Dagur - 04.07.1991, Side 12

Dagur - 04.07.1991, Side 12
Akureyri, fimmtudagur 4. júlí 1991 Sauðárkrókur 95-35960 Húsavík 96-41585 Laxveiðimenn geta tekið gleði sína: Framboð á ána- möðkum að aukast - beitan var orðin spægipylsa og tyggjó Laxveiðimenn tóku eflaust gleði sína í gær þegar regn- dropar tóku að berast af himn- um ofan eftir mikla þurrkatíð og sólskin. Mjög lítið framboð hefur verið af ánamaðk undan- farið, sérstaklega fyrir sunnan, og hefur maðkurinn verið að fara á 100 krónur stykkið. Nú er framboðið að aukast og selst stykkið á um 30 krónur. Miklir þurrkar hafa ekki verið aðalástæðan fyrir því að maðkur- inn hefur lítið látið sjá sig heldur er það mikil birta. Þó rigningin bregðist er einfaldlega hægt að vökva garðinn en samkvæmt veðurspám ættu maðkatínslu- menn norðanlands ekki að þurfa þess næstu daga. Lax- og silungsveiðimenn deyja sjaldnast ráðalausir þegar maðkaleysi er annars vegar og þegar verst lét um daginn voru ýmsar tilraunir gerðar. Um tveggja vikna skeið fékkst varla einn ánamaðkur upp úr grasi. Dagur frétti af veiðimanni sem varð uppiskroppa með maðkinn og tók áleggið af brauðinu og Júní á Akureyri: Flestar sól- skinsstundir síðan 1981 Óvenju þurrt og sólríkt var í nýliðnum júnímánuði um allt land og var Akureyri þar engin undantekning. Hitastigið var að meðaltali 8,1 sem er einu stigi undir meðallagi. Úrkoma mældist tæpir 15 millimetrar á Akureyri og er með því mesta á landinu í júní þó úrkoman sé ekki nema helmingur af því sem venja er. Sólskinsstundir í júní á Akur- eyri voru 250 og hafa ekki verið eins margar síðan í júní 1981, þegar þær voru 263. Til að gefa samanburð voru 308 sólskins- stundir á Hveravöllum og hefur ekki verið eins sólríkt í nokkrum mánuði síðan mælingar hófust þar. En þó júnímánuður hafi ver- ið svona sólríkur um land allt þá var hitastigið ekki í samræmi við það. -bjb beitti fyrir silung. Áleggið var spægipylsa sem hann hnoðaði saman og kom þessi beita að góð- um notum, a.m.k. tók silungur- inn hressilega á. „Spægipylsan harðnaði vel á önglinum í vatn- inu og þetta tókst mjög vel,“ sagði heimildarmaður blaðsins. Þá fregnaðist af öðrum veiði- manni sem tók tyggjóið út úr sér og notaði sem beitu en ekki fylgir sögunni hvort fiskurinn tók „gúmíið". Einnig hafa menn beitt maísbaunum og brauði og ýmsu sem til fellur. En með batn- andi tíð fyrir maðkatínslumenn ættu laxveiðimenn að komast hjá fyrrgreindum örþrifaráðum í veiðiskapnum. -bjb „Eg á heima á ís-landi“. Mynd: Golli Varafulltrúar Sjálfstæðisflokksins tóku sæti í bæjarstjórn Ólafsfjarðar í gær: Allir Mtrúar flokksins styðja bæjarstjóra Á fundi í bæjarstjórn Ólafs- fjarðar í gær var þremur aðal- fulltrúum Sjálfstæðisflokksins sem og einum varafulltrúa flokksins, Hauki Sigurðssyni, veitt leyfi frá störfum að bæjarmálum til næstu ára- móta. Varafulltrúarnir Anna María Elíasdóttir, Gunnlaugur Jón Magnússon og Guðrún Jónsdóttir tóku þeirra sæti í bæjarstjórn, nefndum og ráðum. Á fundinum s gær lýstu þau öll, sem og Óskar Þór Sig- urbjörnsson, forseti bæjar- stjórnar, yfir fullum stuðningi við Bjarna Grímsson, bæjar- stjóra, en Óskar, Gunnlaugur Jón og Anna María höfðu á sínum tíma skrifað undir yfir- lýsingu um starfslok bæjar- stjórans sem varð upphafið að þeim deilum sem verið hafa að undanförnu. Bréf þeirra fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins sem nú hafa fengið leyfi frá störfum að bæjarmálum voru lesin upp í byrjun fundar í gær. Þar eru tilgreindar ástæður fyrir óskum um leyfi og fyrst og fremst vísað til anna vegna annarra starfa eða veikinda. Minnihlutinn sat hjá við atkvæðagreiðslu um þessar óskir bæjarfulltrúanna en áður hafði viðaukatillaga minni- hlutans um að þessum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins verði veitt leyfi út kjörtímabilið verið vísað frá. „Við værum ekki hér ef við ætluðum okkur ekki að starfa með bæjarstjóranum og ég lýsi yfir fullu trausti á honum. Við reynum að gera okkar besta í framtíðinni og starfa að því sem upp á kemur. Við tökum ekki þátt í því sem búið er að gerast,“ sagði Anna María Elíasdóttir þegar hún lýsti afstöðu sinni til bæjarstjóra í gær og þessi ummæli kölluðu á lófatak gesta á fundinum. Forseti bæjarstjórnar ítrekaði að varamennirnir tækju sæti í ráðum og nefndum bæjarins í stað aðalfulltrúanna og spurning- um um hvað verði um næstu ára- mót svaraði hann á þann hátt að fyrir þann tíma kunni ýmislegt að gerast sem breyti stöðunni. JÓH Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra: Bygging bóknámshússins hafin - fyrsta skóflustungan tekin í gær Fyrsta skóflustungan aö bók- námshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var tekin í gær og jafnframt undirritaðir samningar við Vestur- og Austur- Húnvetninga um aðild þeirra að skólanum. Einnig var í gær undirritaður samningur við vcrktakann, Byggingafé- lagið Hlyn hf. á Sauðárkróki. Jón F. Hjartarson, skólameist- ari FNVáS, tók skóflustunguna með stungureku þeirri sem búin er að hanga uppi í verknámshúsi skólans til margra ára, en hefur ekki öðlast notagildi fyrr en í gær. Þegar Jón mundaði skófluna sagði hann m.a. að þetta væri til Au^lýsing Svalbarðsstrandarhrepps á lausum kaupleiguíbúðum: , Attum ekki von á þessari eftirspum“ segir Jónas Reynir Helgason, sveitarstjóri ,Ég segi kannski ekki að sím- Jónas segir að heimaaðilar hafi inn hafí verið glóandi en hing- spurst fyrir um íbúðirnar en mest hafi eftirspurnin verið frá Akur- eyri. „Og reyndar hefur fólk úr Reykjavík spurst fyrir þannig að hringt er víða að,“ sagði hann. að hefur töluvert verið hringt og þegar hafa okkur borist þrjár umsóknir og fleiri eru á leiðinni. Þetta eru betri við- brögð en við áttum von á,“ sagði Jónas Reynir Helgason, sveitarstjóri Svalbarðsstrand- arhrepps, um viðbrögð við auglýsingu hreppsins á lausum kaupleiguíbúðum á Svalbarðs- eyri. Jónas segir að þeir sem hringt hafi frá Akureyri sjái fyrst og fremst kosti í staðsetningunni og rólegheitunum. Staðurinn sé hentugur fyrir barnafólk, grunn- skóli til staðar o.s.frv. Um er að ræða 3 kaupleigu- íbúðir sem afhentar verða í árs- lok en ætlunin er að byggja tvær íbúðir til viðbótar og hefja fram- kvæmdir við þær í haust. „Nei, við áttum ekki von á þessari eftirspurn. Að vísu höfð- um við fundið fyrir að fólk spyr mikið hvort hér sé laust húsnæði til staðar og það virðist sem þessi áhugi skili sér í þessu,“ sagði Jónas. JÓH handa æskunni og verðandi skólafólki og að loksins væri þessi stund upp runnin. Eftir að skóflustungan hafði verið tekin fól Jón stórvirkari tækjum áfram- haldið og grafa frá Hlyni hf. tók strax til óspilltra málanna við gröftinn. Áður en skóflustungan var tekin, undirrituðu þeir Olafur B. Óskarsson, formaður héraðs- nefndar V-Hún. og Valgarður Hilmarsson, formaður héraðs- nefndar A-Hún., samning um aðild að byggingu og rekstri skól- ans í komandi framtíð. Valgarð- ur undirritaði samninginn þó með fyrirvara þar sem ekki er búið að samþykkja málið endan- lega í héraðsnefnd Austur-Hún- vetninga. SBG 1400 gistu Ásbyrgi í júní: fslenskum ferðamönnum fjölgaði um helming milli ára Mikil umferð var um þjóð- garðinn í Ásbyrgi um sl. helgi að sögn landvarða, enda veðr- ið sem best var á kosið. Ferða- menn í júní í ár voru helmingi fleiri í Ásbyrgi en í fyrra á sama tíma. í þjóðgarðinum í Ásbyrgi starfa þrír landverðir hvert sumar. I Vesturdal starfa einnig þrír landverðir og svæði þeirra nær allt upp fyrir Dettifoss. Starf- ið er mjög erilsamt og auk þess- ara sex varða starfar einn yfir- landvörður á svæðinu, Fjóla Þór- arinsdóttir frá Vogum. „Við skráum alla, sem á svæð- in koma, eftir þjóðerni. Sam- kvæmt skrá komu í Ásbyrgi 1399 gestir, þar af 1169 íslendingar. Islendingunum hefur fjölgað um góðan helming milli ára sé litið til júnímánaðarins, en útlendingum hefur fækkað nokkuð. Ferða- mennirnir koma gangandi, á reiðhjólum sem mótorhjólum og á öllum tegundum bifreiða, jafn- vel risastórum húsbílum. í dag eru fáir á faraldsfæti í Kelduhverfi og Ásbyrgi. Hér er rigning sem gerir gróðrinum gott. Ekki hefur rignt á þessum slóð- um síðustu þrjár vikurnar og því var tími til kominn að fá smá vætu. Á laugardaginn á að glaðna til og því má búast við fjölmenni í Ásbyrgi og Vesturdal um næstu helgi,“ sagði Þorvarður Árnason, landvörður í Ásbyrgi. ój

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.