Dagur - 22.01.1991, Blaðsíða 5

Dagur - 22.01.1991, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 22. janúar 1991 - DAGUR - 5 i fréttir i Starfsmönnum Fjórðungssjúkrahússins neitað um að vera áfram í Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar: „Um algjört viljaleysi af háJfu Ij ármálaráðuneytisins að ræða“ - segir Jóhanna Júlíusdóttir, formaður STAK Milli 25 og 30 milljónir króna munu renna árlega til Reykja- víkur í formi lífeyrissjóðs- greiðslna vegna starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eftir að ríkið yfirtók rekstur þess um síðast liðin áramót. Fram að þeim tíma voru starfsmenn sjúkrahússins félagar í Lífeyrissjóði starfs- manna Akureyrarbæjar og greiddu lífeyrissjóðsgjöld sín þangað. Starfsmenn Fjórðungs- sjúkrahússins óskuðu formlega eftir því við fjármálaráðuneyt- ið að verða áfram aðilar að Líf- eyrissjóði starfsmanna Akur- eyrarbæjar en viðræður við ráðuneytismenn um það mál hafa engan árangur borið. Halldór Jónsson, bæjarstjóri og Jóhanna Júlíusdóttir, formað- ur Starfsmannafélags Akureyrar áttu fund með fulltrúum fjár- málaráðuneytisins 16. janúar síð- ast liðinn varðandi lífeyrismál starfsmanna Fjórðungssjúkra- hússins. Á fundinum var rædd ósk starfsmanna sjúkrahússins Norðurland vestra: Símamál endurskoðuð - úrbætur í sumar og haust Skipun símamála í Húnavatns- sýslum hefur orðið heimamönn- um þar umhugsunarefni eftir að ófremdarástand skapaðist í rafmagnsleysinu á dögunum. Ýmislegt þykir athugavert við uppbyggingu símkerfisins sem færa mætti til betri vegar. Þó verður að taka tillit til að upp- bygging ijósleiðarakerfisins stendur yfir. Lagning ljósleiðarans yfir Lax- árgil þar sem hann rofnaði þykir mjög vafasöm. Gilið er um 190 metra breitt og var ekki lagður Launavísitalan: Hækkun um 2,6% Hagstofan hefur reiknað launa- vísitölu fyrir janúarmánuð 1991 miðað við meðallaun í desember sl. Er vísitalan 120,1 stig eða 2,6% hærri en í fyrra mánuði. Samsvarandi launavísitala sem gildir við útreikning greiðslu- marks fasteignaveðlána, tekur sömu hækkun og er því 2.627 stig í febrúar 1991. burðarstrengur með ljósleiðáran- um. Ljósleiðarinn verður grafinn undir árfarveginn þegar í vor eða strax og aðstæður leyfa. Að sögn Alexanders Pálssonar verkfræðings hjá Pósti og síma á Akureyri er Sauðárkróku.r svo-. kölluð hnútstöð fyrir Húnavatns- sýslur. Fjórar símstöðvar í Húna- vatnssýslum sækja alla sína þjón- ustu í gegnum símstöðina á Sauð- árkróki. Petta eru stöðvarnar á Laugarbakka, Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd. Ástæðan fyrir þessari skipun mála er að þegar stöðin á Blöndu- ósi er byggð upp er ákveðið að byggja þar útstöð. Útstöð er mun ódýrari en svokölluð hnútstöð eins og nú er á Sauðárkróki. Vegna þess að ódýrari kosturinn var valinn eru allar stöðvar í Húnavatnssýslum háðar Sauðár- króksstöðinni um són. Öryggi mun þó aukast til muna næsta haust þegar kemst á staf- rænt örbylgjusamband gegnum fjallastöðvar, óháð ljósleiðaran- um. Einnig var gagnrýnt hversu stutt varaafl fyrir símkerfið dugði. Venjan mun vera að vara- afl sé til eins sólarhrings á hverri símstöð og svo mun hafa verið á Blönduósi. kg Arnarnesshreppsbúar! Þormblót verður haldið í Hlíðarbæ, föstudaginn 1. febrúar kl. 21.00. Brottfluttír hreppsbúar velkomnir. Miðapantanir í símum 25429 Jóhanna og 26134 Bryndís, í síðasta lagi þriðjudaginn 29. janúar. ALMENN INNHEIMTUÞJÓNUSTA Ifantar þig aðstoð við að innheimta reikningana? Láttu okkur heldur hlaupa fyrir þig, í stað þess að þeir hrannist upp hjá þér, við förum á staðinn í stað þess að sitja við símann sem oftar en ekki ber lítinn árangur. Heitum góðum árangri. Upplýsingar í síma 91-680084. SIF, innheimtu- og bókhaldsþjónusta. um að vera áfram félagar í Líf- eyrissjóði starfsmanna Akureyr- arbæjar. Jóhanna Júlíusdóttir sagði að þessar viðræður hefðu engan árangur borið og frekari umræður um þetta mál virtust ekki koma til greina af hálfu ráðuneytisins. Hún sagði að full- trúar ráðuneytisins hefðu borið fyrir sig greinar í lögum þar sem segir að allir ríkisstarfsmenn skuli vera í Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins að uppfylltum skilyrðum. Lög um lífeyrissjóði eru í endurskoðun og báru full- trúar ráðuneytisins því við að málið væri á viðkvæmu stigi. Jó- hanna sagði að frá sínum bæjar- dyrum séð væri um algjört vilja- leysi að ræða af hálfu ráðuneytis- ins að liðka til í þessu máli. Tekjur Lífeyrissjóðs starfs- manna Akureyrarbæjar af lífeyr- isgreiðslum vegna starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri nema á bilinu 25 til 30 millj- ónum króna á ári. Er þar um 42% af heildartekjum sjóðsins að ræða og augljóst að hann stendur veikur eftir þegar starfsmenn Fjórðungssjúkrahússins færast yfir í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Lífeyrissjóður starfs- manna Akureyrarbæjar er starf- ræktur hér í bæ en við þessa breytingu flyst hátt í helmingur al starfsemi hans til Reykjavíkur.ÞI MYNDLISTASKOLINN Á AKUREYRl Kaupvangsstræti 16 Almenn námskeið 1. febrúar til 15. maí. Barna- og unglinganámskeið. Teiknun og málun. 1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku. 2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku. 3. fl. 6-8 ára. Tvisvar í viku. 4. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku. 5. fl. 9-10 ára. Einu sinni í viku. 6. fl. 11-12 ára. Einu sinni í viku. Málun og litameðferð fyrir unglinga. Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku. Frainhaldsnámskeið. Einu sinni í viku. Kvöldnámskeið fyrir fullorðna. Teiknun. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Módelteiknun. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Málun og litameðferð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Auglýsingagerð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Byggingalist. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Grafík. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Skrift og leturgerð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958. Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga. Skólastjóri. 0g Trylltar Glettin skemmtunum saklausan sveitapik sem lendir 1 úinum ýmsu ævintýrum Þeqar I stórborgina er komió- Borðapantamr °^^a ll'llfTO og 96-22970. Hópafsláttur. lAnasdÓttir, Ku

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.