Dagur - 05.01.1991, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 5. janúar 1991
Passíukórinn
tónlist
u
tónleikar, 30. desember
Sunnudaginn 30. desember þélt
Passíukórinn tónleika í Akureyr-
arkirkju. Á efnisskrá var messa
eftir Marc-Antonie Charpentier,
franskt tónskáld, sem uppi var á
17. öld og nokkuð fram á þá 18.
Hann var samtíðamaður leikrita-
skáldsins Moliére og tónskáldsins
Tully. Charpentier stóð mjög í
skugga Tullys. Tónverk hans
voru að heita mátti óþekkt þar til
á þessari öld en nú þykir
mönnum, að Charpentier hafi
ekki notið sannmælis í samtíð
sinni og að hann sé á meðal
fremstu tónskálda Frakka á 17.
öldinni.
Messan, sem Passíukórinn
flutti 30. des. er samin fyrir ein-
söngvara, kór, litla hljómsveit og
orgel. Stjórnandi var Roar
Kvam.
Frammistaða einsöngvara var
yfirleitt góð. Þeir sungu af
öryggi. Innkomur voru góðar og
hljómurinn hreinn. Hólmfríður
Benediktsdóttir, sópran, átti
góða kafla, en rödd hennar virtist
á stundum ekki falla svo vel að
þessari tegund tónlistar sem
skyldi. Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran, gerði einnig margt prýði-
lega. Fyrir kom þó að nokkur
skjálfti og óöryggi var á röddinni.
Þórunn Guðmundsdóttir og Þuríð-
ur Baldursdóttir, alt, virtust ráða
vel við hlutverk sín. Fyrir kom
þó, að raddirnar urðu afar hljóm-
litlar á lágum tónum. Jón Helgi
Þórarinsson, bassi, hefur hljóm-
þýða rödd, sem hann beitir af
smekkvísi. Fyrir kom þó, að hún
varð flöt og hljómlítil. Steinþór
Þráinsson, bassi, hefur mikla
rödd, sem naut sín vel í þýðum
köflum, en varð óhóflega belj-
andi, þegar henni var beitt af
meiri styrk.
Messa Charpentiers er skrifuð
fyrir tvöfaldan kvartett einsöngv-
ara. Tenórar fengust hins vegar
ekki til flutningsins að þessu
sinni. Því var hlutverki þeirra
skipt á aðrar raddir eftir því sem
við varð komið. Þetta fyrirkomu-
lag kann að hafa valdið nokkrum
þeim göllum, sem voru á frammi-
stöðu einsöngvaranna.
Passíukórinn var skipaður
sautján söngvurum í flutningi
messunnar. Karlar voru fimm og
konur tólf. Kórinn söng hreint og
með allgóðunt hljómi. Hann var
hins vegar nokkuð víða of
óákveðinn og veikur. Þetta stafar
væntanlega að hluta til af því
ójafnvægi, sem er í fjölda í
röddurn. Með það í huga er það í
raun eftirtektarvert, hve vel kór-
inn gerir. Það er vafalaust, að ef
tækist að fjölga söngvurum í
þeim röddum hans, sem lakast
eru skipaðar, mætti búast við því,
að Passíukórinn yrði mjög gott
og afar áheyrilegt hljóðfæri.
Hljómsveitin, sem lék með í
flutningi Messu Charpentiers,
var skipuð hljóðfæraleikurum úr
Kammerhljómsveit Akureyrar.
Skemmst er frá því að segja, að
þeir stóðu sig með prýði. Svo er
komið, að ganga má að slíku sem
næst vísu, sem er enn ein stað-
festing þeirra framfara, sem
kammerhljómsveitin hefur tekið
á undanförnum árum.
Á orgelið lék Helga Kvam og
gerði það snyrtilega.
Tónleikarnir voru vel sóttir og
kunnu áheyrendur greinilega vel
að meta það, sem flutt var. Það
er þarft framtak að kynna tónlist-
arunnendum hin ýmsu verk tón-
bókmenntanna og höfunda
þeirra. Aðstandendur tónleika á
Akureyri hafa gert talsvert af því
og bera þeim kærar þakkir fyrir
það.
Haukur Ágústsson.
Vimmigsnúmer í Jólahappdrætti SUF
Eftirtalin vinningsnúmer komu
upp í Jólahappdrætti Sam-
bands ungra framsóknar-
manna 1990:
1. des. 1. vinningur 2036,
2. vinningur 974
2. des. 3. vinningur 3666,
4. vinningur 20
3. des. 5. vinningur 3203,
6. vinningur 3530
4. des. 7. vinningur 5579,
8. vinningur 1452
5. des. 9. vinningur 3788,
10. vinningur 5753
6. des. 11. vinningur 3935,
12. vinningur 3354
7. des. 13. vinningur 5703,
14. vinningur 4815
8. des. 15. vinningur 2027,
16. vinningur 2895
9. des. 17. vinningur 3261,
18. vinningur 2201
10. des. 19. vinningur 3867,
20. vinningur 5194
11. des. 21. vinningur 5984,
22. vinningur 864
12. des. 23. vinningur 1195,
24. vinningur 4874
13. des. 25. vinningur 1924,
26. vinningur 716
14. des. 27. vinningur 5840,
28. vinningur 5898
15. des. 29. vinningur 2517,
30. vinningur 750
16. des. 31. vinningur 4582,
32. vinningur 3085
17. des. 33. vinningur 1142,
34. vinningur 4416
18. des. 35. vinningur 3284,
36. vinningur 3227
19. des. 37. vinningur 5252,
38. vinningur 5168
20. des. 39. vinningur 3154,
40. vinningur 3618
21. des. 41. vinningur 3991,
42. vinningur 3129
22. des. 43. vinningur 2918,
44. vinningur 648
23. des. 45. vinningur 5200,
46. vinningur 1862
24. des. 47. vinningur 1606,
48. vinningur 1262
(Birt án ábyrgðar)
í frétt frá SUF eru þeir sem
hafa áhuga á að styrkja samtökin
hvattir til að greiða heimsenda
gíróseðla og leggja á þann hátt
baráttunni lið. Allar frekari upp-
lýsingar um Jólahappdrætti SUF
eru veittar á Reykjavíkurskrif-
stofu Framsóknarflokksins,
Hafnarstræti 20, 3. hæð, eða í
síma 91-624480.
Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið var í Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins 24. des-
ember sl. en númerin eru í inn-
sigli hjá Borgarfógeta til 7. janú-
ar nk.
í frétt frá Framsóknarflokkn-
um eru velunnarar flokksins, sem
ekki hafa greitt heimsendan
gíróseðil, hvattir til að gera skil
eigi síðar en 7. janúar. Allar nán-
ari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu flokksins í Reykjavík eða í
síma 91-624480.