Dagur - 24.08.1991, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 24. ágúst 1991
TakiÖ eftir!
Jólaútsaumurinn streymir inn
Nokkud snemmt?
Ekki ef á að sauma
æðislegan dúk fyrir jól.
Þær hagsýnustu kaupa
jólaföndrið fyrir 1. sept-
ember og fá 10% afslátt.
Hafnarstræti 103,
sími 24364.
Af erlendum vettvangi
Lesblinda er ekki
aðeins það að eiga í
erflðleikum með lestur
Almennt skilgreina sérfræöingar
lesblindu sem fólk, er hafi mun
minni lestrarkunnáttu en vera
ætti samkvæmt gáfnafari þess að
ööru leyti. Vísindamenn hafa þó
verið ósammála um flest í sam-
bandi við lesblindu, ekki aðeins
hvernig bæri að skilgreina hana,
heldur einnig um sjúkdómslýs-
ingu, orsakir og meðferð, já,
jafnvel um það hvort lesblinda sé
yfirleitt til.
Nú hafa tveir enskir sálfræð-
ingar sett fram nýja kenningu,
sem er á þann veg að lesblindu
fylgi ekki aðeins lestrarerfiðleik-
ar heldur almenn vandkvæði á að
læra eitt eða annað þannig að
viðkomandi framkvæmi það án
sérstakrar umhugsunar.
Þessir tveir sálfræðingar hafa
unnið að rannsóknarverkefni
sínu um fimm ára skeið við
háskólann í Sheffield. Nú full-
yrða þeir að börn, sem haldin eru
lesblindu, eigi við vandamál að
stríða vegna þess að ákveðin
störf eða leikir verði þeim ekki
„ósjálfráð". Lestur er aðeins eitt
dæmi þessa.
Akstur bifreiðar er annað
dæmi um verulega margbrotið
starf. Þegar maður lærir að aka
bíl, verður hann að hugsa um og
meta hverja hreyfingu og aðgerð
- stíga á kúplinguna, skipta um
gír, nota stefnuljósin o.s.frv.
Með æfingunni verður fram-
kvæmd þessara atriða nánast
ósjálfráð. Vísindamennirnir tveir
halda því fram, að lesblindir eigi
í erfiðleikum með að læra þetta
Akureyringar
- Nærsveitamenn
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
verður með viðtalstíma á bæjarskrifstofunni á
Akureyri frá kl. 9-12, miðvikudaginn 28. ágúst
nk.
Tekið er á móti viðtalsbeiðnum í síma skrif-
stofunnar 96-21000.
Iðnaðarráðuneytið.
Viðskiptaráðuneytið.
Mælar fyrir vökva og loft
STRAUMRÁS s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
þannig að þetta verði ósjálfráðar
hreyfingar. Fylgst var mjög náið
með því, hvernig lesblind börn
framkvæma ýmis algengustu við-
fangsefni, sem daglega verða á
vegi manns, og kom í ljós, að
færni þeirra við ýmis einföldustu
atriði var mjög ábótavant. Sál-
fræðingarnir telja sig því byggja á
vísindalegum grunni, þegar þeir
fullyrða, að lesblind börn eigi erf-
itt með að samhæfa gerðir sínar,
þegar þau hjóla eða synda.
Vísindamennirnir segja þó að
vandamálin séu ekki alltaf jafn
augljós. Þeir halda því fram, að
lesblindir feli þau oft með alls-
konar „neyðarlausnum", t.d.
með því að einbeita hugsuninni
miklu meira að einhverju við-
fangsefni en það gefi tilefni til við
venjulegar aðstæður.
Til þess að láta reyna á þessa
kenningu létu þeir lesblinda
framkvæma nokkrar jafnvægis-
æfingar. Gengið var út frá því að
ef lesblindu börnin ættu í erfið-
leikum með að leysa verkefnin
ósjálfrátt, myndu þau vitandi vits
leggja sig fram um að gera betur.
En enda þótt börnin hefðu þróað
með sér ákveðnar kænlegar
neyðarlausnir, þá kæmi vanda-
málið í ljós með tvíþættu prófi,
þar sem beina þyrfti eftirtektinni
að fleiru en einu í senn.
Prófið var framkvæmt þannig
að börnin áttu að halda jafnvægi
á lágri slá og tala á sama tíma
ýmist framfyrir sig eða afturfyrir,
einnig áttu þau að segja til um
hvort tónmerki væri hátt eða
lágt.
Útkoman var mjög eftirtektar-
verð. Meðan málið snerist aðeins
um það að halda jafnvæginu,
sýndu lesblindu börnin, að þau
gátu auðveldlega sigrast á því
vandamáli og stóðu sig í aðalatr-
iðum ekkert verr en önnur börn.
En í tvíhliða prófinu, þegar þau
áttu bæði að halda jafnvæginu og
gera eitthvað annað, varð útkom-
an allt önnur. Jafnvel í auðveld-
asta prófinu, þegar börnin áttu
að standa kyrr á slánni og tala
framfyrir sig, reyndust meira en
tveir þriðju hlutar þeirra ekki
geta haldið jafnvæginu.
(Fakta 5/91. - Þ.J.)
Stærsta hringleikahúsið, Colosseum í Róm, var 46 metra hátt.
Ilverjir voru upphafs-
menn hringleikhúsa?
Það voru Rómverjar sem hófu
byggingu hringleikhúsa úr steini
og það elsta, sem þekkt er, er í
Pompeij, byggt í kringum 80 fyrir
Krist.
Stærsta hringleikhúsið, sent
byggt var, er Colosseum í Róm.
Það tók 50 þúsund áhorfendur,
sem komu inn í gegnum 80 hlið.
Stólaraðirnar voru gerðar úr
marmara og voru hringinn í
kringum sporbaugslaga leiksvið.
Ákveðnir bekkir voru fyrir
hverja þjóðfélagsstétt. Hreyfan-
leg sóltjöld voru til hlífðar fyrir
sól og regni.
Colosseum, sem byggt var um
það bil 75 árum eftir Kríst, varð
fyrirmynd síðari tíma leikhúsa.
Útveggurinn var 46 metra hár
og skiptist í fjórar hæðir. Á
þremur neðstu hæðunum voru
bogagöng með kórintiskum, dór-
iskum og jóniskum súlum, en
efsta hæðin var skreytt með mikl-
um fjölda af styttum.
Byggingarefnin voru kalk-
steinn, móberg, steinlím og tígul-
steinn. Að utan var svo klætt
með marmara.
Leikhúsin voru mest notuð fyr-
ir skylmingaleika, en þar áttust
ekki aðeins við sérþjálfaðir
skylmingamenn, einnig voru
fangar látnir berjast þar og dýr-
um var att gegn dýrum og mönn-
um gegn dýrum. Sýningarnar
gátu tekið mjög langan tíma og
mikið blóð rann.
Með það einkum fyrir augum
að sýna veldi sitt og stöðu meðal
þjóða byggðu Rómverjar næst-
stærsta hringleikahúsið í E1 Djem
í Túnis. Því fylgdu gífurleg
útgjöld, því að inikið af bygg-
ingarefninu varð að flytja um
langvegu.
Þarna var svo mikið notað af
villtum rándýrum, að stofnar
ýmissa tegunda í nágrenninu
voru í hættu. Fangar og dýr voru
geymd í klefum undir leiksvið-
inu, og af sviðinu rann blóðið um
niðurfall í klefana.
Rómverjarnir sögðu, að víga-
móðurinn ykist hjá þeim, sem í
klefunum voru, þegar blóðið tæki
að renna þangað niður.