Dagur - 24.07.1991, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 24. júlí 1991
Fréttir
Heyskapur á Norðurlandf
Sigurður Ingimarsson:
Stefnir í mikinn
seinni slátt
„Ég er langt
kominn með
heyskapinn og
þetta hefur
gengið bara
vel í Blöndu-
hlíðinni og al-
mennt í Skaga-
firði. Sumir
eru löngu búnir með fyrri slátt
og stefnir í mikinn seinni
slátt,“ sagði Sigurður Ingi-
marsson á Flugumýri í Skaga-
firði, aðspurður heyskapartíð-
inda.
„Vætukafli fyrir um viku síðan
skemmdi svoiítið fyrir bændum
en annars erum við yfirleitt að
verða búnir með fyrri sláttinn.
Hér í Blönduhlíðinni er enginn
byrjaður á seinni slætti en mér
skilst að þeir séu eitthvað byrjað-
ir í Lýtingsstaðahreppnum. I
heildina séð held ég að menn hafi
almennt fengið gott hey,“ sagði
Sigurður.
Sigurður taldi að heyntagn
verði eitthvað minna núna en síð-
asta sumar vegna ntikilla þurrka.
„Pað rigndi ekkert svo vikum
skipti og spretta var alveg að
stöðvast í hlýindunum. Menn
kunna bara varla við að bölva
þessari veðurblíðu. beir sem
báru nógu snemnta á sluppu
nokkuð vel og náðu grasinu vel af
stað áður en þurrkarnir byrjuðu.
Fyrir fjalllendi eru svona langvar-
andi þurrkar ntjög slæmir og lítið
um sprettu þar,“ sagði Sigurður á
Flugumýri. -bjb
Tryggvi Stefánsson:
Bændur fara
víða of geyst í
„stórrúlluvæðinguna"
„í okkar sveit
horfir þokka-
lega með hey-
skap þrátt fyr-
ir að tún væru
ekki fyllilega
sprottin þegar
góðviðriskafl-
ann gerði í
júní,“ sagði Tryggvi Stefáns-
son, bóndi að Hallgilsstöðum í
Fnjóskadal.
„Bændur að Hallgilsstöðum
hófu slátt í lok þurrkatímans í
júní/júlí. Þar af leiðir að við eig-
um töluvert eftir af fyrri slætti.
Bændur í Fnjóskadal eru í miðj-
um klíðum. Jú, ntargir eru langt
komnir og aðrir skemur eins og
alltaf er. Gras er nægt en þurrk-
inn vantar. Hey er víða flatt. í
Fnjóskadal er hey ekki verkað í
rúllur nema í litlum mæli, við
nýtum gömlu aðferðirnar þ.e. að
binda heyið í bagga eða setja það
laust í hlöður. Ég hef á tilfinning-
unni að bændur á Norðurlandi
fari víða of geyst í „stórrúllu-
væðinguna". Vissulega á þessi
tækni fyllsta rétt á þeim svæðum
þar sent langtíma óþurrkar eru
árvissir og einnig þar sem hlöður
vantar fyrir heyfenginn," sagði
Tryggvi Stefánsson, aðspurður
um heyskaparhorfur í Fnjóska-
dal. ój
Karl S. Björnsson:
Sprettan er með
almesta móti
„Heyskapur
er hér kominn
vel á veg, ég á
eftir lokatörn-
ina. Ég hef þó
grun um að
hér um slóðir
séu nokkrir
sem lítið eru
komnir af stað í heyskapnum,“
segir Karl Sigurður Björnsson,
bóndi í Hafrafellstungu í Öxar-
firði.
„Heyskapur hófst hér 10. júlí
og hefur gengið allvel. Hey hafa
ekki hrakist og því eru þau ntjög
góð. Þá þarf ekki að kvarta und-
an sprettunni, hún er með
almesta móti. Votheysverkun,
eins og hún var hér á árum áður,
er að mestu leyti úr sögunni.
Rúlluheyskapurinn hefur tekið
við af henni. Mér líkar þessi hey-
skapur nokkuð vel, hins vegar er
ég ekki tilbúinn að hætta þurr-
heysverkuninni.
Það er óhætt að segja að þetta
hafi verið gott suntar til heyskap-
ar. Framan af var að vísu þurrt
og nærri lét að sendin tún
skemmdust af þurrki. Úr þessu
rættist og sprettan hefur verið
mjög góð og mér sýnist þctta ætla
að verða gott suntar til heyskap-
ar.“ óþh
Þorgrímur Starri
Björgvinsson:
Tún stóðu fóst
í hitunum
„Þetta hefur verið ansi stirt
upp á síðkastið. Þeir sem
höfðu gras til að slá í miklu hit-
unum og sólskininu í lok júní
komust vel af stað, en hér er
víða liálent og jarðvegur send-
inn og þar stóðu túnin föst í
hitunum og menn biðu bara
eftir sprettu,“ sagði Þorgrímur
Starri Björgvinsson, Garði II í
Mývatnssveit.
„Þessi tún
tóku síðan vel
við sér þegar
fór að rigna en
þá kom aftur á
móti óheppileg
heyskapartíð.
Annars held ég
að staðan sé
mjög misjöfn hér í sveitinni.
Sumir eru komnir eingöngu með
rúllubinditæknina og þeir hafa
rótheyjað þessa daga, en þeir
sem ætla að þurrka bíða eftir
uppstyttu. Almennt tel ég að
heyskapur sé ekki kominn neitt
sérstaklega langt áleiðis en stað-
hættir eru mismunandi og þetta
fer líka eftir tækninni sem er beitt
svo og hvaða liðsafla menn hafa.
Vorið góða hefur því kannski
ekki gefið þau fyrirheit sem
menn ætluðu og raunar há vor-
þurrkarnir þeim sem eru hátt
uppi.“ SS
Kristján E. Hjartarson:
Góði kaflinn
nýttist vel
„Þefta er búið
að vera sér-
legá gott. Vet-
urinu var
mildur og vor-
ið kom
snemma og
allt hjálpaðist
að við að búa
jörðina vel undir sumarið. Síð-
an kom reyndar afturkippur í
júníbyrjun þannig að heyskap-
ur var ekkert fyrr á ferðinni
hér í dalnum en verið hefur
undanfarin ár,“ sagði Kristján
E. Hjartarson, bóndi á Tjörn í
Svarfaöardal.
„Góði kaflinn frá 20. júní til
mánaðamóta nýttist mönnum vel
og sumir kláruðu á þessum tíma.
Þetta var besti heyskapartíminn.
Þeir sem byrjuðu ekki strax lentu
hins vegar í þessum seinni
óþurrkakafla. Sjálfur er ég nú að
klára fyrri slátt og menn eru
almennt ntjög sáttir við það sem
af er sumri og bjartsýnir á að ná
góðum og miklum heyjum. Það
var hvergi kal í túnum. Menn
voru dálítið hræddir við þurrka í
þessum langa og heita kafla en
grasið þaut upp aftur þegar fór að
rigna, þannig að menn voru sáttir
við þurrkinn, sáttir við bleytuna
og sáttir við guð og menn. Síðan
sjáum við frant á mikla og háa
sprettu, þótt í raun og veru sé
engin þörf á því.“ SS
Trausti Sveinsson:
Elstu menn muna
vart annan eins
heyskap
„Heyskapur
hefur gengið
framúrskar-
andi vel því
tíðarfarið hef-
ur verið með
eindæmum
gott. Elstu
menn hér í
Fljótum muna vart annað
eins,“ sagði Trausti Sveinsson,
bóndi á Bjarnagili í Fljótum í
Skagafirði.
„En væta hefur verið í minna
lagi þannig að sprettan er ekki
nægilega góð, t.d. grænfóður-
spretta. Heygæði eru samt góð og
nýtingin eftir því,“ sagði Trausti
ennfremur.
Að sögn Trausta byrjuðu
Fljótabændur almennt á heyskap
unt síðustu mánaðamót og fyrri
sláttur langt kominn. „Aðrir eins
samfelldir þurrkar hafa ekki
komið hér í Fljótum sem ég man
eftir. Til að fá góða sprettu fyrir
seinni slátt þyrfti að rigna meira
og vonandi verður það.“
Aidrei þessu vant sluppu
Fljótabændur við kal í túnum í
sumar en Trausti sagði að ntiklar
kalskemmdir í fyrrasumar hefðu
haft áhrif í ár með minni sprettu.
-bjb
Benedikt Hjaltason:
I.iikum fyrri
slætti
fyrir löngu
„Heyfengur
verður með
því besta sem
gerist í byggð-
um Eyjafjarð-
arsveitar. Við
bændur að
Hrafnagili
höfum lokið
fyrri slætti fyrir löngu og erum
að hefja seinni slátt,“ sagði
Benedikt Hjaltason, bóndi að
Hrafnagili, en að Hrafnagili
býr hann félagsbúi við mág
sinn, Þorstein Pétursson.
„Við verkum allt í rúllur og
nytjum slægjur jarðanna Hrafna-
gils, Merkigils, Botns og að hluta
til slægjur Stokkahlaða og Stór-
Hamars. Sláttur hófst 31. maí og
gekk rólega í fyrstu vegna vot-
viðris og kulda. í góðviðris-
kaflanum í júní hirtum við af 140
hekturum lands. í seinni slættin-
um verða 110 hektarar slegnir
sem ætti að taka stuttan tíma ef
veðurguðinn verður okkur bænd-
um hliðhollur. Þegar seinni slætti
lýkur ætla ég að heyja lítilsháttar
á engjum fyrir hrossin og þá
verðum við bændur vel birgir fyr-
ir veturinn,“ sagði Benedikt
Hjaltason. ój
Valgarður Hilmarsson:
Bændur almennt
aö Ijúka
fyrri slætti
„Ég hugsa að
margir bænd-
ur á þessum
slóöum Ijúki
við fyrri slátt í
þessari viku
og sumir eru
reyndar búnir
og þess eru
dæmi að seinni sláttur sé
hafinn. Heyskapur er mikill og
góður og ég á von á töluvert
miklum seinni slætti,“ segir
Valgarður Hilmarsson, bóndi
Fremstagili í Engihlíðarhreppi
í A-Húnavatnssýslu.
„Menn byrjuðu almennt að
heyja undir lok júní. Framan af
var sprettan ekki merkileg, en
verkunin hins vegar sérstaklega
góð. Síðan gerði rigningu og í
kjölfar hennar spratt gífurlega á
örfáum dögum. Þegar á heildina
er litið hefur þetta verið afburða
gott sumar.
Það er þónokkuð mikið verkað
í rúllur. Ég heyja t.d. eingöngu í
rúllur og hef gert í nokkur ár. Ég
hef góða reynslu af þessum hey-
skaparmáta. Þetta er auðveldur
og þægilegur heyskapur og verk-
unin er betri. Eg var áður með
votheysverkun og hún var miklu
erfiðari." óþh