Dagur - 11.10.1990, Síða 15
Fimmtudagur 11. október 1990 - DAGUR - 15
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
íslendingar réðu ekki
við fríska Spánvena
og töpuðu 1:2 í Sevilla
Jóhannes Bjarhason skoraði 5 mörk fyrir KA.
Mynd: KL
Islendingar töpuðu sínum 3.
Ieik í röð í undankeppni
Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu í gærkvöld er þeir
mættu Spánverjum í Sevilla á
Spáni. Lokatölurnar urðu 2:1
eftir að Spánverjar höfðu náð
tveggja marka forystu. Það var
Sigurður Jónsson sem skoraði
eina mark íslenska liðsins í
seinni hálfleik en þá léku
Islendingar mjög vel og höfðu
yfirhöndina um tíma.
Spánverjar sýndu það í fyrri
hálfleiknum í gær að þeir eru
með frábært lið og verða að telj-
ast sigurstranglegir í riðlinum.
Þeir byrjuðu af miklum krafti og
er óhætt að segja að íslending-
arnir hafi haldið uppi nauðvörn
lengi framan af. Varnarleikurinn
var mjög góður og Spánverjar
fengu ekki mikið af opnum fær-
um þrátt fyrir þunga pressu. Á 9.
mínútu fékk sóknarmaðurinn
heimsfrægi Butragueno frábæra
sendingu innfyrir íslensku vörn-
inga en Sævar Jónsson komst fyr-
ir skot hans og bjargaði naum-
lega. íslendingar komust síðan
nokkuð inn í leikinn í framhald-
inu en Spánverjar höfðu þó allan
tímann undirtökin og náðu að
skora á síðustu mínútunni fyrir
hlé eftir einu mistök íslensku
varnarinnar. Þá kom sending frá
vinstri fyrir markið og Butragueno
gleymdist á markteignum og
hann afgreiddi boltann í netið
með fallegum skalla.
Á 64. mínútu bættu Spátnverjar
öðru marki við. Þá kom löng
sending fram og boltinn skoppaði
milli íslensku varnarmannanna
sem voru enn að átta sig þegar
Carlos skaust framfyrir þá og
Handknattleikur, 1. deild:
KA fékk skell í Kaplakrika
- tapaði 21:29 fyrir íslandsmeisturum FH
KA-menn fengu slæman skell
er þeir mættu íslandsmeistur-
um FH í 1. deildarkeppninni í
handknattleik í Hafnarfíröi í
gærkvöld. Lokatölur leiksins
urðu 29:21 og var þetta fyrsti
sigur FH-inga á íslandsmótinu
Handknattleikur
1. deild
Víkingur 5 5-0-0 133:108 10
Stjarnan 5 5-0-0 119: 98 10
Valur 5 5-0-0 123:103 10
KR 5 2-2-1117:115 6
Haukar 4 3-0-1 93: 96 6
KA 5 2-0-3 117:108 4
ÍBV 4 2-0-2 96: 92 4
FH 5 1-1-3 115:118 3
ÍR 5 1-0-4117:127 2
Grótta 5 0-1-4102:121 1
Fram 5 0-1-4 98:119 1
Sellöss 5 0-1-4 93:118 1
í ár. Leikurinn var jafn framan
af en FH-ingar gerðu út um
leikinn á síðustu mínútuin fyrri
hálfleiks.
Jafnt var á öllum tölum framan
af fyrri hálfleik. FH-ingar voru
að vísu ætíð fyrri til að skora en
KA-menn jöfnuðu um hæl. Þegar
7 mínúturvoru tilloka fyrri hálf-
leiks kom afar slæmur kafli hjá
KA-mönnum og FH-ingar gengu
á lagið. Staðan var 10:9 þegar
FH-ingar skoruðu 5 mörk í röð
og staðan var 15:9 í leikhléi.
í seinni hálfleik áttu KA-menn
sér aldrei viðreisnar von og náðu
ekki að ógna sigri FH. Þegar 15
mínútur voru til leiksloka var 10
marka munur, 24:14, en þegar
flautað var til leiksloka skildu 8
mörk liðin.
Sá sem reyndist KA-mönnum
erfiðastur í gærkvöld var Berg-
sveinn Bergsveinsson, markvörð-
ur FH. Hann varði eins og ber-
serkur allan tímann, alls 23 skot
og þar af eitt víti. Hann hélt
landsliðsmarkverðinum Guð-
mundi Hrafnkelssyni á bekknum
nánast allan tímann, hleypti hon-
um aðeins inná til að spreyta sig í
tveimur vítaköstum. Axel Stefáns-
son í KA-markinu varði reyndar
11 skot í fyrri hálfleik en datt nið-
ur í þeim seinni meðan Berg-
sveinn hélt uppteknum hætti.
KA-liðið átti ekki góðan dag.
Menn áttu erfitt uppdráttar í
sókninni en vörnin var á köflum
þokkaleg. Erfitt er að taka ein-
staka menn út að Axeli undan-
skildum sem var góður í fyrri
hálfleik eins og fyrr segir. FH-
ingar léku að flestra dómi sinn
besta leik í ár og viröast vera að
finna taktinn eftir erfiða byrjun.
Bergsveinn stóð upp úr en Stefán
Kristjánsson átti einnig góðan
leik.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Þórsarar misstu móðínn
- og töpuðu 96:108 fyrir Val eftir tvær framlengingar
Þórsarar biðu lægri hlut er þeir
mættu Val í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik að Hlíðarenda í
fyrrakvöld. Leikurinn var æsi-
spennandi og þurfti tvær fram-
lengingar til að knýja fram
úrslit. Þórsarar misstu móðinn
í seinni framlengingunni og
lokatölurnar urðu 108:96 eftir
að norðanmenn höfðu haft for-
ystuna nánast allan venjulega
leiktímann.
Fyrri hálfleikur var mjög slak-
ur hjá báðum liðum. Hittni var í
lágmarki og varnarleikur fyrir
neðan meðallag. Þórsarar höfðu
undirtökin og staðan í leikhléi
var 41:34 þeim í vil.
Leikmenn beggja liða tóku sig
saman í andlitinu í seinni hálfleik
en Þórsarar héldu forystunni
alveg þar til hálf mínúta var eftir
af venjulegum leiktíma. Þá náðu
Valsmenn að jafna, 81:81, og
höfðu boltann síðustu sekúnd-
urnar en náðu ekki að komast
yfir þannig að framlengja varð
um 5 mínútur.
Valsmenn voru nú búnir að
finna sig og héldu þeir forystunni
þar til á síðustu sekúndunum að
Jón Örn Guðmundsson jafnaði
fyrir Þór, 92:92, með þriggja
stiga körfu þannig að framlengja
þurfti aftur. Þá var allur vindur
úr Þórsurum og Valur tryggði sér
12 stiga sigur.
Þórsarar misstu einbeitinguna í
restina en þeir hefðu átt að vera
búnir að gera út um leikinn í
venjulegum leiktíma. Cedric
Evans var sterkur framan af en
virtist þreyttur í framlengingun-
um. Sturla og Jón Örn áttu ágæt-
an leik og Jóhann Sigurðsson var
sterkur í vörninni.
„Við spiluðum vel en í fram-
lengingunum var of mikið af
ótímabærum skotum. Byrjunin
lofar nokkuð góðu en við þurfum
að leggja hart að okkur og eigum
eftir að sýna að við erum sterkir á
heimavelli," sagði Sturla Örlygs-
son, þjálfari Þórs.
Hjá Valsmönnum stóðu Magn-
ús Matthíasson og David Gris-
som upp úr.
Stig Vals: Magnús Matthíasson 29,
David Grissom 24, Svali Björgvinsson
24, Ragnar Jónsson 12, Matthías Matt-
lu'asson 9, Ari Gunnarsson 6, Helgi
Gústafsson 2, Aðalsteinn Jóhannsson 2.
Stig Þórs: Cedric Evans 26, Sturla
Örlygsson 25, Konráð Óskarsson 16, Jón
Örn Guðmundsson 13, Jóhann Sigurðs-
son 12, Björn Sveinsson 2, Guðmundur
Björnsson 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Leifur
Garðarsson - dæmdu ágætlega.
-bjb/JHB
Mörk FH: Stefán Kristjánsson 9/2,
Gunnar Beinteinsson 5, Pétur J. Petersen
4, Þorgils Óttar Mathiescn 3, Guðjón
Árnason 3, Hálfdán Þórðarson 2, Óskar
Árntannsson 1, Magnús Einarsson 1,
Óskar Hclgason 1.
Mörk KA: Hans Guðmundsson 5,
Erlingur Kristjánsson 5/2, Jóhannes
Bjarnason 5/2, Sigurpáll Aðalsteinsson 3,
Guðmundur Guðmundsson 2, Pétur
B jarnason I.
Dómarar: Egill Már Markússon og
Kristján Sveinsson og dæmdu þeir
-bjb/JHB
þokkalega.
skoraði framhjá Bjarna Sigurðs-
syni markverði.
Aðeins tveimur mínútum síðar
minnkaði Sigurður Jónsson mun-
inn með ansi skrautlegu marki.
Markvörðurinn Zubizarreta
sendi boltann á Sanchis og ætlaði
að fá hann aftur. Sigurður fylgd-
ist vel með, tók mikið viðbragð,
laumaði sér á milli þeirra, stal
boltanum og renndi honum í
opið markið.
Eftir þetta færðist aukinn
kraftur í íslenska liðið. Sjálfs-
traust leikmannanna jókst og
þeir höfðu yfirhöndina síðasta
hlutann, án þess þó að ná að
ógna marki Spánverja verulega.
Islenska liðið lék ágætlega í
gær en miðju- og sóknarmennirn-
ir voru e.t.v heldur ragir í fyrri
hálfleiknum og báru of mikla
virðingu fyrir spænsku stjörnun-
um. Sævar Jónsson var að öðrum
ólöstuðum besti maður liðsins og
Ólafur Þórðarson var sívinnandi
að vanda.
Sigurður Jónsson skoraði mark
Islands.
Handknattleikur, 2. deild:
Þórsarar sóttu tvö
stig til Húsavíkur
Þórsarar sigruðu Völsung
29:25 í hörkuleik á Húsavík í
gærkvöld. Leikurinn var liður í
2. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik og verður ekki annað
sagt en byrjunin lofí góðu hjá
Þór, þeir hafa hlotið 5 stig úr
þremur fyrstu leikjunum og
virðast til alls vísir.
Jóhann Samúelsson átti mjög góðan
leik gegn Völsungum.
Það var jafnt á öllum tölum
framan af fyrri hálfleik en á loka-
mínútunum náðu Þórsarar yfir-
höndinni og höfðu tveggja marka
forskot í hléi, 14:12.
Völsungar voru grimmir í upp-
hafi seinni hálfleiks og jöfnuðu
leikinn. Þórsarar gáfust þó ekki
upp og náðu tveggja marka for-
ystu um miðjan hálfleikinn eftir
að þeir höfðu fengið tvö umdeild
vítaköst. Þá forystu létu þeirekki
af hendi og náðu að auka hana í
fjögur mörk í lokin þegar leikur-
inn leystist upp í nokkurn hama-
gang. Völsungar voru alltof bráð-
ir í sóknarleiknum og Þórsarar
nýttu sér það.
Jóhann Samúelsson kom inn á
í lið Þórs þegar nokkuð var liðið
á leikinn og small í gang. Hann
skoraði hvert markið á fætur
öðru með þrumuskoti og var
besti maður vallarins. Hjá Völs-
ungum var Ásmundur mjög
frískur og markvörðurinn Ólafur
Börkur Þorvaldsson varði oft vel.
Mörk Völsungs: Ásmundur Arnarsson 8,
Helgi Helgason 4, Haraldur Haraldsson
3, Örvar Sveinsson 3, Tryggvi Guð-
mundsson 2, Vilhjálmur Sigmarsson 2,
Skarphéðinn fvarsson 2 og Jónas Grani
Garðarsson 1.
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 10,
Sævar Árnason 5, Páll Gíslason 5, Ingólf-
ur Samúelsson 4, Ólafur Hilmarsson 4,
Jóhann Jóhannsson 1. HJ/JHB