Dagur - 22.01.1991, Page 4

Dagur - 22.01.1991, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 22. janúar 1991 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Að komast af á hjara veraldar íslendingar eru um 250 þúsund einstaklingar sem búa á eylandi í Atlantshafi norður undir heimsskautsbaug. Mestur hluti landsins er háslétta og öræfi sem liggja að hluta ofan gróðurlínu og eru óbyggileg miðað við það loftslag og veðurfar sem leikur um landið. Einungis strandlengja þess er byggileg og verulega harðbýlt er á köflum þótt við sjávarsíðuna sé. ísland er einnig ungt land á jarðsögulegan mælikvarða og verðmæti í jörðu eins og málmar eða eldsneyti finnast tæplega. Vegna þess að landið liggur á eldvirknisvæði er hins vegar að finna mik- inn hita víða í jörðu og hálendi íslands skapar öfluga vatnsstrauma þegar jarðvatnsuppsprettur og leysingar leita undan hallanum til sjávar. Jarðhitinn og fallorkan eru í raun einu auðæfin sem hálendið leggur okkur til og vissulega eru þau mikils virði. Þó skapa þessar orku- uppsprettur ekkert einar og sér. Iðnaður er breytir hrá- efnum í verðmæti fyrir tilstilli orkunnar verður einnig að koma til. Frá því sögur hófust hefur ísland risið úr hafi gjöfulla fiskimiða. Á öllum öldum íslandsbyggðar hafa íbúar landsins sótt sér fæðu fram fyrir flæðarmálið. Aðstæður og skipastóll hafa ráðið hversu langt hefur verið sótt. Um aldir vorum við skipalaus þjóð. Fleytur er kenndar voru við manndráp lágu þó víða á sjávarkömbum og var rennt úr vör á meðan þær höfðu einhverja burði til að fljóta. Fyr- ir um einni öld tók að rætast úr varðandi skipastól landsmanna. Fyrst var það skútuöldin. Síðan gufutogar- arnir og nýsköpunartogararnir sem brenndu olíu og komu hingað þegar þjóðin hafði eignast dálítið af pening- um. Síðast komu svo skuttogararnir og frystitogararnir auk vertíðar- og síldarbáta. Jafnframt hafa menn haldið áfram að róa á smábátum. Skipaeignin hefur því marg- faldast á einni öld. Nánast einni mannsævi. Er hyllti undir að við gætum sjálfir fullnýtt fiskimiðin hófst barátta okkar fyrir yfirráðum þeirra. Við færðum út landhelgina. í þrjár, fjórar, fimmtíu, hundrað og tvö hundruð sjómílur. Útfærsla landhelginnar kostaði mikla baráttu við þjóðir er um aldir höfðu helgað sér fiskimið við ísland. Á sama tíma og þjóðinni hefur tekist að varð- veita yfirráðin yfir fiskimiðunum hefur skipastóllinn vaxið langt umfram það sem lífríki miðanna hefur möguleika á að skila í formi sjávarafla. Með nútímaþekkingu og rann sóknum er unnt að fylgjast vel með lífríki sjávarins. Þess vegna hefur tekist að koma í veg fyrir að þjóðin tæki fiski- stofnana, lífsbjörg sína um aldir og framtíð, í land í heilu lagi og síðan ekki söguna meir. Verndun fiskistofnanna hefur kostað harðar og umdeildar aðgerðir. Vissulega má deila um kvótaskipt- ingu í sjávarútvegi eins og önnur mannanna verk, enda ríkir sjaldnast eining þegar skipta skal takmörkuðu magni milli margra. Smábátaeigendur eru óánægðir nú, aðrir hafa orðið fyrir skerðingu áður. Skipastóllinn er stór en fiskistofnarnir eru á hinn bóginn takmarkaðir. Þeir verða þó að bera að miklum hluta uppi það velferðarþjóð- félag sem við höfum komið okkur upp. Skynsamleg stjórn og nýting fiskistofnanna er því undirstaða þess að kom- ast af hér á hjara veraldar. ÞI Að meta það sem vel er gert Háskólinn á Akureyri þarfnast manna, sem eru reiðubúnir til að berjast fyrir hagsmunum hans. Hann þarfnast ekki manna, sem segja eitt í dag og annað á morgun. Hann þarfnast ekki manna, sem semja langar og efn- ismiklar skýrslur um mætar hug- myndir, en gleyma þeim síðan, þegar þeir eru í aðstöðu til að koma hugmyndunum í framkvæmd. Umfram allt þarf Háskólinn á Akureyri að eiga að stóran hóp stuðningsmanna, sem vilja honuni vel og kunna að meta það sem fyrir hann er gert. Þetta kom mér í hug, þegar ég las grein Péturs Bjarnsonar í Degi þann 15. janúar sl. Pétur Bjarnason gefur í skyn að Hall- dór Blöndal „fórni hagsmunum (Háskólans)“. Hann lýkur grein sinni með eftirfarandi orðum: „Halldóri væri sæmra að greina almenningi frá þeim verðugu verkefnum, sem hann hefur feng- ist við undanfarið, t.d. afskiptum hans af merkingum húsa í Reykjavík (Alþingishússins) og athyglsiverðri baráttu við að bæta fundarslöp Alþingis (sbr. sjón- varpsfréttir í vetur).“ Að njóta sannmælis Það er mikils vert að stjórnmála- menn njóti sannmælis ekki síður en aðrir menn. Alþingi samþykkti árið 1989 ályktun um að Skógrækt ríkisins skyldi flutt austur á land. Þings- ályktanirnar, sem aldrei verða annað en þingsályktanir, eru orðnar ærið margar. Framan- greind ályktun var hins vegar framkvæmd af núverandi land- búnaðarráðherra, Steingrími Sig- fússyni. Það mál hefur ekki geng- ið andskotalaust, eins og flestum er kunnugt um, og bakaði ráð- herranum vandræði innan eigin flokks. En hann hélt fast við sína ákvörðun, Ekki hvarflar það að mér að þræta fyrir það, að Steingrímur Sigfússon hafi átt heiðurinn af því að flytja þessa ríkisstofnun út á land. Þennan heiður á landbún- aðarráðherra og með sóma. Sjálfur hef ég á mannamótum hald- ið þessu á lofti, vegna þess að ég tel það sjálfsagt sanngirnismál að láta Steingrím njóta þess að hann hefur í þessu máli siglt á móti straumnum. Hann framkvæmdi það á borði sem aðrir höfðu gert í orði. Tímamótaákvörðun Á sama hátt þykir mér sjálfsagt að Sjálfstæðismenn njóti þess að þeir tóku á háskólamálinu af miklum dugnaði á tíma þegar fáir létu sig dreyma um sjálfstæða háskólastofnun á Akureyri. Tveir ráðherrar flokksins höfðu um þetta mál frumkvæði. Sverrir Hermannsson tók ákvörðun um að skólinn skyldi taka til starfa og vera með öllu sjálfstæð stofnun. Á þeim tíma þurfti þrumuraust að ná því máli fram, og harðan vilja. Sé Pétri Bjarnasyni þetta ekki Ijóst, þá þekkir hann ekki til aðdragandans að stofnun háskól- ans. Birgir ísleifur Gunnarsson vann að því að undirbúa frum- varp til laga um háskólann og flutti það mál á Alþingi. Engum, sem þekkir til mála, blandast hugur uin að stofnun Háskólans á Akureyri var tímamótaákvörð- un, sem mikið harðfylgi þurfti til að berja í gegn. Með báðum þessum ráðherr- um vann Halldór Blöndal að málefnum Háskólans á Akureyri. Hann var formaður undirbún- ingsnefndar menntamálaráðu- neytisins, sem átti nijög gott sam- starf við Háskólanefnd Akureyr- ar, sem undirrituðum hlotnaðist sá heiður að hafa formennsku fyrir. Starfsemi háskólans nú er byggð á útfærslu þeirra hug- mynda sem fram voru settar af hálfu Háskólanefndar Akureyr- ar, og unnar voru í samráði og samvinnu við fjölmarga aðila, og þá ekki síst nefnd menntamála- ráðuneytisins. Fjölmargir menn áttu hlut að máli við undirbúning háskóla- málsins. En ég hygg að á engan sé hallað, þótt fullyrt sé að af öll- um þingmönnum þessa kjördæm- is hafi Halldór Blöndal átt mest- an þátt í því að háskólinn var stofnaður. Ingvar Gíslason, þing- maður Framsóknarflokksins og nienntamálaráðherra, hafði verið ötull við að hvetja til þess að efna til háskólastarfsemi á Akureyri. Átti hann mikinn þátt í að undir- búa jarðveginn, en honum vannst ekki tími til að koma hugmynd- uni sínum í framkvæmd. Samstaða heimamanna Einn af þeim mönnum, sem unn- ið hefur gott starf fyrir Háskól- ann á Akureyri er Pétur Bjarna- son. Ef sá maður vill veg háskól- ans sem mestan, hefur hann að minnsta kosti gleymt því á meðan hann skrifaði grein sína í Dag, í þeim tilgangi, eins og tilvitnunin hér að ofan ber með sér, að gera lítið úr störfum þingmannsins Halldórs Blöndals. Pétur Bjarnason gerir því skóna í grein sinni að frumkvæði Sjálfstæðismanna í háskólamál- inu hafi skapað tortryggni, sem hafi „næstum því“ verið dýrkeypt fyrir stofnunina. Ég á bágt með að trúa því að svo smásálarlega stjórnmálamenn sé að finna hér um slóðir að þeir hlaupi undan merkjum Háskólans vegna þess Bæði greiðslukortafyrirtækin, VISA ÍSLAND - Greiðslumiðl- un hf. og EUROCARD á íslandi - Kreditkort hf., hafa samið við TRYGGINGAMIÐSTÖÐ- INA hf. um að annast ferðatrygg- ingar korthafa sinna frá og með 1. janúar 1991. Tryggingafríðindi er snar þátt- ur þeirra sérstöku hlunninda, sem korthafar og fjölskyldur þeirra njóta á ferðalögum, jafnt innanlands sem utan. Þá stendur þeim jafnframt til boða aðgangur að viðlagaþjónustu og neyðar- hjálp erlendis, korthöfum VISA hjá EUROP ASSISTANCE og korthöfum EUROCARD hjá GESA ASSISTANCE. Stjórnir kortafyrirtækjanna ákváðu fyrir nokkru að bjóða þessari tryggingar út. Tilboð TRYGGINGARMIÐSTÖÐV- ARINNAR hf. reyndist hagstæð- ast. Með því að semja við sama að þeim gremjist frumkvæði ann- arra. Raunar veit ég að svo er ekki. Um háskólamálið hefur verið og mun verða samstaða meðal heimamanna. En sú samstaða verður ekki um að gera lítið úr verkum velunnara skólans, hvort sem þar á í hlut Halldór Blöndal eða aðrir. Forysta Alþýðuflokksins Að því er varðar formann Alþýðuflokksins, þá er erfitt að mistúlka skoðanir hans á Háskólanuni á Akureyri ellegar gera honum upp skoðanir. Til þess hefur hann verið of skýr í máli og talað tæpitungulaust. Hann er á móti Háskólanum á Akureyri og hefur getið þess bæði í persónulegu viðtali í dagblaði og víðar. Hann er þeirr- ar skoðunar að á íslandi eigi að- eins að. vera einn Háskóli. Hann hefur því með málflutningi sínum ekki stutt starfsemi |ressarar stofnunar. Hann hefur sennilega líka gleymt því að hann sat í nefnd, sem gerði, fyrir rúmuni 15 árum ítarlegar tillögur um það hvaða háskólastarfsemi mætti og ætti að flytja til Akureyrar. Nú þegar hann er í valdastól, hefur hann skipt um tón. Ef Pétri Bjarnasyni er ekki kunnugt um þessi umniæli, er auðvelt að verða honum úti um þau. Alþýðuflokkurinn situr uppi með þau ummæli svo og þær hug- leiðingar Árna Gunnarssonar, þingmanns Alþýðuflokksins í kjördæminu, að það hafi ef til vill verið ráðlegra að bíða með stofn- un Háskólans á Akureyri. Þegar þar við bætist að iðnaðarráðherra hefur nú forystu fyrir því að stofna til meiri fjárfestingar og atvinnuuppbyggingar á höfuð- borgarsvæðinu en dæmi hafa ver- ið urn, þá hygg ég að Alþýðu- flokksmenn í Norðurlandskjör- dæmi eystra hafi ærinn starfa að sannfæra sjálfa sig um að flokkur þeirra vinni að heilinduni að því að stuðla að jafnvægi í byggð landsins innan ríkisstjórnar, sem setti sér það þó sem sérstakt markmið. Tómas I. Olrich. (Höfundur skipar annað sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi eystra. Hann var formað- ur Háskólancfndar Akureyrar 1985-1987 og sat í stjórn Háskólans á Akureyri um skeiö.) tryggingafélagið um að annast þessar sérhæfðu persónu- og ferðatryggingar fyrir bæði félögin sameiginlega náðist fjárhagslegur ávinningur, sem mun m.a. gera það kleift að halda árgjöldum greiðslukorta niðri enn um sinn í anda þjóðarsáttar. Hér er um mjög stóran trygg- ingasamning að ræða á íslenskan mælikvarða, sem tekur til um 125.000 korthafa eða helmings þjóðarinnar. Munu iðgjöld kortafélaganna hans vegna nema um 50 milljónum króna á árinu 1991. Tryggingamiðstöðin hf. er rót- gróið og traust fyrirtæki, stofnað 1956, það þriðja stærsta á íslenska tryggingamarkaðnum. Félagið tryggir m.a. verulegan hluta af íslenska fiskiskipaflotan- um. Tryggingasamningur korta- fyrirtækjanna er endurtryggður hjá Lloyd’s í Lundúnum. Tryggingamiðstöðin hf.: Veitir korthöfiim trygginga- vemd frá og með áramótum - heildariðgjöld nema um 50 milljónum króna

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.