðstöð heilbrigðisþjón- ustu með útstöðvum og mennta- stofnanir myndu safnast á einn stað í slíkum kjarna. Á sama hátt yrði Akureyri miðpunktur Norð- urlandskjarna. Slíkur kjarni gæti Byggðastofnun fjallað um þetta málefni og lagt fram hugmyndir um mótun nýrrar byggðastefnu og þar með átak til að rétta hlut landsbyggðarinnar til frambúðar. náð yfir svæðið frá Sauðárkróki og Siglufirði yfir Eyjafjörð og til Húsavíkur. Austfjarðakjarni myndi byggjast út frá Egilsstöð- um og ná tii allra fjarðanna suður til Breiðdalsvíkur. Árni sagði að í hverjum kjarna yrði öll almenn fræðsla að vera til staðar og einn- ig yrði að byggja upp endurmennt- unarkerfi. Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðn- tæknistofnunar, ræddi einnig um sterka byggðakjarna. Hann sagð- ist telja æskilegt að byggja upp sterka byggðakjarna á nokkrum stöðum úti á landi. Hann benti á að slíkt yrði ekki farsælt ef það væri gert með valdboði eða ein- hliða ákvörðunum stjórnvalda. Hann sagði að varanleg byggða- stefna fælist í því að skapa bú- setuskilyrði fyrir breiðan hóp fólks með breytilegar þarfir með- al annars vegna breytilegs aldur og mismunandi þekkingar. Taka verði mið af þörfum fólksins og hvað verði að uppfylla til að bú- Landbúnaður og sjávar- útvegur viðhalda ekki landsbyggðinni lengur „Byggðastefna sem byggir á að viðhaida hefðbundnum landbún- aði og sjávarútvegi verður ekki árangursrík," segir í bréfi um aðdraganda að skipun byggða- nefndarinnar. „Kjarni nauðsyn- legrar stefnubreytingar er að samhliða vaxandi fjölbreytni og betri nýtingu á möguleikum í hin- unt hefðbundnu atvinnuvegum verður að hlúa sérstaklega að hinum almennu vaxtargreinum atvinnulífsins, iðnaði og þjón- ustu.“ í skýrslu byggðanefndar er bent á að eftirfarandi atriði skipti byggðaþróun miklu máli: - Áð almenn efnahagsstjórn tryggi jafnvægi í efnahagslífinu setukostur verði aðlaðandi. Páll benti á að byggð þrifist ekki nema til komi öflugt at- vinnulíf á viðkomandi stöðum. Slíkt atvinnulíf verði að grund- vallast á stærri einingum en nú þekkist almennt en þær muni kalla á breiðari hóp starfsfólks, bæði hvað varðar aldur og þekk- ingu. Páll Kr. Pálsson nefndi nokkur dæmi um aðgerðir sem stjórnvöld geti gripið til varðandi eflingu atvinnulífs á breiðum og gengisskráningu sem miðist við viðunandi rekstrarafkomu framleiðsluatvinnugreinanna. - Að ríkisstjórn og Alþingi gæti þess við ákvarðanir um uppbygg- ingu atvinnurekstrar og stefnu- mótun á öðrum sviðum að þær stuðli að hagkvæmri byggðaþró- un. - Að ríkisvaldið jafni kostnað við opinbera þjónustu um land allt á þeim sviðum þar sem það hefur tök á og aðstæður leyfa bæði fyrir atvinnurekstur og ein- staklinga. Lagt er til að starfsemi Byggða- stofnunar verði breytt þannig að hún geti sinnt atvinnuþróunar- starfi í ríkari mæli og stofnunin fái til þess verulegt fjármagn. Pví fjármagni verði síðan varið til þess að styðja starfsemi atvinnu- grundvelli á landsbyggðinni. Hann nefndi sérstaklega afskrifta- reglur. Frádrátt umfram útlagðan kostnað vegna rannsókna og þró- unarstarfsemi. Einnig frádrátt umfram útlagðan kostnað vegna menntunar starfsmanna og ákveð- inna tækjakaupa. Einnig aðgerð- ir.til að laða utanaðkomandi fjár- festingar að og skapa þannig svig- rúm til uppbyggingar atvinnu- starfsemi og sterkrar eiginfjár- stöðu. ÞI þróunarfélaganna, til kaupa á hlutabréfum og annarra verk- efna. Þá er einnig lagt til að Byggðastofnun komi á fót föstu samstarfi við rannsóknastofnanir atvinnuveganna, Iðntæknistofn- un Islands og Háskóla íslands um miðlun tæknilegra framfara til at- vinnuþróunar. Spurningar sendar til 36 stofnana og félagasamtaka Byggðanefndin sendi spurninga- lista til 36 aðila og var uppistaða ráðstefnunnar í Borgarnesi erindi forsvarsmanna þeirra stofnana og félagasamtaka sem spurningum var varpað til. Spurningarnar sem byggðanefndin sendi voru eftirfarandi. I. Telur „viðkomandi“ þörf á að sporna við þeirri byggðarösk- un, sem áframhaldandi fólks- flutningar síðari ára munu leiða til? II. Hvað sér „viðkomandi" sér fært til að gera til að draga úr þessum fólksflutningum? III. Hverju telur „viðkom- andi“ æskilegt að breyta til þess að gera sér betur fært að vinna að því markmiði? Höfuðborgarsvæðið hefur náð æskilegri stærð - smá- bæir verða vænlegur kostur Svör við fyrstu spurningunni voru öll á einn veg. Allir aðspurðir töldu að sporna yrði við fyrirsjá- anlegri byggðaröskun. Um leiðir greindi aðila nokkuð á enda vald- ir með tilliti til mismunandi aðstæðna og hagsmuna. Á þann hátt var ætlunin að fá fjölbreytt- ari sjónarmið fram og komast nær því hver sé vilji til byggða- stefnu meðal hinna ýmsu stofn- ana og samtaka samfélagsins. í niðurlagi svars Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu segir að á íslandi séu um 25 til 30 þéttbýliskjarnar eða smábæir með samtals um 40 þúsund íbúa. Síðan eru raktir kostir er fólk sér við að búa í smábæjum og vitnað til bandarískrar könnunar þar sem fram kom að tveir helstu þættir fyrir því að fólk kaus að flytja til smábæja voru annars vegar tengdir atvinnu (38%) og hins vegar slæmt umhverfi stór- borga (24%). Síðan er bent á að nú þegar hafi höfuðborgarsvæðið náð þeirri stærð að það geti sinnt skyldum sínum. Því sé þörf fyrir aukinn vöxt annarra þéttbýlis- kjarna en höfuðborgarsvæðisins. Markviss byggðastefna er ekki til í niðurstöðum svara Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu við spurningum byggða- nefndar er meðal annars bent á að markviss byggðastefna sé ekki til. Rót þeirrar byggðaröskunar sem átt hefur sér stað eigi sér lengri sögu og sé flóknari en svo að unnt sé að skella skuldinni að einn aðila eða leysa hana með fyrirgreiðslum, reddingum eða plástursaðferðum. Bent er á að lykill að blómlegri byggð um landið allt sé að verkefni færist heim í hérað, til sveitarfélaga, og dregið verði úr miðstýringu ríkis- valds. Almenningur, fyrirtæki og sveitarstjórnir á landsbyggðinni hljóti að gera þá kröfu til ríkis- valdsins, að það sói ekki fjár- - er álit Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt framreikningum Byggðastofnunar eiga að vera um 190 þúsund íbúar á höfuðborgarsvæðinu árið 2010, eða um 64% landsmanna. Nú búa rúmlega 140 þúsund manns á suðvesturhorni landsins eða um 55% allra íbúa landsins. Ef þessi spá um þróun, sem byggð er á fólksflutningum undan- farinna ára, verður með þeim hætti sem framreikningar Byggðastofnunar segja til um, má búast við að misvægi auk- ist mikið í byggð landsins. Þessar upplýsingar komu fram í erindi Jónasar Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu, á ráðstefnu byggðanefndar forsætisráðherra, sem haldin var í Borgarnesi síðastliðinn mánudag. Til ráðstefnunnar var boðað til að kynna svör við þeim spurningum sem byggðanefndin hafði sent til ýmissa aðila, stofnana og samtaka í þjóðfélaginu. Fylgst með umrædum. Meðal annars má sjá Svein Hjört Hjartarson, hag- fræðing LÍÚ; Áskel Einarsson, framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Norðlendinga og Bjarna Einarsson frá Byggðastofnun. Valur Arnþórsson, bankastjóri, var mættur á ráðstefnu byggðanefndar for- sætisráðherra. Myndir: Þl Kjarnakenningin rædd á byggðaráðstefnu: Bjarga sterkir bvggðakjarnar landsbyggðiimi? Nokkrir ræðumenn á ráðstefnu byggðanefndar forsætisráð- herra í Borgarnesi fjölluðu um nauðsyn þess að koma á fót sterkum byggðakjörnum í hverjum landsfjórðungi. Þessir kjarnar myndu virka sem öflugt mótvægi við Reykjavíkur- svæðið og veittu einnig hinum dreifðari byggðum aukinn styrk. Bætt samgöngutækni gæti auðveldað þróun byggða- kjarnanna og þyrftu þeir þannig ekki að einskorðast við einn kaupstað eða þéttbýli. Hjörtur Eiríksson, fyrrum framkvæmdastjóri Iðnaðardeildar Sambandsins og núverandi framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaga, hlýð- ir á umræður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.