Dagur - 28.03.1991, Síða 13

Dagur - 28.03.1991, Síða 13
efst í hugo i Er málstaður læknarma svona vondur? Rótt einn ganginn er Ólafur Ragnar Gríms- son kominn í hávaða rifrildi í fjölmiðlum, að þessu sinni við læknastéttina. Þótt upphlaup fjármálaráðherrans hafi verið mörg og æði misjöfn að gæðum og málefnadýpt, þá er óg nú á því að í þetta sinn hafi hann talsvert til síns máls. Og það sem meira er: óg held að hann hafi samúð alls þorra almennings (sem á tímum sem þessum gengur undir nafninu kjósendur), en það hefur svo sannarlega ekki alltaf verið raunin. Það hefur það hver eftir öðrum um þessar mundir að ríkisvaldið sölsi undir sig æ meira af tekjum þjóðarinnar og að við þessu verði að spoma. En á hinn bóginn vill enginn sjá á bak þeirri þjónustu sem ríkið veitir þeim. Þetta er sá gordíonshnútur sem fjármálaráð- herrar allra tíma hafa þurft að glíma við. Og í málflutningi Sjálfstæðisflokksins í þessari kosningabaráttu hefur á sérdeilis óábyrgan hátt verið klifað á því að það þurfi að lækka skattana, en engin tilraun gerð til að benda á það sem verður að skera niður í staðinn. En þegar þessi mál eru rædd í alvöru verða margir til þess að benda á heilbrigðis- kerfið sem vænlegasta fórnarlamb niður- skurðarhnífsins. Þar virðast flestirá einu máli um að eigi sér stað bruðl og óráðsía og jafn- vel hrein og klár spilling. í vetur var talsvert rætt um óheyrilegan lyfjakostnað sem þyrfti að skera niður. Og nú hefur Ólafur Ragnar bent á launakostnað læknanna sem dæmi um bruðl í heilbrigðis- kerfinu. Það hafa verið birtar skýrslur á skýrslur ofan sem sýna að mjög margir læknar hafa það óheyrilega gott, einkum ef þeir eru sór- fræðingar, og að til sóu læknar sem á hverju ári fara með miljónatugi út úr kerfinu. Að vísu er þar um að ræða verktakagreiðslur svo væntanlega geta viðkomandi læknar sýnt fram á töluverðan kostnað á móti. Það mun hafa verið í tíð Matthíasar Bjamasonar vestfjarðagoða sem núverandi sérfræðingakerfi var tekið upp, en hann nam úr gildi þá skyldu að fólk þyrfti fyrst að fá til- vísun frá heimilislækni áður en það leitaði til sórfræðings. Eftir það hefur sórfræðiþjónust- an blásið út og laun amk. sumra lækna fylgt með. Vissulega þykir skattgreiðendunum það undarlegt að þeir þurfi að greiða læknum þessi ótrúlega háu laun. Hugtakið ráðherra- laun hefur oft verið notað um há laun hór á landi en sennilega lenti Ólafur Ragnar heldur neðarlega á launaskala sórfræðinga í lækna- vísindum. Þaö er enginn að segja að læknar eigi að hafa einhver sultarlaun, en fyrr má nú rota... Það sem mór hefur fundist athyglisverðast við þessar deilur um heilbrigðiskerfið (og má svosem bæta tannlæknadeilunni þar við) er að maður heyrir aldrei neitt það frá læknum sem talist geta málefnaleg rök fyrir því að nú- verandi kerfi só það eina rótta. Að ekki só talað um að úr þeim herbúðum heyrist gagn- rýni á það. í yfirstandandi deilu lækna og Olafs Ragnars einskorða þeir sig við yfirlýs- ingar um að ráðherrann fari með fleipur og dylgjur. Þeir bera ekki við að ræða málin á einhverjum vitrænum grunni og láta rök mæta rökum. Þess vegna er samúðin öll með Ólafi. Þröstur Haraldsson SPÓI SPRETTUR SPÓI SPRETTUR Fimmtudagur 28. mars 1991 - DAGUR - 13 Opið f dag frá kl. 10-20 KEA Byggðavegi L - - i i ....^ /--1--------------\ Til sölu sumarhús Mjög vönduð sumarhús. Tilbúin til afhendingar. Stœrð: 37 fm + 10 fm svefnloft. Verð kr. 3.200.000. Nánari uppl. veittar á skrifstofu okkar. -t v - • '• ; _ •' , ■ ■ | + Símar: 26277 byggir hf.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.