Dagur - 30.11.1990, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 30. nóvember 1990
v
.^AlS//
O.
<T
Starfsmannafélög - Klúbbar
Haldið jólafagnaðinn
í elsta húsi bæjarins, Laxdalshúsi
I Í3J / •
Allar uppl. veita Hallgrímur og Stefán í síma 21818.
Hámundarstaðaháls:
Bíll ónýtur
eltir veltu
Brýnt að bæta húsakost Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri:
„Eldra fólk liggur hér á ýmsuni deildum
við gjörsamlega óviðunandi aðstæður“
Bygginganefnd Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri legg-
ur til að byggð verði ný 4000
fermetra álma við sjúkrahúsið,
barnadeildin verði stækkuð og
byggt verði við hjúkrunar-
deildina Sel. Nefndin hefur
skilað skýrslu um hvað gera
þarf í húsnæðismálum sjúkra-
hússins þannig að það geti
sinnt hlutverki sínu næstu 15
árin. Áætlanir eru m.a. byggð-
ar á mannfjöldaspá Byggða-
stofnunar og úttekt sem gerð
var á stöðu einstakra deilda
innan FSA.
Að sögn Inga Björnssonar,
framkvæmdastjóra FSA, eru
meginniðurstöður úttektar á ein-
stökum deildum þær að legu-
deildir spítalans búa við afskap-
lega bágborna aðstöðu. Þær eru í
gamla húsinu og hafa ekki tekið
neinum breytingum síðan 1953.
„Tillögurnar ganga fyrst og
fremst út á það að bæta legu-
deildaraðstöðuna en rannsókna-
aðstaða spítalans er hins vegar
nokkuð góð. Brýnasta verkefnið
er eflaust að finna lausn fyrir
hjúkrunarsjúklinga í röðum eldra
fólks sem liggja hér á ýmsum
deildum við gjörsamlega óviðun-
andi aðstæður," sagði Ingi.
Hann sagði ýmis önnur verk-
efni aðkallandi á sjúkrahúsinu.
Enn vantar upp á að frágangi sé
lokið í nýju byggingunni og er
verið að þrýsta á fjárveitinga-
valdið um úrbætur. Þetta er dæmi
upp á tugi milljóna.
Varðandi starfsmannahald
sagði hann að allar læknisstöður
sem heimildir eru fyrir væru
mannaðar og yfir 90% af heimil-
uðum stöðum hjúkrunarfræð-
inga. Það er því ekki hægt að tala
um skort á fagmenntuðu starfs-
fólki en á hinn bóginn hafa sumar
deildir sýnt fram á þörf fyrir fleiri
stöðuheimildir, en þær hafa ekki
fengist.
„Það er alltaf verið að tala um
að hér þurfi að skapa störf. Störf-
in skapast helst í þjónustu og
opinber þjónusta eykst langmest,
en uppbyggingin er nær eingöngu
á höfuðborgarsvæðinu. Pað hlýt-
ur að vera liður í byggðastefnu að
koma þessum opinberu störfum
Höfði á Húsavík:
út á land og ef vilji reynist fyrir
því að veita fjármagni til spítal-
ans þá er þörfin vissulega fyrir
hendi. Bæði starfsfólk og sjúkl-
ingar búa við óviðunandi aðstæð-
ur á ýmsum deildum og það er
brýnt að bæta úr því. Auk þess
hefur sjúkrahúsið í vissum grein-
um ekki getað sinnt eftirspurn-
inni á sínu þjónustusvæði þannig
að sjúklingár hafa þurft að leita
til Reykjavíkur," sagði Ingi. SS
veiðitogara.
Togarinn heitir Killiit og er í
eigu danskra aðila en er gerður út
til rækjuveiða frá austurstönd
Grænlands. Þráinn sagði að
togarinn væri svipaður að stærð
og Kolbeinsey ÞH 10, sem er 430
lestir. Þráinn vildi ekki gefa upp
hve tilboð Höfða í togarann væri
hátt en staðfesti að tii þess að
kaupin gætu náð fram að ganga
þyrfti Höfði bæði að kaupa ís-
lenskt skip til úreldingar og selja
togarann Júlíus Havsteen ÞH 1.
„Þetta er ekki komið svo langt að
maður viti hvort þetta gangi og
það getur liðið talsverður tími
þar til ljóst verður hvort þetta
tekst,“ sagði Þráinn. IM
Um klukkan hálf ellefu í
gærmorgun fékk lögreglan á
Dalvík tilkynningu um bfl-
veltu á Hámundarstaða-
hálsi. Bfll hafði farið út af
veginum og oltið en ekki
urðu slys á fólki.
Að sögn lögreglu er bíllinn
ónýtur eftir veltuna. Nokkuð
rnargar bílveltur hafa orðið í
grennd við Dalvík á undan-
förnum vikuin. §§
Akureyri:
Afgreiðslutími
verslana lengdur
Það styttist í jólin og jóla-
verslunin fer senn á fulla
ferð. Eins og komið hefur
fram í Degi, hafa Kaup-
mannafélag Akurcyrar og
Kaupfélag Eyfirðinga gert
samkomulag um samræmd-
an afgreiðslutíma.
Á morgun laugardag verða
verslanir opnar frá kl. 10-16.
Annars verður afgreiðslutími
verslana til jóla utan venjulegs
afgreiðslutíma sem hér segir:
Laugardagur 1. des. kl. 10-16.
Laugardagur 8. des. kl. 10-18.
Laugardagur 15. des. kl. 10-22.
Fimmtudagur 20. des. kl. 9-22.
Föstudagur 21. des. kl. 9-22.
Laugardagur 22. des. kl. 10-23.
Mánudagur 24. des. kl. 9-12.
Tilboð gert í grænlenskan rækjutogara
„Það er raunverulega ekkert
að frétta nema það að við
gerðum þetta tilboð,“ sagði
Þráinn Gunnarsson, skrif-
stofumaður hjá Höfða hf. á
Húsavík, og varðist flestra
frétta af tilboði fyrirtækisins í
sérbúinn grænlenskan rækju-
Staða framkvæmdastjóra IE:
Fjórtán umsóknir bárust
Fjórtán umsóknir bárust um
stöðu framkvæmdastjóra Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar.
Stjórn félagsins hefur þessar
umsóknir nú til umfjöllunar.
Kristján Þór Júlíusson, for-
maður stjórnar Iðnþróunarfé-
lagsins, sagðist vonast til að þetta
mál skýrist í næstu viku. Rætt
verði við nokkra umsækjendur
og í framhaldi tekin ákvörðun
um hverjum verði boðin staðan.
Kristján sagði að nýr maður eigi
að taka við starfinu um áramót
eða sem fyrst á nýju ári. JÓH
ÞAÐ ER AT.T.T HÉR..
BÆKUR RITFÖNG REKSTRARVÖRUR TIMARIT FERÐATÖSKUR GJAFAVÖRUR SKRIFSTOFUVÖRUR
REIKNIVÉLAR TÖLVUR POSTKORT TÖLVULEIKIR SKRIFSTOFUHUSGÖGN LJOSRITUNARVELAR
POSTFAXTÆKI SPIL VEGGMYNDIR
HNATTLIKÖN SKJALATÖSKUR
p SKOLAVÖRUR SKAKTOLVUR