Dagur - 13.07.1991, Page 13
Ur gömlum degi
Laugardagur 13. júlí 1991 - DAGUR - 13
Hér á eftir birtum við nokkrar
fréttir úr gömlum Degi en för-
um reyndar ekki mjög langt
aftur í tímann að þessu sinni.
AUar fréttirnar birtust í blað-
inu 1970.
Söltuðu um borð og fylltu
Hrísey 15. júní. Hér er „dauði og
djöfuls nauð“ á meðan á verkfall-
inu stendur, og atvinnulíf alveg
dautt. Finnst víst flestum, að nú
sé nóg komið af þeim og of mikið
og mál að linni.
Góðar gæftir hafa verið og því
liggur ljóst fyrir, að töluvert hefði
fiskast ef verkföllin hefðu ekki
komið til. Einn bátur aðeins,
Hafrún, var á veiðum og aflaði
vel, saltaði um borð og kom heim
hlaðinn. Er þess nú beðið að
unnt sé að losa bátinn.
Hér hélt séra Kári Valsson
sóknarprestur sérlega skemmti-
lega ræðu um lífið og tilveruna á
sjómannadaginn og fleira var til
skemmtunar. (17. júní 1970)
Aldrei verra útlit
með heyskap
Ófeigsstöðum 30. júní. Tún eru
svo mikið kalin, að vá sýnist fyrir
dyrum í þessari sveit og hefur
útlit hvað þetta snertir aldrei ver-
ið eins skuggalegt. Ekki er annað
sjáanlegt, en bændur verði að
fækka verulega á fóðrum, nema
kraftaverk komi til. Ég held að
naumast verði borinn ljár í jörð
fyrr en eftir mánuð. Hér eru eng-
ar heyfyrningar frá síðasta vetri,
sem hefðu nú komið sér vel.
Grænfóðurrækt er ofurlítil. (1.
júlí 1970)
Hagfræði minksins
Minkurinn hefur orð á sér fyrir
grimmd og í því efni verður
naumast á hann logið. Ný saga
bendir til, að þessi kvikindi hafi
þó fleiri eiginleika til brunns að
bera, m.a. einhvern vott af hag-
fræði.
í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði,
á bæ, sem heitir Leyningur, er
svolítið hænsnabú, eins og títt er
á sveitabæjum. Hænsnakofinn er
með torfveggjum að gömlum og
góðum sið.
Nýlega bar það við, er hænurn-
ar voru í góðu varpi, að eggin
fóru að ódrýgjast, og að í hreið-
urkassanum fannst eggjaskurn í
stað eggja. Ástæðan til þessa var
sú, er nú skal greina og síðar kom
í ljós:
Minkur hafði gert sér bæli í torf-
vegg hænsnakofans og átti þar
fjögur afkvæmi. Var þaðan greið
leið í hreiðurkassa hænsnanna og
eggin góð minkafæða.
Sú hagfræði minksins að láta
hænur bóndans framleiða handa
sér og sínum hin ljúffengu egg
tók þó enda, því hænsnakjöt er
minkum jafnan mikil freisting.
Og svo fór hér, að sú freisting
varð hagfræðinni yfirsterkari.
Dag einn lágu sjö hænur dauðar í
kofa sínum, bitnar á háls. Það er
merki minksins, og skömmu síð-
ar lauk ævi hans og fjögurra
unga. (5. ágúst 1970)
Fegurðardrottningar
í skemmtiiðnaðinum er kvenleg
fegurð jafnan mikils metin. Hin
síðustu ár hefur farið fram ýmis-
konar samkeppni um titilinn
Þau Magnús Ólafssun, Júlía Gunnlaugsdóttir og Petra Sif Stefánsdóttir
héldu hlutaveltu fyrir skömmu og söfnuðu 1.300 krónum sem eiga að renna
til Barnadeildar FSA. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir. Á myndinni eru
Magnús og Júlía. Mynd; Gt
Viöskiptavinir athugiö
Opnum á mánudag 15. júlí sameinaða
verslun í Skipagötu 1. (Áður japis).
Mikið úrval af fatnaði.
Ath.! Eitt til tvö stk. af hverju.
Mjög góð merki í sumarvörum.
Sjón er sögu ríkari —
N/er/ð velkomin.
Tískuhúsið ESS - Snyrtivöruverslunin Códý
ungfrú þessa staðar eða hins eða
fegurðardrottning.
Um síðustu helgi var Þórunn
Þórðardóttir frá Siglufirði kjörin
ungfrú Eyjafjarðarsýsla og Anna
Guðmundsdóttir frá Kvíslarhóli
á Tjörnesi ungfrú S-Þingeyjar-
sýsla. Ekki tókst blaðinu að fá
myndir af þessum fögru konum.
(19. ágúst 1970)
Álftahjónin
Ein álftahjón verptu í sumar í
nágrenni Akureyrar, og komu
þau upp þremur ungum, augna-
yndi hverjum þeim, er séð hafa.
En fyrir helgina, á föstudags-
kvöld, fóru þrír ungir og drápfús-
ir Akureyringar, - vopnaðir
rifflum, og skutu á þessa fallegu
fjölskyldu út um glugga bifreiðar
sinnar. - Til þeirra sást og var
hinn ljóti leikur stöðvaður. En
tvær áíftir voru í sárum og þurfti
að lóga þeim. Lögreglan á Akur-
eyri greip sökudólgana og með-
gengu tveir þeirra fijótlega, og sá
þriðji með meiri tregðu. Hér
voru ekki svangir menn á ferð, og
eiga sér því fátt til afsökunar í
þeim sökum að fara með skot-
vopn án löglegra leyfa, skjóta
friðaða fugla og fremja þann
verknað í landi annars manns.
Hljóta allir góðir menn að víta
slíkan verknað. (23. september
1970) SS tók saman
Tvær leiðir
eru hentugar tii þess
að verja ungbarn i bíl
Látiö barnið annaöhvort liggja
i bilstól fyrir ungbörn eða
barnavagni sem festur er
meö beltum.
ú
UMFERÐAR
RÁÐ
íbúö óskast!
íbúð óskast til leigu sem fyrst.
Leigutími eitt ár.
Uppl. í síma 91-21660, Ingólfur Eldjárn, tannlæknir.
—
© IÐNÞRÓUNARFÉLAG
J EYJAFJARÐAR HF.
Rekstrarráðgjafi
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. óskar eftir að
ráða rekstrarráðgjafa til starfa hjá félaginu. Stefnt
er aö því aö viðkomandi geti hafiö störf í byrjun sept-
ember n.k., eöa samkvæmt nánara samkomulagi.
Verkefni rekstrarráögjafa felast einkum í leit að nýj-
um framleiðslumöguleikum, mati á hugmyndum,
ásamt með ýmiskonar viðskipta- og tæknilegri ráö-
gjöf viö fyrirtæki á Eyjafjaröarsvæöinu.
I boöi er fjölbreytilegt, en um leiö krefjandi starf.
Leitað er aö duglegum traustum starfsmanni, sem
getur haft frumkvæði á verkefnum og á auðvelt meö
aö umgangast fólk.
Æskilegt er aö rekstrarráögjafinn hafi háskólapróf
eöa sambærilega menntun í greinum ertengjast við-
skiptum og rekstri, svo sem rekstrartæknifræöi, viö-
skiptafræði eða rekstrarhagfræöi. Nauðsynlegt er aö
umsækjandi hafi nokkra reynslu úr viöskiptalífinu.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Magnússon fram-
kvæmdastjóri í síma 96-26200 eöa 96-11363.
Skriflegar upplýsingar er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf sendist Iðnþróunarfélagi Eyjafjaröar
Geislagötu 5, 600 Akureyri, fyrir 17. þ.m.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf.
Opnunartími
í sumar:
manuaaga tn
fimmtudaga kl. 9-20
föstudaga kl. 9-22
laugardaga kl. 9-22
sunnudaga kl. 10-22
KEA
Byggðavegi 98
^IMISSAN
verður í sýningarsal okkar að Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar, Óseyri 5,
laugardaginn 13. júlí og sunnudaginn 14. júlí
frá ki. 14-17 báða dagana.
NISSAN
Sunny Sedan 1600
tískuhúsið
Skipagötu 1.
Sími24396.
Nissan Sunny Sedan 1600, 16
ventlavél, rafmagn í rúðum,
sentral-læsingar, upphituð sæti,
svo eitthvað sé nefnt.
Einnig sýnum við Subaru Legacy og
Justy, ásamt öðrum gerðum af Nissan.
Komið og kynnið ykkur kjör og
ræðið við sölumenn.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Simi 22520 - Akureyri.
Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2.
V.