Dagur - 08.10.1991, Qupperneq 11
Leiklist
„Verkið einkcnnist af námd. Fegurð þess felst framar öðru í mannlegum samskiptum, þar sem kafað er af umtals-
verðri næmni og innileika í sálarlíf persónanna og samband þeirra‘% segir greinarhöfundur m.a.
Stálblóm
Leikfélag Akureyrar: „Steel Magnolias"
eftir Robcrt Harling í íslenskri þýðingu
Signýjar Pálsdóttur, leikhússtjóra.
Leikstjóri: Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Lcikniynd og búningar: Karl Aspelund,
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Sögusvið leikritsins Stálblóm eft-
ir Robert Harling er í bænum
Chinquapin í Louisiana í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna. Verkið
fjallar um líf sex kvenna, sem
annars vegar starfa á hárgreiðslu-
stofu og hins vegar eru viðskipta-
vinir fyrirtækisins en eru jafn-
framt vinkonur, sem deila og
hafa deilt áhyggjum sínum, sorg-
um og gleði.
Verkið einkennist af námd.
Fegurð þess felst framar öðru í
mannlegum samskiptum, þar
sem kafað er af umtalsverðri
næmni og innileika í sálarlíf per-
sónanna og samband þeirra.
Umfjöllun höfundar nær dýpt í
því hve ólíkar konurnar sex eru
og hver jöfnuður er á milli þeirra
í ferli leikritsins. Áhorfendur
kynnast þeim öllum. Sérkenni
hverrar fyrir sig verða ljós og upp
í hugann koma hliðstæður úr
umgengnishóp hvers og eins.
Það er óhjákvæmilegt, að
verkið skilji eftir nokkur spor í
huga áhorfenda. Það vekur til
umhugsunar og sjálfsskoðunar, og
er skrifað af þeirrí kúnst hins
góða leikritasmiðs, að það vekur
kátínu, kemur við auma bletti og
lætur ekki ógetið þeirra sorgar-
stunda, sem óhjákvæmilega
koma í líf hvers manns.
Hinir sammannlegu þættir í
Stálblómi hefja verkið yfir stað
og stund. Þó að þess gæti víða,
hvert svið þess er frá hendi
höfundar, á efni þess við jafnt hér
á landi sem í Bandaríkjunum.
Þar hjálpar til lipur þýðing Sign-
ýjar Pálsdóttur, leikhússtjóra.
Texti hennar lætur vel í munni
leikaranna og kemur skilmerki-
lega til skila gangi verksins og
sérkennum persónanna.
Hanna María Karlsdóttir fer
með hlutverk Truvy Jones, sem
er eigandi hárgreiðslu- og snyrti-
stofunnar, sem er vettvangur
verksins. Hanna María fór held-
ur stirðlega af stað í hlutverki
sínu og virtist skorta samsömun
nokkuð langt fram eftir fyrsta
hluta verksins. Þegar á leið fann
hún sig sífellt betur í persónu
Truvyar og átti sterk atriði ekki
síst í framanverðum síðasta
þætti.
Þórdís Arnljótsdóttir leikur
Annellu Dupuy-Desoto, unga
hárgreiðslu- og snyrtidömu, sem
ræðst til starfa hjá Truvy Jones.
Annella gengur í gegnum miklar
breytingar á þeim árum, sem fer-
ill leikritsins nær yfir. Leit hennar
að fótfestu í tilverunni er rakin
skemmtilega og kemst líflega til
skila í túlkun Þórdísar á persón-
unni. Þó hefði mátt að skaðlausu
gæta nokkuð meiri hófsemi í leik
og látbragði ekki síst framan af.
Klara Belcher, ekkja fyrrver-
andi bæjarstjóra, er leikin af
Bryndísi Pétursdóttur. Fáar stór-
ar sveiflur eru í túlkun þessarar
persónu, enda má segja, að ekki
gefist mikið tilefni til af hendi
höfundar, en Bryndísi tekst að
gæða hana lífi og gera hana að
jafnaði sannferðuga.
Vilborg Halldórsdóttir fer með
hlutverk Shelby Eatenton-Latch-
erie, ungrar stúlku, sein höfund-
ur kallar „sætustu stelpuna í
bænum“ og gefur með því vís-
bendingu um það viðhorf, sem
Shelby hefur haft til sjálfrar sín.
Vilborg nær að jafnaði góðum
tökum á persónunni og á nokkur
afar sterk atriði í túlkun sinni.
Mary Lynn Eatenton, móðir
Shelbyar, er leikin af Þóreyju
Aðalsteinsdóttur. Þetta er marg-
slungnasta hlutverkið í verkinu
og gerir verulegar kröfur til sálar-
köfunar og innileika sem og
breiddar í túlkun. Þórey nær
almennt nokkuð góðum tökum á
persónunni, en fyrir kemur, að
gætir líkt og firðar í túlkun
hennar, sem spillir nokkuð heild-
armyndinni.
Sunna Borg leikur Louisu
Boudreaux, auðuga nöldur-
skjóðu, sem hefur þó hjartað á
réttum stað þrátt fyrir hrjúft yfir-
borð. Sunna gerir persónunni
góð skil og er iðulega innilega
spaugileg jafnt í fasi sem
framsögn.
Eini karlmaðurinn, sem við
Sunnudaginn 6. október sl. var
dregið í happdrætti Norður-
landsdeildar SÁÁ. Eftirfar-
andi númer hlutu vinning:
1. vinningur, húsbúnaður fyrir
300.000 kr. frá Vörubæ, kom á
miða nr. 702.
2. -4. 100.000 kr. heimilistækja-
vinningar frá Kaupfélagi Eyfirð-
inga komu á miða nr. 3557 - 3746
- 4959.
5.-8. 50.000 kr. heimilistækja-
vinningar frá Kaupfélagi Eyfirð-
inga komu á miða nr. 31 - 6333 -
6531 - 7020.
sögu kemur í Stálblómi er plötu-
snúðurinn, sem einungis heyrist í
útvarpi og er í höndum Jóns Stef-
áns Kristjánssonar. Jóni Stefáni
tekst því miður ekki að ná réttum
blæ í plötukynningum sínum eða
tilkynningalestri. Hann skortir
léttleika og það raddflæði, sem
við á.
Leikstjóri uppsetningar Leik-
félags Ákureyrar á Stálblómi,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
hefur unnið verk sitt af kost-
gæfni, og skapað í heild líflega og
grípandi sýningu, sem sjaldan
ber skugga á. Þó hefði hún mátt
liðka nokkrar heldur vandræða-
legar stöður ekki síst framarlega í
verkinu og draga úr fáeinum
atriðum, sem eru nokkuð yfir-
drifin og sem næst úr stíl: aðal-
lega í síðasta þætti. Æskilegt
hefði líka verið, að lokahluti
verksins, sem er talsvert lang-
dreginn, hefði verið tekinn öðr-
uin og nokkuð frísklegri tökum.
Leikmynd og búningar Karls
Aspelunds eru mjög við hæfi og
lýsing Ingvars Björnssonar góð.
Stálblóm er fyrsta verkefni
Leikfélags Akurcyrar á þessu
leikári. Ekki verður annað sagt,
en að þessi byrjun lofar góðu um
framhaldið, en á meðal þess, sem
upp á verður boðið á sviði Sam-
komuhússins er Næturgalinn,
gestaleikur frá Þjóðleikhúsinu
byggður á ævintýri H. C. Ander-
sen, sem sýndur verður eftir
miðjan október og er ætlaður
grunnskólanemum, Tjútt og
Tregi, söngleikur eftir Valgeir
Skagfjörð, og íslandsklukkan eft-
ir Halldór Laxness. Leiklistar-
unnendur á Akureyri og víðar
geta greinilega hlakkað til góðs
leikhússárs á þessum vetri.
Haukur Ágústsson.
9.-18. 10.000 kr. matarkörfur
frá Kaupfélagi Eyfirðinga komu
á miða nr. 697 - 899 - 1197 - 2438
- 2923 - 3239 - 3789 - 4518 - 4712
- 7021.
19.-38. 5.000 kr. matarkörfur
frá Kaupfélagi Eyfirðinga komu
á miða nr. 454 - 733 - 773 - 1052 -
2930 - 3790 - 4369 - 4705 - 4711 -
5205 - 5206 - 5709 - 5718 - 5800 -
6189 - 6532 - 6997 - 7005 - 7006 -
7228.
Vinninga má vitja á skrifstofu
SÁÁ-N, Glerárgötu 28 2. hæð,
sími 27611.
(Birt án ábyrgðar.)
Happdrætti SÁÁ-N
Þriðjudagur 8. október 1991 - DAGUR - 11
Takiö eftir!
Glæsilegt úrval áklæða og gluggatjaldaefna
á ótrúlegu verði, frá kr. 280,- pr. m.
Svampdýnur í öllum stærðum.
Eggjabakkadýnurnar vinsælu!
Svampur og Bólstrun
Austursíðu 2, sími 96-25137.
Windows—Excel—
Word for Windows
Á næstu vikuin höldum við nám-
skeið í hinum geysivinsælu for-
ritum:
Windows 3.0 (Gluggaforrit)
Excel 3.0 (Töflureiknir)
Word for Windows 1.1 (Ritvinnsla)
Tölvunám —
„Nám sem nýti$t“
Tölvufræðslan Akureyri h£
Glerárgötu 34, III. hæð, Akureyri, súni 96-27899
BRAUÐGERÐ
TlLBÖÐ
Brúnkaka 260
Rúlluterta, hvít 218
Tilboðið stendur frá
2. tilll. okt.