Dagur


Dagur - 28.03.1991, Qupperneq 20

Dagur - 28.03.1991, Qupperneq 20
Premíerútsæði flutt inn: Vara mjög við þessu - segir Sveinberg Laxdal Heimilaður hefur verið inn- flutningur á 50 tonnum af útsæði af hollensku tegundinni premíer. Sveinberg Laxdal, formaður Staða jafnréttis- fulltrúa á Akureyri: Verður Valgerður af bæjarráði? Undanfarið hafa farið fram viðræður milli Valgerðar Bjarnadóttur og forsvars- manna Akureyrarbæjar um starf jafnréttis- og fræðslu- fulltrúa. Valgerður var ein þriggja umsækjenda um starfið, en dró umsókn sína til baka fyrr í vetur vegna ágreinings um laun. Formaður Janfréttisnefndar Akureyrar, Hugrún Sig- mundsdóttir, vildi ekki tjá sig neitt um málið þegar blaða- maður Dags hafði samband við hana, en sagði aðeins að þetta myndi skýrast fljótlega eftir páska. Hugrún vildi hvorki játa því né neita að við- ræður stæðu yfir við Valgerði Bjarnadóttur. Enginn fundur hefur verið haldinn í jafnréttisnefnd til að ræða hugsanlega ráðningu Valgerðar eins og staðan er í dag, en sá möguleiki er talinn vera fyrir hendi að bæjarráð ráði Valgerði í starfið, án sam- ráðs við nefndina. Valgerður gerði þá kröfu að fá sömu laun og starfsmaður atvinnumálanefndar, um 160 þúsund krónur á mánuði, fyrir að starfa að jafnréttismálum á vegum bæjarins. Þeirri kröfu var hafnað í bæjarráði. KK Norðurland: Þokkalegt verður yflr páskana Veðurstofa íslands spáir þokkalegu veðri yfir pásk- ana. „Veðrið verður skap- legt, hitastigið rokkandi, vindur yfirleitt lítill, en þó gæti hann æst sig ögn á föstudaginn langa,“ sagði Unnur Ólafsdóttir, veður- fræðingur. Samkvæmt veðurspá Veðurstofu þá vcrða suðvest- an áttir ríkjandi á Norðurlandi í dag. Vægt frost verður og úrkomulítið. Á föstudaginn langa gengur hann í norðvestan átt með éljagangi og á laugardag og páskadag verður vindur af vestri, él við ströndina en all- gott til landsins. ój Félags kartöfluræktenda við Eyjafjörð, segist vera mjög óhress með þennan innflutning. Hann bendir á að menn telji lík- legast að hringrot, sem leikið hef- ur eyfirska kartöfluræktendur grátt að undanförnu, hafi á sín- um tíma borist með premíer. Þá segir hann allar líkur benda til að hringrotstilfelli á Suðurlandi á síðasta vori megi rekja til erlends útsæðis. í ljósi þessa vill Sveinberg beina því til kartöfluræktenda að þeir fari sér hægt í að kaupa premíerútsæði, því með því gætu þeir verið að kaupa köttinn í sekknum. óþh Lítill, minni, minnstur. Mynd: Golli Rækjuvinnslan: Mikilvægt að skuldbreytingin nái einnig tQ banka og lánastofnana - segir Pétur Helgason, framkvæmdastjóri Árvers hf. „Þessu fjármagni verður ein- göngu varið til skuldbrcytingar á lánum rækjuverksmiðjanna. Ahersla verður lögð á að breyta langtímalánum í skammtímalán og þcim þannig gert léttara að komast í gegn- um þessa erfiðleika,“ sagði Pétur Helgason, framkvæmda- stjóri Árvers hf. á Árskógs- strönd og stjórnarmaður í Félagi rækju- og hörpudisk- framleiðenda. Eins og Dagur hefur skýrt frá eru 200 milljónir á lánsfjárlögum til þess að létta rekstrarróður rækjuiðnaðarins í landinu. Byggðastofnun hefur með hönd- Kjörskrár fyrir komandi þingkosningar tilbúnar: Ríflega 25.000 manns á kjörskrá á Norðurlandi Samkvæmt kjörskrárstofni sem nú liggur fyrir hafa um 25.500 manns á Norðurlandi rétt til að kjósa í komandi kosningum til Alþingis. í Norðurlandskjördæmi eystra eru nú 18.434 á kjörskrá, eða 2,9% fleiri en í síðustu þing- kosningum. Á Norðurlandi vestra eru hins vegar 7.160 manns á kjörskrá eða 1,8% færri en í síðustu þingkosning- um. Samkvæmt fyrirliggjandi kjör- skrárstofni nú eru alls um 183 þúsund manns á kjörskrá hér á landi. Fjölgunin frá kosningun- um árið 1987 er um 11.500 manns eða 6,7%. Ekki þarf að koma á óvart að mest hefur fjölgunin orðið í kjördæmunum á suðvest- urhorni landins, þ.e. 12,8% í Reykjaneskjördæmi og 8,9% í Reykjavík. Næst kemur Norður- land eystra með 2,9% fjölgun, þá Suðurland með 2,6% fjölgun og loks Austurland með 1,1% fjölgun. I öðrum kjördæmum eru færri á kjörskrá en var árið 1987. Sé litið á einstök sveitarfélög á Norðurlandi vestra sést að flestir eru á kjörskrá á Sauðárkróki eða 1.731. Mesta fjölgun hefur hins vegar orðið í Seyluhreppi frá síð- ustu kosningum eða 8,7% en næst kemur Sauðárkrókur með 6,7%. Mesta fækkun hefur hins vegar orðið í Hofshreppi eða um 14,2% á kjörtímabilinu. Á Norðurlandi eystra lítur yfir- lit yfir einstök sveitarfélög þannig út að mesta fækkun varð í Öxar- fjarðarhreppi, eða 14,3% en mesta fjölgun á Dalvík og Árskógshreppi, eða um 12,2% og 10,3%. Flestir kjósendur eru þó á Akureyri eða 10.162 og hef- ur þeim fjölgað um 554 frá síð- ustu kosningum til Alþingis. JÓH um að skipta þessu fjármagni á verksmiðjurnar, sem eru á milli 20 og 30 talsins. Pétur segir ljóst að ekki komi stór upphæð í hlut hverrar verksmiðju og því sé mikilvægt að skuldbreytingin verði víðtækari og taki einnig til viðkomandi banka og lánastofn- ana. „Eigið fé rækjuverksmiðjanna eru löngu uppurið og við höfum ekki séð lengi til sólar. Ekki er fjarri lagi að verðfall á rækju frá miðju ári 1990 til dagsins í dag nemi 30 prósentum. Núna binda menn frekast vonir við Banda- ríkjamarkað og um leið að Bret- landsmarkaður verði ekki eins allsráðandi og hann er í dag,“ sagði Pétur. Hann sagðist ekki eiga von á því að skuldbreytingu lána verk- smiðjanna yrði lokið fyrr en í sumar. Við skiptingu 200 milljón- anna mun Byggðastofnun leggja til grundvallar ársreikninga verk- smiðjanna fyrir síðasta ár, en fjöldi þeirra liggur enn ekki fyrir. óþh Álafoss hf.: Greiðslur fyrir ull á leið til bænda Bændur sem lögðu inn ull hjá Álafossi hf. síðasta haust munu fá grciðslur fyrir haust- innleggið á næstunni, en marg- ir voru að verða langeygir eftir greiðslu. Sumir áttu að fá greitt 20. janúar, aðrir 20. febrúar, en vegna tafa á greiðslum frá ríkinu var ekki hægt að gera upp við bændur á réttum tíma. Tveggja mánaða biðtími á að vera frá haustinnleggi ullar þar til að greiðsla berst. Bændur munu að þessu sinni fá greitt fyrir ull samkvæmt gjalddögum frá nóvember til janúar. Eftir páska verður greitt verulega inn á hjá þeim bændum sem áttu að fá greitt samkvæmt gjalddaga 20. febrúar. Umboðsmenn Álafoss um land allt taka við ullinni, og eiga líka að sjá um að greiða bændunum. Nýlega barst niðurstaða ullar- matsins til bænda, og höfðu sum- ir reiknað með peningum fyrir ullina til að greiða virðisauka- skatt 1. mars. í fyrra var gerð kerfisbreyting í ullarmati, og stóð á greiðslum frá ríkinu, því breytingin tók marga mánuði. Bændur sem áttu að fá greitt í janúar fengu þá ekkert fyrr en í apríl. í gær var verið að póstleggja greiðslur fyrir ull frá Álafossi, en þá hafði framlag vegna niðurgreiðslna ríkisins borist fyrirtækinu. EHB Næsta blað kemur út miðviku- daginn 3. apríl. Auglýsendur sem vilja koma auglýsingum í það blað, eru beðnir að skila inn handritum fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 2. apríl.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.