Dagur - 13.07.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. júlí 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Bankaeftirlit Seðlabankans fylgist með Landsbankanum
- vegna leigusamnings bankans við þrotabú Álafoss hf.
Bankaeftirlit Seðlabanka
íslands hefur undanfarið skoð-
að þátttöku Landsbanka
íslands í rekstri þrotabús Ala-
foss hf. Strangar skorður eru
settar við beinni aðild við-
skiptabanka að atvinnurekstri,
en grundvallarreglan er sú að
bönkum er óhcinúlt að stunda
atvinnurekstur. Samkvæmt
heimildum Dags hefur Banka-
eftirlitið rætt við Landsbank-
ann um þessi mál og kannað
hvernig að þeim er staðið, en
Þórður Olafsson, forstöðu-
maður Bankaeftirlitsins, vill
hvorki játa því né neita að þeir
hafi áminnt Landsbankann um
að halda sig innan takmarka
bankalaganna eða gert athuga-
semdir við leigu bankans á
þrotabúi Álafoss hf.
Þórður Ólafsson segir að þar
sem Landsbankinn eigi mikilla
Könnun Hagvangs fyrir Bindindisfélag ökumanna:
Þriðji hver ökumaður undir tvítugu
lenti í umferðaróhappi á síðasta ári
- og sjöundi til áttundi hver á þrítugsaldri
Tíundi hver ökumaður lenti í
umferðaróhappi á síðasta ári,
samkvæmt könnun sem Hag-
vangur gerði fyrir Bindindisfé-
lag ökumanna í lok janúar sl.
Svör fengust hjá 1026 körlum
og konum á aldrinum 17 til 89
ára. Yngstu ökumennirnir
lentu mun frekar í óhöppum
en þeir sem eldri eru. Um
þriðji hver ökumaður undir
tvítugu og sjöundi til áttundi
hver á þrítugsaldri lenti í
óhappi á síðasta ári.
Allir þátttakendurnir í
könnuninni voru spurðir hvort og
hve mikið þeir ækju að jafnaði á
ári. Þeir sem sögðust aka eitt-
hvað, voru síðan spurðir hvort
þeir hefðu, sem ökumenn, lent í
umferðaróhappi á síðasta ári.
Um 94% karla á þessum aldri
aka en aðeins 74% kvenna. í
yngstu aldurshópunum er lítill
munur á kynjum en hann eykst
með hækkandi aldri. Þær konur
sem aka á annað borð, eru aðeins
hálfdrættingar á við karla í akstri,
þær aka um 8 þús. km á ári en
karlar um 17 þús. km.
Þrátt fyrir að konur væru mun
minna á ferðinni en karlar, var
báðum kynjum álíka hætt við að
lenda í umferðaróhappi. Þetta
bendir til þess að konur séu ekki
eins öruggar í umferðinni og
karlar. Umferðaróhöpp voru
hlutfallslega fleiri hjá öku-
mönnum í þéttbýli en dreifbýli.
Könnun þessi er sambærileg
við könnun sem gerð var fyrir
tveimur árum en náði þá aðeins
Bjórsalan á Islandi:
Viking brugg á toppnum
- Becks og Löwenbrau vinsælustu tegundirnar
Markaðshlutdeild íslensku
bjórframleiðendanna, Viking
brugg á Akureyri og Ölgerðar
Egils Skallagrímssonar í
Reykjavík, er um 45% ef mið-
að er við sölutölur ÁTVR fyrir
fyrstu sex mánuði þessa árs.
Verksmiðjurnar tvær seldu um
1.300.000 lítra af bjór á þess-
um tímabili en heildarsalan var
nálægt 2.900.000 lítrum.
Viking brugg hf. er stærsti
bjórframleiðandinn á íslenskum
markaði með 973.342 selda lítra
á þessum sex mánuðum en
Ölgerðin hf. seldi samtals
306.677 lítra, sem þó er mikil
aukning því í fréttatilkynningu
frá Ölgerðinni segir að salan hafi
aukist um 33% miðað við sama
tímabil í fyrra.
Ef við lítum á einstakar bjór-
tegundir þá eru Becks (innflutt-
ur) og Löwenbrau (Viking
brugg) áberandi vinsælastar. En
hér kemur vinsældalistinn, unn-
inn upp úr sölutölum ÁTVR fyrir
janúar til júní 1991:
Becks 744.615 lítrar, Löwen-
brau 696.342, Heineken 266.906,
Tuborg 237.036, Egils Gull
167.898, Budweiser 151.520,
Viking (ljós) 124.362, bjór frá
Viking brugg annar en Löwen-
brau og Viking 152.638, bjór frá
Ölgerðinni annar en Egils Gull
138.779 lítrar. SS
Húsavík:
Samvirma um upp-
græðslu og friðun
- með Landgræðslu ríkisins
Samningar eru að takast milli
Landgræðslu ríkisins og Húsa-
víkurbæjar um friðun og upp-
græðslu í landi bæjarins. Mun
þetta vera í fyrsta sinn sem
Landgræðslan gerir slíkan
samning við bæjarfélag.
Sumarið 1989 var land bæjar-
ins girt fjárheldri rafmagnsgirð-
ingu. í uppkasti að samningnum
er gert ráð fyrir að Húsavíkurbær
annist allar lögboðnar smalanir á
landi sínu og sjái um að búfé sem
kann að komast inn á land-
græðslusvæðið verði fjarlægt.
Bærinn getur þó heimilað búfjár-
eigendum að hafa búfé í afgirtum
hólfum innan svæðisins. Húsa-
víkurbær hefur umráðarétt yfir
öllum nytjum af landinu en skal
gæta þess að hafa samráð við
Landgræðsluna um framkvæmdir
sem kunna að rekast á við upp-
græðslu og gróðurvernd. Unnið
verður að uppgræðslu lands inn-
an hins friðaða svæðis í nánu
samstarfi Húsavíkurbæjar og
Landgræðslunnar. IM
til fólks á aldrinum 18 til 67 ára.
Samanburður í þeim aldurshópi
sýnir að heldur hefur dregið úr
óhöppum, 13% lentu þá í óhappi
miðað við 10% nú. Þessar upp-
lýsingar koma fram í tímaritinu
Heilbrigðismál. -KK
hagsmuna að gæta gagnvart
þrotabúinu sé eðlilegt að bankinn
reyni að tryggja kröfur sínar sem
best. Ákveðnar takmarkanir séu
fyrir þátttöku banka og spari-
sjóða í starfsemi af þessu tagi.
„Við munum fyrst og fremst
fylgjast með að allra reglna verði
gætt varðandi þau mál, með það í
huga að hagsmunum bankans
verði sem best borgið. En við
fylgjumst með hvernig bankinn
stendur að því að tryggja sínar
kröfur. Hvort við höfum gert
athugasemdir við leigusamning-
inn eða annað vil ég ekki stað-
festa, en við höfum verið í sam-
bandi við bankann," sagði
Þórður.
Að sögn Þórðar eru til undan-
tekningar frá þátttöku banka í
atvinnurekstri. Þeir mega t.d.
eiga hlut í fyrirtækjum með tak-
markaðri ábyrgð. Eignaraðild i
fyrirtæki sem rekur slíka starf-
semi má ekki vera meir en sem
nemur 20% af eigin fé banka.
Bönkum er óheimilt að eiga hlut
f félögum sem reka aðra starf-
semi en bankastarfsemi, þ.e.
atvinnurekstri eins og hjá Ála-
fossi hf., nema um sé að ræða
almenningshlutafélög, og þá inn-
an mjög þröngra marka. Frá
þessu eru undantekingar í lögum
um viðskiptabanka, þar sem segir
að vipskiptabanka sé heimilt án
takmarkana að yfirtaka eignir til
að tryggja fullnustu kröfu. Eign-
irnar á þá að selja jafn skjótt og
það er talið hagkvæmt að dómi
bankastjórnar. „í þessu öllu er
þó númer eitt að bankar eða spari-
sjóðir séu ekki að taka á sig víð-
tæka rekstrarábyrgð á starfsemi
sem er algjörlega óskyld banka-
starfsemi. Landsbankinn reynir
að sjálfsögðu að tryggja sína
hagsmuni eins vel og hann getur,
en hann á nú þegar fasteignir á
Akureyri sem tengjast þessu.
Bankinn verður að vinna ötullega
að því að reyna að selja eða
afsetja þessar eignir, eins og
aðrar eignir sem yfirteknar eru
vegna uppgjörs á kröfum,“ segir
Þórður Ólafsson. EHB
Fasteignaviðskipti:
Unga fólkið kaupir aðallega
fbúðir í félagslega kerfínu
- útborgunarhlutfall í fasteignaviðskiptum
hefur lækkað í 45-50%
Nokkuð líflegt virðist vera á sem í dag er um 20% hafa að vísu
fasteignamarkaðinum á Akur- haft letjandi áhrif á þessa þróun í
eyri um þessar mundir en fasteignaviðskiptum.
en
eitthvað virðast hlýindin hafa
samt dregið úr en búist er við að
strax og kólni í veðri aukist
umsvifin verulega. Bágborið
atvinnuástand og óvissa margra
launþega um áframhaldandi
atvinnu vegna gjaldþrota fyrir-
tækja virðist ekki hafa nein
teljandi áhrif og jafnvel
aðkomufólk sem hingað er að
sækja í atvinnuleit spyr eftir
húsnæði til kaups.
Framboð og eftirspurn virðist
nokkuð haldast í hendur en helst
er að eignir í millistærð vanti á
fasteignamarkaðinn þ.e. eignir á
verðbilinu 6,5 milljónir til 10
milljónir króna. Hér er um að
ræða raðhús, hæðir í tví- eða þrí-
býlishúsum og gömul einbýlishús.
Nokkuð framboð er af nýrri ein-
býlishúsum og seljast þau nokkuð
jafnt og þétt en sala á þeim stærri
og dýrari en mun hægari.
Það hefur hins vegar vakið
nokkra athygli fasteignasala á síð-
ustu tveimur árum að mjög lítið af
ungu fólki kemur þangað í leit að
húsnæði til kaups. Stærstur hluti
þessa fólks kaupir fasteignir f
gegnum félagslega kerfið með
einum eða öðrum hætti eins og
t.d. verkamannabústaði og kaup-
leiguíbúðir. Það þarf raunar eng-
an að undra þar sem þetta unga
fólk getur fengið 90% af verði
nýrrar íbúðar lánað með 1% vöxt-
um hjá stjórn Verkamanna-
bústaða.
Verðlag á fasteignum hefur
þróast í takt við verðbólgu að
mestu leyti enda fasteignamark-
aðurinn hér ekki á neinni fljúg-
andi ferð. Þegar húsbréfakefið
kom til skjalanna í ársbyrjun 1990
var útborgunarhlutfall fasteigna
um 75-80% en vegna áhrifa hús-
bréfakerfisins er það komið niður
í 45-50%. Afföll af húsbréfum
Það er í raun fáheyrt að ríkis-
tryggð skuldabréf eins og húsbréf-
in eru skuli hafa verið seld með
allt að 22% afföllum á verðbréf-
amarkaðinum en það sýnir okkur
í raun hversu ótryggur þessi
markaður er. Lífeyrissjóðirnir
munu á næstu mánuðum kaupa
húsbréf í auknum mæli þegar
framboð á bréfum í „gamla“
húsnæðiskerfinu minnkar og þá
munu afföllin lækka.
Samkvæmt upplýsingum Fast-
eignamats ríkisins hefur sala á
fasteign'um hér ekki aukist að
neinu marki en hins vegar er tals-
vert leitað eftir upplýsingum um
fasteignir á skrifstofunni. GG
s
1
Körfubolti:
Landsliðið
æfingabúðum
Unglingalandslið íslands í
körfuknattleik karla dvelst um
helgina í æfingabúðum á Sauð-
árkróki og á sunnudaginn Id.
14.00 leika þeir við lið meist-
araflokks Tindastóls.
Tuttugu manna hópur mun æfa
á Króknum frá föstudegi og fram
á sunnudag undir stjórn þjálfar-
ans Torfa Magnússonar. Að
lokinni dvöl í þessum æfingabúð-
um verður síðan valið í þann tólf
manna landsliðshóp sem heldur
til Portúgal í ágúst til að keppa
fyrir hönd íslands á Evrópumóti
unglingalandsliða í körfuknatt-
leik. Þess má geta að í þessum
tuttugu manna hóp eru þrír úr
Tindastól og sagðist Þórarinn
Thorlacius, stjórnarmaður körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls, því
hvetja fólk til að mæta á leikinn á
sunnudaginn. SBG
K.E.1/V
H0BBY
HÁÞRÝSTIDÆLAN
Á auðveldan hátt
þrífur þú:
Bílinn, húsið,
rúðurnar,
veröndina o.fl.
Úrval aukahluta!
w
Rý
Hreinlego ollt til hreinlætis
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2-110 R.vik - Simar: 31956-685554
UMB0ÐSAÐILI:
P. Björgúlfsson hf.
Hafnarstræti 19
Sími: 25411