Dagur - 07.11.1990, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 7. nóvember 1990
Hagur fiskveiða og fiskvinnslu:
Aíkoman hefur batnað
mjög frá síðasta áii
- frystiskip rekin með 11,3% hagnaði af tekjum
Sameiginleg afkoma fiskveiða
og fiskvinnslu hefur batnað frá
árinu 1989. Þá var hún nei-
kvæð um 2,2% en í október
1990 er talið að afkoman sé
jákvæð um 3,2%. Án greiðslna
úr Verðjöfnunarsjóði fiskiðn-
aðarins hefði tapið á veiðum
og vinnslu botnfísks numið
5,0% af tekjum árið 1989 og
án greiðslna í Verðjöfnunar-
sjóð sjávarútvegsins nú í októ-
ber hefði hagnaður af veiðum
og vinnslu numið 5,5% af
tekjum.
Þetta kemur fram í frétt frá
Þjóðhagsstofnun, en stofnunin
hefur lokið uppgjöri á rekstri
helstu greina fiskvinnslunnar
1989 og unnið rekstraryfirlit yfir
botnfiskveiðarnar sama ár og
borið niðurstöðurnar saman við
rekstrarskilyrði um miðjan októ-
ber 1990.
Á árinu 1989 var lítilsháttar
tap af botnfiskvinnslunni. Hreint
tap frystingar og söltunar var um
1,4% af tekjum en hefði verið
um 5,6% ef greiðslur úr Verð-
jöfnunarsjóði hefðu ekki komið
til.
Samkvasmt stöðumati við skil-
yrði um miðjan október 1990 er
hreint tap frystingar og söltunar
0,3% af tekjum. I þessu afkomu-
mati hafa greiðslur úr Verðjöfn-
unarsjóði sjávarútvegsins verið
dregnar frá, en þær nema 2,5%
af útflutningstekjum botnfisk-
vinnslunnar í október. Án
greiðslna í Verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins nú í október
hefði hagnaður af fiskvinnslu
numið 2,0% af tekjum.
Hliðstæðar athuganir fyrir
botnfiskveiðar á árinu 1990 sýna
að tap af þessari starfsemi nam
I, 5% af tekjum. Bátar 21-200
brúttólestir voru reknir með
5,5% tapi og togarar með 1,2%
tapi en hagnaður frystiskipa var
5,0% af tekjum.
Samkvæmt stöðumati við skil-
yrði um miðjan október 1990 er
hreinn hagnaður botnfiskveiða
4,9% af tekjum. Bátar eru reknir
með 1,8% hagnaði, togarar með
4,9% hagnaði og frystiskip með
II, 3% hagnaði af tekjum. SS
Veiðimálastofnun og Hólalax:
Námsstefiia um eldi og
nýtingu bleikjunnar
Næstkomandi laugardag boða
Hólaskóli, Veiðimálastofnun
og Hólalax til námsstefnu á
Hólum í Hjaltadal þar sem
rætt verður um rannsóknir,
nýtingu og eldi á bleikju hér á
landi. Þessar stofnanir hafa
náið samstarf um margskonar
rannsóknir á bleikju og verður
á námsstefnunni skýrt frá
niðurstöðum þeirra rannsókna
sem gerðar hafa verið að
undanförnu.
Á síðasta sumri var gerð víð-
tæk athugun á bleikju í stöðu-
vötnum með veiðni, nýtingu og
markaðssetningu í huga. Einnig
standa þessir aðilar, í samvinnu
við Rannsóknastofnun land-
búnaðarins, að eldistilraunum á
mörgum mismunandi bleikju-
stofnum í leit að hentugum stofni
til eldis og kynbóta. Skúli Skúla-
son tók til starfa við Hólaskóla í
haust en hann hefur nýlokið
doktorsnámi sem fjallaði urn
eldistilraunir á mismunandi
stofnum bleikju í Þingvallavatni.
Meðal fjölmargra erinda sem
flutt verða í námsstefnunni um
þetta mál má nefna erindi Tuma
Tómassonar um rannsóknir og
nýtingu á bleikju í stöðuvötnum,
erindi Einars Svavarssonar frá
Hólalaxi um niðurstöður eldistil-
raunar á mismunandi stofnum
bleikju og erindi Skúla Skúlason-
ar um niðurstöður eldistilrauna á
ólíkum bleikjuafbrigðum.
Námsstefnan hefst kl. 12.30 á
laugardag og er öllum opin.
JÓH
Kvennalistinn á Norðurlandi eystra:
Efiiir tfl skoðanakörmunar
um skipan framboðslistans
Kvennalistakonur í Noröur-
landskjördæmi eystra hafa
komið á fót uppstillingarnefnd
fyrir komandi alþingiskosn-
ingar.
Að sögn Elínar Stephensen,
kvennalistakonu á Akureyri, er
rætt um að efna til kynningar-
funda í kjördæminu þar sem kon-
um gæfist kostur á að heyra sjón-
armið Kvennalistans og ganga til
liðs við hann. Þá segir Elín
ákveðið að efna til skoðana-
könnunar á meðal félagsbund-
inna kvenna í Kvennalistanum
um hvaða konur þær vilja sjá á
framboðslistanum, án tillits til
skipunar þeirra í ákveðin sæti.
„Síðan verður haft samband við
þær konur sem koma best út í
skoðanakönnuninni og leitað eft-
ir því hvort þær vilji taka sæti á
listanum. Að því búnu verður
fengið bindandi álit kvenna á fé-
lagsfundi um skipan þriggja efstu
sæta listans, en sá fyrirvari verður
hafður á að þær verði ekki allar
úr sama byggðarlaginu. Það vill
segja að við viljum t.d. ekki hafa
konur frá Akureyri í þrem efstu
sætunum,“ sagði Elín. Hún sagði
það ætlunina að Kvennalistinn
verði tilbúinn með framboðslista
fyrir áramót.
Málmfríður Sigurðardóttir situr
nú á Alþingi fyrir Kvennalistann
í Norðurlandskjördæmi eystra.
Hún hefur enn ekki viljað gefa út
hvort hún gefi kost á sér áfram til
setu á Alþingi. óþh
Frá fundi Ferðamálasamtaka Norðurlands á Húsavík um helgina.
Ferðamálasamtök Norðurlands:
Ákveðið að vbrna að
framtíðarskipulagi samtakanna
- á aðalfundi þeirra á Húsavík
Aðalfundur Feröamálasam-
taka Norðurlands var haldinn
á Hótel Húsavík sl. laugardag.
Stjórn ásamt þriggja manna
nefnd var falið að gera tillögur
um framtíðarskipulag félagsins
og framhaldsaðalfundur verð-
ur síðan haldinn eigi síðar en í
mars.
Fremur dræm mæting var á
fundinn, en hann sóttu um 15
manns. Samtökin þjóna svæðinu
frá Hrútafjarðarbotni austur að
Langanesi. Aðspurður frétta af
fundinum sagði Þorleifur Þór
Jónsson, gjaldkeri samtakanna:
„Það er Ijóst að tímamót eru í
starfsemi samtakanna. Kjölfest-
an í starfi þeirra hefur verið að
gefa út bæklinginn Norden Ice-
land, sem orðinn er úreltur eftir
margra ára notkun. Ekki þykir
stætt á að gefa hann út áfrani
enda gefur hann lítið af sér. Það
hefur orðið mikil hugarfarsbreyt-
ing í ferðaþjónustunni og hið
opinbera hefur verið að fela
ferðamálasamtökunum sívaxandi
hlutverk, t.d. með þátttöku í
Ferðamálaráði og þátttöku í
Upplýsingamiðstöð ferðamála.
Þetta hefur kallað á mikil funda-
höld og störf í stjórnum og
nefndum sem leiða til síaukinna
starfa ýmsra stjórnarmanna, en
þeir hafa unnið þetta í sjálfboða-
vinnu vegna þess að það eru eng-
ir fastir tekjustofnar til að standa
undir starfseminni. Það er orðið
alveg ljóst að allt þetta kallar á
endurskipulagningu og fjármögn-
un því það er ekki hægt að reka
þessi samtök sem sjálfboðaliða-
samtök. Samtökin í núverandi
formi eru því komin í hálfgert
strand.
Niðurstaða fundarins var að
endurskipuleggja þyrfti Ferða-
málasamtök Norðurlands alveg
frá grunni; uppbyggingu þeirra,
markmið og fjármögnun.“
Þorleifur segir að samtökin
hafi verið í mikilli lægð út af fjár-
skorti og lítið starfað inn á við.
Hann og Jón Gauti Jónsson,
varaformaður samtakanna hafi
verið í mikilli vinnu fyrir samtök-
in í Ferðamálaráði, Jón Gauti
Eftir að Bandaríkjamenn
hækkuðu lögaldur til áfengis-
kaupa í 21 ár fyrir nokkrum
árum hafa rannsóknir leitt í
Ijós að ungmennum sem slas-
ast í umferðinni hefur fækkað
stórlega. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Áfeng-
isvarnaráði.
í tilkynningu Áfengisvarnaráðs
er einnig vitnað í alþjóðlega ráð-
stefnu sem haldin var í Berlín í
sumar. í erindum bandarískra
vísindamanna kom fram að
hækkun Iögaldurs til áfengis-
kaupa hefur ekki einungis dregið
setið í framkvæmdastjórn þess og
Þorleifur setið í stjórn Ferða-
málasjóðs og stjórn upplýsinga-
miðstöðvar ferðamála og þetta
hafi eiginlega tekið alla þá krafta
sem þeir geti lagt fram aukalega.
„Svona samtök verða að vera
til staðar og það er eiginlega hálf
lögboðið. Þeim er ætlað ákveðið
hlutverk og í nýjum lögum um
ferðamál verður þeim væntan-
lega ætlað enn meira hlutverk en
jafnframt tekjustofnar svo það
verði framkvæmanlegt,“ sagði
Þorleifur, aðspurður um gildi
samtakanna. IM
úr slysum á táningum vegna þess
að áfengisneysla þeirra hefur
minnkað, heldur stuðlar hún og
að því að drykkja ungs fólks sem
náð hefur lögaldri til áfengis-
kaupa er minni en áður var.
Ráðið vitnar ennfremur í
bandaríska rannsókn þar sem
vísindamenn komast að þeirri
niðurstöðu að sala veikra vína í
matvöruverslunum auki áfengis-
neyslu og loks bendir ráðið á það
fordæmi sem bæjarstjórnin í
Molde í Noregi gefur með því að
veita aldrei áfengi í veislum sín-
um og móttökum. SS
Áfengiskaup ungmenna:
Hækkun lögaldurs
dregur úr drykkju
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins:
Magnús tilbúiim ef til prólkjörs kemur
- Hávarður næsti formaður á Norðurlandi vestra
Kjördæmisþing Alþýðuflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
vestra var lialdið sl. sunnudag
á Sauðárkróki. Að sögn
Björns Sigurbjörnssonar, frá-
farandi formanns kjördæmis-
stjórnar, var mæting góð. Val-
in var sex manna nefnd til að
kanna vilja fyrir prófkjöri eða
hvort uppstilling verður á lista
flokksins fyrir alþingiskosning-
arnar.
Stefnt er að því að kjördæmis-
ráð flokksins hittist síðan fyrir
20. nóvember og nefndin skili þá
inn áliti og út frá því verði ákveð-
ið hvort verður fyrir valinu, próf-
kjör eða uppstilling.
Á kjördæmisþinginu var kosið
í nýja stjórn kjördæmisráðs.
Hávarður Sigurjónsson á Blöndu-
ósi, Jón Haukdal Kristjánsson á
Hvammstanga og Þorvaldur
Skaftason á Skagaströnd voru
kosnir og trúlega veröur Hávarð-
ur næsti formaður.
Jón Baldvin Hannibalsson
mætti á þingið og ræddi um
málin, en Sighvatur Björgvinsson
komst ekki, þó að það hefði stað-
ið til.
Jón Sæmundur Sigurjónsson er
búinn að gefa kost á sér á lista
Alþýðuflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra og á kjördæmis-
þinginu kom einnig fram yfirlýs-
ing frá Magnúsi Jónssyni, veður-
fræðingi, urn aö hann væri reiðu-
búinn að taka þátt í prófkjöri ef
til þess kæmi. SBG