Dagur - 22.01.1991, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. janúar 1991 - DAGUR - 11
Jólakrossgáta Dags:
Tæplega 270 lausnir bárust
Á föstudaginn var dregið úr
innsendum lausnum á jóla-
krossgátu Dags, en skilafrestur
rann út 16. janúar síðastliðinn.
Upp kom nafn Sveinfríðar Jó-
hannsdóttur, Barká, Skriðu-
hreppi, og hlýtur hún vöruút-
tekt að eigin vali að upphæð
krónur 12 þúsund.
Margir spreyttu sig á krossgát-
unni að þessu sinni og alls bárust
269 lausnir. Öruggt má telja að
enn fleiri hafi ráðið gátuna en
ekki haft fyrir því að senda inn
lausn. Vinningshafinn, Sveinfríð-
ur Jóhannsdóttir, sagðist til dæm-
is oft áður hafa ráðið krossgátur
blaðsins en sjaldnast haft fyrir
því að senda inn lausnina. Hún
sagðist hins vegar sjá það nú að
sú fyrirhöfn gæti vel borgað sig!
Lausn gátunnar var fólgin í
vísu og hljóðar hún svo:
Mín æskusveit í eyði stendur
sem áður fæddi hundrað manns.
Fánýti eru frjóar lendur
furðuveröld nútímans.
Það er fróðlegt að skoða hvað-
an af landinu lausnir bárust.
Langflestar komu frá lesendum á
Norðurlandi eystra eða 197
talsins, 37 lausnir bárust af
Norðurlandi vestra og 35 frá öðr-
um stöðum af landinu.
Nanna Bjarnadóttir, starfsmaður auglýsingadeildar Dags, dregur nafn vinn-
ingshafans úr hinum væna bunka innsendra lausna. Mynd: Goiii
Vélsleðamarkaður!
Mesta úrval landsins af notuðum
vélsleðum.
á Góðir greiðsluskilmálar.
★ Gerið tilboð!
Höldursf.
Bílasala. Sími 24119.
Sölumenn: Hjörleifur og Björn.
Nánari skipting var sem hér
segir: Akureyri 106; Reykjavík
18; sveitir Eyjafjarðar 17; Húsa-
vík 13; Mývatnssveit 12; sveitir
Suður-Þingeyjarsýslu 11; Sauðár-
krókur 9; Dalvík 8; Ólafsfjörður
7; sveitir Skagafjarðar 7; Siglu-
fjörður 6; Kópasker 6; Blönduós
5; Laugar 4; sveitir Norður-Ping-
eyjarsýslu 4; Grenivík 4; Hvamms-
tangi 3; Raufarhöfn 3; Varmahlíð
3 og Vopnafjörður 3. Auk þess
bárust 1-2 lausnir frá hverjum
eftirtaldra staða: Akranesi, Bol-
ungarvík, Garðabæ, Grímsey,
Egilsstöðum, Fljótum, Hafnar-
firði, ísafirði, Kópavogi, Mos-
fellsbæ, Neskaupstað, Patreks-
firði, Selfossi, Seltjarnarnesi,
Seyðisfirði, Skagaströnd, Stykk-
ishólmi, sveitum Húnavatnssýslna
og Tálknafirði.
Blaðið fékk margar ágætar
kveðjur með lausnunum, meðal
annars þessa frá Unu S. Ás-
mundsdóttur á Siglufirði:
Engum þykir að því kvöl
að aftur hækki sólin.
Ég þakka þessa dægradvöl
að dunda við um jólin.
Við þökkum Unu kærlega fyrir
skemmtilega kveðju svo og öðr-
um lesendum fyrir þátttökuna.
Að lokum er ekki úr vegi aö
minna á að frestur til að senda
inn lausnir á áramótamyndagátu
Dags rennur út í lok þessa mán-
aðar.
Tölvunám
í skrlfstofiitækni er
áliersla lögð á tölvunám.
huxritwi stendur yBr.
Tökufræðslan Akureyri h£
Glerárgötu 34, IV. hœð,
600 Akureyri, súnl 27899.
Þorrablót
Skríbuhrepps
verður að Melum í Hörgárdal, laugardaginn
26. janúar.
Miðapantanir þurfa að hafa borist fyrir 24. janúar í
síma 26761 (Ármann) eða 26795 (Silla).
Borðhald hefst kl. 21.00.
Gamla góöa kerfiö gildir - hafiö meö ykkur matinn.
Boðið verður upp á rútuferð frá Akureyri.
Hljómsveitin BANDAMENN sjá um fjörið að
borðhaldi loknu.
Nefndin.
Vísitala
jöfnunarhlutabréfa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr.
75/1981 um tekju- og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út
vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa á árinu 1991 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar
1979 sé 100.
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1. janúar
1980vísitala 156
1981 vísitala 247
1982 vísitala 351
1983vísitala 557
1984vísitala 953
1985 vísitala 1.109
1986 vísitala 1.527
1987 vísitala 1.761
1988 vísitala 2.192
1989 vísitala 2.629
1990 vísitala 3.277
1991 vísitala 3.586
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu
frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hluta-
félags eða innborgunar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar
skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunar-
hlutabréfa er ákveðin.
Reykjavík, 2. janúar 1991
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
HVÍTA HÚSID / SÍA