Dagur - 04.07.1991, Síða 5

Dagur - 04.07.1991, Síða 5
Fimmtudagur 4. júlí 1991 - DAGUR - 5 Kvikmyndarýni Umsjón: Jón Hjaltason Robin Willianis krýpur við stól sjúklingsins sem Robert De Niro leikur á stórkostlegan hátt. Hrífandi vonleysi Borgarbíó sýnir: Uppvakninga (Awakening). Leikstjóri: Penny Marshall. Aðalhlutverk: Robert De Niro og Robin Williams. Columbia Pictures 1990. Þegar allt er tekið frá manninum og síðan gefið til baka aftur verð- ur honum ljóst að lífið er ekki leit að hamingju eða gleði; leitin lok- ar augum manna fyrir því sem líðandi augnablik hefur upp á að bjóða. Rétt eins og laxveiði- maðurinn sem hræðir í burtu fiskana undir fótum sér sann- færður um að laxinn leynist undir bakkanum á móti önum við áfram í æðisgengnum eltingarleik við hamingju og frama, auð og velgengni án þess að taka eftir hinum raunverulegu gæðum lífs- ins - eða öllu heldur við gefum okkur ekki tíma til að staldra við og leggja rækt við lífið sjálft. Uppvakningarnir er kvikmynd sem bendir á þess staðreynd. Það er sumarið 1969 og læknirinn Malcolm Sayer (Robin Williams) er á hnöttunum eftir starfi. Hann finnur það á langlegudeild sjúkrahúss í New York. Þar kynnist hann næsta einkennileg- um sjúklingum sem allir eiga það sameiginlegt að vera haldnir ein- hverju sem líkist dauðastjarfa. Engu er líkara en að þetta fólk sé gjörsamlega út úr heiminum, dáið enda þótt hjartað haldi áfram að pumpa. Sayer kemst þó fljótlega að því að það er líf með þessum sjúklingum. Þó það sé hvergi sagt með berum orðum þá virtist mér mega draga þá ályktun að mein þeirra væri parkinson- veiki á hæsta stigi. Uppvakningar segir frá undur- samlegri en skamvinnri björgun sjúklinganna. Með hjálp lyfs eru þeir heimtir úr helju. Robert De Niro leikur einn þessara sjúkl- inga, Leonard Lowe, sem veiktist níu ára og hefur í 30 ár ekkert haft af heiminum að segja. Með hreint út sagt frábærum leik kem- ur De Niro til skila gleði Lowe yfir að vakna aftur til lífsins og hræðslu þegar sjúkdómurinn byrjar að vinna aftur á. Uppvakningarnir er kvikmynd sem býður upp á allt sem ein- kenna má góða kvikmynd, leikurinn er frábær, sagan allt í senn hugljúf, áhrifamikil, spenn- andi og vel sögð. Hundaeigendur alhugiðl Sýningarþjálfun (Sýning H.R.F.Í. 21. júlí nk.) Er að byrja með sýningar- þjálfun nk. þriðjudag. Skráningar í síma 96-33168. Súsanna. ^ Blóm og gjafavara () ^ i) í miMu lírvali 0 Úrval afskortanal)lÓma Ú tfarar skreytiiigar kransar-krossar-kistuskreytingar Sjáiun um skreytingar í kirkjn ýg AlfTTD mS Kaupangi • Akureyri aIXVU JLV Símar 24800 og 24830 Samskip bifreióaflutningar Akureyri Daglegar ferðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur ÁÆTLUN BÍLA FRÁ AKUREYRI Mánudagur: Brottför Dalvík .....................................KL. 11.00 Grenivík....................................KL. 11.30 Blönduós, Skagaströnd ......................KL. 14.00 Egilsstaðir, Seyðisfjörður........................KL. 15.00 Þriðjudagur: Dalvík ...................................................KL. 11.00 Grenivík..................................................KL. 11.30 Fosshóll, Laugar, Reykjahlíð .............................KL. 12.00 Þórshöfn, Vopnafjörður....................................KL. 15.00 Miðvikudagur: Dalvík ...................................................KL. 11.00 Húsavík, Ásbyrgi, Kópasker, Raufarhöfn .................. KL. 12.00 Blönduós, Skagaströnd ....................................KL. 14.00 Egilsstaðir, Reyðarfjörður, Eskifjörður, Neskaupsstaður . KL. 15.00 Fimmtudagur: Dalvík ...................................................KL. 11.00 Grenivík..................................................KL. 11.30 Föstudagur: Dalvík ...................................................KL. 11.00 Grenivík..................................................KL. 11.30 Ath. Vörur þurfa að berast á afgreiðslu 1 tíma fyrir brottför. ^SAMSKIP HF ferskt nafn í flutningum Samskip Bifreiðaflutningar Sjávargata Akureyri símar 30302/30435

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.