Dagur - 08.10.1991, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 8. október 1991 - DAGUR - 9
Arsenal að komast í meístarafonmð?
I síðustu viku komust fjögur
stóru liðin frá Englandi áfram í
2. umferð í Evrópukeppnun-
um, aðeins Swansea úr 3. deild
er úr leik. Mikill áhugi er á
Englandi fyrir Evrópuleikjun-
um og mikið lagt upp úr góðu
gengi í þeim. En um helgina
hélt deildakeppnin áfram, en
þar er einmitt barist um þátt-
tökurétt í Evrópuleikjum
næsta leiktímabils. En þá
koma leikir helgarinnar.
■ Arsenal og Chelsea áttust við í
hörkuleik þar sem hvorugt liðið
átti skilið að tapa. Arsenal án
Tony Adams byrjaði illa í vörn-
inni, en hefði þó hæglega getað
komist yfir strax í upphafi, en
Kevin Hitchcock í marki Chelsea
varði mjög vel frá Ian Wright og
Kevin Campbell skaut í stöng.
Andy Linighan og Colin Pates
miðverðir Arsenal voru óstyrkir í
upphafi og Graeme Le Saux náði
forystu fyrir Chelsea með góðu
skoti eftir undirbúning Kerry
Dixon og Kevin Wilson bætti síð-
an öðru marki Chelsea við eftir
sendingu Le Saux og vörn Arsen-
al úti að aka. Lee Dixon lagaði
stöðu meistaranna fyrir hlé með
marki úr vítaspyrnu og var sá
dómur mjög umdeildur, en
dæmd var hendi. í æsispennandi
síðari hálfleik jafnaði Wright fyr-
ir Arsenal er hann hnoðaði bolt-
anum í mark, hans fimmta mark í
þrem leikjum fyrir Arseenal og
Campbell skoraði síðan sigur-
mark Arsenal með þrumuskoti
frá vítateig. Leikmenn Chelsea
höfðu þó ekki gefist upp og Wil-
son átti skot í stöng Arsenal-
marksins og Dixon misnotaði
dauðafæri undir lokin, en meist-
ararnir héldu út og náðu að knýja
fram sigur og liðið virðist vera að
Tony Cottee afgreiddi Tottenham - línuvörður
Úrslit
Úrslit í vikunni:
Evrópuleikir
1. umferð, síðari leikir.
Manchester Utd.-Alhinaikos 2:0
Kuuysi Lahti-Liverpool 1:0
Austria Vienna-Arsenal 1:0
Tottenham Hajduk Split 2:0
Monaco-Swansea 8:0
1. deild
Crystal Palace-Leeds Utd. 1:0
Wimbledon-Sheffield Wed. 2:1
1. deild
Arsenal-Chelsea 3:2
Aston Villa-I.uton 4:0
Everton-Tottenham 3:1
Lecds Utd.-Sheffield Utd. 4:3
Oldham-Southampton 1:1
Q.P.R.-Nottingham For. 0:2
Sheffield Wed.-Crystal Palace 4:1
Wcst Ham-Coventry 0:1
Wimbledon-Norwich 3:1
Manchester Utd.-Liverpool 0:0
Notts County-Manchester City 1:3
2. deild
Tranmere-Southend 1:1
Bristol Rovers-Middlesbrough 2:1
Derby-Bristol City 4:1
Ipswich-Oxford 2:1
Lcicester-Charlton 0:2
Millwall-BIackburn 1:3
Plymouth-Swindon 0:4
Port Vale-Cambridge 1:0
Portsmouth-Ncwcastle 3:1
Sunderland-Brighton 4:2
W'atford-Grimsby 2:0
Wolves-Barnsley 1:2
komast í meistaraform að nýju
eftir siaka byrjun.
■ Leeds Utd., sem tapaði sínum
fyrsta leik í deldinni í síðustu
viku, virtist ætla að bursta ná-
granna sína Sheffield Utd. í leik
liðanna á Elland Road og yfir-
spilaði gestina í 47 mín. Steve
Hodge skoraði fyrsta og síðasta
mark Leeds Utd. sem komst í 4-1
snemma í síðari hálfleiknum.
Milli markanna hjá Hodge komu
tvö mörk sem leikmenn botnliðs-
ins voru ekki ánægðir með, en
annar línuvörðurinn lagði grunn
að. Fyrst dæmdi hann hendi á
markvörð Sheffield, Phil Kite
sem var að sparka frá marki og
fór örlítið útfyrir vítateig. Mel
Sterland skoraði beint úr auka-
spyrnunni fyrir Leeds Utd., en
boltinn breytti um stefnu af varn-
armanni. Síðan braut Ian Bryson
á Tony Dorigo bakverði Leeds
Utd. rétt á vítateigslínu, dómar-
inn ráðfærði sig við línuvörðinn
sem taldi brotið hafa verið innan-
við og Sterling skoraði af öryggi
úr vítaspyrnunni. En eftir síðara
mark Hodge vaknaði Sheffield-
liðið til lífsins, en það var aðeins
of seint og mörk frá Jamie Hoy-
land, Tony Agana og Carl Brad-
shaw náðu ekki að færa liðinu
stig og það er því áfram í neðsta
sætinu, en Leeds Utd. í öðru
sæti.
■ En hinu Sheffield-liðinu,
Wed. gekk mun betur um helgina
og er nú í toppbaráttu eftir góðan
4-1 heimasigur á Crystal Palace
þar sem David Hirst í sínum
fyrsta leik eftir meiðsl skoraði tvö
mörk rétt fyrir hlé, þegar Palace
virtist hafa náð undirtökunum í
Hér kljást þeir Mark Hughes, Man. Utd., og Gary Ablett, Liverpool, en þeir
voru báðir reknir útaf í markalausum leik liðanna á sunnudag.
Man. Utd. náði aðeins
jafntefli gegn Iiverpool
Þá hafa Englendingar hafíð
beinar útsendingar hjá sér að
nýju á sunnudögum og fyrsti
sjónvarpsleikur þeirra á þessu
tímabili var leikur stórliða
Manchester Utd. og Liverpool
á Old Trafford. A sunnudag
léku einnig Notts County og
Manchester City.
■ Man Utd. efsta lið 1. deildar
náði aðeins markalausu jafntefli
á heimavelli gegn Liverpool í leik
þar sem tveir leikmenn voru
reknir útaf. Eftir slakan fyrri
hálfleik þar sem taugaspennan
var allsráðandi tók við spennandi
síðari hálfleikur. Gary Ablett
Liverpool fékk reisupassann fyrir
brot á Andrej Kantchelkis,
en hafði áður fengið gult spjald
fyrir brot á Clayton Blackmore.
Utd. liðið var þó ekki lengi
manni yfir þvf skömmu síðar var
Mark Hughes vikið af velli fyrir
að gera sig líklegan til að skalla
David Burrows og Utd. missti
síðan Mike Phelan út af rifbeins-
brotinn. Þetta var því ekki þeirra
dagur, en liðið er þó enn ósigrað
í 1. deild. Fyrirliði Utd. Bryan
Robson dreif lið sitt áfram í
leiknum og þrátt fyrir að Burr-
ows fylgdi honum eftir sem
skuggi átti hann þó besta mark-
tækifæri leiksins, en markvörður
Liverpool Mike Hooper varði
mjög vel frá honum. Robson var
valinn maður leiksins og með
landsliðseinvaldinn Graharn
Taylor meðal áhorfenda er ekki
ólíklegt að hann hafi spilað sig
inn í enska landsliðið að nýju.
■ Manchester City vann góðan
sigur á útivelli 3:1, gegn nýliðum
Notts County þar sem meira
gerðist á fyrstu 5 mín. síðari liálf-
leiks en í öllum fyrri hálfleiknum.
Tommy Johnson komst einn inn-
fyrir eftir sendingu frá Kevin
Bartlett, lék á Tony Cotton í
marki City, en Steve Redmond
komst fyrir skot Johnson og
bjargaði á línu fyrir City. Rétt á
eftir náði Notts County þó verð-
skuldað forystu með góðu skoti
Dean Thomas frá vítateig, en
nær strax á eftir jafnaði City eftir
að tveim varnarmönnum County
hafði mistekist að hreinsa frá eft-
ir hornspyrnu og Mike Sheron
skoraði í sínum fyrsta leik fyrir
City af stuttu færi. City fékk síð-
an vítaspyrnu er dæmd var hendi
á Thomas, en Steve Cherry
markvörður County varði vel
tekna vítaspyrnu Mark Brennan.
City náði þó loksins að komast
yfir er 20 mín. voru til leiksloka,
Thomas varði með höndum á
marklínu, var rekinn útaf og úr
vítaspyrnunni skoraði gamla
kempan Clive Allen. Aðeins 2
mín. síðar bætti Allen öðru
rnarki við og gulltryggði þar með
sigur City í leiknum, en sigurinn
var þó mun stærri en sanngjarnt
var. Þ.L.A.
var besti maður Leeds Utd.
leiknum. Hirst gerði mörkin eftir
sendingar frá Carlton Palmer og
Roland Nilsson, en Nigel Worth-
ington hafði náð forystu fyrir
Sheff. Wed. á 7. mín. eftir frá-
bæra hælspyrnu Paul Williams.
Þrátt fyrir þessa góðu byrjun náði
Palace tökum á leiknum og eftir
þrumuskot Geoff Thomas sem
Chris Woods í marki Sheff. Wed.
náði ekki að halda kom Mark
Bright aðvífandi og jafnaði fyrir
Palace. Bright fékk síðan gott
tækifæri, en hitti ekki boltann
fyrir opnu marki og fljótlega eftir
það gerði Hirst útum leikinn með
mörkum sínum. Palmer bætti
síðan fjórða marki Sheff. Wed.
við 7 mfn. fyrir leikslok eftir að
Nigel Martyn hafði hálfvarið skot
frá Hirst.
■ Coventry vann sanngjarnan
sigur á útivelli gegn West Ham
sem gengur afleitlega á heima-
velli. Micky Gynn og Stewart
Robson áttu miðjuna hjá Coven-
try, Peter Ndluvo var góður á
kantinum og Peter Billing hélt
saman vörninni. Eina mark leiks-
ins skoraði Kevin Gallacher fyrir
Coventry 12 mín. fyrir leikslok
eftir að Ndluvo hafði þvælt hvern
leikmann West Ham á fætur öðr-
um áður en hann sendi nákvæma
sendingu fyrir sem Gallacher
skallaði í netið. Lið West Ham
olli miklum vonbrigðum í leikn-
um.
■ Everton og Tottenham mætt-
ust í fyrstu beinu sjónvarpsút-
sendingunni á þessu hausti og þar
urðu menn vitni að mjög fjörug-
um fyrri hálfleik þar sem leik-
menn Everton tóku Tottenham í
kennslustund. Vörn Tottenham
réð þá ekkert við hina smávöxnu
sóknarmenn Everton og þeir
Tony Cottee og Robert Warzycha
léku ntjög vel. Cottee skoraði öll
þrjú mörk Everton í leiknum á
fyrsta hálftímanum og átti auk
þess skot í slá. Fyrst eftir send-
ingu Peter Beardsley, síðan úr
vítaspyrnu sem dæmd var á hendi
Gary Mabbutt og að lokum eftir
góðan undirbúning Warzycha.
Gary Lineker náði að jafna fyrir
Tottenham 1:1 með góðu skalla-
marki 3 mín. eftir að Cottee
hafði náð forystunni og í síðari
hálfleik sleppti dómarinn marki
sent Paul Stewart gerði með
skalla, en John Ebbrell náði bolt-
anum rétt innan marklínu og
þrumaði frá. Sigur Everton var
fyllilega sanngjarn og Tottenham
liðið með Guðna Bergsson inn-
anborðs virkaði þreytt eftir Evr-
ópuleikinn í vikunni.
■ Oldham og Southampton
gerðu 1:1 jafntefli þar sem Alan
Shearer náði forystu fyrir Sout-
hampton eftir hálftíma leik með
hálfgerðu útsölumarki. Nýliðar
Oldham gáfust þó ekki upp og
Nick Henry náði að jafna á 67.
mín. Minnstu munaði síðan að
Ian Marshall skoraði sigurmark
Oldham undir lokin, en hvorugt
liðið verðskuldaði öll þrjú stigin
úr leiknum og jafnteflið því
réttlátt.
■ Aðeins 3.500 áhorfendur sáu
leik Wimbledon gegn Norwich í
úrheilis rigningu og þeir fóru
blautir, en þó ánægðir heim því
Wimbledon sigraði 3:1. Scott
Fitzgerald kom Wimbledon yfir í
fyrri hálfleik, en Darren Beck-
ford jafnaði fyrir Norwich á 68.
mín. með sínu fyrsta marki fyrir
félagið frá því hann kom frá Port
Vale. En síðan gerði Wimbledon
út um leikinn með tveim mörkum
á 3 mín. sem þeir John Fashanu
og Andy Clarke skoruðu.
■ Aston Villa vann auðveldan
4:0 sigur á Luton eftir að hafa
haft aðeins 1:0 yfir í hálfleik með
marki Kevin Richardson strax á
5. mín. Leikmönnum liðsins
gekk illa að fylgja þessu eftir og
það var ekki fyrr en mín. eftir hlé
að Cyrille Regis bætti öðru marki
við. Dwight Yorke og Paul
Mortimer bættu síðan tveim
mörkum við fyrir Villa, en Phil
Gray misnotaði vítaspyrnu fyrir
Luton á 65. mín. og liðið nálgast
nú botn deildarinnar.
■ Nottingham For. vann góðan
sigur á útivelli gegn Q.P.R. í
Lundúnum 2:0. Það var Teddy
Sheringham sem Forest keypti
frá Millwall í sumar sem skoraði
bæði mörkin, sitt í hvorum hálf-
leik. Lið Q.P.R. er eitt þeirra
liða sem gæti lent í alvarlegri fall-
baráttu í vetur.
2. deild
■ Efsta liðið Middlesbrough
tapaði fyrir Bristol Rovers sem
var í neðsta sæti, Steve Yates
gerði sjálfsmark og kom þar með
Middlesbrough yfir, en þeir
Andy Reece og Geoff Twenty-
man komu síðan boltanum í rétt
mark.
■ Ipswich í öðru sæti vann
Oxford 2:1 .neð mörkum Simon
Milton og Steve Whitton.
■ Duncan Shearer skoraði öll
fjögur mörk Swindon gegn Ply-
mouth.
■ David Rush skoraði tvö og
þeir Gordon Armstrong og Peter
Beadle sitt markið hvor fyrir
Sunderland gegn Brighton.
■ Paul Cook náði forystunni fyr-
ir Wolves gegn Barnsley, en það
dugði skammt og Barnsley sigr-
aði 2:1. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Manchester Utd. 118-3-0 18:3 27
Leeds Utd. 12 6-5-1 20:10 23
Arsenal 11 6-2-3 26:17 20
Sheffield Wed. 12 6-24 21:14 20
Coventry 12 6-2-4 15:10 20
Manchester City 12 6-1-5 15:15 19
Chelsea 12 4-5-3 21:18 17
W'imbledon 12 5-2-5 21:19 17
Crystal Palace 11 5-24 20:23 17
Nottingham For. 11 5-1-5 21:17 16
Everton 12 4-4-4 19:15 16
Tottenham 9 5-1-3 17:14 16
Liverpool 10 4-4-2 11:816
Aston Villa 12 4-3-5 16:14 15
Norwich 12 3-6-3 15:17 15
Notts County 12 4-3-5 15:19 15
Oldham 11 4-2-5 17:17 14
West Ham 12 2-5-5 12:16 11
QPR 121-6-510:19 9
Southampton 12 2-3-710:21 9
Luton 12 2-3-7 6:27 9
Sheffield Utd. 121-3-814:26 6
2. deild
Middlesbrough 12 8-1-3 19:10 25
Ipswich 11 7-2-2 20:16 23
Swindon 10 6-2-2 25:13 20
Cambridge 10 6-1-3 19:14 19
Portsmouth 10 5-3-2 12:818
Wolves 10 5-2-3 17:13 17
Charlton 10 5-2-3 15:12 17
Derby 11 44-3 16:12 16
Leicester 10 5-14 13:15 16
Tranmere 10 3-6-116:13 15
Blackbum 10 4-3-3 10:915
Southend 10 4-3-3 10:915
Sunderland 114-2-5 21:19 14
Brighton 11 4-2-5 17:19 14
Grimsby 10 3-2-5 16:18 14
Watford 10 4-1-5 13:13 13
Port Vale 12 34-5 10:13 13
Bristol City 12 34-4 14:19 13
Millwall 10 3-2-5 17:17 11
Barnsley 12 3-2-7 11:2011
Bristol Rovers 10 2-2-613:19 8
Plymouth 10 2-2-612:21 8
Oxford 10 2-1-7 13:19 7
Newcastle 111-4-615:23 7