Dagur - 08.10.1991, Síða 7
Þriðjudagur 8. október 1991 - DAGUR - 7
Hinn kínvcrski blakþjálfari KA, Shao Baolin, kom loks til Akureyrar í gær, um tveimur mánuðum seinna en upp-
haflega stóð til. Kínverska kerfið mun ekki vera þekkt fyrir þjónustulipurð og Baolin og KA-menn fengu að kenna
á því. Myndin var tekin þegar Baolin kom til bæjarins í gær en með honum eru þeir Stefán Magnússon, leikmaður
KA, og Sigurður Harðarson, stjórnarmaður í blakdeildinni. Mynd: Golli
Bændaglíman í golfi:
Ragnar tryggði sínum mönnum
sigur í æsispennandi bráðabana
- Sverrir og Ólafur sigurvegarar í Greifamótunum
Lið Ragnars Steinbergssonar
fór með sigur af hólmi í
bændaglímu GA sem fram fór
að Jaðri um helgina. Þetta var
síðasta mót ársins hjá
klúbbnum. Ragnar sigraði
hinn „bóndann,“ Hilmar
Gíslason, í æsispennandi
bráðabana í lok mótsins.
Hilmarssonar sem ætti ekki að
þurfa að kvíða matarleysi á næst-
unni.
Alls voru haldin 12 Greifamót
í sumar og voru spilaðir 700
hringir. Alls voru slegin 33.671
högg sem gerir 1972.5 högg að
meðaltali í móti. Flest högg á
einni holu voru 17 en meðaltal á
30 pör mættu til leiks og var
leikin holukeppni á 18 holum,
einn á móti einum. Liðin voru
jöfn að loknum 18 holum og því
skokkuðu bændurnir á 18. braut
og tóku bráðabana. Þeir pöruðu
báðir í fyrstu ferðinni og fóru því
aftur og þá tryggði Ragnar sínum
mönnum sigurinn þegar hann
setti niður 8 metra langt pútt.
Sannarlega skemmtilegur endir á
golfvertíðinni hjá Akureyring-
um.
Um kvöldið fór fram lokahóf
Greifamótanna í golfskálanum
og þar voru afhent verðlaun fyrir
þrjú efstu sætin með og án for-
gjafar. Sverrir Þorvaldsson varð
öruggur sigurvegari í keppni án
forgjafar, hlaut 101,5 stig og 10
þúsund kr. matarúttekt á Greif-
anum. Sigurður H. Ringsted og
Sigurpáll Sveinsson urðu jafnir í
2.-3. sæti með 70.5 stig en Sigurð-
ur hreppti 2. sætið þar sem hann
keppti í færri mótum og hlaut því
5 þúsund kr. úttekt á Greifanum
en Sigurpáll 3 þúsund kr. úttekt.
í keppni með forgjöf sigraði
Ólafur Hilmarsson með 52 stig og
hlaut sömu verðlaun og Sverrir.
Kristján Grant varð í 2. sæti með
42.33 stig og Páll Pálsson í 3. sæti
með 41.33 stig. Dregið var um 10
þúsund kr. matarúttekt á Greif-
anum og kom hún í hlut Ólafs
Þessir kappar leiddu liðin í bændaglímunni, Ragnar Steinbergsson og Hilm-
ar Gíslason. Hilmar virðist hér hafa betur í „upphituninni“ en Ragnar hafði
betur í bráðabananum. Mynd: Goiii
Blak:
KA-menn hofii titil-
vömina með sigri
- lögðu Þróttara 3:1
íslandsmeistarar KA í blaki
byrjuðu titilvörn sína með stæl
þegar þeir sigruðu Þrótt
Reykjavík 3:1 í íþróttahöllinni
á Akureyri á föstudagskvöldið.
Leikurinn bar þess greinileg
merki að íslandsmótið er að
fara af stað og enn vantar tölu-
vert upp á leikæfingu liðanna.
Bjarni Þórhallsson, leikmaður
og „settur" þjálfari KA-manna
var ánægður með sigurinn og
sagði hann mjög mikilvægan.
„Við reiknum með að þetta verði
erfitt hjá okkur fyrstu mánuðina
á meðan liðið er að slípast saman
en við eigum ekki eftir að tapa
mörgum leikjum eftir áramót.
Þess vegna eru öll stig sem við
náum á móti Þrótti og IS fram að
þeim tíma mjög mikilvæg og geta
skipt sköpum þegar upp er
staðið.“
Byrjunin lofaði reyndar ekki
alltof góðu fyrir KA-menn,
Þróttarar leiddu framanaf og
unnu fyrstu hrinuna tiltölulega
átakalaust, 15:8. Þeir höfðu yfir-
höndina lengi vel í annarri hrinu
og voru komnir í 14:11 þegar
leikurinn snerist við. KA-menn
náðu að knýja fram 17:15 sigur
og eftir það héldu þeir forystunni
til leiksloka. Þriðja hrina var jöfn
en KA-menn jafnan skrefinu á
undan og unnu 15:12 og þeir
Bjarni Þórhallsson læðir boltanum
yfir Leif Harðarson. Mynd: Goiii
höfðu síðan greinilega yfirburði í
síðustu hrinunni og unnu hana
15:8.
„Það verður að viðurkennast
að þetta gekk betur en við þorð-
um að vona,“ sagði Bjarni Þór-
hallsson. „Þeir gerðu mikið af
mistökum og voru slakari en ég
átti von á. Þeir hafa reyndar
aldrei náð að sýna sitt rétta andlit
hér og kannski voru þeir búnir að
ákveða að spila illa. Við vorum
slakir fyrst en náðum betur sam-
an þegar á leið og ég held að
þetta gefi bara tilefni til bjart-
sýni," sagði Bjarni.
Knattspyrna:
Júgóslavi til Leifturs
Júgóslavneski varnarmaðurinn
Zoran Cougoric hefur ákveðið
að leika með 2. deildarliði
Leifturs í knattspyrnu næsta
sumar.
Zoran er 29 ára gamall varnar-
maður sem lék með Stjörnunni í
sumar. Hann náði þó ekki að
festa sig í sessi þar en spilaði 8
leiki og fékk að líta í þeim 6 gul
spjöld.
„Þetta er sterkur varnarmaður
sem kemur til með að styrkja lið-
ið heilmikið. Við erum að leita
að fleiri leikmönnum en það er
ekkert komið á hreint ennþá.
Deildin er orðin það sterk að við
teljum að við þurfum að styrkja
liðið til að geta staðið okkur
þar," sagði Þorsteinn Þorvalds-
son, formaður knattspyrnudeild-
ar Leifturs.
Fraffikvæmdastjóm HSÍ
styður mótanefiidina
- vegna frestunar leikjanna á miðvikudag
Framkvæmdastjórn Handknatt-
leikssamband íslands samþykkti
á fundi fyrir helgi stuðnings-
yfirlýsingu við mótanefnd HSÍ
og formann hennar vegna
deilna um frestanir tveggja
lcikja, KA og Vals og ÍBV og
HK, í 1. umferð Islandsmóts-
ins á miðvikudag.
Eins og fram kom í Degi á
fimmtudag voru KA-menn afar
óhressir með að leikjunum skyldi
frestað vegna óhagstæðrar veður-
spár enda höfðu þeir lagt mikla
vinnu í undirbúning leiksins og
sömu sögu er að segja frá Eyjum.
í reglugerð um handknattleiks-
mót segir að til þess að fá frestun
þurfi lið að sækja um hana með
sjö daga fyrirvara nema veiga-
miklar ástæður liggi fyrir og tvær
slíkar eru tilgreindar, samgöngu-
erfiðleikar og farsóttir. Þess má
geta að blíðuveður var um allt
land þegar leikjunum var frestað
seint á miðvikudag.