Dagur - 11.10.1991, Page 9
Föstudagur 11. október 1991 - DAGUR - 9
í fímmtugsafmæli Rafns Sveinssonar var að sjálfsögðu tekið lagið. Rafn situr við troinmusettið en með honum á
myndinni eru, f.v. Árni Þorvaldsson, Pálmi Stcfánsson, Grétar Ingvarsson, Birgir Marinósson og Reynir Schiöth.
1439 böll segja sína sögu:
litíð víð hjá
Rabba Sveins fiimntugum
„Við skulum gera okkur daga-
mun. Ekki vissi ég að ég ætti
svo marga vini sem raun ber
vitni. Þið eruð hjartanlega
velkomin og það yljar um
hjartaræturnar að sjá ykkur
öll,“ sagði Rafn Sveinsson,
tónlistar- og bankamaður, er
hann ávarpaði gesti er hann
varð fimmtugur fyrir
skemmstu.
Síðastliðið föstudagskvöld var
hópur manna og kvenna saman-
komin til að fagna með afmælis-
barninu. Guðaveigar voru í glös-
um og veisluborð mikið. Ekki
aðeins var verið að fagna fimm-
tugsafmæli heldur einnig þrjátíu
ára ferli hljómlistarmanns.
í þrjátíu ár hefur Rafn setið og
slegið húðir í ýmsum danshljóm-
sveitum. Svo skemmtilega vill til
að afmælisbarnið hefur haldið
dagbók yfir öll þau böll er hann
hefur leikið á og með hverjum.
1439 böll segja sína sögu. Rabbi
hefur verið liðtækur. Hljómsveit-
irnar eru margar. Hver kannast
ekki við Hljómsveit Birgis
Marinóssonar, Comet, Astró,
Laxa, Úthljóð, Casablanca og nú
>SSSP
Fjölmargir góðir gestir litu við í
afmæli Rafns og hér brosa blítt þeir
Þórarinn B. Jónsson og Bjarni
Jónasson.
síðast Tríó Rabba Sveins.
„Ég hóf að spila fyrir dansi um
áramótin 1959/1960 með Árna
Ingimundarsyni og Ingva Rafni
Jóhannssyni. Haustið 1961 varég
kominn í fyrstu hljómsveitina.
Það var Hljómsveit Birgis
Marinóssonar. Við lékum á 61
balli á 10 mánuðum. Síðan hefur
boltinn rúllað og ég er enn að.
Hljómsveitirnar eru orðnar
margar sem og félagarnir. Lengst
hef ég spilað með Grétari Ingvars-
syni þ.e. á 926 böllum. Fleiri hafa
komið við sögu svo sem Gunnar
Tryggvason á 588 böllum, Kiddi
Palli á 326 böllum, Þórarinn
Magnússon á 321 balli og Ingimar
Eydal á 169 böllum. Já, ferillinn
er orðinn langur og ég er enn að.
í byrjun árs stofnaði ég Tríó
Rabba Sveins og nú er að sjá
hvað ég endist," sagði tónlistar-
maðurinn síungi og settist við
trommurnar um leið og gömlu
félagarnir sendu létta sveiflu út í
kvöldhúmið. ój
l/ÍN t/ið HRRFNROIEi
í Vín
Glæsilegt
kaffihlaðborð
um helgina
☆☆☆
Angórukanínur
Kynning á vinnslu angóruullar frá klippingu til
fullunnins bands eða flíkur.
Velkomin í Vín
Sími
31333
Afmælisbarnið ásanit konu sinni Kristínu Jónsdóttur.
Myndir: oj
BÓNUSSKÓR
Loðfóðraðir kuldaskór barna.
Svarf, brúnf, rauff, bláff leður
og svarf rúskinn.
Sfærðir 28-38. Verð kr. 2*490
Loðfóðraðir kuldaskór.
Svarf leður og svarf rúskinn.
Sfærðir 36-41. Verð kr. 2.990
ur, hvíff leður.
Sfærðir 35-41. Verð kr. 990
Mokkasínur, svarf leður.
Sfærðir 41-46. Verð kr. 990
Beinn innflufningur - lægra verð
SKÓHÚSIÐ
Verslunarmiðstöðinni Kaupangi, simi 27019
Félagsstarf aldraðra
og Borgarbíó auglýsa
Kvikmyndin
Börn náttúrunnar
verður sýnd á sérsýningu fyrir eldri
borgara laugardaginn 12. okt. nk.
kl. 16.00 í Borgarbíó. Miðaverð kr.
550,00.
Mannlif
AKUREYRARBÆR