Dagur - 04.07.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 4. júlí 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Andahjón hafa í nokkur vor gert sig hcimakomin við kornvöruskemmu
Kaupfélags Þingeyinga og hafa starfsmenn þar tekið þeim vei og gefið þeim
sitthvað matarkyns. I síðustu viku dreif parið sig inn í skemmuna til að
kanna vetrarforðann, leist þeim hið besta á aðstæður og fengu sér blund á
skemmugólfinu áður en þau flugu heim á andapollinn í skrúðgarðinum.
Mynd: IM
Sólin kallar á svölun:
Bijálað að gera í ísnum
Nýtt rekstrarfélag um Álafoss:
Engin svör frá Landsbankanum
- áhugamenn um rekstrarfélagið bíða í startholunum
„Nei, ég kvarta ekki yfir sól-
inni og þurrkinum enda er
mest að gera í svona veðri,“
sagði Júlíus Fossberg í verslun-
inni Brynju á Akureyri. „Það
er búið að vera brjálað að gera
í ísnum og þetta er alltaf að
aukast.“
Júlíus sagði að Brynju-ísinn
hefði selst grimmt um helgina.
Stöðugur straumur fólks hefði
verið inn í verslunina og varla
neitt annað komist að en ís.
Hann kvaðst ekki hafa neinar töl-
ur um hvort þetta hefði verið
methelgi í ísnum, salan hefði ver-
ið mjög góð frá því í vor og hún
væri alltaf að aukast.
Óvéfengjanleg tengsl virðast
vera milli góðviðris og ísneyslu.
Eftir því sem hitinn hækkar eykst
neyslan. í ísbúðinni var líka
brjálað að gera um helgina og var
ísinn vinsælasta neysluvaran.
Starfsstúlka í ísbúðinni sagði að
um leið og sólin færi að skína
fylltist búðin af fólki í íshug-
leiðingum en á dimmum dögum
væri oft lítið að gera.
Eftir því sem við komumst
næst hefur einnig verið drjúg
íssala í nestunum og þá er vinsælt
að skreppa fram í Vín um helgar
og fá sér ís. Greinilegt er að lífið
er ís á íslandi, a.m.k. meðan sól-
in skín. SS
Gott útlit er fyrir að stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins fái
heimild til að nýta 300 milljóna
króna lánsfjárhcimild, sem
fékkst á fjárlögum á Alþingi.
Með því móti yrði hægt að
skuldbreyta 7,5 milljóna doll-
ara láni sem fyrirtækið tók í
gegnum Landsbanka Islands.
Þessar aðgerðir munu duga til
að koma SR út úr erfiðleikun-
um fram á næstu loðnuvertíð.
Þorsteinn Gíslason, stjórnar-
Áhugamenn um stofnun
rekstrarfélags á rústum Ála-
foss hf. bíða svara frá Lands-
banka íslands um næsta skref í
málinu. Starfsmenn Álafoss og
bæjarstjórnir Akureyrar og
Mosfellsbæjar þurfa að fá
ákveðin svör frá bankanum
áður en unnt er að stofna nýtt
félag um reksturinn.
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi
forstjóri Álafoss hf., hafði sant-
band við Framkvæmdasjóð
íslands á föstudag vegna hugsan-
legrar leigu rekstrarfélagsins á
mannvirkjum Álafoss í Mosfells-
bæ, sem eru í raun eign Fram-
kvæmdasjóðs. Jákvætt var tekið í
þá hugmynd af hendi sjóðsins.
Landsbanki íslands á hins vegar
veð í flestum fasteignum og vél-
um fyrirtækisins á Ákureyri.
Stöðug fundahöld hafa verið í
Landsbankanum undanfarna
daga vegna Álafoss hf. og fleiri
erfiðra mála, því bankinn á
mikilla hagsmuna að gæta.
Landsbankinn á afurðaveð í
framleiðslu fyrirtækisins, en ekk-
ert hefur komið fram um heildar-
upphæð skulda Álafoss hf. við
Landsbankann.
Guðmundur B. Ólafsson, for-
stjóri Framkvæmdasjóðs íslands,
segir að til kasta Landsbankans
formaður SR, segir að stjórnin
hafi átt mjög góðan fund með
bankastjórum Landsbanka
íslands. Bankinn er reiðubúinn
að skuldbreyta lánum eftir að
stjórnvöld hafa staðfest leyfi
stjórnar verksmiðjanna til
erlendrar lántöku.
„Bak við þessar skuldbinding-
ar standa fimm loðnubræðslur,
sem eru um þrír og hálfur millj-
arður króna að brunabótamati.
Skuldbreytingarnar eru til að við
getum haldið haus fram að ára-
hljóti að koma í verulegum mæli
ef af stofnun rekstrarfélags
verður, en staðan sé ljós hvað
Framkvæmdasjóð snertir.
Margir endar virðast ennþá
vera lausir í Álafossmálinu og
ekki er ljóst hvaða stefnu það
Undirbúningur fyrir opinbera
heimsókn forseta Islands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur, til
Skagafjarðar í ágústmánuði er
þegar hafinn af miklum krafti
þó nærri tveir mánuðir séu til
stefnu.
Búið er að skipuleggja dagskrá
hinnar þriggja daga heimsóknar í
grófum dráttum og hefst hún
klukkan 9.00 að morgni föstu-
dagsins 23. ágúst. Þá verður tekið
á móti frú Vigdísi á Alexanders-
flugvelli með viðhöfn og aðeins
áð á Sauðárkróki áður en ekið
verður fram að Árgarði í Lýtings-
staðahreppi þar sem snæddur
verður hádegisverður. Eftir
hádegið verður ekið upp að Arn-
arstapa og skátarnir heimsóttir í
mótum, ef engin loðna kemur
fyrir þann tíma. Hér er um að
ræða ríkisábyrgð á 300 milljóna
króna láni. Við erum ekki, frekar
en fyrri daginn, að biðja um
krónu úr ríkissjóði, sem er jú eig-
andi fyrirtækisins. Við erum ekki
að fara fram á annað en það sem
Alþingi samþykkti,“ segir Þor-
steinn.
„Við höfum farið rétt að öllum
leikreglum. Meðan fyrirtækið
getur sýnt að það eigi 347 millj-
óna króna eigið fé segi ég að það
geti ekki verið gjaldþrota,“ segir
Þorsteinn. EHB
mun taka. Kolbeinn Sigurbjörns-
son, sem á sæti í starfsmannaráði
Álafoss, segir brýnt að unnið sé
af krafti að lausn málsins, en
starfsfólkið leggur mikla áherslu
á að undirbúningi nýs rekstrarfé-
lags sé hraðað sem mest. EHB
hús sitt Brekkusel. Kaffisamsæti í
boði Staðarhrepps, Akrahrepps
og Seyluhrepps verður síðan í
Miðgarði og um kvöldið býður
Sauðárkrókskaupstaður til hátíð-
arkvöldverðar.
Laugardagurinn hefst með
morgunverði í félagsheimili
Fljótamanna og þar næst verður
ekið inn á Hofsós og snæddur
hádegisverður hjá Hofshrepping-
um. Næsti viðkomustaður verða
Hólar í Hjaltadal og þar drukkið
síðdegiskaffi auk þess sem helgi-
stund verður í Hóladómkirkju.
Seinnipart laugardags er stefnt á
að skoða Glaumbæ og byggða-
safnið þar, en um kvöldið verður
hátíðarmóttaka á vegum Héraðs-
nefndar í Miðgarði.
Að morgni sunnudags verður
farið út á Skaga í félagsheimilið
þar og eftir hádegið helgistund í
Sauðárkrókskirkju klukkan
14.00. Kaffisamsæti verður síðan
í íþróttahúsinu á vegum
Skarðshrepps, Rípurhrepps og
Sauðárkrókskaupstaðar. Áætlað
er að heimsókninni Ijúki á milli
sex og sjö að kvöldi sunnudags.
Forsetaritari, Kornelíus Sig-
mundsson, var í Skagafirði fyrri
hluta þessarar viku að skipu-
leggja dagskrána ásamt móttöku-
nefnd þeirra Skagfirðinga, en
hana skipa: Magnús Sigurjóns-
son, Björn Sigurbjörnsson, Hall-
dór Þ. Jónsson og Elín Sigurðar-
dóttir. Að sögn Björns gengur
undirbúningurinn vel, en megin-
tilgangur heimsóknarinnar er að
forsetinn hitti fólkið og fólkið
hana. SBG
Raufarhöfn:
Síldarverksmiðjur ríkisins:
Úrlausn fram til áramóta
Skagaijörður:
Heimsókn forseta íslands
- dagskrá tilbúin í grófum dráttum
Nokkrar umsóknir
Fimm umsóknir hafa borist um
stöðu sveitarstjóra Raufar-
hafnarhrepps, en eins og kunn-
ugt er lætur núverandi sveitar-
stjóri af störfum eftir nokkrar
vikur.
Að sögn Ingibjargar Jónsdótt-
ur, sem sæti á í hreppsnefnd, er
vitað um fleiri umsóknir um
starfið, en þær eru á leiðinni í
Lögregla og slökkvilið Sigluflarðar:
Nýjar bifreiðar
Lögreglan á Siglufirði er þessa
dagana að taka í notkun nýja
lögreglubifreið af gerðinni
Mitsubishi L300 en fyrir voru
Subaru- og Scotchdalebifreið
en nýja bifreiðin leysir þær af
hólmi.
í lok þessa árs eða byrjun þess
næsta mun svo ný sjúkrabifreið
koma til Siglufjarðar en knýjandi
þörf er orðin á því að fá nýja fjór-
hjóladrifna sjúkrabifreið ekki
síður en nýja lögreglubifreið.
GG
Aðalskipulag Kópaskers:
Engar athugasemdir gerðar
Aðalskipulag fyrir Kópasker
hefur legið frammi til kynning-
ar að undanförnu en á
morgun, föstudaginn 5. júlí,
rennur út frestur til að gera
athugasemdir við skipulagið.
Að sögn Ingunnar St. Svavars-
dóttur, sveitarstjóra Öxarfjarðar-
hrepps, höfðu engar athuga-
semdir borist í gær og því útlit
fyrir að skipulagið verði sam-
þykkt í óbreyttri niynd.
Aðalskipulag fyrir Kópasker
nær til ársins 2010. SS
komnar
pósti, að sögn. Ekki hefur verið
boðað til hreppsnefndarfundar til
að ræða umsóknirnar, þar sem
þær eru ekki allar komnar til
skila.
Vangaveltur eru um það á
Raufarhöfn hvort einhverjir
heintamenn hafi sótt um starfið,
en ekki reyndist unnt að fá neinar
upplýsingar um það að svo
stöddu. EHB
Hryssu-
eigendur!
Stóðhesturinn Toppur frá Eyjólfsstöðum kemur í
hólf 27.07 að Hvammi Arnarneshreppi.
Þeir sem vildu koma hryssum til hans vinsamlegast
hafið samband sem fyrst við Friðrik Friðriksson sími
21280 milli kl. 19.00-20.00.
(Björn Ingi Stefánsson sírni 91-671863).
David G. Barnwell golfkennari verður með
ÓKEYPIS GOLFÆFINGAR
á æfingasvæði G.A. að Jaðri alla miðvikudaga í sumar
frá kl. 20-22.
Æfingasvæðið er opið frá kl. 10-22 virka daga. Um helgar frá kl. 8-18.
Hægt er að fá lánaða 40 golfbolta í fötu fyrir kr. 150,-
(þarf ekki að tína saman eftir æfingul).
Áhöld fást lánuð hjá Golfbúð Davids.
David G. Barnwell, golfkennari • Sími 96-24836