Dagur - 08.10.1991, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 8. október 1991
ÍÞRÓTTIR
Þýskaland:
Háðuleg útreið
Bayem Munchen
■ Stórleikur helgarinnar var viðureign
toppliðanna Stuttgart og Frankfurt á
heimavelli Stuttgart. Leikurinn þótti frá-
bærlega leikinn en Stuttgart mátti sætta sig
við ósigur, 1:2, og Frankfurt situr því eitt í
toppsætinu mcð 17 stig en Stuttgart er í
þriðja sæti með 15 stig. Matthias Sainmer,
hinn frábæri miðvallarleikmaður Stuttgart,
fékk að líta rauða spjaldið eftir tvær
áminningar en hann var þá búinn að leggja
upp mark Stuttgart sem Gaudino skoraði.
Stuttgart var óheppið, missti varnarmann-
inn Strehmel út af strax á 30. mínútu
vegna meiðsla og Schneider þurfti að
hætta í hálfleik af sömu sökum.
■ Um hálfgert einvígi var að ræða milli
Sammers og Miillcrs urn hvor væri betri
miðjuleikmaður en blöðin voru búinn að
ýta undir það einvígi alla vikuna. Segja má
að Múller hafi haft betur, lið hans sigraði,
Sammer var rekinn af leikvelli og til að
kóróna allt var Múller valinn í landsliðið
sem mætir heimsúrvalinu í ágóðaleik fyrir
Unesco annað kvöld en Sammer er úti í
kuldanum.
■ Fimm leikmenn eru nú komnir á
sjúkralista hjá Stuttgart. Eru því taldar
góðar líkur á að Eyjólfur veröi í byrjunar-
liði þegar Stuttgart leikur í Nurnberg á
laugardag.
■ Athyglisverðustu úrslit helgarinnar
urðu tvímælalaust í viðureign hins forna
stórveldis, Bayern Munchen, sem oftast
allra liða hefur orðið meistari, og Stuttgarter
Kickers, sem var þriðja lið upp úr 2. deild
eftir síðasta tímabil. Nýliðarnir hreinlega
rúlluðu Bayern upp 4:1 á Ólympíuleik-
vanginum og þykja úrslitin mikil hneisa
fyrir stórliðið. Rciner Zobel, þjálfari
Kickers, er hetja helgarinnar en hann er
fyrrurn leikmaður Bayern. Vandamál
Bayern eru hins vegar á allra vörum og
ljóst að stóllinn er orðinn ansi heitur undir
þjálfaranum Jupp Heynckes. Er sagt í
gamni að honum yrði stærstur greiði gerð-
ur með því að reka hann strax því
Mönchengladhach er enn þjáifaralaust og
hann gæti þá farið beint þangað enda fyrr-
um leikmaður með liðinu og á hús við hlið-
ina á heimavelli þess.
■ Þegar leikmenn Bayern gengu af leik-
velli var hrópað „burt með Heynckes“ úr
stúkunni, skammt frá inngangi leikmann-
anna. Effenberg var á leiðinni út og missti
stjórn á sér, reyndi að komast upp í stúk-
una og öskraði ókvæðisorð að þeim sem
talað hafði. Þurftu félagar hans í liðinu að
draga hann í burtu og þykir þetta sýna
hversu taugaveiklaðir Bæjarar eru að
verða yfir ástandinu.
■ Bayern Múnchen hefur átt í miklum
vandræðum vegna meiðsla og sjúkralistinn
lengdist enn um helgina. Wohlfart er nú
kominn undir hnífinn og Thonias Berthold
sagði í blaðaviðtali í gær að enginn
leikmaður liðsins væri heill þessa dagana,
þótt sumir þeirra neyddust til að spila.
■ Borussia Mönchengíadbach sigraði
Hamburger SV 1:0 og liðinu virðist ganga
best þegar það er þjálfaralaust. Annars er
talið líklegast að Geldsdorf, sem var rek-
inn frá Leverkusen á síðasta tímabili,
verði næsti þjálfari liðsins.
■ Bayer Leverkusen og Köln gerðu jafn-
tefli 1:1. Köln er enn ekki farið að vinna
leik á tímabilinu.
■ Hansa Rostock er farið að skora aftur
og liðið sigraði Fortuna Diisseldorf 3:1.
■ Werder Bremen sigraði Schalke 2:1.
■ Wattenscheid reif sig loksins upp og
sigraði meistarana í Kaiserslautern 1:0.
■ Borussia Dortmund sigraði Núrnberg
3:2.
■ Karlsruher sigraði Dynamo Dresden
1:0. Þjálfari Dresden, Schulpe, var nýgift-
ur en fékk ekki sigur í brúðkaupsgjöf.
■ Bochum hafði yfir 1:0 gegn Duisburg
þar til á 83. mínútu en þá skoraði fyrrum
leikmaður Bochum jöfnunarmark Duis-
burg.
Einar Stefánsson, Þýskalandi
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Þórsarar mísstu dampiim
- og töpuðu 70:71 í Grindavík
Þær voru æsispennandi loka-
mínúturnar í leik Grindvíkinga
og Þórs í 1. umferð úrvals-
deildarinnar í körfuknattleik í
Grindavík á sunnudagskvöld-
ið. Þegar 35 sekúndur voru til
leiksloka höfðu Þórsarar eins
stigs forystu, 70:69, og voru
með boltann. Þeim brást
skotfimin en þó voru ekki öll
sund lokuð, Birgir Birgisson
fékk vítakast en boltinn rataði
ekki rétta leið og það sama
henti hjá Grindvíkingnum
Guðmundi Bragasyni skömmu
síðar. En þegar brotið var aft-
ur á Guðmundi gerði hann
enginn mistök, skoraði úr
tveimur vítaskotum og tryggði
Grindvíkingum sigurinn,
71:70. Þórsarar leiddu leikinn
allt þar til staðan varð 61:61 og
höfðu yfir í hléi 45:33.
„Við áttum að vera búnir að
gera út um leikinn í fyrri hálf-
leik,“ sagði Sturla Örlygsson,
stigahæsti leikmaður Þórs. „Við
fengum hvað eftir annað færi sem
brugðust á meðan Grindvíkingar
voru óvenju slakir í byrjun. Þeir
komu hins vegar mjög ákveðnir
og yfirvegaðir í seinni hálfleikinn
en þá fór allt úrskeiðis hjá
okkur.“
Þórsarar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og skoruðu fyrstu
11 stigin en heimamenn komust
ekki á blað fyrr en eftir tæpar
fjórar mínútur. Allt gekk á aftur-
fótunum hjá þeim á meðan
norðanmenn léku við hvern sinn
fingur þótt hittnin hafi kannski
ekki verið upp á það besta. Sturla
Örlygsson, Björn Sveinsson og
Georg Birgisson voru norðan-
manna kræfastir í þessum hluta
leiksins sem var spilaður af mikl-
um krafti og hraða - stundum á
kostnað leikskipulagsins.
En Þórsarar héldu þetta ekki
út og skotgleði þeira var bjart-
sýniskennd í seinni hálfleik. Þeir
fundu ekki körfuhringinn og Dan
Krebbs náði flestum fráköstun-
um og ýmist byggði upp sóknar-
lotur Grindvíkinga eða skoraði
sjálfur. Röskastur heimamanna
var þó Guðmundur Bragason en
honum héldu engin bönd. Hann
skoraði 29 stig og átti stærstan
þátt í að Grindvíkingar náðu að
jafna 61:61 við gífurlegan fögnuð
áhorfenda sem flestir voru
heimamenn. Og ekki dró úr
fögnuðinum þegar Pétur Guð-
mundsson skoraði úr vítakasti og
kom Grindvíkingum yfir 62:61.
Þær sjö mínútur sem eftir lifðu
til leiksloka einkenndust af mikl-
um eldmóði leikmanna og tauga-
spennu og það var nánast heppni
sem réði því að heimamenn fóru
með sigur af hólmi.
Af ýmsu mátti ráða að þetta
var fyrstu leikurinn í mótinu.
Margt fór úrskeiðis, sendingar
slæmar og skipulag sömuleiðis og
hittnin slök hjá báðum liðum. En
þetta stendur eflaust til bóta og
leikurinn var þrátt fyrir allt
spennandi og skemmtilegur fyrir
áhorfendur og það er ekki svo lít-
ill þáttur þegar íþróttir eru ann-
ars vegar.
Lið Þórs lofar góðu þrátt fyrir
ósigurinn og það verður forvitni-
legt að fylgjast með því þegar
Bandaríkjamaðurinn Michael
Ingram verður löglegur en hann
mátti sætta sig við að horfa á
fyrsta leikinn. Ástæðan var sú að
staðfesting hafði ekki borist frá
FIBA þrátt fyrir ítrekuð loforð
þar um en því átti að kippa í lið-
inn í gær.
Guðmundur Bragason og Dan
Krebbs báru uppi lið Grindvík-
inga með góðri hittni og varnar-
leik og áttu stærstan þátt í að lið-
ið fann sig á heimavellinum eftir
ömurlega byrjun. MG
Stig Þórs: Sturla Örlygsson 17, Konráð
Óskarsson 16, Gunnar Örlygsson 16,
Örvar Erlendsson 6, Ágúst Guðmunds-
son 6, Georg Birgisson 5, Birgir Birgis-
son 4.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 29,
Dan Krebbs 18, Marel Guðmundsson 9,
Rúnar Árnason 6, Pétur Guðmundsson
5, Bergur Hinriksson 2, Pálmar Sigurðs-
son 2.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn
Óskarsson. Dæmdu vel.
Michael Ingram.
Ingram
horfði á
Michael Ingram, handaríski
körfuknattleiksmaöurinn í Þór,
lék ekki með liði sínu gegn
Grindvíkingum á sunnudags-
kvöldið. Hann var ekki orðinn
löglegur þar sem ekki hafði
borist staðfesting á félagsskipt-
um hans frá Alþjóða körfu-
knattleikssambandinu, FIBA.
Að sögn Helga Sigurðssonar,
formanns körfuknattleiksdeildar
Þórs, var búið að ganga frá öllum
endum en staðfestingin frá FIBA
lét á sér standa. Búið var að hafa
samband við skrifstofu sam-
bandsins í Þýskalandi og þar var
lofað að ganga frá málinu fyrir
helgi en af einhverjum ástæðum
gekk það ekki eftir. Þess má geta
að erlendur leikmaður hjá Hauk-
um lék ekki heldur á sunnudag-
inn af sömu orsökum.
Búist var við að gengið yrði
frá málinu í gær.
„Karakterlaust“
- sagði Valur Ingimundarson
eftir stórtap Stólanna gegn KR
Tindastóll átti ekki mikla
möguleika þegar liðið mætti
KR í 1. umferð úrvalsdeildar-
innar í körfuknattleik á sunnu-
dagskvöldið. Tindastólsmenn
byrjuðu reyndar vel en síðan
fór að síga á ógæfuhliðina og
þegar upp var staðið var mun-
urinn orðinn 27 stig, 106:79.
Staðan í hléi var 51:40. „Það
var betra að tapa stórt fyrst við
vorum að tapa á annað borð.
Liðið var karakterlaust og eng-
inn þorði að treysta á sjálfan
sig. Við ætlum hins vegar að
bíta frá okkur í vetur og ég get
ekki annað en lofað betri leik
gegn Njarðvíkingum á Krókn-
um um næstu helgi,“ sagði
Valur Ingimundarson, leik-
maður og þjálfari Tindastóls.
Tindastólsmenn byrjuðu af
miklum krafti og léku ágætan
körfubolta fyrstu mínúturnar.
Eftir 5 mínútur höfðu þeir 10
stiga forystu, 19:9, en þá gerðu
KR-ingar breytingar á liði sínu
og þær skiluðu árangri. Munur-
inn minnkaði smátt og smátt og
eftir 12 mínútur var staðan jöfn,
29:29, og KR-ingar komust síðan
yfir og náðu mest 14 stiga forystu
í fyrri hálfleik, 49:35. Skynsemin
varð útundan þegar KR-ingar
fóru að bíta frá sér, Skagfirðingar
vildu gera hlutina upp á eigin
spýtur og það af meira kappi en
forsjá. KR-vörnin var opin í byrj-
un en lokaðist þegar á leið og olii
Stólunum miklum vandræðum.
Seinni hálfleikur var á svipuð-
um nótum og síðustu mfnúturnar
í fyrri hálfleik, KR-ingar mun
sterkari og áttu ekki í miklum
vandræðum með að halda Stól-
unum í hæfilegri fjarlægð.
Minnstur varð munurinn 8 stig,
67:59, en eftir það jókst hann á
ný og það var aldrei spurning
hvoru megin sigurinn myndi
lenda.
Það er auðséð að KR-ingar
eiga eftir að bíta frá sér í vetur,
þeir hafa sterku liði á að skipa
sem er hæfileg blanda af ungum
leikmönnum og eldri köppum.
Breiddin er mikil og þar kom
munurinn á liðunum í ljós. Eins
og fyrri daginn er breiddin
vandamál hjá Tindastóli, og það
kom berlega í ljós þegar villu-
vandræði fóru að segja til sín.
Haraldur Leifsson fór útaf með 5
villur 8 mínútum fyrir leikslok og
Ivan Jonas sömu leið skömmu
seinna og þar með var allur vind-
ur úr liðinu.
Hjá Tindastóli átti Karl Jóns-
son ágæta spretti og Ivan Jonas
lék þokkalega en hefur oft verið
sterkari. Reyndar átti liðið í heild
sinni dapran dag. Þess má geta að
hinn 17 ára gamli Hinrik Gunn-
arsson skoraði sín fyrstu stig fyrir
Tindastól í úrvalsdeildinni.
Hjá KR var Jon Baer sterkur
og Áxel Nikulásson sýndi að það
var rétt ákvörðun hjá honum að
hætta við að hætta. Þá sýndi 18
ára gamall piltur, Hermann
Hauksson, góða takta og er þar
mikið efni á ferð.
„Fyrstu mínúturnar voru ekki
góðar hjá okkur en við náðum að
sýna okkar rétta andlit á
köflum,“ sagði Páll Kolbeinsson,
leikmaður KR. „Við erum með
sterkt lið og mikla breidd og
stefnum hátt í vetur. Annars má
búast við óvæntum úrslitum því
deildin er orðin mun jafnari en
áður. Tindastólsmenn eiga eftir
að verða erfiðir á heimavelli en
ég held að þetta verði erfitt hjá
þeim á útivöllunum. Ég vona að
þeir verði með í baráttunni um
Haraldur Lcifsson þurfti að yfirgefa völlinn með fimm viilur 8 mínútum fyrir
leikslok. Mynd: SBG
sæti í úrslitakeppninni en þeir
áttu greinilega ekki góðan dag að
þessu sinni,“ sagði Páll. -bjb
Stig Tindastóls: Ivan Jonas 25, Valur
Ingimundarson 17, Haraldur Leifsson 16,
Karl Jónsson 13, Einar Einarsson 4,
Sverrir Sverrisson 2, Hinrik Gunnarsson
2.
Stig KR: Jon Baer 26, Axel Nikulásson
23, Hermann Hauksson 17, Guðni
Guðnason 14, Matthías Einarsson 14,
Benedikt Sigurðsson 4, Páll Kolbeinsson
3, Lárus Árnason 3, Óskar Kristjánsson
2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Árni
Freyr Sigurlaugsson. Da-mdu ágætlega
þegar á heildina er litið.