Dagur - 05.01.1991, Qupperneq 7
Laugardagur 5. janúar 1991 - DAGUR - 7
poppsíðan
Todmobile Todmobile:
Öðruvísi en amiað
Skiptar skoöanir hafa löngum
verið um dægurtónlist okkar
íslendinga og hefur eins og
gengur sitt sýnst hverjum um
ágæti hennar. Glöggt dæmi þess
efnis mátti einmitt sjá á áramóta-
poppsíöu Dags fyrir rúmri viku
þar sem nokkrir valinkunnir tón-
listaráhugamenn tjáðu sig um
árið 1990 tónlistarlega séð.
Skiptust menn þar nánast í tvö
horn hvað varðar álit á íslenskri
tónlist árið 1990 þ.e. ýmist lofuðu
hana eða löstuðu.
Það sem lösturunum þótti helst
aðfinnsluvert var að þeim þykir
lítils frumleika gæta og að menn
séu ragir við að reyna eitthvað
nýtt.
Umsjónarmaöur Poppsíðunn-
ar er að sumu leyti sammála
þessu og finnst mér þessi skoð-
un vera rétt hvað varðar marga
af eldri poppurum landsins sem
margir hverjir hafa verið aö gera
nákvæmlega sömu hlutina í
fimmtán ár.
Hins vegar hafa af aö mínum
Umsjón:
Magnús Geir
Guðmundsson
dómi alltaf annað slagið skotið
upp kollinum nýjar hljómsveitir
sem komið hafa með ferskan
blæ í poppheiminum. Eru t.d.
sumar Smekkleysusveitirnar
eins og Bless, Langi Seli og
Skuggarnir og Bootlegs góð vitni
um þetta, og svo Todmobile.
Það er óhætt að segja að þau
Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur
Þorvaldsson og Eyþór Arnalds
hafi komið á óvart með fyrri plöt-
unni sinni árið 1989. Fyrir utan
að vekja athygli með óvenjulegri
hljóðfæraskipan, gítar, söngur,
selló, þótti tónlistin einkar heill-
andi með sínum dulúðuga blæ.
Varð platan ein af söluhæstu
skífunum fyrir jólin 1989 og verð-
skuldaði hún það fyllilega.
Nýja platan sem kom út fyrir
þessi jól hefur svo sannarlega
náð að fylgja þeirri eftir og má
merkja tónlistarlega þróun á
henni í rétta átt. Sem fyrr er viss
dulúð sem einkennir tónlistina en
samt ekki á þann hátt að um ein-
hverjar endurtekningar sé um að
ræða.
Öll 11 lögin á plötunni eru
áheyrileg en sum þeirra krefjast
meiri hlustunar en önnur. Þó get
ég ekki stillt mig um að nefna tvö
af rólegri lögum plötunnar, Næt-
urlagið og Brúðkaupslagið, mjög
fallegar melódíur þar sem
Andrea fer á kostum í söngnum.
Todmoþile er sjálfsagt ekki
frumlegasta hljómsveit í heimi en
á íslenskan mælikvarða er hún
að gera hluti sem eru á margan
hátt öðruvísi en flest annað í
þoppinu og fyrir það á hún skilið
sérstakt hrós.
Bootlegs - Bootlegs:
Þungt og á miklum hraða
Þungarokkshljómsveitir hafa ekki
verið alltof margar á íslandi og
þær fáu sem hafa komist á legg
hafa ekki orðið beint háaldraðar.
Ekki hefur þó vantað að þessar
hljómsveitir hafi verið frambæri-
legar, síður en svo, sveitir eins
og Drýsill, Þrumuvagninn (C.o.T
eins og hún kallaðist seinna),
Gyþsy og Gildran þóttu allar
mjög góðar og allar settu þær
efni á plast í meira eða minna
mæli, en af hinni eða annarri
ástæðu hættu þær störfum alltof
fljótt eða skiptu um tónlistarstíl.
Það er þó ekki þar með sagt að
áhugann vanti en ýmis Ijón sem
orðið hafa í veginum eins og
nánast fordómar gagnvart
þungarokki (tónlistin fæst ekki
með góðu móti spiluð í útvarpi)
hafa gert þessum hljómsveitum
óhægara um vik við að koma sér
á framfæri en ella.
Bootlegs er eina þungarokks-
hljómsveitin sem nú starfar sem
náð hefur að hasla sér völl nú á
seinni árum, þökk sé þori
Smekkleysumanna og dæma-
lausum dugnaði sveitarmeðlima
sjálfra.
Þessi nýja plata þeirra sem
kom út fyrir jólin er þeirra önnur
en sú fyrri, WC Monster kom út
1989. Þeir félagar gera út á þá
tegund þungarokks sem einna
mestrar hylli hefur notið nú hin
seinni ár svokallað Trash/Speed
Metal.
Sem dæmi um hljómsveitir
sem flokkast undir þennan hatt
þungarokks og náð hafa miklum
vinsældum má nefna Megadeth,
Slayer, Anthrax og Metallica, en
þeir síðasttöldu eru ókrýndir
kóngar þessarar tónlistar.
Ef þessi nýja plata Bootlegs er
borin saman við sumt af því sem
áðurnefndar hljómsveitir hafa
sent frá sér má segja að hún
stenst þann samanburð ágæt-
lega og frá WC Monster er hún
stórt framfaraskref.
Það sem er helst ábótavant er
að melódíurnar mættu að ósekju
vera heldur fleiri í hraðari lögun-
um en þær eru af skornum
skammti. Það er því þannig farið
að lögiri þar sem hraðanum er
stillt í hóf falla manni betur í geð
og má nefna lögin Tippikal og
jólarokk í því sambandi.
Ef þeirfélagar í Bootlegs halda
áfram á sömu braut og þeir fá
nægan stuðning er ekki loku fyrir
það skotið að hljómsveitin gæti
orðiö vænleg útflutningsvara því
hún hefur alla burði til þess, það
sannar nýja platan fyllilega.
Hitt og þetta
Guns ’N’ Roses loksins
búnir að taka upp
Nú skömmu fyrir áramót luku
stórrokkararnir í Guns ’n’ Roses
loksins við upptökur á nýju plöt-
unni sinni eftir langa og stranga
mæðu. Eins og vangaveltur hafa
verið um þá verður skífan tvöföld
og útgáfa hennar er áætluð ein-
hvern tímann i apríl. Einungis er
eftir að hljóðblanda gripinn og í
þeim tilgangi hefur hið fræga
hljóðver Electric Ladyland í New
York verið ieigt næstu vikurnar.
Safnplötur á safnplötur ofan
Það virðist vera mikil tíska í
poppheiminum um þessar mund-
ir að gefa út safnplötur ýmiss
konar. Vissulega hafa þær alltaf
verið fyrir hendi í nokkrum mæli
en á þessu ári hefur þeim hrein-
lega rignt niður. Hér á síðunni
hefur verið minnst nokkrar þess-
ar safnplatna s.s. eins og Rem-
asters og Remasters Boxed, söfnin
tvö sem komið hafa út með Led
Zeppelin, og safn með bestu lög-
um Van Morrison. Nú nýlega hafa
síöan komið út safnplötur með
Elton John, Bee Gees, Donnu
Summer, Strangiers, Jimi Hendrix,
Rolling Stones, Joe Jackson, Stat-
us Quo o.fl. og virðist ekkert lát
ætla að verða á útgáfunni.
Chuck Berry
Fyrir margt löngu skýrði Popp-
síðan frá því að rokkkóngurinn
fornfrægi Chuck Berry hefði verið
ásakaður um að hafa gert klám-
myndbönd með börnum undir
lögaldri. Hefur hann nú verið
sýknaður af þeirri ákæru en á
hinn bóginn var hann fundinn
sekur um að hafa haft undir
höndum fíkniefnið marijuana en
það fannst við húsleit hjá Berry
vegna ákærunnar um klám-
myndböndin. Fékk hann tveggja
ára fangelsisdóm fyrir vikið sem
hann þarf þó ekki að sitja af sér
því dómurinn var skilorðsbund-
inn.
spurning vikunnar
Hvað last þú um jólin?
Spurt í Þingeyjarsýslu
Védís Bjarnadóttir:
Ég las Hestar og menn 1990,
búin að lesa hana alla saman.
Svo las ég Kristján og er eigin-
lega ekki komin lengra í bili. Við
fengum fjórar bækur í jólagjöf
og það er alltaf gaman að fá
bækur.
Jón Sigurjónsson:
Ég var að lesa bókina hans
Ómars Ragnarssonar og líkaöi
hún svona þokkalega. Eg fékk
tvær bækur í jólagjöf.
Sigtryggur Árnason:
Björn á Löngumýri. Ég haföi
gaman af bókinni en samt ekki
nógu gaman. Ég fékk nokkrar
bækur í jólagjöf og er að fara að
lesa meira.
Úrsúla Pétursdóttir:
Ég var með bókina um íslenska
hella eftir Björn Hróarsson og er
búin aö blaða mörgum sinnum í
gegnum hana. Mér fannst hún
alveg dýrðleg. Viðfengum mik-
ið af bókum og erum miklir
bókaormar.
Sigríður Atladóttir:
Ég er búin að lesa Kristján
Jóhannsson og bókina hennar
Margrétar, þýsku konunnar,
Lífsreynsla heitir hún. Auðvit-
að las ég bókina hans Atla:
Hænsnin á Hóli. Ég fékk
nokkrar bækur í jólagjöf.