Dagur - 28.03.1991, Side 3
Fimmtudagur 28. mars 1991 - DAGUR - 3
Páskahelgin:
Annir í fólksflutningum í lofti og á landi
Miklar annir eru jafnan við
fólksflutninga innanlands um
páska og hefur að sögn tals-
manna flugfélaganna verið
mikið um bókanir að undan-
förnu. Flugleiðir fljúga þrjár
aukaferðir milli Akureyrar og
Reykjavíkur í dag, skírdag, og
einnig á annan í páskum.
Ekki er flogið innanlands á
vegum flugfélaganna á föstu-
daginn langa og páskadag.
Árskógshreppur:
Höfiiin á Sandinum og endurbætur
á Árskógarskóla stærstu verkefiiin
- umsókn um fyrirgreiðslu til byggingar flögurra kaupleiguíbúða
Hafnarframkvæmdir á Litla-
Árskógssandi og endurbætur á
Árskógarskóla eru tvö stærstu
verkefni Árskógshrepps á
þessu ári samkvæmt sam-
þykktri fjárhagsáætlun.
Sveinn Jónsson, oddviti
Árskógshrepps, segir brýnt að
halda áfram uppbyggingu hafn-
armannvirkja á Litla-Árskógs-
sandi. Nauðsynlegt sé að koma
viðleguplássi sem fyrst í gagnið
og nýta þann grjótgarð sem fyrir
er.
Samkvæmt fyrstu fjárhags-
áætlun hins nýja Öxarfjarðar-
hrcpps verður 20 milljónum
króna varið til framkvæmda í
hreppnum á þessu ári. Ingunn
St. Svavarsdóttir, sveitarstjóri,
segir þetta mikinn viðsnúning
samanborið við fjárhag hins
gamla Presthólahrepps, sem er
annar tveggja hreppa sem voru
íþróffir
Keppni á unglingameistara-
móti Islands á skíðum lauk í
Hlíðarfjalli sl. þriðjudag, með
boðgöngu drengja. Ólafsfirð-
ingar gerðu það gott í loka-
greininni og sigruðu bæði í
flokki drengja 13-14 ára og 15-
16 ára.
í hverri sveit voru þrír göngu-
menn og í yngri sveit Ólafsfirð-
ingana var ein stúlka og stóð hún
drengjunum fyllilega snúning. í
flokki 13-14 ára voru gengnir
3x3,5 km en í flokki 15-16 ára
voru gengnir 3x5 km. f fyrsta
spretti var gengið með hefðbund-
inni aðferð en með frjálsri aðferð
í seinni tveimur sprettunum.
Sigursveit Ólafsfirðinga í
Sveinn segir að ekkert fjár-
magn sé á þessu ári á fjárlögum
ríkisins til hafnarframkvæmda á
Sandinum, en hins vegar er verk-
ið á hafnaáætlun. Árskógs-
hreppur mun á þessu ári kaupa
efni til framkvæmdanna og eru
vonir bundnar við að hægt verði
að setja kraft í þær á árinu 1992.
Á síðasta ári var bróðurpartur
kennslu Árskógarskóla fluttur í
nýuppgert húsnæði á lóð skólans.
Nú er röðin komin að því að gera
upp gamla skólahúsið. Sveinn
segir að áhersla verði lögð á að
sameinaðir í Öxarfjarðar-
hrepp.
Ingunn orðar það svo að þetta
verði „ár þakanna" í Öxarfjarð-
arhreppi. Gert verður við þak
Lundarskóla, heilsugæslustöðv-
arinnar á Kópaskeri, grunnskól-
ans á Kópaskeri og loks þak
Útskála (gamla hús Pósts og
síma), sem hugmyndin er að inn-
mm—
flokki 13-14 ára skipuðu þau
Thelma Matthíasdóttir, Guð-
mundur Rafn Jónsson og Albert
Arason. í sigursveit Ólafsfirðinga
í flokki 15-16 ára voru Kristján
Hauksson, Tryggvi Sigurðsson og
Halldór Óskarsson.
Þrjár sveitir mættu til leiks í
hvorum flokki og þessi: urðu úrslit
Flokkur 13-14 ára:
1. Ólafsfjörður 44:24
2. ísafjörður 45:00
3. Akureyri 46:15
Flokkur 15-16 ára:
1. Ólafsfjörður A 50:48
2. ísafjörður 54:50
3. Ólafsfjörður B 1:04:05
bæta félagsaðstöðu hreppsbúa,
en allar helstu skemmtanir eru
haldnar í Ieikfimisal þess.
Óvíst er hversu mikið verður
byggt í Árskógshreppi í sumar.
Að sögn Sveins er beðið eftir
svari frá Húsnæðisstofnun um
fyrirgreiðslu til byggingar fjög-
urra félagslegra íbúða.
Nýlega afhenti Katla hf. fjórar
almennar kaupleiguíbúðir (80
fermetra raðhúsíbúðir). Tvær
þeirra eru á Litla-Árskógssandi
og tvær á Hauganesi. óþh
rétta fyrir félagslegar íbúðir.
Kelduneshreppur stendur að
rekstri Lundarskóla og heilsu-
gæslustöðvarinnar með Öxar-
fjarðarhreppi og því er viðgerð
þakanna á þeim háð samþykki
hreppsnefndar Kelduneshrepps.
Ingunn segir að margt fleira sé
á framkvæmdaáætlun þessa árs.
Hún nefnir hreinsun Silungavík-
ur. Par ganga þrjú holræsi í sjó
fram en ætlunin er að sameina
þau í eitt og leiða það út í aðal-
ræsi, sem komið er út fyrir stór-
straumsfjöru.
Einnig er á dagskrá margvís-
legar endurbætur og viðhald á
grunnskólanum og leikskólanum.
„Svo er spurningin hvort
hreppurinn kaupir skrifstofu-
húsnæði það sern hann leigir af
þrotabúi KNÞ. Það er vilji fyrir
að athuga hvort af kaupum þess
getur orðið,“ segir Ingunn.
Þá er á dagskrá átak í bruna-
málum í hreppnum og einnig
uppsetning rennu við höfnina til
þess að sjósetja báta. „Jafnframt
höfum við fariö þess á leit við
Vita- og hafnamálastofnun að
fjármunum verði veitt til Leir-
hafnar, þar eru einnig duglegir
sjómenn sem m.a. stunda grá-
sleppuveiðar," segir Ingunn.
Skógræktarátak hófst í fyrra í
nágrenni Kópaskers og Ingunn
segir ætlunina að halda því áfram
í sumar.
„Við erum óskplega ánægð
með að hafa nú möguleika til
þess að snúa við blaðinu. Það
hefur verið allt of mikil stöðnun
hér á undanförnum árum,“ segir
Ingunn. óþh
Sjö ferðir eru áætlaðar milli
Akureyrar og Reykjavíkur á veg-
um Flugleiða í dag, fimmtudag.
Á laugardag fyrir páska eru fjór-
ar ferðir áætlaðar eins og á venju-
legum laugardegi samkvæmt
vetraráætlun. Á mánudag, annan
í páskum, eru sjö ferðir á áætlun
og á þriðjudag eru tvær aukaferð-
ir áætlaðar eða sex flugferðir alls
ntilli þessara staða. Flugfélag
Norðurlands áætlar flug til allra
viðkomustaða á Norður- og
Austurlandi í dag. Á laugardag
er einnig áætlað að fljúga til við-
komustaða félagsins og þá á einn-
ig að fara tvær ferðir til Reykja-
víkur með viðkomu í Ólafsfirði
og á Húsavík. Þá eru áætlaðar
ferðir milli Siglufjarðar og
Reykjavíkur á vegum Arnar-
flugs-Flugtaks kl. 10.30 í dag, á
laugardag og á mánudag.
Norðurleið fer áætlunarferðir frá
Akureyri kl. 10,30 í dag, á laug-
ardag og á mánudag, annan í
páskum, auk þess sem farin verð-
ur aukaferð kl. 17.00 á mánudag.
Hjá Birni Sigurðssyni, sérleyfis-
hafa á Húsavík, fengust þær upp-
lýsingar að á mánudag, annan í
páskum, verði farið frá Húsavík
kl. 15.00 og til baka frá Akureyri
kl. 17.00 og ferðin ntiðuð við að
farþegar að austan geti náð flugi
til Reykjavíkur en farþegar með
Norðurleið til Akureyrar átt þess
kost að ná framhaldsferð til
Húsavíkur. ÞI
Árver hf. á
Árskógssströnd:
Pétur segir
upp störfum
- stjórn fyrirtækisins
skorar á hann að draga
uppsögnina til baka
Pétur Helgason, framkvæmda-
stjóri Árvers hf., hefur sagt
upp störfum. Hann vildi í sam-
tali viö Dag ekki tjá sig um
ástæöu uppsagnarinnar.
Pétur Helgason sagði upp
störfum í desember sl. með sex
mánaða fyrirvara. Stjórn fyrir-
tækisins hefur óskað eftir því að
hann dragi uppsögn sfna til baka
og Degi er kunnugt um að starfs-
fólk þess vill einnig að hann haldi
áfram störfum.
Pétur sagðist á þessu stigi ekki
vilja tjá sig um ástæðu uppsagn-
arinnar. „Ég get ekki gefið út
neina yfirlýsingu nú um hvort ég
hætti. Samkomulag er á milli mín
og stjórnar fyrirtækisins að það
verði afráðið að afloknum aðal-
fundi fyrirtækisins um miðjan
næsta næsta mánuð," sagði
Pétur.
Pétur Helgason hefur verið
framkvæmdastjóri Árvers hf. frá
því í október árið 1987. óþh
Tuttugu milljónum varið til verklegra framkvæmda
í Öxarfjarðarhreppi í ár:
Ár þakanna í Öxarfj arðarhrcppi
- erum ánægð með að geta snúið við blaðinu, segir sveitarstjórinn
Unglingameistaramót íslands:
Ólafsfírðingar sigur-
sælir í boðgönguimi
SkagaQörður:
Tvær nýjar
brýr
í sumar
- ný brú yfir
Jökulsá eystri
Samkvæmt nýrri vegaáætl-
un verða byggðar tvær brýr í
Skagafiröi á þessu ári.
Byggð verður brú yfir Jök-
ulsá eystri í stað þeirrar sem
sligaðist undan snjóþunga
og eyðilagðist síðasta vetur
og hefur sú brú verið lokuð
síðan. Einnig verður byggð
ný brú yfír Hjaltadalsá.
Brúin yfir Jökuslá eystri er í
svokölluðum Eystri-Bug.
Eystri-Bugur er á leiðinni upp
frá Þorljótsstöðum í Vestur-
dal, fram Sprengisandsleið að
Laugarfelli. Að sögn vega-
gerðarmanna veröur ekki
hægt að hefja frantkvæmdir
við brúarsmíðina fyrr en í
haust vegna aurbleytu á há-
lendisvegum. Því mun Sprengi-
sandsleið úr Vesturdal verða
lokuð í sumar og haust.
Brú yfir Vesturós Héraðs-
vatna er einnig á áætlun til
næstu fjögurra ára. Líklega
verða ekki hafnar fram-
kvæmdir við hana fyrr en árið
1994. Á næsta ári verður
byggð ný brú yfir Kolku á
Siglufjarðarleið en til stóð að
hún yrði byggð í sumar. kg
1991
FÖSTUDAGURINN LANGI
29.MARS
JÓNI LAXDAL HALLDÓRSSON
OPNAR
LISTM U NASÝN 1 NGU
Kl_1 6.00 SEM
STENDUR TlL t .APRÍL OG
er opin
FRÁ KL.14.00 Tl L KL.
I s.oo
LAUGARDAGSKVÖLD
30.MARS
KL. 21 .OO LES
GUÐQRANDUR SIGLAUGSSON
ÚR VERKUM SÍNUM.
PÁSKADAGSKVÖLD 3 1 -MARS
TÓNLEIKAR NORÐANPI LTA
KL.21 .OO
Til fermingargjafa Ath! Opið laugard. 30. marskl.10-16
Kaststangir, flugustangir,
kasthjól, fluguhjól,
veiðivesti.