Dagur


Dagur - 11.10.1991, Qupperneq 5

Dagur - 11.10.1991, Qupperneq 5
Föstudagur 11. október 1991 - DAGUR - 5 Myndlist Málverk á Húsavík Föstudaginn 4. október opnaði Ingvar Þorvaldsson sýningu á verkum sínum í Safnahúsinu á Húsavík. Pessi sýning er tuttug- asta og fyrsta einkasýning Ingvars, en hann hefur oft áður sýnt á Húsavík, enda fæddur og uppalinn í bænum. Nú býr hann og starfar í Reykjavík. Á sýningu Ingvars í Safnahús- inu voru fjörutíu og fjögur verk. Þrjátíu og eitt unnið í pastel og tíu vatnslitamyndir. Stíll Ingvars er natúralítískur og voru allar myndirnar á sýningu hans í þeim stíl. Mikill meirihluti myndanna var landslagsmyndir af ýmsu tagi. I mörgum tekur Ingvar til með- ferðar hinar smærri einingar landslagsins, svo sem í mynd númer 9, sem ber heitið Mosi á steini, en í öðrum færir hann sjónsvið sitt út og tekur fyrir meiri víddir, svo sem í mynd númer 40, sem ber heitið Lundey. DC-8 millilandaflugvél eins og bréfritari segir hafa verið í aðflugi yfir Akur- eyrarflugvelli í kringum 1976. Hann vill gjarnan fá upplýsingar um hvort ein- hver hafi tekið mynd af vélinni. Á einhver mynd af DC-8 yfír Akureyrarflugvelli? „Ég er mikill áhugamaður um flugsögu Akureyrar og nú vantar mig upplýsingar frá lesendum. Ég hef fengið það staðfest að DC-8 þota hafi farið í aðflug yfir Akureyrarflugvelli í kringum árið 1976. Hún mun hafa komið þrisvar en ekki lent. Vélin var að koma með KFUM drengi frá Suðurnesjum. Mig langar að koma með þá fyrirspurn hvort einhver hafi tekið mynd af þess- ari flugvél þegar hún var hér í aðflugi. Ef svo er þætti mér vænt um ef viðkomandi vildi hringja í mig í síma 27098 (heima) eða 24162 (Minjasafnið).“ Hörður Geirsson SUF ogÆFAB mótmæla álagningu skólagjalda: Blaut tuska í andlit námsmanna Samband ungra framsóknar- manna og Æskulýðsfylking Al- þýðubandalagsins mótmæla harðlega fyrirætlun ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar varðandi álagningu skólagjalda á námsmenn. Með upptöku skóla- gjalda er vikið frá fyrri grundvall- arstefnu í menntamálum þ.e. að fólk í þessu landi skuli hafa jafn- an rétt til náms. Ríkisstjórnin má ekki komast upp með að skerða námsmöguleika efnalítilla námsmanna. SUF og ÆFAB hvetja ungt fólk og námsmenn til að taka höndum saman og skera upp herör gegn slíkum áformum ríkisstjórnarinnar. SUF og ÆFAB harma að Sam- band ungra jafnaðarmanna þorði ekki eða gat ekki treyst sér til að standa að sameiginlegri ályktun æskulýðshreyfinga stjórnmála- flokkanna gegn álagningu skóla- gjalda á námsmenn. Samband ungra sjálfstæðismanna sá sér heldur ekki fært að standa að ályktuninni, þar sem SUS álykt- aði á þingi sínu á ísafirði fyrir skömmu að taka bæri upp „hóf- legt“ árgjald í framhaldsskólum, t.d. allt að 25.000 krónum í Háskóla íslands. SUF og ÆFAB lýsa furðu sinni á því að æsku- lýðssamtök eins og SUS skuli með slíkum hætti ganga til liðs við þau öfl sem veitast að nánts- mönnum. Nær væri að æskulýðs- samtök gættu hagsmuna ungs fólks og námsmanna í stað þess að slá þá með blautri tusku. Vinnubrögð Ingvars einkenn- ast af vandvirkni og mikilli tryggð við viðfangsefnið. Víða tekst honum að gæða myndirnar um- talsverðri dulúð og skemmtilegu lífi og stemmningu. Til þessa má nefna myndir númer 1, Njarðvík- urskriður, númer 2, í Borgarfirði eystri, og númer 3, á Möðru- dalsöræfum. Allar þessar myndir eru unnar í pastel, en á tækni þess miðils virðist Ingvar hafa gott vald. Ein athyglisverðasta myndin í þessum flokki er mynd númer 22, Áning, en í henni túlk- ar Ingvar á allgrípandi hátt ein- manaleika ferðalanganna og smæð í víddum óbyggðanna. Því miður lenda nokkrar past- elmynda Ingvars handan þeirra rnarka, sem skilja á milli list- rænnar túlkunar og glansmyndar- innar. Hér má nefna til dæmis myndir númer 21, Við Laxá, og númer 23, Við Litluá. í þessum myndurn - og nokkrum öðrum - verður áferð og meðferð mynd- efnis nálega skerandi; hörð og óþægileg. Vatnslitamyndir Ingvars eru - ekki síður en pastelmyndir hans - unnar af mikilli nákvæmni og hafa margar miklu fremur áferð olíuverka eða pastelmynda, en eiginlegra vatnslitamynda. í þeim er lítið nýtt það flæði, sem getur gefið vatnsiitnum víddir og líf. Sú vatnslitamyndanna, sem mesta athygli vakti og sem best nýtir eigindir miðilsins, er mynd númer 40, Lundey, en í henni nær Ingvar allvel móskublandinni heiðríkju fagurs haustdags. Sýning Ingvars Þorvaldssonar í Safnahúsinu á Húsavík stóð ekki nema þrjá daga, en henni lauk sunnudaginn 6. október. Haukur Ágústsson. Útvegsmenn Norðurlandi Áður boðaður aðalfundur Útvegsmannafélags Norðurlands, er varð að fresta vegna veðurs, verður haldinn að Hótel KEA, mánudaginn 14. október nk. kl. 14.00. Félagar fjölmennið. Stjórnin. 25% kynningarafsláttur af British Knights vörum og Tula leðurveskjum ÍCv, ^ Okt* opið mánud.-föstud. frá kl. 10.00- tískuhúsið Skipagötu 1 18.00, laugard. 10.00-12.00. Sími 24396 Appelsínubiti 294 Kryddbrauð 233 Tilboðið stendur frá 9. til 17. okt. 1 KEA ! BRAUÐGERÐ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.