Dagur - 11.10.1991, Blaðsíða 13
r
Landsgildisstjóm St. Georgsgilda
Eins og greint var frá í Degi sl.
laugardag færöi Landsgildisþing
St. Georgsgilda á fslandi Banda-
lagi íslenskra skáta 100.000 krón-
ur að gjöf til foringjaþjálfunar
fyrir skemmstu.
St. Georgsgildin á íslandi eru
alþjóðlegur félagsskapur eldri
skáta og velunnara skátahreyf-
ingarinnar, sem hefur það m.a.
að markmiði að styðja við bakið
á skátahreyfingunni. Gildin eru
fimm talsins, eitt á Akureyri, tvö
í Reykjavík, eitt í Hafnarfirði og
eitt í Keflavík.
Á landsþinginu, sem haldið var
O.A. Samtökin.
Fundir alla mánudaga kl. 20.30 í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Kristniboöshúsið Zíon.
Kristniboðsfélag kvenna heldur
fund ( Zíon laugardaginn 12. okt.
kl. 15. Vilborg Jóhannesdóttir segir
frá heimsókn sinni til kristniboð-
anna Ragnars og Guðlaugar. Komið
og fylgist með störfum kristniboð-
anna. Allar konur hjartanlega vel-
komnar.
Stjórnin.
Akureyrarprestakall:
Sunnudagaskóli Akur-
eyrarkirkju verður nk.
sunnudag kl. 11.
Nýtt og skemmtilegt efni.
Öll börn, foreldrar og aðrir, vel-
komin.
Messað verður í Akureyrarkirkju
nk. sunnudag kl. 14. Sálmar: 23 -
345 - 191 - 52 - 529. Tökum þátt í
safnaðaruppbyggingu með öflugri
kirkjusókn.
B.S.
Biblíulestur undir handleiðslu
Björgvins Jörgenssonar verður í
Safnaðarheimilinu nk. mánudags-
kvöld kl. 20.30.
Fundur verður í Æskulýðsfélagi
Akureyrarkirkju nk. sunnudag kl.
17 í Safnaðarheimilinu. Rætt um
vetrarstarfið. Allt ungt fólk velkom-
ið.
Glerárprestakall.
Kirkjuskólinn í Glerárkirkju laugar-
daginn kl. 11. f.h.
Biblíulestur sama dag kl. 13.
Guðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Húsavíkurkirkja.
Sunnudagaskóli Húsavíkurkirkju
tekur til starfa sunnudaginn 13. okt.
kl. 11.
Guðrún Aðalsteinsdóttir annast
tónlistarflutning.
Fræðsla, söngur, framhaldssaga.
Sóknarnefnd.
Áheit á Akureyrarkirkju kr. 10.000
frá E.S.
Innilegustu þakkir.
Birgir Snæbjörnsson.
Samkomur
Laugardagur 12. okt.: Fundur fyrir
6-12 ára krakka kl. 13.30. Biblíu-
sögur og söngur, allir Ástirningar
sérstaklega velkomnir. Unglinga-
fundur sama dag kl. 20.00 fyrir 13-
16 ára unglinga.
Sunnudagur 13. okt.: Sunnudaga-
skóli í Lundarskóla kl. 13.30. Allir
krakkar velkomnir. Almenn sam-
koma á Sjónarhæð kl. 17.00. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
yw Hjálpræðisherinn.
Föstud. 11. október kl.
20.30: Æskulýður.
Sunnud. 13. október kl.
11.00: Helgunarsamkoma.
Kl. 13.30: Sunnudagaskóli.
Kl. 19.30: Bæn.
Kl. 20.00: Samkoma.
Mánud. 14. október kl. 16.00:
Heimilasamband.
Miðvikud. 16. október kl. 17.00:
Fundur fyrir 7-12 ára.
Kl. 20.30: Hjálparflokkur.
Fimmtud. 17. október kl. 20.30:
Biblía og bæn.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
KFUM og KFUK,
: Sunnuhlíð.
* Sunnudaginn 13. októ-
ber.
Almenn samkoma kl. 20.30. Ræðu-
maður Jón Viðar Guðlaugsson.
Tekið á móti gjöfum til kristniboðs-
íns.
Allir velkomnir.
HVÍTASUtimiRKJAh vöHAHÐSHLÍtí
Föstudaginn 11. okt. kl. 20.30: Bæn
og lofgjörð.
Laugardaginn 12. okt. kl. 21.00:
Unglingasamkoma.
Sunnudaginn 13. okt. kl. 13.30:
Barnakirkja (sunnudagaskóli), öll
börn velkomin.
Sama dag kl. 15.30: Vakningarsam-
korna, konur sjá um stundina.
Allir hjartanlega velkomnir.
í Keflavík, var kosin ný lands-
gildisstjórn og var meðfylgjandi
mynd tekin við það tækifæri.
Stjórnina skipa, talið frá
vinstri: Jón Bergsson, Hafnar-
firði; Hilmar Bjartmarz, Garða-
bæ; Aðalgeir Pálsson, Akureyri;
Hörður Zophaníasson, Hafnar-
firði, varalandsgildismeistari;
Sonja Kristensen, Keflavík, rit-
ari; og Garðar Fenger, Reykja-
vík, gjaldkeri. Fremst situr
Áslaug Friðriksdóttir, Reykja-
vík, en hún er landsgildismeist-
ari.
Akureyri:
Karaoke í
Sjallanum
Á síðustu árum hefur verið að
ryðja sér til rúms á skemmti-
og veitingahúsum svokallaðar
Karaoke söngtölvur. Tölvan
virkar þannig að lög eru spiluð
af geisladiskum í þar til gerð-,
um geislaspilara en enginn
söngur heyrist nema bakradd-
ir. Eiga gestirnir að fylla í
skarðið og syngja aðalröddina.
Textinn í laginu birtist á sjón-
varpsskjá fyrir framan söngvar-
ann og litast um leið og hann skal
sunginn. Einn til þrír söngvarar
geta sungið í einu.
Sjallinn hefur nú fest kaup á
einni slíkri tölvu og gefst nú
Sjalla- og Kjallaragestum kostur
á að reyna sig í söngnum fyrir
framan áhorfendur. Um 700 lög
eru á lagalistanum og flestar teg-
undir tónlistar, allt frá sveitatón-
list til rokks. Þá er einnig að finna
mikið úrval af ballöðum.
í kvöld verður nýja Karaoke
tölvan vígð og eru menn hvattir
til að dusta rykið af raddböndun-
um og leyfa öðrum að njóta söng-
hæfileikanna. Hver veit nema eitt
lag í Karaoke söngtölvunni sé
lykillinn að frekari frama?
Akureyri:
Kafflhlaðborð í
Hamri á smmudag
Knattspyrnukonur í meistara-
flokki Þórs verða með kaffihlað-
borð í Hamri á sunnudaginn
kemur frá kl. 15.00.
Petta er fyrsta kaffihlaðborð
vetrarins og eru allir Þórsarar og
aðrir velunnarar félagsins hvattir
til þess að líta við í spjall og gæða
sér um leið á kaffi og gómsætum
tertum fyrir aðeins kr. 500.-.
Föstudagur 11. október 1991 - DAGUR - 13
vantar
í rækjuvinnslu Geflu hf. á Kópaskeri.
Upplýsingar í síma 96-52142 eða 96-52136.
AKUREYRARBzER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 14. október 1991, kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Jón Kr. Sólnes og Jakob Björns-
son til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geisla-
götu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Kynnum ARIEL
þvottaefni
laugardag
Kynningarverð
Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-20.
Laugardaga og sunnudaga kl. 10-20.
KEA Byggðavegi
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Faxaborg 5, hesthús Akureyri, tal-
inn eigandi Björn Þorsteinsson, fer
fram á eigninni sjáifri miðvikudaginn
16. október 1991, kl. 11.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Grundargata 4 suður endi, Akureyri,
þingl. eigandi Sigurlaug K. Péturs-
dóttir, fer fram á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 16. október 1991, kl.
14.30.
Uppboðsbeiöendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Bæjarsjóður
Akureyrar, Asmundur Jóhannsson
hdl., Ólafur Birgir Árnason hrl. og
Fjárheimtan hf.
Hjailalundur 15a, Akureyri, þingl.
eigandi Hörður Gunnarsson, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn
16. október 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Lokastígur 1, íb. 02.01, Dalvík,
þingl. eigandi Sigríður Guðmunds-
dóttir og Björn Björnsson, fer fram á
eígninni sjálfri miðvikudaginn 16.
október 1991, kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ásgeir Thoroddsen hdl., Veðdeild
Landsbanka Islands og William
Thomas Möller hdl.
Norðurgata 1, Akureyri, þingl. eig-
andi Ingvi Guðmundsson o.fl., fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn
16. október 1991, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Magnús H. Magnússon hdl.,
Sigurmar K. Albertsson hdl. og inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Rimasíða 19, Akureyri, þingl. eig-
andi Tryggvi Pálsson, fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 16.
október 1991, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs og
Gunnar Sólnes hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu