Dagur - 13.07.1991, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 13. júlí 1991
"X * - - ■ ■ -V ,»•■
Fréttir
Bifreiðaskoðun Islands:
Lokanir á litlu stöðvunum
eru vegna spamaðar
- segir Karl Ragnars
Gatnagerðarframkvæmdir hafa staðið yfir á Húsavík undanfarnar vikur og nú er búið að leggja malbik á Brúna-
gerði, Stórhól og Baughól. Verið er að malbika við höfnina og þegar myndin er tekin er verið að vinna við Shell-
skálann þar sem malbika á stórt plan. Einnig standa yfir framkvæmdir við aðkeyrslu og bílastæði við sjúkrahúsið
og nýju heilsugæslustöðina Mynd: im
Olympíuleikar í stærðfræði framhaldsskólanema:
Sauðkrækingur og Akureyringur
í íslensku sveitinni
Bifreiðaskoðun íslands hf. er
með skoðunarstöövar vítt og
breitt um landið. Einungis
stöðvar á Akureyri, ísafirði og
í Reykjavík eru þó opnar allt
árið um kring og Dagur hefur
heyrt óánægjuraddir meðal
eigenda ökutækja á lands-
byggðinni vegna lokunar skoð-
unarstöðva eins og á Blönd-
uósi, Húsavík og Sauðárkróki.
Vegna þessa hafi Dagur sam-
band við Karl Ragnars,
framkvæmdastjóra Bifreiða-
skoðunarinnar.
„Pessar lokanir á skoðunar-
stöðvunum eru vegna þess að
Bifreiðaskoðunin er að reyna að
spara. Eftir því sem stöðvarnar
eru minni, þeim mun minni
áherslu höfum við lagt á að koma
ÁTVR:
Bjórsala minnkar
milliára
- sáralítil sala í
alkóhóllausum vínum
Landinn svelgir svipað magn af
áfengi á þessu ári og í fyrra,
miðað við sölutölur Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins fyr-
ir fyrstu sex mánuði ársins.
Raunar er samdráttur miðað
við fyrstu sex mánuðina 1990
um 4,3% í lítrum talið en að-
eins 0,4% ef samdrátturinn er
reiknaður í alkóhóllítrum.
Pegar fyrstu sex mánuðir
áranna 1990 og 1991 er bornir
saman má sjá að sala á bjór hefur
dregist saman um 7,8%, miðað
við magn, og sala á brennivíni
hefur minnkað um tæp 8%. Hins
vegar eru flestar aðrar tegundir
áfengis í sókn. Pannig hefur sala
á rauðvíni aukist um 6,3%, á
hvítvíni um 9,8% og á rósavíni
um 27%.
Sala á sterkum vínum, öðrum
en brennivíni og sjenever, hefur
einnig aukist, eða um 4-6% á
algengustu tegundum.
Til að gefa vísbendingu um
hvaða magn er hér á ferð þá
keyptu landsmenn ríflega 4 millj.
lítra af áfengi fyrstu sex mánuði
ársins og þar af nam sala á bjór
2,8 milljónum lítra.
Vín sem ekki innihalda alkó-
hól eru til sölu hjá ÁTVR en
þau hafa ekki slegið í gegn. Á
umræddu tímabili seldust aðeins
915 flöskur af slíku víni eða 649
lítrar.
Þróunin í tóbakssölunni er
svipuð og undanfarin misseri,
neftóbakið í stöðugri sókn.
Fyrstu sex mánuði ársins jókst
sala á nef- og munntóbaki um
6,8% og sala á vindlingum um
0,7% en reyktóbakssalan minnk-
aði um 9,1% og sala á vindlum
var 0,7% minni en í fyrra. SS
Rokktónleikar
í Dynheimum
Rokktónleikar verða í Dynheim-
um í kvöld kl. 21.30. Það koma
fram hljómsveitirnar Bootlegs frá
Reykjavík og Exit frá Akureyri.
Miðaverði er mjög stillt í hóf,
aðeins 500 krónur. GG
með afleysingamenn í sumarfri'-
um. Þessar minni stöðvar erum
við með opnar um tíu mánuði á
ári og á þeim tíma einungis með
hálfa nýtingu á starfsmanni,"
segir Karl Ragnars.
Karl segir að þeir hjá Bifreiða-
skoðuninni hafi orðið varir við
töluverða óánægju vegna lokan-
anna og svo geti farið að þeir
breyti þjónustu sinni í samræmi
við það, en það gerist þó ekki á
þessu ári.
„Mesta gagnrýnin sem við höf-
um fengið er um að þjónusta
okkar sé dýr. Við getum því varla
leyft okkur að láta þjónustuna
kosta hvað sem er. í framtíðinni
getur þó verið að við förum út í
meiri afleysingar á þessum
stöðum. Það yrði þá jafnvel á
kostnað ferða færanlegu stöðvar-
innar, því að oft þarf að loka
vegna þess að skoðunarmennirn-
ir á litlu stöðvunum fara með
henni um dreifbýlið,“ segir Karl
um lokunarmál skoðunarstöðva.
Útlit er því fyrir að enn um
sinn verði bifreiðaeigendur að
panta sér tíma með góðum fyrir-
vara ef þeir vilja ekki eiga á
hættu að koma að lokuðum
dyrum. Enda hafa menn í raun
og veru níu mánuði til að færa
bifreiðir sínar til skoðunar áður
en skoðunargjald hækkar vegna
seinlætis. SBG
„Sumarið hefur verið ágætt og
það er vel pantað í júlí og fram
í ágúst,“ sagði Erla Sveinsdótt-
ir í samtali við Dag, en hún
rekur ferðaþjónustu í Ytri-Vík
á Árskógsströnd. Nýr sumar-
bústaður var tekinn í notkun í
Ytri-Vík í sumar sem tekur 6
manns og alls er orðið pláss
fyrir 22 gesti. Líkt og síðasta
sumar verður áfram boðið upp
á sjóstangveiðiferðir á Eyja-
firði.
Á fjórað hundrað manns var
samankomið í Húnaveri á
fimmtudeginum er þar hófst
ísiandsmót í hestaíþróttum. Á
fimmta hundrað skráningar eru
í mótið. Mótið er haldið árlega
á mismunandi stöðum víðs veg-
ar um landið. Á fimmtú-
deginum var keppt í hindr-
unarstökki, hlýðnikeppni og í
forkeppni í fimmgangi.
í hlýðnikeppni barna sigraði
Guðmar Þór Pétursson, annar
varð Sigfús B. Sigfússon og þriðji
Sigríður Pétursdóttir. í hlýðni-
keppni unglinga sigraði Theodóra
Mathiesen, í öðru sæti varð Sif
Hauksdóttir og þriðji Gísli Geir
Gylfason. í hlýðnikeppni fullorð-
inna sigraði hinn gamalkunni
knapi Sigurbjörn Bárðarson, ann-
ar varð Hermann Ingason og
Sex unglingar hafa verið valdir
til keppni í alþjóðlegri
olympíukeppni í stærðfræði
sem fram fer í Svíþjóð dagana
17. og 18. júlí nk. Keppnin er
Farið var í fyrstu sjóstangveiði-
ferðina nýlega og var þátttaka
góð. Ferðirnar eru á dagskrá í
júlí á fimmtudags- og laugardags-
kvöldum og ekki lagt upp með
færri en 5 manns. Einnig geta
hópar pantað aukaferðir. Þessar
sjóstangveiðiferðir voru vinsælar
síðasta sumar og sagði Erla að
þær bestu væru þegar miðnætur-
sólin næði að teygja fram anga
sína.
Að sögn Erlu eru komnir all
þriðja Sigrún Viðarsdóttir. í
hindrunarstökki sigraði Sigurður
Matthíassson, annar varð Sigur-
björn Bárðarson og þriðji
Jóhannes Skúlason. Forkeppni
unglinga í fimmgangi hófst á
fimmtudag og þau sem komast í
úrslit eru Þóra Brynjarsdóttir
með 51,60 stig, Sigurður Matthí-
asson með 49,20 stig, Erlendur
Ari Óskarsson með 45,80 stig,
Daníel Jónsson með 45,60 stig og
Sif Hauksdóttir með 30,40 stig. í
forkeppni fullorðinna í fimm-
gangi eru efstirHermann Ingason
með 59,20 stig, Sigurbjörn Bárð-
arson með 58,60 stig, Erling Sig-
urðsson með 57,80 stig og Hinrik
Bragason og Jón Árnason báðir
með 57,00 stig. Einnig fara í úrslit
Trausti Þór Guðmundsson með
56,60 stig, Vignir Siggeirsson með
55,00 stig, Rúna Einarsdóttir með
einstaklingskeppni og glíma
allir við sömu verkefni, þrjú
verkefni á dag í fjóra og hálfan
tíma í senn. Búist er við ríflega
300 keppendum frá 60 löndum
nokkrir fastagestir í Ytri-Vík,
jafnt innlendir sem erlendir
ferðamenn, sem koma ár eftir ár.
„Ég hélt nú að útlendingar kæmu
ekki hingað til landsins nema
einu sinni eða svo en það er
greinilega að breytast," sagði
Erla.
Daglegur rekstur ferðaþjón-
ustunnar í Ytri-Vík í sumar er í
höndum Álfheiðar Ástvaldsdótt-
ur og Höllu Þorvaldsdóttur. -bjb
52,00 stig, Svanberg Þórðarson
með 51,60 stig og Gylfi Gunnars-
son með 51,40 stig. GG
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokks-
ins, mun halda fundi á Húsavík
og Akureyri í næstu viku.
Þingmenn Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandskjördæma
eystra, þau Guðmundur Bjarna-
son, Valgerður Sverrisdóttir og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
en undanfarin tvö ár hafa Kín-
verjar borið sigur úr býtum í
óformlegri landskeppni en þeir
hófu þátttöku í keppninni um
leið og íslendingar árið 1985.
Keppendur verða Ásbjörn
Ólafsson úr Kópavogi frá Versl-
unarskóla íslands, Bjarni V.
Halldórsson frá Garðabæ úr
Menntaskólanum í Reykjavík,
Gestur Guðjónsson Skeiða-
hreppi frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands, Hersir Sigurgeirsson
Vestmannaeyjum úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og
Norðlendingarnir Frosti Péturs-
son Akureyri frá Menntaskólan-
um á Akureyri og Grétar Karls-
son Sauðárkróki frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Aðeins
Frosti Pétursson hefur farið áður
en hann hann tók þátt í olympíu-
keppninni í Kína í fyrra og hlaut
verðlaun.
Keppendur eru valdir á grund-
velli frammistöðu þeirra í Stærð-
fræðikeppni framhaldsskólanema
þar sem um 500 nemar tóku þátt
og í Norðurlandakeppni í stærð-
fræði en Frosti Pétursson lenti
þar í fjórða sæti.
Grétar Karlsson frá Sauðár-
króki sagðist alveg eins hafa átt
von á því að vera valinn til þátt-
töku í keppninni eftir frammi-
stöðuna í vetur og sagðist vera
hóflega bjartsýnn um árangur í
Svíþjóð en reiknaði með að
íslenska sveitin væri svipuð að
getu og sveitir hinna Norður-
landaþjóðanna. GG
verða á ferð um kjördæmið
ásamt Steingrími Hermannssyni,
og verða haldnir tveir fundir með
trúnaðarmönnum Framsóknar-
flokksins. Fyrri fundurinn verður
á Húsavík miðvikudaginn 17. júlí
kl. 20.30, sá seinni á Akureyri
föstudaginn 19. júlí kl. 17.00.
EHB
Ferðaþjónustan í Ytri-Vík:
Sjóstangveiðin byijuð aftur
- nýr sumarbústaður tekinn í notkun
Mörg hundruð mauns á íslandsmóti
í hestaíþróttum í Húnaveri
Framsóknarflokkurinn:
Fundir á Húsavík og Akureyri
- með þingmönnum kjördæmisins
og Steingrími Hermannssyni