Dagur - 24.07.1991, Síða 3

Dagur - 24.07.1991, Síða 3
Miðvikudagur 24. júlí 19.91 - DAGUR - 3 Fréttir Norrænt þing á Akureyri í ágúst: Rætt um lækningar vegna umferðarslysa Dagana 7.-9. ágúst nk. verður haldið á Akureyri norrænt þing lækna og annarra sem fást við umferðarslys í víðum skilningi. Þingið sækja um 50-70 manns frá öllum Norðurlöndunum. Þar af er um helmingurinn Islendingar en um 30 fyrirlesar- ar munu miðla af þekkingu sinni á umferðarslysum á landi, á sjó og í lofti og á björgunarað- Eyjafjarðarsveit: Talsverður áhugi fyrir rekstri sumarhótels í Hrafnagilsskóla Ferðaskrifstofa ríkisins hefur verið með Hrafnagilsskóla á leigu nokkur undanfarin sumur og starfrækt þar Edduhótel en ákveðið hefur verið að segja þeim samningi upp fyrir næstu mánaðamót að sögn Péturs Jónassonar sveitarstjóra. Heimamenn hafa sýnt því áhuga að taka skólann á leigu yfir sumarmánuðina og einnig hafa borist fyrirspurnir um rekstur sumarhótels en engin ákvörðun hcfur enn verið tekin í málinu. Aframhaldandi rekst- ur á Edduhóteli kemur einnig til greina. Ferðamönnum hefur verið boðið upp á tjaldsvæði undanfar- in sumur á svæðinu milli félags- heimilisins Laugarborgar og Vín- ar en þar er um bráðabirgðalausn að ræða. A svæðinu er salernis- skúr og kalt vatn en næsta surnar verður tjaldsvæðinu ætlaður stað- ur norðan íþróttahússins en ekki er alveg frágengið hvernig salcrn- Hljómsveit Geirmundar: Á Þjóðhátíð í íyrsta sinn ismálin verða Ieyst. Innrétta þarf kjallara íþróttahússins fyrir Hrafnagilsskóla undir kennslu- húsnæði fyrir verklegar greinar og uppi eru hugmyndir um að sam- nýta aðstöðuna m.a. til þjónustu við það ferðafólk sem gistir á tjaldsvæðinu yfir sumarmánuð- ina. Þrátt fyrir sameiningu sveitar- félaganna þriggja í eitt sveitarfé- lag, Eyjafjarðarsveit, eru engar hugmyndir uppi um að leggja starfsemi Sólgarðsskóla af en þar hefur yngstu nemendunum í gamla Saurbæjarhreppi verið kennt. Þrír grunnskólar eru í sveitarfélaginu og því nokkuð Ijóst að einhverra breytinga er þörf. GG gerðum eins og efni þingsins er skilgreint. Þingið fer fram á Hótel KEA og eru sli'k þing haldin annaðhvert ár en árið 1983 var samskonar þing haldið í Reykjavík. Fyrir því stendur Islenska umferðarlækn- ingafélagið í samvinnu við ýmsa aðila sem koma nálægt slysum í lofti, á láði og legi og er þarna um að ræða umferðarslys í sem víð- ustum skilningi. Á þinginu verður m.a. fjallað um slys í tengslum við litlar flug- vélar og ferjusamgöngur sem eru algengur ferðamáti á Norður- löndunum. Að sögn Ólafs H. Oddssonar héraðslæknis, sem sér um skrifstofu þingsins, er mikil- vægur þáttur í efni þingsins björg- un og viðbrögð við slysum á þjóð- vegum, svo og í óbyggðum og á sjó enda séu rétt viðbrögð við slíkum slysum forsenda þess að búa megi á íslandi. Auk annarra efnisþátta þings- ins verður fjallað um samband vegaumhverfis og öryggis og m.a. um tíðar bílveltur í Eyjafirði. Á kynningarfundi kom fram að sam- kvæmt lögregluskýrslum eru 17- 25 ára gamlir karlmenn 2A þeirra ökumanna sem lenda í slíkum bíl- veltum á Eyjafjarðarsvæðinu, oft á malarvegum. Talið er að kenna megi ónógum undirbúningi fyrir ökupróf þessa aukningu á bílvelt- um enda er oftast urn heimamenn að ræða sem vanir eru staðhátt- um. Á þinginu verður einnig fjallað um tegund áverka af völdum umferðarslysa. Á kynningarfund- inum kom fram að alvarlegum áverkum vegna árekstra hefur fækkað eftir að bi'lbeltanotkun var lögleidd hér á landi en um leið hefur minni háttar hálshnykks- áverkum fjölgað við aftanákeyrsl- ur af sömu ástæðum. Að sögn framkvæmdaaðila eru slík þing mjög hentugur máti til samstarfs á sviði svokallaðra umferðarlækninga og saman- burðar á skráningu slysa á Norðurlöndunum. GT Sauðárkrókur: Gtmnlaug ráðin Búið er aö ganga frá ráöningu Gunnlaugar Kristínar Ingva- dóttur í starf umsjónarmanns félagsmiðstöðvar á Sauðár- króki. Gunnlaug var, eins og Dagur greindi frá sl. fimmtudag, eini umsækjandinn og ákvað Sauðár- króksbær að ráða liana. Hún mun því koma til starfa 1. sept- ember nk. og hefjast handa viö að sjá um félagsmiðstöð fyrir unglinga í 6.-10. bekk grunnskól- ans á Sauðárkróki. SBG í síðustu viku greindi Dagur frá því aö hljómsveit Ingimars Eydal myndi spila á bindindis- móti í Galtalæk um verslun- armannahelgina, en það eru fleiri norðlenskir tónlistar- jöfrar sem skemmta utan fjórðungsins um Versló. Hljómsveit Geirmundar Val- týssonar verður nefniiega ásamt GCD og Nýdönsk á Þjóðhátíð í Eyjum. „Við erum bara spenntir fyrir spila þarna og gerum okkur fulla grein fyrir því að þetta verður erfitt,“ segir Geirmundur, en þetta verður í fyrsta skipti sem hann er á Þjóðhátíð í Eyjum. Hann segist alltaf hafa verið að spila annars staðar um verslun- armannahelgina og yfirleitt í Miðgarði í tengslum við hesta- mannamót á Vindheimamelum um þessa helgi. Fyrir nokkrum árúm lék Hljómsveit Geirmund- ar þó fyrir dansi í Galtalæk, en Geirmundur segist búast við að erfiðara verði að spila í Eyjum en þar enda dansleikirnir lengri. Það er þó ekki nóg með að Hljómsveit Geirmundar leiki ein- ungis fyrir dansi í Eyjum, heldur á Geirmundur einnig Þjóðhátíð- arlagið í ár, „Þjóðhátíð í Eyjum“ við texta Guðjóns Weihe. Hann segir að forráðamenn hátíðarinn- ar hafi hringt í sig og spurt hvort hann vildi ekki prófa að vera með í keppninni og sent sér þrjá texta. Hann valdi síðan texta Guðjóns og segir að lagið hafi komið fljótt, en aldrei hafi hvarflað að sér að það yrði valið sem Þjóð- hátíðarlag 1991. Hljómsveitin fer til Eyja með Herjólfi á fimmtudeginum fyrir verslunarmannahelgi og að sögn Geirmundar verða dansleikir með hljómsveitinni frá klukkan 23.00-5.00 á föstudags- og laugar- dagskvöld, en á sunnudeginum frá klukkan 22.00-5.00. Auk þess leika piltarnir á unglingadansleik og kvöldvökum. Geirmundur og félagar sjá alfarið um stuðið á öðrum dans- pallinum í Herjólfsdalnum, en GCD og Nýdönsk á hinum svo búast má við strangri helgi hjá piltunum og segist Geirmundur búast við að þeir verði úrvinda eftir þessa einu helgi í Herjólfs- dal. SBG Nafti piltsins Pilturinn sem beið bana í umferðarslysi skammt frá Guðlaugsstöðum í Blöndudal að morgni sl. laugardags hét Gestur Ólafur Þórólfsson, til heimilis á Hjaltastöðum í Skagafirði. Hann var ókvænt- ur. óþh Lokað vegna sumarleyfa frá 29. júlí til 6. ágúst. Fasteignatorgið _ Glerárgötu 28, II. hæð, sími 21967 Sölustjéri Bjöm Kristjánsson, heimasími: 21776 5 MANNA FÓLKSBÍLL MEÐ VÖRUPALLI TRAUSTUR OG ENDINGARGÓÐUR Búnaður: E3 Dieselhreyfill Q Tengjanlegt aldrif E Tregðulæsing á afturdrifi E3 Framdrifslokur Verd kr. 1.394.880.- m.vsk. El A HEKLA MITSUBISHI LAUGAVEGI 174 MOTORS SIMI695500 yiöldursf. Tryggvabraut 12 Kjörinn bíll fyrir: ■ Vinnuflokka ■ Bændur ■ Iðnaðarmenn ■ Útgerðarmenn B Verktaka B Fjallamenn ÞRIGGJA. ÁRA ÁBYRGÐ Fæst cinnig með lengdum palli Kr. 1.534.880 vsk. 302.044 Verd kr. 1.232.836

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.