Dagur - 13.07.1991, Síða 16
16 - DAGUR - Laugardagur 13. júlí 1991
Dagskrá FJÖLMIÐLA
Sjónvarpið
Laugardagur 13. júlí
16.00 íþróttaþátturinn.
16.00 íslenska knattspyrn-
an.
17.00 Meistaragolf.
17.50 Úrslit dagsins.
18.00 Alfreð önd (39).
18.25 Kasper og vinir hans
(12).
18.50 Táknmálsfróttir.
18.55 Úr ríki náttúrunnar (10).
19.25 Háskaslóðir (16).
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Skálkar á skólabekk
(14).
(Parker Lewis Can't Lose.)
21.05 Fólkið í landinu.
Perla í Vesturbænum.
Sigmar B. Hauksson ræðir
við séra Ágúst George
skólastjóra í Landakots-
skóla.
21.30 Kúrekar gráta ekki.
(Cowboys Don’t Cry).
Kanadísk sjónvarpsmynd frá
1990.
Myndin fjallar um feðga sem
eru að reyna að fóta sig í líf-
inu eftir eiginkonu- og móð-
urmissi. Pilturinn erfir
bújörð eftir afa sinn og hefur
búskap en faðir hans leitar
huggunar í faðmi Bakkusar.
Aðalhlutverk: Ron White,
Janet-Laine Green, Zachary
Ansley og Michael Hogan.
23.15 Sonur eigandans.
(The Boss's Son).
Bandarísk bíómynd frá árinu
1978.
í myndinni er sagt frá ung-
um manni sem tekur ófús
við gólfteppaverksmiðju föð-
ur síns. Hann kynnist þel-
dökku verkafólki og kjörum
þess og sér þjóðfélagið í
nýju ljósi á eftir.
Aðalhlutverk: Asher Braun-
er, Rudy Solari, Rita Moreno,
Ritchie Havens og Piper
Laurie.
00.405 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 14. júlí
17.50 Sunnudagshugvekja.
Ragnheiður Davíðsdóttir
blaðamaður flytur.
18.00 Sólargeislar (11).
18.30 Ríki úlfsins (7).
(I vargens rike).
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Snæköngulóin (2).
(Snow Spider).
19.30 Börn og búskapur (9).
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Úr handraðanum.
Meðal efnis í þættinum verð-
ur atriði úr spurningaþættin-
um Myndgátan, þar sem
fulltrúar Morgunblaðsins og
Dagblaðsins kepptu (1978).
Söngflokkurinn Lummurnar
flytur tvö lög (1978), sýnt
verður atriði úr sýningu
íslenska dansflokksins á Les
Sylphides við tónhst Chop-
ins (1977), Ólafur Ragnars-
son ræðir við Jóhann Svarf-
dæling, sem um sína daga
var talinn stærsti maður í
heimi, (1972) og Ragnar
Bjarnason og hljómsveit
flytja tvö lög (1967).
Umsjón: Andrés Indriðason.
21.15 Synir og dætur (6).
(Sons and Daughters).
22.05 Kraftaverk.
(Heavenly Pursuits).
Bresk gamanmynd frá 1985.
Myndin gerist í katólskum
skóla í Glasgow þar sem
hvert kraftaverkið rekur
annað.
Aðalhlutverk: Tom Conti og
Helen Mirren.
23.35 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 15. júlí
17.50 Töfraglugginn (10).
18.20 Sögur frá Narníu (5).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Á mörkunum (2).
19.20 Fírug og feit (2).
19.50 Jóki Björn.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Simpson-fjölskyldan
(26).
(The Simpsons).
21.05 íþróttahornið.
Fjallað um íþróttaviðburði
helgarinnar.
21.30 Nöfnin okkar (10).
Þáttaröð um íslensk manna-
nöfn, merkingu þeirra og
uppruna. í þessum þætti
skoðar umsjónarmaður þátt-
anna, Gísli Jónson, nafnið
Ólafur.
21.35 Melba.
Fjórði þáttur.
Aðalhlutverk: Linda
Cropper, Hugo Weaving og
Peter Carroll.
22.30 Úr viðjum vanans (3).
(Beyond the Groove).
Sir Harold Blandford heldur
áfram ferð sinni um Banda-
ríkin og heilsar upp á tónlist-
armenn af ýmsum toga.
Aðalhlutverk: David Rappa-
port.
23.00 Ellefufréttir og
dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 13. júlí
09.00 Börn eru besta fólk.
10.30 í sumarbúðum.
10.55 Barnadraumar.
11.05 Ævintýrakastalinn.
11.35 Geimriddarar.
12.00 Á framandi slóðum.
(Rediscovery of the World).
Framandi staðir skoðaðir.
12.50 Á grænni grund.
12.55 Allt í upplausn.
(Dixie Lanes).
Gamansöm og hjartnæm
mynd um náunga sem á sín-
um tíma kaus frekar að fara í
herinn en að afplána fang-
elsisdóm. Þegar hann kemur
heim úr stríðinu árið 1945
ríkir gífurleg sundrung inn-
an fjölskyldunnar og hann
ákveður að hefna sín á þeim
sem fengu hann dæmdan
sekan þrátt fyrir sakleysi
hans.
Aðalhlutverk: Hoyt Axton,
Karen Black og Art Hindle.
14.20 Lagt á brattann.
(You Light Up My Life).
Rómantísk mynd um unga
konu sem er að hefja frama
sinn sem leikkona og söng-
kona. Hún kynnist manni,
Chris, á veitingastað og fer
með honum heim en þegar
hann vill fá að sjá hana aftur
lætur hún hann vita að hún
sé að fara að gifta sig öðrum
manni. Stuttu síðar, þegar
hún tekur þátt í nýjum söng-
leik, sér hún sér til mikillar
furðu að leikstjórinn er Cris
og hann vill ennþá fá að
kynnast henni betur.
Aðalhlutverk: Didi Conn,
Joe Silver, Stephen Nathan
og Michael Zaslow.
15.50 Inn við beinið.
Endurtekinn þáttur þar sem
Edda Andrésdóttir ræddi við
Þorstein Pálsson, fyrrum
formann Sjálfstæðisflokks-
ins.
17.00 Falcon Crest.
18.00 Heyrðu!
18.30 Bílasport.
19.19 19:19.
20.00 Morðgáta.
20.50 Fyndnar fjölskyldu-
myndir.
21.20 Anna.#
Anna er tékknesk kvik-
myndastjama sem er dáð í
heimalandinu og býðst
hvert verkefnið á fætur öðm.
Maðurinn hennar er leik-
stjóri og framtíðin brosir við
þeim. Eiginmaður Önnu
heldur til Bandaríkjanna á
kvikmyndahátíð. í fjarveru
hans ráðast Sovétmenn inn í
Tékkóslóvakíu og hertaka
landið. Anna lýsir vanþókn-
un sinni á hertöku Sovét-
manna og er hún gerð útlæg.
Anna heldur til Bandaríkj-
anna til eiginmanns síns
sem þegar við komu hennar
vill fá skilnað. Anna stendur
eftir uppi ein og atvinnu-
laus. Það reynist erfitt fyrir
hana að fá vinnu. Dag einn í
leikprufu rekst hún á unga
stúlku sem hún síðan tekur
upp á sína arma. Anna kenn-
ir stúlkunni það sem hún
kann í leiklist. Stúlkan sem
er falleg, fær hvert hlutverk-
ið á fætur öðru og gremst
Önnu þetta mjög þar sem
hún á sjálf erfitt með að fá
vinnu sem leikkona.
Aðalhlutverk: Sally Kirkland
og Paulina Porizkova.
22.55 Gleymdar hetjur.#
(The Forgotten).
Sex sérsveitarmenn úr
bandaríska hernum snúa
heim eftir að hafa verið í
haldi í Víetnam í 17 ár. Þeir
búast við að þeim verði tek-
ið sem hetjum, en annað
kemur í ljós.
Aðalhlutverk: Keith Carra-
dine, Steve Railsback, Stac-
ey Keach, Don Opper, Ric-
hard Lawson, Pepe Serna,
Bruce Boa og Bill Lucking.
Bönnuð börnum.
00.30 Togstreita.#
(Blood Relations).
Dr. Andreas er haldinn
mörgum ástríðum. Hann
gerir tilraunir í taugaupp-
skurði af sama eldmóði og
hann dansar framandi tangó
við fallega konu. Hann rækt-
ar tónlistarhæfileika sína af
sama brennandi áhuga og
hann sinnir fornmunum
sínum. Hann nýtur hvers
augnabliks af sínu ágæta lífi.
Thomas, sonur hans, virðist
alger andstæða hans. Hann
er dulur og bitur í garð föður
síns vegna dauða ástkærrar
móður sinnar, sem lést af
slysförum. Thomas er í sí-
felldri samkeppni við föður
sinn. Hann flækir unnustu
sína, Marie, í undarlegt sál-
fræðilegt hugarvíl í tilraun-
um sínum til að klekkja á
föðumum.
Aðalhlutverk: Jan Rubes,
Lydie Denier, Kevin Hicks og
Lynne Adams.
Stranglega bönnuð
börnum.
02.00 Milljóna virði.
(Pour Cent Millions).
Hörkuspennandi frönsk
sakamálamynd.
Bönnuð börnum.
03.35 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 14. júlí
09.00 Morgunperlur.
09.45 Pétur Pan.
10.10 Skjaldbökurnar.
10.35 Kaldir krakkar.
11.00 Maggý.
11.25 Allir sem einn.
(All For One).
Leikinn framhaldsþáttur um
krakka sem stofna sitt eigið
fótboltalið. Fjórði þáttur af
átta.
12.00 Heyrðu!
Endurtekinn þáttur frá í gær.
12.30 Tvíburar.
(Twins).
Frábær gamanmynd fyrir
alla fjölskylduna. Þeir Danny
DeVito og Arnold
Schwarzenegger eru her í
hlutverkum tvíbura sem
vom aðskildir stuttu eftir
fæðingu. Nú hafa þeir fundið
hvor annan en gamanið er
rétt að byrja því þeir hyggj-
ast finna móður sína sem
þeir hafa aldrei séð.
Aðalhlutverk: Danny DeVito
og Amold Schwarzenegger.
14.05 Önnur kona.
(Another Woman).
Ein af bestu myndum
Woody Allen, en hér segir
frá konu sem á erfitt með að
tjá tilfinningar sínar þegar
að hún skilur við mann sinn.
Aðalhlutverk: Gena
Rowlands, John Houseman,
Gene Hackman og Sandy
Dennis.
15.40 Leikur á strönd.
(Fun in the Sun).
Fólk tekur upp á furðuleg-
ustu hlutum þegar það nýt-
ur sólarinnar á ströndinni!
16.30 Gillette sportpakkinn.
Fjölbreyttur erlendur
íþróttaþáttur.
17.00 Sjónvarpið og fyrstu
tónlistarmyndböndin.
(Tv’s First Music Videos).
I þessum þætti verður rakin
saga fyrstu tónlistarmynd-
bandanna sem sýnd vom í
bandarísku sjónvarpi á
sjötta áratugnum.
18.00 Horft um öxl.
Athyglisverður þáttur þar
sem leikarinn góðkunni Pet-
er Ustinov tekur sér óvenju-
lega ferð á hendur.
19.19 19:19.
20.00 Bernskubrek.
(Wonder Years.)
20.25 Lagakrókar.
(L.A. Law).
Tóndæmi
Drengirnir í Comet: Theodór Hallsson, Bjarki Jóhannesson, Brynleifur
Hallsson og Óskar Kristjánsson.
Comet og sveitabölhn
Ein af hinum vinsælu hljómsveit-
um sem störfuóu á Akureyri á
bítlatímabilinu var Comet, en
þessi sveit átti mikilli velgengni
aö fagna á árunum 1965-1968.
Meðlimir hennar voru þeir Theo-
dór Hallsson, Bjarki Jóhannes-
son, Óskar Kristjánsson og Bryn-
leifur Hallsson. Þeir eru allir
löngu hættir í hljómsveitarbrans-
anum, nema sá síðastnefndi.
Brynleifur Hallsson er verk-
stjóri í Mjólkursamlagi KEA.
Hann hefur linnulítið spilað fyrir
dansi í aldarfjórðung og við báð-
um hann að segja okkur frá
Comet.
„Hljómsveitin var stofnuð árið
1965 en við vorum þá allir í
Gagnfræðaskóla Akureyrar. Við
spiluðum á þöllum í skólanum og
þvældumst síðar um norðanvert
landið til að spila á sveitaböllum.
Það var mikið að gera enda
sveitaballastemmningin í
algleymingi. Við tókum hús á
leigu og slógum upp balli vfðs
vegar um Norðurland og það var
alltaf fastur kjarni sem fylgdi
okkur, en hljómsveitirnar áttu
flestar dyggan aðdáendahóp,"
sagði Brynleifur.
Comet var mjög vinsæl hljóm-
sveit, eins og reyndar fleiri akur-
eyrskar hljómsveitir á þessum
gullaldarárum. Félagarnir héldu
hópinn til 1967 eða ’68 en þá fóru
menn að huga að framhaldsnámi
og öðrum hlutum.
Brynleifur hefur hins vegar ver-
ið viðloðandi hljómsveitir alveg
síðan á Comet-tímabilinu. Hann
spilaði með hljómsveit Pálma
Stefánssonar frá 1971, síðan
með Ljósbrá, en sú hljómsveit
gaf út litla plötu 1974. Með Bryn-
leifi í þeirri sveit voru fyrrum
Bravó menn, þeir Þorleifur
Jóhannsson og Sævar Bene-
diktsson, svo og Gunnar
Ringsted. Eftir þetta lék Brynleif-
ur með hljómsveit Ingimars
Eydal um tíma, síðan aftur með
Pálma Stefánssyni og frá 1981
hefur hann meira og minna hald-
ið uppi fjöri með Ingimar Eydal
og félögum.
„Það er eitthvað sem togar í
mann, enda er þetta þrælgaman
og gefur manni mikið," sagði
Brynleifur að lokum. SS
Spói sprettur
Hvort viltu hvítt eða svart? "—
rfíi
j
I av ©
Gamla myndin
M3-916 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri.
Hver kannast
við fóMð?
Ef lesendur Dags telja sig
þekkja fólkið á myndinni hér
eru þeir vinsamlegast beðnir
að koma þeim up'plýsingum á
framfæri við Minjasafnið á
Akureyri (pósthólf 341, 602
Akureyri) eða hringja í síma
24162.
Hausateikningin er til að
auðvelda lesendum að merkja
við það fólk sem það ber
kennsl á. Þótt þið kannist
aðeins við örfáa á myndinni
eru allar upplýsingar vel
þegnar. SS