Dagur - 08.10.1991, Blaðsíða 1
74. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 8. október 1991
190. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránufelagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Eftir sjö ára stanslausar virkjunarframkvæmdir viö Blöndu var fyrsta aflvélin af þremur tekin formlega í gagnið sl.
laugardag. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, ýtti á hnappinn rauða um hálfsexleytið og Blanda
hóf að framleiða raforku fyrir Ijósaperur landsmanna. Aður en Jóhannes ræsti vélina söng Karlakórinn Fóstbræður
nokkur lög, en fjöldi fólks var viðstaddur athöfnina og þáði veitingar í boði Landsvirkjunar eftir gangsetningu vél-
arinnar. A myndinni eru f.v.: Guðmundur Pétursson, staðarverkfræðingur, Jóhannes Nordal, Halldór Jónatans-
son, forstjóri Landsvirkjunar, og Guðmundur Hagalín stöðvarstjóri. Mynd: SBG
íþróttahús KA:
Ferðamálasjóður
lánar 20
Stjórn Ferðamálasjóðs hefur
ákveðið að lána íþróttafélag-
inu KA á Akureyri 20 milljónir
vegna íþróttahússbyggingar
félagsins. KA sótti um lánið á
þeim forsendum að ætlunin
væri að markaðssetja íþrótta-
húsið nýja sem hentugt hús-
næði til ráðstefnu- og sýningar-
halds og hefur stjórn sjóðsins
nú afgreitt beiðnina jákvætt.
„Við erurn með rökstuðning
fyrir að þetta hús komi ferða-
mönnum til góða. Ætlunin er að
markaðssetja húsið fyrir sýningar
og ráðstefnur og á þeim grunni er
okkur veitt lánið,“ sagði Sig-
mundur Þórisson, formaður KA,
aðspurður um ástæður þess að
félagið óskaði eftir lánveitingu
úr Ferðamálasjóði.
Sigmundur segir að ekki verði
miEjónir
keyptur sérstakur búnaður í hús-
ið til nota við ráðstefnuhald og
sýningar en lagnir í húsinu miðist
við þessa möguleika á nýtingu.
Lán Ferðamálasjóðs er til 15
ára og er veitt í dollurum. Snorri
Tómasson, starfsmaður sjóðsins
leggur áherslu á að með láninu
sé sjóðurinn ekki að leggja
íþróttahússuppbyggingunni lið
heldur telji stjórn sjóðsins húsið
hentugt til sýninga- og ráðstefnu-
halds og láni út á þann þátt.
Aðspurður segir Snorri að. sjóð-
urinn hafi ekki veitt lán af þessu
tagi áður.
Hið nýja íþróttahús KA er nú
á lokastigi í byggingu og verður
vígt þ. 18. þessa mánaðar með
leik í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik milli KA og FH.
JÓH
Tilboði KEA í alifuglabúið Fjöregg hafnað:
Óskað nauðungaruppboðs á jörð og
fasteignum í Sveinbjamargerði
Arnar Sigfússon, skiptaráð-
andi í þrotahúi alifuglabúsins
Fjöreggs á Svalbarðsströnd,
óskaði eftir því í gær við upp-
boðshaldara bæjarfógeta-
embættisins á Húsavík að fram
fari nauðungaruppboð á jörð-
Veðurstofa íslands gerir ráð
fyrir áframhaldandi norðan
garra í dag með kalsarigningu í
byggð á norðanverðu landinu
og snjókomu til fjalla. Frost-
línan er oröin mjög lág, segja
veðurfræðingar, og þegar er
farið að snjóa í byggð á Vest-
fjörðum.
I.íkamsárásir
á Akureyri
Tvær líkamsárásir komu til
kasta lögreglunnar á Akureyri
um helgina. A föstudagskvöld-
ið var kona slegin harkalega af
manni með þeim afleiðingum
að tvær framtennur brotnuðu
og fleiri losnuðu.
Á laugardagskvöldið réðust
tveir menn á ungling á miðbæjar-
svæðinu og börðu hann en meiðsl
hans munu ekki vera alvarleg.
Allmikill erill var hjá lögregl-
unni um helgina. Prjár kyrrstæð-
ar bifreiðar voru skemmdar, rúð-
ur brotnar og tveir ökumenn
teknir ölvaðir við akstur. Annar
þeirra var reyndar gómaður eftir
að hann hafði ekið bifreið sinni
inn í garð við Múlasíðu. SS
inni Sveinbjarnargerði 2 og
fasteignum á henni. Kaupfélag
Eyfirðinga, sem nú hefur ali-
fuglabúið Fjöregg á leigu,
gerði tilboð í búið en einn
stærstu kröfuhafa í búið hafn-
aði tilboðinu algerlega og lá þá
Síðdegis í dag mun draga úr
úrkomu og vindi. Á morgun lægir
og léttir til og þá er búist við
ágætu haustveðri.
Undanfarna daga hefur rignt
mjög mikið víða á Norðurlandi,
svo mikið að mörgum hefur þótt
nóg um. Ekki fengust tölulegar
upplýsingar um úrkomuna hjá
Veðurstofu Islands en sólar-
hringsúrkoman hefur hlaupið á
tugum millimetra á ntörgum veð-
urathugunarstöðvum. SS
Ráðgjafardeild Félagsmála-
stofnunar Akureyrar hefur
veitt lán til að koma Akureyr-
ingi sem er í stofufangelsi í
Tælandi til hjálpar, en eins og
fram hefur komið í fréttum
voru þrír íslendingar kyrrsettir
í Bangkok þegar þeir gátu ekki
greitt hótelreikning. Þangað
höfðu þeir komist með því að
nota illa fengið ávísanahefti.
ekkert annað fyrir en setja
eignirnar á nauðungaruppboð.
Arnar Sigfússon, skiptaráð-
andi, segir að nauðungaruppboði
á fasteignunum og jörðinni í
Sveinbjarnargerði hafi verið
frestað sl. vor þegar Fjöregg var
lýst gjaldþrota. Beiðnin nú snúist
um að uppboðsmeðferðin haldi
áfram þar sem frá var horfið þar
sem ekki hafi tekist að selja eign-
irnar. Arnar segist reikna með að
uppboðið fari fram undir lok
þessa mánaðar.
Bústofn og ýntiskonar lausafé
alifuglabúsins í Sveinbjarnar-
gerði standa utan við nauðungar-
uppboðsmeðferðina og verða því
enn um sinn í eigu þrotabúsins.
Arnar segir að nauðungaruppboð
þurfi ekki að þýða að sá mögu-
leiki sé út úr myndinni að búið
verði áfram í rekstri enda geti
hugsanlegur kaupandi eignanna
séð sér hag í að kaupa búnað og
stofn einnig af þrotabúinu.
Engar upplýsingar fengust um
málið hjá ráðgjafardeild Félags-
málastofnunar í gær en ákvörð-
unin mun hafa verið tekin að ósk
aðstandenda mannsins sem jafn-
framt gangast í ábyrgð fyrir lán-
inu. Fulltrúar frá ráðgjafardeild
gerðu félagsmálaráði grein fyrir
ákvörðun sinni á fundi í gær.
Málið verður tekið fyrir á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í dag og
„Möguleikarnir á áframhaldandi
rekstri eru fleiri þannig að það er
of snemmt að slá því föstu að
þessi búskapur lcggist þarna
niður,“ segir Arnar.
Aðspurður segir Arnar ekki
líklegt að kaupandi komi að bú-
stofni og lausafé áður en uppboð
fari fram. Þó engum dyrum sé
lokað segir hann vart raunhæft að
selja þessar eignir fyrr en skýrist
hver verði eigandi fasteignanna
og jarðarinnar eftir nauðungar-
uppboðið.
Arnar vill ekki gefa upp hve
hátt tilboð KauDfélags Eyfirðinga
var né hvaða veðhafi hafnaði til-
boðinu. KEA hefur Fjöregg á
leigu til loka októbermánaðar og
segir Arnar að hafi línur ekki
skýrst undir mánaðamót blasi
ekki annað við en undirbúa
slátrun á bústofni enda reki
þrotabúið fyrirtækið ekki nema
við blasi góðir möguleikar á
áframhaldandi rekstri nýrra
aðila. JÓH
er búist við heitum umræðum um
ákvörðun ráðgjafadeildarinnar,
sem er umdeild og gæti haft for-
dæmisgildi. í samtali við DV í
gær sagðist Sigurður J. Sigurðs-
son, forseti bæjarstjórnar, vera
gagnrýninn á málsmeðferð Félags-
málastofnunar, ekki síst vegna
þess að ráðgjafardeildin veitti
lánið án santráðs við félagsmála-
ráð. SS
ÓlafsQarðarvegur:
Naut réðust
á bifreið
Snemma á laugardagskvöld-
ið kom maöur á lögreglu-
stööina á Akureyri og bar
sig illa. Hann sagðist hafa
verið á ferð eftir Olafsfjarð-
arvegi í bifreið sinni og gekk
allt að óskum þar til naut
réðust á bílinn í grennd við
Kálfsskinn.
Nautin voru býsna aðgangs-
hörö og skemmdu vinstri hlið
bifreiðarinnar allmikið. Að
sögn lögregluvarðstjóra á
Akureyri haföist upp á eig-
anda nautanna og hyggst hann
bæta ökumanninum tjónið.
SS
Harðbakur EA:
Tveir sjómenn
slösuðust í gær
Harðbakur EA kom til
hafnar á Þórshöfn eftir
hádegi í gær með tvo slasaða
sjómenn. Flugvél frá Flug-
lélagi Norðurlands flutti þá
rakieiðis á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri en áður
hafði verið óskað eftir þyrlu
til að sækja þá á haf út. Þau
svör fengust að ófært væri
fyrir þyrluna norður.
Menn úr Björgunarsveitinni
Hafliða á Þórshöfn hífðu hina
slösuöu frá borði og kontu
þeim í flugvél FN. Talsmaður
björgunarsveitarinnar sagði að
það hefði sparað ntikinn tíma
ef þyrlan hefði komist norður
og þetta atvik sýndi nauðsyn
þess að hafa þyrlu staðsetta á
Norðurlandi.
Sjómennirnir munu vera
töluvert slasaðir. Þeir
klemmdust þegar verið var að
taka inn trollið og bremsa gaf
sig. Hvasst var á ntiðunum og
mjög vont í sjó. SS
Norðurland:
Veðrið loks að skána
Félagsmálastofnun lánar Akureyringi í Bangkok:
UmdeM ákvörðun rædd á
bæjarstjómarftmdi í dag