Dagur - 15.11.1991, Síða 1

Dagur - 15.11.1991, Síða 1
Akureyri: Hlutabréíasjóður Norður- lands stofiiaður í gær Þessir þrír leikmenn, Sturla og Gunnar Örlygssynir og Georg Birgisson, sætta sig ekki lengur við Brad Casey sem þjálfara og hafa hætt. Mynd: Goiii Upplausn í herbúðum úrvalsdeildarliði Þórs í körfuknattleik: Þrír lykilmenn hættir - sættu sig ekki við Brad Casey sem þjálfara Þrír leikmenn Þórsliðsins í körfuknattleik hafa ákveðið að hætta að leika með liðinu. Ástæðan er sú að þeir sætta sig ekki lengur við að Brad Casey þjálfi liðið. Mikill taugatitringur hefur verið í herbúðum Þórsara síðustu daga og eftir mikil fundar- höld í gærkvöld, sem stóðu fram á nótt, varð þetta niður- staðan. Stjórn körfuknatt- leiksdeiidarinnar klofnaði í afstöðu sinni og hefur Helgi Sigurðsson, formaður henn- ar, ákveðið að segja sig úr stjórninni. Leikmennirnir sem hér um ræðir eru bræðurnir Sturla og Gunnar Örlygssynir og Georg Birgisson. Upp úr sauð þegar Gunnar lenti í orðasennu við Casey á æfingu á mánudags- kvöldið og lauk henni með því að þeir bræður fóru af æfing- unni. Aðalstjórn Þórs greip inn í málið í gær og stóðu fundahöid yfir fram á nótt. Voru ýmsir möguleikar ræddir, m.a. sá að Brad Casey tæki við þjálfun yngri flokka og Joe Harge við meistaraflokki. Sjá nánar á bls. 10. JHB Beint flug frá Akureyri til Dyflinnar, Edinborgar og Glasgow: ferðum - 21 milljón króna í fargjöld auk 49 milljóna króna eyðslu miðað við 50 þúsund krónur á mann Hlutabréfasjóður Norðurlands hf. var stofnaður á Akureyri í gær. Alls eru stofnfélagar 72 talsins og er stofnhlutafé rúm- ar 6,2 milljónir króna. Fram kom á fundinum í gær að undirtektir einstaklinga á síð- ustu dögum við stofnun sjóðs- ins hafa verið mjög góðar. Eins og segir í samþykktum fyrir Hlutabréfasjóð Norðurlands er tilgangur hans að skapa farveg fyrir samvinnu einstaklinga og lögaðila um að fjárfesta í áhættu- fé og skuldabréfum fyrirtækja. Stefnt er að því að 50-90% af eignum sjóðsins sé að jafnaði bundið í hlutabréfum en 10-50% í skuldabréfum, bankainnistæð- um og sjóði. Ætlunin er að félag- ið fjárfesti sem mest af eignum sínum í hlutabréfum félaga sem starfa á Norðurlandi og eru nú þegar skráð á hlutabréfamarkaði. Sem stendur eru aðeins þrjú hlutafélög á Norðurlandi skráð á hlutabréfamarkaði en það eru Útgerðarfélag Akureyringa, Sæplast á Dalvík og Skagstrend- ingur á Skagaströnd. Jón Hallur Pétursson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélag Akureyringa: Launagreiðslur um 100 milljónuiii krónammni - vegna aflasamdráttar Gert er ráð fyrir að heildar- tekjur Útgerðarfélags Akur- eyringa hf. skerðist á yffir- standandi kvótaári um 350 milljónir króna vegna þeirrar, rniklu kvótaskerðingar sem fyrirtækið hefur orðið fyrir. Þetta kemur fram í viðtali við Gunnar Ragnars, for- stjóra ÚA, í nóvemberblaði ÚA-frétta. Gunnar segir að þessi mikli samdráttur í tekjum félagsins þýði að launagreiðslur verði um 100 milljónum króna minni en ella og hætt sé við að þetta komi m.a. fram í minni yfirvinnu hjá landvcrkafólki og lægri hlut sjómanna. Fram kemur að gert sé ráð fyrir að vinnslu fyrir jól Ijúki um 20. desember og gert er ráð fyrir að skipin láti úr höfn 2. janú- ar. Þannig má ætla að vinnslu- stopp verði í aö minnsta kosti hálfan mánuð. Gert er ráð fyrir að bregðast við þessum samdrætti með því að halda yfirvinnu hjá Útgerð- arfélaginu í lágmarki og á það við um allar deildir þess. Gunnar Ragnars segist þó ekki búast við að til uppsagna starfsfólks komi, en ljóst sé að minna verði um nýráðningar og því kunni starfsfólki að fækka eitthvað. óþh Kaupþings Norðurlands sagðist á stofnfundinum í gær telja að fjölgun muni verða á allra næstu árum á þeim norðlensku fyrir- tækjum sem skrái sig á hluta- bréfamarkað. Stjórn sjóðsins var kosin í gær. Hana skipa Halldór Jónsson, við- skiptafræðingur og bæjarstjóri á Akureyri, Ingi Björnsson, hag- fræðingur og framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri og Róbert B. Agnarsson, viðskiptafræðingur og fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit en hann var kosinn formaður. Varamenn í stjórn eru Lilja Steinþórsdóttir, löggiltur endurskoðandi á Akureyri, Kári Arnór Kárason, hagfræðingur á Húsavík og Árni Magnússon, viðskiptafræðingur á Akureyri. Nú á næstunni mun stjórn sjóðsins ganga til samninga við Kaupþing Norðurlands hf. og Kaupþing hf. um rekstur sjóðsins. Þá verður sótt um sam- þykki ríkisskattstjóra um að kaup á hlutabréfum í sjóðnum verði frádráttarbær frá tekju- skatti. Fram kom á fundinum í gær að áhersla verður lögð á að selja einstaklingum hlutabréf í sjóðnum fram til áramóta en eftir það verður athyglinni beint í meira mæli að sjóðum og fyrir- tækjum. JÓH Ekki er ofsögum sagt að dags- og helgarferðir frá Akureyri til Dyflinnar, Edinborgar og Glasgow hafí slegið í gegn á þessu hausti. Uppselt hefur verið í allar þær þrjár ferðir „Þarna eru lilutir sem þarf að ráða fram úr. Það er spurning hvort farið verður út í máls- höfðun vegna ráðstöfunar á ákveðnum eignum,“ segir Hreinn Pálsson, bústjóri þrotabús Hótel Stefaníu á Akureyri, en fyrsti skiptafund- ur í búinu var sl. miðvikudag. Á skiptafundinum var lögð fram kröfulýsingaskrá og skýrsla bústjóra. Eins og Dagur hefur greint frá eru heildarkröfur í búið röskar 92 milljónir króna, þar af eru almennar kröfur um 64 mill- jónir króna. Hreinn segir ljóst að lítið fáist upp í kröfurnar, enda séu eignir þrotabúsins af skorn- sem þegar hafa verið farnar og sömuleiðis er fullt í helgarferð- ir til Edinborgar um þessa helgi og þá næstu og dagsferð til Dyflinnar næstkomandi mánudag. Þegar upp verður um skammti. Frá 1. ágúst sl. hefur Stefanía hótel rekið Hótel Stefaníu. Hreinn Pálsson segir að lausafé hótelsins, það er að segja lausa- munir á hótelherbergjunum, áhöld í eldhúsi og fleira hafi verið notað af þessum rekstraraðila frá þvf að Hótel Stefanía var lýst gjaldþrota án nokkurs leyfis eða samninga. Á þessu máli þyrfti að taka með einhverjum hætti. „Þarna er um að ræða hluti sem þrotabúið telst eiga,“ sagði Hreinn. Hann sagði einnig að þyrfti að skoða hvernig ráðstöfun greiðslukorta væri háttað. Næsti skiptafundur hefur verið boðaður 28. nóvember nk. óþh staðið hafa um 980 manns farið í þessum sex ferðum frá Akur- eyri til nefndra þriggja borga. Samvinnuferðir Landsýn hafa í tvígang efnt til helgarferða til Dyflinnar á írlandi og fullbókað var í báðar vélarnar, samtals tæp- lega 350 manns. Fullbókað er í dagsferð á vegum Samvinnuferða nk. mánudag til sömu borgar og þar bætast við um 170 manns. Á vegum Ferðaskrifstofu Akureyr- ar var farin dagsferð til Glasgow í Skotlandi með um 155 manns og í dag efnir hún til helgarferðar til Edinborgar í Skotlandi með sama fjölda. Þá er nú þegar upp- selt í samskonar helgarferð til Edinborgar á vegum Ferðaskrif- stofu Akureyrar um næstu helgi. I þá ferð fara einnig um 155 manns. Samtals er farþegafjöldi um 980 manns. Verð á þessum ferðum er mjög mismunandi, dagsferðirnar eru eðlilega töluvert ódýrari en helg- arferðirnar. Eftir því sem næst verður komist hafa þcssir 980 farþegar greitt samtals um 21 milljón króna fyrir feröirnar. Samkvæmt samtölum sem Dagur hefur átt við ferðaþjón- ustufólk og fólk sem farið hefur í þessar ferðir má ætla að veruleg- ur hluti af þessu fólki hafi fyrst og fremst brugðið sér út fyrir land- steinana til þess að gera hagstæð innkaup fyrir jólahátíðina. Hægt er að gera góð innkaup ytra á mörgum vörutegundum og fólk horfir til þess. Hins vegar er vitað aö margir hafa farið út einungis til þess að lyfta sér upp í skamm- deginu og hafa vart komið inn fyrir þröskuldi verslana. Stórkaupmenn hafa haldið því fram að ætla megi að hver ferða- langur í þessum haustferðum kaupi ytra fyrir allt að 100 þús- und krónur. Skiptar skoðanir eru um þessa tölu. Standist hún hins vegar kaupa nefndir 980 farþegar frá Akureyri og nágrenni í þess- um þrem erlendu stórborgum vörur fyrir 98 milljónir króna. Margir telja að nær lagi sé að hver maður fari með 50 þúsund krónur í eyðslu ytra og þá myndu farþegarnir 980 fara með 49 millj- ónir króna. Helmingi lægri tala, 25 þúsund krónur, gefur að sama skapi helmingi lægri heildartölu, eða 24,5 milljónir króna. Þess má geta að flugvallar- skattur er í dag 1250 krónur pr. fullorðinn mann og 625 krónur fyrir barnið. Miðað við að allir í nefndum helgarferðum séu full- orðnir greiða þeir rúma 1,2 millj- ónir króna í flugvallarskatt, sem rennur í ríkissjóð. Þessir fjár- munir renna ekki sjálfkrafa til rekstrar og uppbyggingar Akur- eyrarflugvallar. óþh Fyrsti skiptafundur í þrotabúi Hótel Stefaníu: Spurningamerki sett við ráðstöfun á lausafé

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.