Dagur - 28.03.1991, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 28. mars 1991
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Tölur um hásetaMut
í fyrra trúnaðarmál
SI. þriðjudag tók Ingólfur Ármannsson, menningarfulltrúi Akureyrarbæjar, við undirskriftalistum frá áhugahópi
um vöxt og viðgang Amtsbókasafnsins. Gísli Jónsson, Jón Hjaltason og Sigurður Davíðsson komu skilaboðum
hópsins á framfæri, en þar er skorað á bæjarstjórn að standa nú þegar við samþykkt sína um að reisa nýbyggingu
VÍð bÓkasafnshÚSÍð. Mynd: Golli
Sjómannafélag Eyjafjarðar:
„Leiðrétting verður að nást“
- segir Konráð Alfreðsson
Tölur um hásetahlut á ísfisk-
togurum Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. sem birtust í 11.
tölublaði Fiskifrétta hafa vakið
mikla athygli, en nú er komið í
Ijós að tölurnar eru allar
rangar. Munurinn er mismikill
eftir skipum, en grófasta dæm-
ið er um hásetahlutinn á Harð-
bak EA í fyrra, þar sem munar
um sjö hundruð þúsund krón-
um á tölum Fiskifrétta og upp-
lýsingum útgeröarinnar.
Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bands íslands, reiknaði út há-
setahlut á ísfisktogurum í fyrra.
Meginheimild hans var hin árlega
togaraskýrsla L.Í.Ú. um afla-
brögð og aflaverðmæti togar-
anna. Við útreikning var gert ráð
fyrir 18 manna áhöfn á stóru
togurunum en 15 manna áhöfn á
þeim minni. Við útreikningana
var ekki tekið tillit til orlofs, sem
er 10,17%, eða fatapeninga
sjómanna. Bátakjarasamning-
arnir voru notaðir yfir alla línuna
við útreikninginn, en ekki stóru-
togarasamningarnir svonefndu.
Þessi reikningsaðferð skýrir að
hluta að Fiskifréttir birtu ekki
Ólöglegar laxveiðar í sjó:
Pólverjar
standa við
gefin loforð
Pólsk yfirvöld hafa nú staðið
við loforð sitt um að binda
endi á ólöglegar veiðar og
landanir á ólöglega veiddum
laxi og koma þannig í veg fyrir
misnotkun á pólska þjóðfánan-
um, eins og segir í frétt frá
samtökum um kaup úthafslax-
veiðikvóta. Eins og eflaust
flesta rekhr minni til var mikil
umræða um ólöglegar laxveið-
ar pólskra báta austur af land-
inu í fyrra og í framhaldi af því
lofuðu stjórnvöld í Póllandi að
stöðva allar slíkar veiðar.
í Póllandi hafa nú verið gerðar
ráðstafanir í stjórnkerfinu og
pólska siglingamálastofnunin hef-
ur fengið það verkefni að sjá um
framkvæmd þessara ráðstafana
og að viðeigandi aðilum verði
gert aðvart um þessa ákvörðun.
Staðfesting hefur fengist á þessu
hjá pólska sendiráðinu í Reykja-
vík.
Undanfarna mánuði hefur ver-
ið fylgst með nokkrum dönskum
bátum sem hafa haft tilburði til
að stunda ólöglegar laxveiðar
áfram. Meðal annars hefur Land-
helgisgæslan flogið yfir alþjóða-
svæðið milli íslands og Noregs
svo og flugvél frá norska
hernum. Aðeins einu sinni hefur
verið vart við grunsamlegar
ferðir.
Stjórn Panama setti 23. janúar
reglugerð sem bannar bátum
skrásettum í Panama að stunda
þessar veiðar og því hafa nokkrir
dönsku sjóræningjabátanna
undanfarnar vikur reynt að milli-
færa skráningu frá Panama til
Póllands en koma nú að lokuðum
dyrum.
„Vonast er til að þessar
aðgerðir boði nú endalok á ólög-
legum laxveiðum í hafinu austur
af íslandi,“ segir í frétt samtaka
um kaup úthafsveiðikvóta. JÓH
réttar tölur um hásetahlut á þess-
um skipum, en þó er munurinn
svo mikill varðandi hásetahlut á
Harðbak EA að annarra skýringa
er þörf. ,
Svonefnt heimalöndunarálag
var reiknað inn í skiptaverð á
Ú.A. togurum, og liggur villan
því ekki þar. Samkvæmt tölum
Hólmgeirs var hásetahlutur á
Harðbak EA 1.550.900 krónur í
fyrra, en rétta talan er mun
hærri, þannig að ekki er fjarri
lagi að hásetahluturinn hafi verið
um 2,2 milljónir króna.
Degi tókst ekki að afla
nákvæmra upplýsinga um háseta-
hlutinn á ÚA togurunum, hann
virðist vera trúnaðarmál frá
hendi félagsins, og ekki tókst
heldur að fá þessar upplýsingar
hjá Sjómannafélagi Eyjafjarðar.
EHB
„Mikið er rætt og ritað um við-
skiptakjarabatann, að afurð-
irnar hafi hækkað um 30% á
síðasta ári og að sjómenn njóti
góðs af. Þetta er ekki rétt hvað
varðar sjómenn á frystitogur-
um Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf. Við stöndum í kjara-
baráttu og togarar eru bundnir
við bryggju og aðrir hætta
veiðum eftir páska. Sjómenn
hjá ÚA hafa sagt upp störfum
því sannleikurinn er sá að þeir
Hugmyndir eru uppi í íþrótta-1
ráði Sauðárkróks að skipta um
yfirborð á malarvellinum við
íþróttahúsið. Ástand vallarins
er óviðunandi á sumrin og hafa
forráðamenn íþróttamála
áhuga á að ástand vallarins
verði bætt. Einnig er verulegur
áhugi á byggingu gervigrasvall-
ar.
Sem lausn til bráðabirgða er
rætt um að grafa skurð sunnan
íþróttahús KA:
Fyrsta
skóflustunga
á laugardag
Fyrsta skóflustunga verður tekin
að nýju íþróttahúsi á félagssvæði
Knattspyrnufélags Akureyrar
næstkomandi laugardag kl. 14.
Rammasamningur milli Akureyr-
arbæjar og KA hefur verið undir-
ritaður og samið við verktaka um
bygginguna og geta framkvæmdir
því hafist af krafti. Áætlað er að
þetta 2500 fermetra hús rísi á
aðeins sex mánuðum.
Eins og áður segir verður
skóflustungan tekin kl. 14 á laug-
ardag og verður félagsmönnum
og velunnurum félagsins boðið
að þiggja kaffiveitingar að
athöfninni lokinni. JÓH
hafa lækkað í launum. í októ-
ber síðastliðnum lækkuðu
launin um 8,65% á einu bretti
vegna olíuverðs. Unnið er að
málum og fulltrúar sjómanna
og Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf. sitja á fundum. Hvað
kemur út úr þeim viðræðum er
ckkert hægt að segja um, en
málið er á mjög viðkvæmu
stigi,“ sagði Konráð Alfreðs-
son hjá Sjómannafélagi Eyja-
fjarðar.
við völlinn. Mikill vatnsgangur á
vellinum sunnanverðum hefur
verið vandamál sem ríður á að
leysa. Mikið er fokið af þeirri
möl sem er á vellinum og er því
völlurinn of grófur og harður.
Bæjarstjórn hefur verið falið að
ræða samstarf við sveitarfélög í
Skagafirði um byggingu gervi-
grasvallar.
Nýr grasvöllur var plægður á
síðasta ári á Nöfum og er vonast
til að hægt verði að taka hann í
gagnið eftir tvö ár. Einnig er í
athugun kaup á svæði undir nýj-
an völl á Nöfum og með tilkomu
þessara tveggja valla mundi æf-
ingaaðstaða knattspyrnufélag-
anna batna til muna.
Einn grasvöllur til viðbótar á
Nöfum verður stækkaður og
sléttaður og en sá völlur hefur
verið notaður til keppni og æf-
inga hjá „Old boys“. kg |
Konráð sagði ennfremur að
krafa landverkafólks og ummæli
Sævars Frímannssonar, formanns
Verkalýðsfélagsins Einingar, í
blöðum og útvarpi hafi komið á
mjög óheppilegum tíma, að í
raun sé um algjöra skemmdar-
verkastarfsemi að ræða.
„Vissulega er landverkafólk
ekki öfundsvert af sínum launum
og þar þarf að vinna að málum.
Að setja launakröfur fram til
handa verkafólki í samhengi við
launabaráttu sjómanna er á eng-
an hátt eðlilegt, því starfsvett-
vangur þessara starfsmanna
Útgerðarfélagsins er það ólíkur.
Leitt er til þess að vita að stétt
getur ekki unnið með stétt og til
árekstra þurfi að koma.
Sjómenn hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa hf. standa þétt
saman. Leiðrétting verður að
nást, þannig að sjómenn af
Eyjafjarðarsvæðinu njóti sömu
kjara og aðrir togarasjómenn á
landinu," sagði Konráð Alfreðs-
son. ój
Akureyri:
Innbrotsþjófarnir
lausir úr haldi
Piltarnir tveir sem úrskuröaðir
voru í gæsluvarðhald upp úr
miðjum mars vegna innbrota á
Akureyri, Dalvík og í Reykja-
vík, voru látnir lausir sl.
þriðjudag.
Að sögn Daníels Snorrasonar,
rannsóknarlögreglumanns á
Akureyri, er rannsókn málsins
nú að fullu lokið og það mun síð-
an hafa sinn eðlilega framgang í
dómskerfinu. óþh
Ólafsfjörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að taka tilboði frá Prentþjón-
ustunni hf. í vinnslu þriðja
bindis af sögu Ólafsfjarðar.
Heildarverð á 1.000 eintök er
kr. 1.341.946.-.
■ Á fundi bæjarráðs nýlega,
gerði Sigurður Björnsson
grein fyrir viðræðum sem
hann, Óskar Pór Sigurbjörns-
son og Svavar B. Magnússon
áttu við Jón Hjaltalín Magnús-
son formann HSÍ, vegna
heimsmeistaramóts í hand-
knattleik árið 1995 og mögu-
leika á nýtingu íþróttahúss í
Ólafsfirði í tengslum við þá
keppni.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá forseta íslands, þar sem
bæjarstjórn og Óíafsfirðingum
öllum eru færðar þakkir fyrir
gestrisni og góðar stundir 1.
mars sl. Jafnframt færir
bæjarráð öllum þeim sem
unnu að því að gera þennan
dag eftirminnilegan og vel
heppnaðan bestu þakkir.
■ Félagsmálaráð ræddi um
sumarlokum á Leikhólum á
fundi sínúm nýlega. í fram-
haldi af því samþykkti ráðið
að loka í 4 vikur í sumar, frá
og meö 15. júlí og opnað verði
aftur 12. ágúst.
■ Á fundi hafnarstjórnar
nýlega, var lögð fram kostnað-
aráætlun fyrir framkvæmdir á
árinu 1991 og var hún sarn-
þykkt. Heildarkostnaður cr
kr. 11.210.000.-. Rekstraraf-
gangur er um kr. 2.200.000.-,
framlag frá ríki 6.000.000.- og
áætluð lántaka kr. 3.200.000.-.
■ Hafnarstjórn ræddi einnig
ýmis mál tengd höfninni og
þar kom m.a. fram að tré-
bryggja suður úr Norðurgarði
er mun verr farin heldur en
áætlað var á siðasta íundi.
Hafnarstjórn telur að þeir
peningar sem fari í viðgerð séu
blóðpeningar og leggja verði
hefuðáherslu á að áætlun um
stálþil og nýja bryggju verði
hrundið í framkvæmd sem
fyrst. Ef trébryggjan gefur sig
verður austurhöfnin mjög lítið
varin og varasöm.
Akureyri:
Ekið á kyrrstæða bifreið
Ekið var á kyrrstæða bifreið
við verslunarmiðstöðina Kaup-
ang á Akureyri á þriðjudag, og
er skorað á þann sem þessu olli
að gefa sig fram, auk þess sem
lýst er eftir vitnum.
Atvik þetta varð annað hvort
milli kl. 9 og 10 um morguninn,
eða síðdegis um kl. 16. Svört
bifreið af gerðinni Toyota Cor-
olla, árgerð 1986, beyglaðist á
vinstri hlið fyrir aftan dyr, þegar
rauðlitum bíl var ekið á hana.
Rauð málning er í dældinni sem
gefur þessa vísbendingu. Toyot-
an er talsvert skemmd, og er
þetta tilfinnanlegt tjón fyrir eig-
anda Toyota bílsins, ef sá sem
tjóninu olli finnst ekki. EHB
íþróttaráð Sauðárkróks:
Ástand malarvallar í athugun
- hugmyndir um gervigras ræddar